Morgunblaðið - 24.11.2001, Qupperneq 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2001 27
Ármúla 8, sími 581 2275
Sértilboð
Sófasett 3+1+1
alklætt leðri aðeins kr. 169.000
Litir: Svart, ferskju, drapp og kremað
l l l i i . .
OLÍUVERÐ lækkaði í gær eftir
að skýrt var frá því að Rússar
hygðust aðeins minnka olíufram-
leiðslu sína um 50.000 föt á dag
fyrir lok ársins. Talsmaður
OPEC, samtaka ellefu olíuútflutn-
ingsríkja, sagði þetta langt frá því
að vera nóg og kvað samtökin hafa
vonast til þess að Rússar myndu
minnka framleiðsluna um að
minnsta kosti 150.000 föt á dag.
OPEC-ríkin og olíuútflutnings-
ríki utan samtakanna, þeirra á
meðal Noregur og Mexíkó, hafa
lagt að Rússum að draga úr fram-
leiðslunni til að stuðla að hærra ol-
íuverði.
Rússar höfðu áður fallist á að
minnka framleiðslu sína um
30.000 föt fyrir lok ársins og sögð-
ust í gær aðeins ætla að minnka
hana um 20.000 föt til viðbótar.
Ráðgjafarnefnd rússnesku stjórn-
arinnar á að koma saman í desem-
ber til að ræða hvort draga eigi
frekar úr framleiðslunni á næsta
ári. Stjórnin hefur verið treg til að
minnka framleiðsluna þar sem
hún hefur átt stóran þátt í efna-
hagsbatanum í Rússlandi.
OPEC-ríkin hafa samþykkt að
minnka olíuframleiðslu sína um
1,5 milljónir fata á dag í byrjun
næsta árs gegn því skilyrði að
olíuútflutningsríki utan samtak-
anna dragi hlutfallslega jafnmikið
úr framleiðslu sinni, eða um
500.000 föt á dag.
Norðmenn hafa fallist á að
minnka framleiðslu sína um allt að
200.000 föt og Mexíkó um 100.000.
Verð Brent-hráolíu í London
lækkaði í gær um 76 sent á fatið í
19,14 dollara. Áður hafði verðið
hækkað frá því á mánudag þegar
það var 16,65 dollarar og hafði þá
lækkað um nær 30% á tveimur
mánuðum.
Olíuverð lækkar á ný
Rússar boða
lítinn samdrátt
Moskvu. AP, AFP.
ÓTTAST er, að allt að 100
manns hafi farist er gullnámu-
göng hrundu saman í Kólombíu
í fyrradag. Meira en 30 slösuð-
ust. Í gær var búið að finna lík
28 manna. Námagröfturinn,
sem var við lítinn bæ, Fila-
delfia, var ólöglegur og frá-
gangur í göngunum óviðun-
andi. Höfðu gullgrafararnir
verið varaðir við vegna hættu á,
að göngin legðust saman, en
þeir sinntu því í engu. Mikil úr-
koma hefur verið á þessum
slóðum og það voru tvær aur-
skriður, sem slysinu ollu. Féllu
göngin saman er sú fyrri lenti á
námunni og grófust þá margir
undir henni og hrundum göng-
unum. Sú seinni féll síðan á þá,
sem voru að reyna að hjálpa
vinum sínum og félögum.
„Viltu vinna
milljón“
með prettum?
BRESKA lögreglan hefur
handtekið og sleppt gegn
tryggingu þremur mann-
eskjum, sem grunaðar eru um
að hafa haft rangt við í spurn-
ingaþættinum „Viltu vinna
milljón“. Er um að ræða
Charles Ingram, majór í hern-
um, og Díönu, konu hans, og
háskólafyrirlesarann Tecwen
Whittock. Diana og bróðir
hennar hafa unnið tæplega
fimm millj. ísl. kr. hvort í
spurningaþættinum en Charles
bætti um betur þegar hann
vann milljón pund, 155 millj. ísl.
kr. Þær hefur hann að vísu ekki
fengið enn vegna þess, að grun-
semdir vöknuðu fljótlega um að
ekki væri allt með felldu um
fróðleikinn í fjölskyldunni.
Hafa sumir getið sér til, að ein-
hver í áhorfendahópnum hafi
komið réttum svörum á fram-
færi við þau á merkjamáli, t.d.
léttum hósta. Whittock var við-
staddur þegar Charles fékk
stóra vinninginn og hann hefur
viðurkennt að hafa hóstað
nokkuð oft. Það hafi hann þó
gert vegna þess, að það hafi
verið svo kalt í salnum.
STUTT
Tugir
manna
fórust í
námaslysi
MIKIL spenna ríkir nú
í Japan vegna vænt-
anlegs barnsburðar
Masako krónprinsessu
en talið er að barnið
komi í heiminn næstu
daga. Masako er 37
ára og hefur ekki áður
fætt barn. Faðirinn,
Naruhito krónprins,
er 41 árs. Barnið
ófædda hefur orðið til-
efni mikilla viðskipta,
ekki síst í heimahéraði
prinsessunnar. Fram-
leiddar eru brúður af
mörgum gerðum,
súkkulaðikökur,
skreyttar gulli,
ávaxtakörfur og ann-
að góðgæti. Einnig er
hægt að fá sérstaka
gerð af saki-víni sem
kennt er við rugosa-
rósina, einkennisblóm
Masako. Hér sést
starfsmaður leik-
fangaverksmiðju í
Tókýó með eina brúð-
una sem getur hlegið,
grátið og ropað eftir
að hafa fengið mjólk
að drekka. AP
Eftirvænting í Japan
SLOBODAN
Milosevic, fyrr-
verandi forseti
Júgóslavíu, hefur
verið formlega
ákærður af
Stríðsglæpadóm-
stóli Sameinuðu
þjóðanna fyrir
þjóðarmorð í
Bosníustríðinu
1992 til 1995. Áð-
ur hefur hann
verið ákærður
fyrir glæpi gegn
mannkyni og
stríðsglæpi í
Kosovo og Kró-
atíu. Ákæran um þjóðarmorð er í
29 liðum, meðal annars, að hann
hafi tekið þátt í að reka burt frá
Bosníu alla, sem ekki voru Serbar,
aðallega múslíma og Króata. Eitt
mesta hryðjuverkið í Bosníu-
stríðinu voru morðin á um 7.000
múslímum í Srebrenica en þau
voru þjóðarmorð að mati Stríðs-
glæpadómstólsins.
Milosevic
ákærður
fyrir þjóð-
armorð
Milosevic