Morgunblaðið - 24.11.2001, Qupperneq 43
MESSUR Á MORGUN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2001 43
a›eins í dag
undirfataverslun,
Opið
mán.-laugard.
frá kl. 12-18
Lagerútsala - Síðumúla 3-5
Undirföt - náttföt - sloppar - heimagallar
Merkjavara á frábæru verði
skólinn kl. 11. Allir velkomnir.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Safnaðarheimilið Sæ-
borg. Kirkjuskólinn kl. 14. Allir velkomnir.
SELFOSSKIRKJA: Messa og sunnudaga-
skóli kl. 11. Súpa og brauð eftir messu.
Morguntíð sungin þriðjudaga til föstudaga
kl. 10. Kaffi og brauð að henni lokinni.
Foreldrasamvera miðvikudaga kl. 11.
Krakkaklúbburinn kl. 16.10–17 á mið-
vikudögum. Sóknarprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Messa kl. 14. Sóknarprestur.
HVERAGERÐISKIRKJA: Sunnudagaskóli
kl. 11. Jón Ragnarsson.
ÞYKKVABÆJARKIRKJA: Messa kl. 11.
Sóknarprestur.
ODDAKIRKJA á Rangárvöllum: Guðsþjón-
usta kl. 14. Molasopi í safnaðarheimilinu
á eftir. Sóknarprestur.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa sunnu-
dag kl. 11. Sóknarprestur.
TORFASTAÐAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta sunnudag kl. 14. Sóknarprestur.
ÓLAFSVÍKURKIRKJA: Sunnudagaskóli kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Kór Félags eldri
borgara í Snæfellsbæ flytur stólvers. Eldri
borgarar lesa ritningarlestra. Molasopi í
safnaðarheimili að guðsþjónustu lokinni.
Allir velkomnir. Sóknarprestur.
söng félaga úr Mótettukór Hall-
grímskirkju og safnaðar. Í mess-
unni verður frumflutt nýtt lag við
„Faðir vor“, sem ætlað er til safn-
aðarsöngs.
Barnastarfinu stýrir Magnea
Sverrisdóttir, æskulýðsfulltrúi. Kl.
14 verður ensk messa í umsjá sr.
Bjarna Þórs Bjarnasonar. Stefnt er
að því að ensk messa verði fram-
vegis í Hallgrímskirkju einu sinni í
mánuði að jafnaði.
Ensk messa
í Hallgrímskirkju
ENSK messa verður haldin í Hall-
grímskirkju sunnudaginn 25. nóv-
ember nk. kl. 14. Prestur er sr.
Bjarni Þór Bjarnason. Organisti er
Lára Bryndís Eggertsdóttir.
Service in English in Hallgríms-
kirkja – The Church of Hallgrímur.
Holy Communion. Sunday Nov-
ember 25th at 2 pm Celebrant and
Preacher: The Revd Bjarni Thor
Bjarnason. Organist: Lára Bryndís
Eggertsdóttir
Kolaportsmessa
HELGIHALD þarfnast ekki hús-
næðis heldur lifandi fólks. Kirkja
Jesú Krists er ekki steypa, heldur
lifandi steinar,
manneskjur af
holdi og blóði.
Þess vegna er
hægt að fara út
úr kirkjubygg-
ingum með helgi-
hald og fagn-
aðarerindið og
mæta fólki í
dagsins önn. Í til-
efni af því bjóð-
um við til messu í
Kolaportinu
sunnudaginn 25.
nóvember kl. 14.
Irma Sjöfn
Óskarsdóttir
prestur predikar og þjónar ásamt
prestunum Jónu Hrönn Bolladótt-
ur, Bjarna Karlssyni og Ragnheiði
Sverrisdóttur djákna.
Þorvaldur Halldórsson leiðir lof-
gjörðina. Áður en Kolaportsmessan
hefst kl.13.40 mun Þorvaldur Hall-
dórsson flytja þekktar dæg-
urperlur. Þá er hægt að leggja inn
fyrirbænarefni til þeirra sem þjóna
í messunni.
Í lok stundarinnar verður fyr-
irbæn og blessun með olíu. Messan
fer fram í kaffistofunni hennar
Jónu í Kolaportinu, sem ber heitið
Kaffi port. Þar er hægt að kaupa
sér kaffi og dýrindis meðlæti og
eiga gott samfélag við Guð og
menn.
Það eru allir velkomnir.
Miðborgarstarf KFUM og K.
Einsöngur í tónlist-
armessu í Hafnar-
fjarðarkirkju
VIÐ tónlistarmessu í Hafnarfjarð-
arkirkju kl. 17 mun ungur söngv-
ari, Kristján Helgason baritón,
syngja einsöng. Síðdegis- og tónlist-
armessur í Hafnarfjarðarkirkju eru
stuttar en lögð er áhersla á ljúfa
tónlist og bænaandrúmsloft. Um
morguninn kl. 11 fer svo sem
endranær fram árdegisguðsþjón-
usta í Hafnarfjarðarkirkju.
Prestar Hafnarfjarðarkirkju.
Skagfirska söng-
sveitin í
Dómkirkjunni
SKAGFIRSKA söngsveitin kemur í
heimsókn og syngur ásamt Dóm-
kórnum við guðsþjónustuna kl. 11.
Organisti er Kjartan Sigurjónsson.
Söngsveitin frumflytur m.a. tón-
verk eftir söngstjórann Björgvin Þ.
Valdimarsson. Einsöng í messunni
syngur Guðmundur Sigurðsson.
Eftir messu er kirkjugestum boð-
ið að þiggja kaffisopa í Iðnó.
Barnamessa er kl. 13 í umsjá Þor-
valdar Víðissonar æskulýðsfulltrúa
og sr. Hjálmars Jónssonar. Bjart-
mar Guðlaugsson tónlistarmaður
leiðir sönginn og leikur á gítar.
Kvöldvaka í
Fríkirkjunni
í Hafnarfirði
MÁNAÐARLEGAR kvöldvökur í
Fríkirkjunni í Hafnarfirði hafa not-
ið mikilla vinsælda en tilgangurinn
með þessum kvöldvökum er að
auka fjölbreytni í helgihaldi kirkj-
unnar. Sérhver kvöldvaka er helg-
uð ákveðnu hugleiðingarefni og
eins er leitast við að kynna nýja
sálma og eins að færa gamla sálma í
nýjan búning. Það er Örn Arnarson
tónlistarmaður og hljómsveit hans
sem leiða tónlist og söng. Á kvöld-
vökunni annað kvöld, sunnudags-
kvöldið 25. nóvember, verður
fjallað um hugtakið von, í hvaða
von lifa kristnir menn, en hugtökin
trú, von og kærleikur eru yf-
irskriftin á þremur kvöldvökum í
röð. Kvöldvakan hefst kl. 20 og eru
allir hjartanlega velkomnir.
Starfsfólk Fríkirkjunnar
í Hafnarfirði.
Neskirkja
Morgunblaðið/Jim Smart
Neskirkja. Félagsstarf aldraðra kl. 14.
Þórhallur Sigurðsson leikstjóri og nokkrir
leikarar Þjóðleikhússins kynna leikritið
„Vatn lífsins“ með stuttum leikatriðum.
Allir velkomnir. Sr. Frank M. Halldórsson.
Hvammstangakirkja. Barnamessa kl. 11.
Safnaðarstarf
Velkomin
í Hólagarð
Bómullar-satín
og
silki-damask
rúmföt
Skólavörðustíg 21,
sími 551 4050