Morgunblaðið - 24.11.2001, Síða 23
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2001 23
KAUPÞING hefur gefið út grein-
ingu á Bakkavör Group vegna
kaupa á Katsouris Fresh Foods. Í
greiningunni er mælt með kaupum
í Bakkavör Group og kemur fram
að greiningardeild Kaupþings tel-
ur að talsvert svigrúm sé til hækk-
unar á gengi félagsins.
Samkvæmt sjóðstreymisspá
greiningardeildar er áætlað virði
hlutafjár í Bakkavör 211 milljónir
evra eða um 20,1 milljarður ís-
lenskra króna. „Samkvæmt kenni-
töluverðmati fæst eilítið hærra
virði eða um 235 milljónir evra eða
22,3 milljarðar króna,“ að því er
segir í greiningu Kaupþings.
Fyrr í vikunni var greint frá
kaupum Bakkavarar á Katsouris
Fresh Foods á 15,6 milljarða
króna. Áætluð velta sameinaðs fé-
lags fyrir árið 2002 er um 20 millj-
arðar króna og starfsmenn eru
1.900 talsins. Hagnaður eftir
skatta er áætlaður 1,4 milljarðar
króna. Í greiningu Kaupþings
kemur fram að við þessi kaup sé
Bakkavör Group orðið eitt áhuga-
verðasta félagið á VÞÍ og er jafn-
framt með þeim stærstu.
„Þrír breskir bankar munu fjár-
magna um helming kaupverðsins
og og styrkir það félagið að mati
greiningardeildar, enda félaginu
tryggð lánsfjármögnun til 7 ára.
Þá verður gefið út breytanlegt
skuldabréf fyrir um 3 milljarða
króna og um 277 milljónir króna í
formi skuldabréfs til seljanda. Út-
gefið hlutafé verður um 4,77 millj-
arðar króna en þar af fara um 1,85
milljarðar króna til seljanda.
Áformað er að selja tæplega 3
milljarða í almennu útboði á Ís-
landi og á Norðurlöndunum.“
Á kynningarfundi um kaupin á
Kasouris Fresh Foods fyrr í vik-
unni kom fram að hlutafjárútboðið
muni fara fram á tímabilinu 3.-12.
desember nk. Nú stendur hins
vegar yfir áhugakönnun og á
grundvelli hennar verður verðbilið
og stærð útboðsins ákveðin.
Kaupþing umsjónaraðili útboðsins
Kaupþing hefur yfirumsjón með
hlutafjárútboðinu en auk þess eru
Búnaðarbanki Íslands og sænska
fjármálafyrirtækið Aragon Fond-
kommission meðumsjónaraðilar.
Að sögn Ármanns Þorvaldsson-
ar, yfirmanns fyrirtækjasviðs
Kaupþings, er það nýjung að
Kaupþing birti greiningu á fyrir-
tæki sem félagið hefur umsjón
með hlutafjárútboði hjá. Þetta sé
gert að erlendri fyrirmynd sem
tíðkast mjög hjá evrópskum fjár-
málafyrirtækjum. Hann segir að á
útboðstímabilinu verði engar
greiningar birtar um Bakkavör af
útboðsaðilum né fyrst eftir að út-
boðinu lýkur.
Ármann segir að útboðið sé ólíkt
öðrum sem Kaupþing hafi komið
að og það sé unnið á svipaðan hátt
og tíðkast erlendis. Þar megi nefna
að útboðið verður með „book-
building“ fyrirkomulagi, þ.e. fag-
fjárfestar lýsa áhuga á að kaupa
ákveðið magn bréfa á skilgreindu
verði. Þetta verður skráð í bók hjá
Kaupþingi á meðan útboðið stend-
ur yfir og staðfestingum safnað á
grundvelli úthlutunar eftir bók-
inni.
Verð hlutabréfa í Bakkavör
hækkaði um 4,2%, úr 6 í 6,25, í gær
í 144 milljóna króna viðskiptum á
Verðbréfaþingi Íslands.
Kaupþing mælir
með Bakkavör
FLEIRA fólk hefur ekki mælst í
vinnu hér á landi en nú í nóvember-
mánuði, samkvæmt vinnumarkaðs-
rannsókn Hagstofu Íslands, sem birt
var í gær. Á það jafnt við um karla
sem konur.
Í rannsókninni kemur jafnframt
fram að meðalfjöldi vinnustunda hef-
ur dregist saman, þegar á heildina er
litið. Þó hefur orðið lítils háttar aukn-
ing á meðalfjölda vinnustunda kvenna
milli ára.
Atvinnuleysi mældist 2,4% í nóv-
ember 2001, bæði hjá körlum og kon-
um, og einnig það sama á höfuðborg-
arsvæðinu og utan þess. Fyrir ári var
2,7% atvinnuleysi, 2,5% hjá körlum en
2,9% hjá konum.
Niðurstöður mælinga Hagstofunn-
ar á atvinnuleysi koma greiningar-
deild Kaupþings á óvart. Í tilkynn-
ingu frá deildinni segir að
niðurstöðurnar gangi á svig við allar
fréttir sem hafi verið að birtast af
vinnumarkaði að undanförnu.
Atvinnuþátttaka hefur aukist
Fram kemur í rannsókninni að
fjöldi starfandi fólks í nóvember 2001
hafi verið 159.900, þar af voru 85.100
karlar og 74.800 konur. Í nóvember á
síðasta ári var fjöldi þeirra sem voru
starfandi 155.800 og af þeim voru
83.700 karlar og 72.100 konur. Starf-
andi körlum fjölgaði því um 1.400
milli ára en konum nærri tvöfalt
meira eða um 2.700.
Atvinnuþátttaka jókst frá nóvem-
ber í fyrra til sama mánaðar í ár úr
83,2% í 83,6%. Í byrjun apríl síðast-
liðnum var atvinnuþátttakan þó 0,1%
meiri en í nóvember, eða 83,7%.
Atvinnuþátttaka karla dróst saman
frá því í nóvember í fyrra til sama
mánaðar í ár en þátttaka kvenna óx
hins vegar á tímabilinu. Atvinnuþátt-
taka karla var 88,3% í nóvember í
fyrra en 88,0% í ár og þátttaka
kvenna 78,0% í fyrra en 79,1% í ár.
Meðalfjöldi vinnustunda hefur
dregist saman frá fyrra ári þegar á
heildina er litið, bæði á höfuðborgar-
svæðinu og utan þess. Þannig var
meðalfjöldi vinnustunda í viðmiðun-
arvikunni í nóvember í ár 42,6
klukkustundir fyrir landið í heild en
43,3 klukkustundir í nóvember í
fyrra. Meðalvinnustundir utan höfuð-
borgarsvæðisins eru í nóvember í ár
tæplega tveimur klukkustundum
fleiri en á höfuðborgarsvæðinu, eða
43,8 klukkustundir utan höfuðborgar-
svæðisins en 41,9 stundir á höfuð-
borgarsvæðinu.
Meðalfjöldi vinnustunda karla
lækkaði úr 50,6 klukkustundum í nóv-
ember í fyrra í 49,2 klukkustundir í
nóvember í ár. Meðalfjöldi vinnu-
stunda kvenna jókst hins vegar lít-
illega á sama tíma úr 34,7 klukku-
stundum í 35,0 stundir.
Samkvæmt rannsókn Hagstofunn-
ar voru 2,4% vinnuaflsins án vinnu og
í atvinnuleit í nóvember á þessu ári.
Þetta jafngildir því að um 3.900 ein-
staklingar hafi verið atvinnulausir. Í
samskonar rannsókn í nóvember 2000
var atvinnuleysið 2,7%, eða um 4.300
manns. Í byrjun apríl 2001 mældist
atvinnuleysið 2,1%, eða um 3.500
manns.
Í nóvember 2001 var atvinnuleysið
jafnt hjá konum og körlum, þ.e. 2,4%.
Atvinnuleysið var mest meðal yngstu
aldurshópanna, eins og komið hefur
fram í fyrri rannsóknum Hagstofunn-
ar, eða 4,3% meðal 16–24 ára.
Skekkjumörk á niðurstöðum um at-
vinnuleysi eru ± 0,8%.
Atvinnuleysi og skráð atvinnuleysi
Þátttakendur í rannsókninni, yngri
en 70 ára, voru spurðir hvort þeir
væru skráðir atvinnulausir hjá opin-
berri vinnumiðlun. Samkvæmt því
voru 2.200 á atvinnuleysisskrá í nóv-
ember. Um tveir þriðju þeirra voru
atvinnulausir samkvæmt skilgrein-
ingu Hagstofunnar, þ.e. án vinnu og
tilbúnir að taka vinnu strax væri hún í
boði. Aðrir gegndu einhverju starfi í
viðmiðunarvikunni (500) eða voru
ekki tilbúnir að ráða sig í vinnu strax
(300) en það jafngildir því að vera ut-
an vinnumarkaðar, samkvæmt skil-
greiningu Hagstofunnar.
Rannsókn Hagstofunnar fór fram
dagana 10.–21. nóvember 2001 og tók
til stöðu á vinnumarkaði 3.–16. nóv-
ember. Aldursmörk þátttakenda og
spurningar í rannsókninni miðast við
sambærilegar kannanir sem gerðar
eru innan Evrópska efnahagssvæðis-
ins (EES).
Atvinnuleysi 2,4% í nóvember
Morgunblaðið/Kristján
Atvinnuþátttaka jókst frá nóvember í fyrra úr 83,2 í 83,6%.