Morgunblaðið - 24.11.2001, Side 62
FÓLK Í FRÉTTUM
62 LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SÍMI 564 0000 - www.smarabio.isSÍMI 564 0000 - www.smarabio.is5 hágæða bíósalir
Sýnd kl. 2 og 4. Með íslensku tali.
Miðasala opnar kl. 13
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.10. Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Sýnd kl. 1.30, 3.40, 5.50, 8 og 10.10.
Empire
SV Mbl Rás 2
MOULIN
ROUGE!
Hausverkur
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
DV
Kvikmyndir.com
1/2
Ungfrú
Skandinavía
Íris Björk
Ljóskur
landsins
sameinist!
Glæsileg leysigeislasýning
á undan myndinni.
Bardagasnillingurinn Jet Li fer hér á kostum í
frábærri hasarmynd sem
inniheldur stórkostlegar tæknibrellur og
mögnuðustu bardagaatriði sem sést hafa.
FRUMSÝNINGFRUMSÝNING
Eltingarleikurinn við
hættulegasta glæpamann
alheimsins er hafinn.
Reese Witherspoon
fer á kostum sem
ljóska sem sannar
hvað í ljóskum býr
Lúði lúðanna með sítt að aftan, í snjóþvegnum gallabuxum
og finnst hann svalasti töffarinn...því miður er enginn
sammála honum! Endalaust fyndin mynd frá framleiðendum
Big Daddy og Wedding Singer og snillingurinn David Spade
(Just Shoot Me) er súper-lúðinn!VIÐ ERUM að tala um björtustu
von breskrar tónlistar, bjargvættina
ef vill, nýju Coldplay, svar tjalla við
Jeff Buckley, líka Simon og Garfunk-
el, afturhvarf til „alvöru“ tónlistar
sem á rætur sínar í enskri þjóðlaga-
hefð, friðsælli sveitarómantík með
kraumandi uppreisnarólgu undir
niðri, afkomendur Nicks Drakes,
Donovans og Cats Stevens saman
komnir í einni og sömu sveitinni.
Okkur er borgið.
Á þessum nótum hafa hinir „hóg-
væru“ og „jarðbundnu“ bresku tón-
listarskríbentar lýst breska dúettin-
um Turin Brakes sem gaf út
frumburðinn sinn, The Optimist LP,
fyrr á árinu og hefur hlotið mikið lof
fyrir og tilnefningu til Mercury-tón-
listarverðlauna.
Bara það að liðsmennirnir tveir
skuli vera æskufélagar og hafa
sungið í drengjakór hefur vakið
óskipta athygli uppgötvunarþyrstr-
ar breskrar pressu. Það er nefnilega
óvenjulegt.
Æskuvinir
„Við erum óneitanlega orðnir
frekar þreyttir á því hversu mjög er
hamrað á sömu atriðunum varðandi
tónlist okkar og fortíð,“ segir Olly
Knight í millilandasímtali við blaða-
mann sem sjálfkrafa verður samsek-
ur starfsbræðrum sínum í Englandi.
Knight er forsöngvari Turin Brakes
en með honum semur og strýkur
strengi Gale Paridjanian, báðir 24
ára gamlir Lundúnabúar í húð og
hár. Þeir eru æskuvinir og hafa verið
að garfa saman í tónlist síðan þeir
muna eftir sér. Það var ást beggja á
gítarnum og sérstaklega gítarleik
Chuck Berry sem leiddi þá saman á
tónlistarbrautinni er þeir voru enn
kornungir. Á barnaskólaárunum
sungu þeir saman í kór en voru rekn-
ir fyrir óþekkt og í menntaskóla voru
þeir herbergisfélagar og glömruðu
saman á gítara sína dag og nótt bak
við luktar dyr. Í bekkjarpartíum
voru þeir síðan jafnan hrókar alls
fagnaðar með því að leika og syngja
hvert óskalagið á fætur öðru. Það
var þó ekki fyrr en fyrir örfáum ár-
um sem þeir fóru að taka þetta fikt
sitt alvarlega og líta á það alvarleg-
um augum, einkum Paridjanian, sem
þá var þegar búinn að koma við í
nokkrum bílskúrssveitum.
Drengirnir þurftu eiginlega að
hafa skammarlega lítið fyrir að koma
sér á framfæri. Þeir einfaldlega tóku
upp á smágeisladisk í herbergi sínu
nokkur af þeim lögum sem þeir
höfðu verið að berja saman og sendu
til útgefanda. Örskömmu síðan voru
þeir komnir með samning og fyrsta
platan leit dagsins ljós, „The Door
EP“, á vegum smáútgáfunnar Avil.
Þetta var árið 1999 og við tók hressi-
leg tónleikatörn þar sem Turin
Brakes hitaði upp fyrir sveitir á borð
við Doves og Lowgold. Spilagleði
þeirra og tilfinningaþrungin tónlist
vakti fljótt athygli bresku tónlistar-
pressunnar og stærri útgáfufyrir-
tækja og fyrr en varði voru þeir
búnir að semja við franska fyrirtæk-
ið Source, heimili Air, um útgáfu
fyrstu breiðskífunnar sem heitir The
Optimist LP og kom út snemma á
þessu ári. Platan hefur hvarvetna
fengið lofsamlega umfjöllun og var
m.a. tilnefnd til hinna virtu Mercury-
tónlistarverðlauna. Hún hefur líka
selst býsna vel í Evrópu og hefur
verið í sérstöku uppáhaldi meðal
breskra háskólanema og þeirra sem
aðhyllast tónlistarstefnuna „þögnin
er nýi hávaðinn“ .
Neyðarástand
„Við eigum að vera bjartasta von
þjóðlagarokksins, Simon og Gar-
funkel nýrra tíma,“ segir Knight
mæðulega. „Sannleikurinn er sá að
við kærum okkur kollótta um slíkt
skjall og samlíkingar.“ Drengurinn
hefur greinilega þurft að taka af-
stöðu til þessa orðspors oftar en einu
sinni og virðist satt að segja orðinn
frekar þreyttur á því. Annars segir
fremur veikburða og skræk röddin
manni að eigandi
hennar sé viðkunnan-
legur ungur maður,
bæði kurteis og skyn-
samur.
„Ég verð að viður-
kenna að okkur hefur
reynst erfitt að ein-
beita okkur að öðrum
eins tittlingaskít í við-
tölum síðan hörmung-
aratburðarásin fór af
stað 11. september.
Við höfum verið að
reyna að átta okkur á
stöðu okkar allt síðan
þá, hvort landslag tón-
listarinnar muni
breytast til frambúðar
og þá hvernig. Það
þarf t.d. að huga að því
hvernig kynna á efni
okkar. Nýjasta smá-
skífa okkar hefur t.d.
orðið fyrir barðinu á
þeirri viðkvæmni sem
ríkt hefur á vestur-
löndum. Á breiðskíf-
unni heitir lagið
„Emergency 72“ en við
sáum okkur knúna að
taka út fyrri part
nafnsins og heitir smá-
skífan því bara „72“.
„Emergency“ (ís.
neyðarástand) er orð
sem okkur er tjáð að
útvarpsmenn vilji forð-
ast í lengstu lög að
þurfa að fara með að
tilefnislausu.“
Knight segir þessa ritskoðun
koma fremur skringilega við þá Par-
idjanian því hingað til hafi þeir álitið
sig allsendis ópólitíska poppara og
vildu síður en svo skerast í þennan
hörmulega hildarleik.
Kvikmyndatónlist
Knight segir áhuga besta vinarins
á því að vera í hljómsveit einu ástæð-
una fyrir því að Turin Brakes er yf-
irhöfuð til. „Þótt ég hafi alltaf haft
unun af því að spila og syngja þá var
draumurinn alltaf að gerast kvik-
myndagerðarmaður og ég er
menntaður sem slíkur, á að baki
fjögurra ára nám í kvikmyndagerð.
Tónlistin blundaði samt alltaf í mér
og ég samdi helling af lögum þegar
ég var í kvikmyndanáminu.“ Tónlist-
in sem færði þeim félögum plötu-
samninginn upphaflega og varð að
The Door EP var samin við loka-
verkefni Knights, stuttmynd. „Það
má því segja að stíllinn, sem Turin
Brakes valdi sér, hafi þar með þróast
út frá kvikmyndatónlistarforminu og
við höfum reynt að halda í þau áhrif.“
Knight segist þakka útgefanda
fyrstu EP-plötunnar og núverandi
umboðsmanni, Phil Passera, að Tur-
in Brakes sé í þeirri stöðu sem hún
er í dag, annars sé alls ekkert víst að
þeir Paridjanian hefðu haldið tónlist-
arsamstarfi sínu áfram á markvissan
hátt. „Viðtökurnar, sem við höfum
fengið, hafa satt að segja komið okk-
ur í opna skjöldu því við héldum að
þetta væri alltof persónulegt, eitt-
hvað sem enginn fattaði nema við
tveir. Phil hjálpaði okkur að hugsa út
hvernig hægt væri að færa gutlið
okkar í popplagaform. Hann sagði
okkur t.d. að prófa að setja söng við
það og kom með ábendingar um
hvernig við myndum syngja. Í raun
mætti segja að hann sé þriðji liðs-
maður Turin Brakes, nema hvað
hann hvorki semur né leikur á hljóð-
færi.“
Framandi áhrifavaldar
Knight segir að sér hafi komið á
óvart hversu gamaldags tónlistar-
formið, sem þeir fundu sér, hljómaði.
„Við erum nefnilega alls ekkert að
velta okkur upp úr gamalli tónlist.
Vissulega höfðum við dálæti á lista-
mönnum á borð við Joni Mitchell,
Leonard Cohen og Stevie Wonder en
yfirhöfuð hlustum við miklu meira á
nýja tónlist og fylgjumst vel með.
Það kom okkur því á óvart hversu lít-
il áhrif tónlist samtímans hafði á tón-
list Turin Brakes.“ Knight segist
vissulega hafa farið að kynna sér
betur þá listamenn sem blaðamenn
hafa verið duglegir að líkja Turin
Brakes við. „Fyrir útkomu The Opt-
imist LP þá höfðum við svo gott sem
ekkert verið að velta okkur upp úr
þessum meintu áhrifavöldum, Nick
Drake, Tim Buckley og Neil Young
m.a., en höfum síðan gefið þeim nán-
ari gaum, aðallega út af því að fólk er
alltaf að gefa okkur plötur með þeim
og skipa okkur að hlusta á þær,“ seg-
ir hann og hlær. „Núna erum við
báðir orðnir forfallnir unnendur
Nicks Drakes.“
Horft fram á við
Hins vegar telur Knight ekkert
hollt fyrir þá að vera að sækja alltof
mikið í gamla tónlist og þeim sé nær
að sækja innblástur í nýja tónlist.
„Það angrar okkur töluvert að
blaðamenn í Englandi hafa svo gott
sem leitt hjá sér þegar við höfum
sagt þeim frá áhuga okkar á nýrri
tónlist og einblínt frekar á Joni
Mitchell þannig að það mætti halda
að við hlustuðum ekki á annað.
Við erum að hlusta á mjög fram-
sækna tónlist en fjölbreytta, allt frá
Radiohead til Boards of Canada og
nýtum okkur áhrifin frá þeim í þjóð-
lagaskotna poppið okkar. Okkur
finnst það spennandi og óhefðbundin
blanda.“
Knight segir að það megi örugg-
lega greina frekari merki þessarar
þróunar á næstu plötu og þeir hlakki
sérstaklega til að hefja vinnu við
hana því þeir viti það nú þegar að
hún komi til með að hljóma allt öðru-
vísi en annað sem þeir hafa gefið út.
Turin Brakes er ein af uppgötvunum
ársins í breskri tónlist
Kórdrengir á
krossgötum
Turin Brakes er eitt af nýju nöfnunum í
dægurtónlistarheiminum. Fyrirbærið er
dúett skipaður tveimur ungum Bretum,
æskufélögum og fyrrverandi kórdrengjum
sem eru við það að sjá drauma sína rætast.
Skarphéðinn Guðmundsson ræddi við Olly
Knight, aðalsöngvara dúettsins.
skarpi@mbl.is
Turin Brakes hefur mikið verið
hampað af breskum fjöl-
miðlum að undanförnu.