Morgunblaðið - 24.11.2001, Blaðsíða 26
ERLENT
26 LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Reuters
Blair segir
framtíð
Breta liggja
í Evrópu
London. AP.
TONY Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, spennir greipar í Birmingham
í gær, þar sem hann flutti ávarp við
Evrópumálarannsóknastofnun
Birmingham-háskóla. Í ávarpinu
lýsti Blair því yfir að Bretar yrðu að
„sætta sig við staðreyndir“ og við-
urkenna að framtíð þeirra liggi í
Evrópu. Voru orð forsætisráð-
herrans túlkuð sem skýr skilaboð
um að ríkisstjórn hans hygðist knýja
á um inngöngu Breta í Efnahags- og
myntbandalag Evrópu (EMU).
Voru breskir stjórnmálaskýr-
endur á einu máli um að hann hefði
sjaldan brugðist jafn einarðlega til
varnar Evrópusamstarfinu. Sagði
hann meðal annars að Bretar hefðu
beðið tjón af því að „missa endur-
tekið af tækifærum“ í Evrópumál-
unum og yrðu nú að styrkja tengslin
við bandamenn sína innan Evrópu-
sambandsins.
Stjórnmálaskýrendur sögðu
markmið Blairs með ávarpinu hafa
verið að leggja grunn að inngöngu
Breta í EMU. Blair ítrekaði þó þá
stefnu stjórnar sinnar að evran verði
ekki tekin upp í Bretlandi fyrr en
fimm efnahagsskilyrðum hafi verið
fullnægt og að undangenginni þjóð-
aratkvæðagreiðslu.
ÍSRAELSKI herinn sætti harðri gagnrýni í gær
vegna sprengingar sem varð fimm palestínskum
drengjum að bana í fyrradag. Fullyrt var, að um
sprengigildru hefði verið að ræða, en ekki að einn
drengjanna hefði sparkað í ósprungna sprengi-
kúlu, eins og upphaflega var álitið. Palestínskur
táningur var skotinn til bana og tveir aðrir Palest-
ínumenn særðust í gær, þegar kom til skotbar-
daga við ísraelska hermenn við útför drengjanna
fimm.
Talsmenn ísraelska hersins vildu ekkert segja í
gær um orsakir þess að drengirnir létust, annað
en að málið væri í rannsókn. Atvikið átti sér stað í
flóttamannabúðunum Khan Yunis á Gaza-svæð-
inu. Blaðið Maariv hafði í gær eftir heimildar-
mönnum innan hersins, að fyrir viku hefðu sér-
sveitir komið fyrir sprengigildru á því svæði þar
sem drengirnir létust, í þeim tilgangi að fella pal-
estínska vígamenn sem hefðu skotið þaðan
sprengikúlum að ísraelskum skotmörkum.
Ísraelski herinn hafði brugðist við þeim árásum
með vélbyssum og skriðdrekabyssum, og þess
vegna hafði verið ályktað að drengirnir fimm, sem
allir voru úr sömu stórfjölskyldunni og allir yngri
en 14 ára, hefðu rekist á ósprungna sprengikúlu.
En Maariv hafði eftir heimildarmönnum sínum að
sérsveit úr ísraelska hernum hefði farið inn á yf-
irráðasvæði Palestínumanna í síðustu viku og
komið fyrir sprengigildru, sem herinn noti oft.
Brahim al-Astal, frændi tveggja fórnarlamb-
anna, greindi frá því að hann hefði séð ísraelska
hersveit, studda skriðdrekum, við aðgerðir á
svæðinu kvöldið áður en sprengjan sprakk. Abdel-
Razek al-Majaida hershöfðingi, yfirmaður örygg-
isþjónustu Palestínumanna á Gazasvæðinu, stað-
festi frásögn al-Astals. „En því miður voru það
börn sem urðu fyrir sprengjunni, en ekki hryðju-
verkamennirnir sem henni var ætlað að granda,“
sagði Maariv.
Það styrkir kenninguna um sprengigildruna að
sprengingin var mjög öflug, meiri en af venjulegri
kúlu úr skriðdrekabyssu, og tætti drengina fimm í
sundur. Síðan uppreisn Palestínumanna gegn her-
setu Ísraela hófst fyrir rúmum 14 mánuðum hafa
nokkrir palestínskir vígamenn fallið í dularfullum
sprengingum. Ísraelar viðurkenna opinberlega að
þeir ráðist á fólk sem þeir gruni um að skipuleggja
eða fremja árásir á ísraelsk skotmörk.
Ísraelsher hart gagnrýndur vegna sprengingar er banaði fimm drengjum
Fullyrt að um sprengi-
gildru hafi verið að ræða
Jerúsalem. AFP.
KOSNINGAR fara fram í Mið-
Ameríkuríkinu Hondúras á
morgun, sunnudag, og þurfa
kjósendur að velja á milli
tveggja íhaldsmanna, sem báð-
ir hafa boðað hertar aðgerðir
gegn glæpum og fátækt hreppi
þeir embætti forseta.
Fimm menn eru í framboði í
forsetakosningunum en jafn-
framt verður kjörið nýtt þing
sem og borgar- og bæjar-
stjórnir.
Skoðanakannanir gefa til
kynna að lítill munur sé á fylgi
þeirra Rafaels Pineda þingfor-
seta, sem er frambjóðandi
Frjálslyndaflokksins, og kaup-
sýslumannsins Ricardo Mad-
uro, sem fer fram í nafni Þjóðar-
flokksins. Pineda er sjötugur að aldri
en Maduro 55.
Samkvæmt síðustu könnunum nýt-
ur Maduro fylgis 45% kjósenda en
Pineda 35%. Aðrir frambjóðendur
eru ekki taldir eiga möguleika.
Báðir hafa frambjóðendurnir heit-
ið því að bæta lífskjörin í landinu nái
þeir kjöri. Hondúras er eitt fátæk-
asta ríkið á vesturhveli jarðar og ekki
hefur bætt úr skák að verð á kaffi hef-
ur hríðfallið á heimsmarkaði, flóð
hafa verið tíð og síðan miklir þurrkar
fylgt í kjölfarið. Þá olli fellibylurinn
Mitch gríðarlegu tjóni í landinu árið
1998 og fer því fjarri að það hafi verið
bætt.
Samkvæmt opinberum tölum telj-
ast 80% íbúanna lifa við fátækt og
ólæsi mælist um 40%. „Við
erum að deyja úr hungri,
stjórnmálamenn lofa að hjálp
berist en það gaspur er að-
eins hávaði,“ segir Cipriano
Martinez, leiðtogi Xicaque-
indjánaættbálksins, sem
náttúruhamfarirnar hafa
leikið grátt. „Það getur vel
verið að ég fari á kjörstað en
ég hef glatað allri von,“ bætir
hann við.
Frambjóðendur hafa einn-
ig heitið hertum aðgerðum í
baráttunni gegn glæpastarf-
semi í landinu. Skipulögð
glæpastarfsemi og gengi
ungra glæpamanna setja nú
mjög svip sinn á samfélagið.
Maduro hefur heitið því að „engin
miskunn“ verði sýnd hreppi hann for-
setaembættið. Syni hans einum var
rænt árið 1987 og hann síðar myrtur.
Á kjörskrá eru 3,4 milljónir manna.
Þrír varaforsetar verða einnig kjörn-
ir í kosningunum á morgun, 128 þing-
menn, 60 fulltrúar á þing Mið-Am-
eríkuríkja og 298 borgar- og bæjar-
stjórar.
Tveir íhaldsmenn eru í framboði í forsetakosningum á morgun í Hondúras
./01.
2
!"
/
0
1(
1.
2 #2342
1
(
25
3
23
36
70
3 /! #$ $
!
%!"
&
&
!%
/%!
$ 34
0 5 15
#+, -
&% (
(
#+ $(
"%$
)$+
15
#.
!
))+8* 9!
0 5+,
:;<:+* =) -,% 5!% 678
9+
=
!?+ :8
% ;8
@ .% <8
1),=
9+ $#+ &%
>$
) $?
@ $ #
*A
+B ))A
8A
*;< ? C
1, A;777&! B
&
/ D! =D?-" 9>
?E 9!%+ D! " 5%&
! -% .
%
<66;
<66C
3,! !"% !
2
<666 @!9 ! 9,
! %?F ;777 @!! % GG , !
E! . !% ,? ! E 9 !,G
;77<
+ H I%%J !
9"% !% 9 - - "%
! )+ E% E !
% E!
.+ !"-% J% "9 . -%%
I ! K ! !"%
9 GG! Heita því að bæta
lífskjörin í landinu
Ricardo Maduro, frambjóðandi Þjóðarflokksins,
á kosningafundi í vikunni. Reynist kannanir
réttar verður hann næsti forseti Hondúras.
Tegucigalpa. AFP.
AUKNAR fjárveitingar til skóla
bæta þá lítið. Þetta er niður-
staða bandarískrar rannsóknar
er Aftenposten greinir frá. Nið-
urstöður Erics Hanusheks, pró-
fessors við Stanfordháskóla,
leiða í ljós, að sumir kennarar ná
mun betri árangri en aðrir, en
lítið er vitað um hvað einkennir
þessa tilteknu kennara.
Menntun, reynsla, aldur eða
kyn virðist skipta litlu máli.
Sumir kennarar eru einfaldlega
bara betri en aðrir, samkvæmt
niðurstöðum Hanusheks. Hann
kynnti þær á ráðstefnu í Bergen
í gær. Einnig heldur hann því
fram, að bæði sínar eigin rann-
sóknir og alþjóðlegar rannsókn-
ir sýni fram á að auknar fjárveit-
ingar geri skóla ekki betri.
Aftenposten spurði Hanush-
ek hvort það væri ekki rétt, að
auknir peningar þýddu fyrst og
fremst að fjöldi nemenda á
hvern kennara minnkaði og þar
með minnkuðu bekkir, og þar
með hlyti kennslan að batna.
„Nei. Ávinningurinn er að
minnsta kosti mjög lítill miðað
við það aukna fjármagn sem
þarf til. Fyrst og fremst þarf að
huga að hæfileikanum til að
koma kennsluefninu frá sér. Við
þurfum á að halda aðferðum til
að tryggja að góðir kennarar
verði áfram við kennslu, en þeir
lélegu hætti,“ sagði Hanushek.
Aukið fé
bætir ekki
skólann
AP