Morgunblaðið - 10.02.2002, Qupperneq 6
FRÉTTIR
6 SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 3/2 – 9/2
ERLENT
INNLENT
VEL á fimmta þúsund
manns tóku á móti ís-
lenska landsliðinu, sem
varð í fjórða sæti á Evr-
ópumótinu í handknatt-
leik í Svíþjóð, í versl-
unarmiðstöðinni
Smáralind á mánudag.
Greinilegt var að leik-
menn íslenska liðsins
voru hrærðir yfir móttök-
unum og öllum þeim
fjölda sem kominn var til
að fagna árangri þeirra.
JÚLÍUS Vífill Ingvars-
son mun ekki taka sæti á
lista Sjálfstæðisflokksins
til borgarstjórnarkosn-
inga nú í vor. Hann segir
að þessi ákvörðun tengist
á engan hátt aðdraganda
leiðtogaprófkjörsins sem
hætt var við, ástæðan sé
sú að hann ætli að snúa
sér að rekstri fyrirtækja
sinna og fjölskyldu.
HEILDARLAUN fé-
lagsmanna í VR og Versl-
unarmannafélagi Akra-
ness hækkuðu að meðal-
tali um 8% á seinasta ári
og dagvinnulaun um 10%
skv. niðurstöðum nýrrar
launakönnunar VR.
Lægstu laun hækkuðu
hlutfallslega mest og
hækkuðu heildarlaun af-
greiðslufólks á kassa um
18% en vinnutími styttist
á milli ára. Í könnuninni
kemur einnig fram að
launamunur kynjanna
hefur minnkað. Fjórir af
hverjum tíu félagsmönn-
um segja að þeir hafi far-
ið í launaviðtal á síðasta
ári, en í síðustu kjara-
samningum var samið um
rétt starfsmanns til árlegs
viðtals við yfirmann sinn.
Tómatar, paprika og ag-
úrkur munu lækka mest
GRÆNMETISNEFNDIN hefur skil-
að lokatillögum til landbúnaðarráð-
herra. Fella á niður verðtoll á svepp-
um, kartöflum og ýmsum tegundum
útiræktaðs grænmetis, en áfram verð-
ur magntollur á þessum afurðum.
Bæði verð- og magntollar verða felldir
niður á agúrkum, tómötum og papr-
iku. Þess í stað verða teknar upp bein-
greiðslur til framleiðenda og er talið
að þær geti numið um 195 milljónum
króna á ári. Ráðherra sagði að græn-
meti gæti lækkað um að meðaltali um
15% til neytenda.
Margir dotta við akstur
Í KÖNNUN Gallup kom fram að nær
5% ökumanna telja sig hafa dottað við
akstur síðustu tólf mánuðina og 31%
telja sig hafa syfjað skyndilega við
akstur.
Segja Samkeppnisstofn-
un hafa brotið lög
Í SKÝRSLU Verslunarráðs kemur
fram að Samkeppnisstofnun hafi farið
út fyrir heimildir þess dómsúrskurðar
sem hún fékk vegna aðgerðanna gegn
olíufélögunum. Þá hafi verið mörg
dæmi um það að ákvæðum laga hafi
ekki verið fylgt eftir við framkvæmd
húsleitar og haldlagningu gagna.
Verslunarráð hefur farið fram á það
við viðskiptaráðherra að hann láti fara
fram rannsókn á málinu.
Samherji hagnast
meira en vænst var
HAGNAÐUR Samherja, móðurfé-
lags, var 1.279 milljónir króna í fyrra
samkvæmt bráðabirgðauppgjöri. Er
þetta mun meiri hagnaður en gert var
ráð fyrir í áætlunum. Rekstrartekjur
Samherja í fyrra námu 2.755 milljón-
um króna.
Bush vill ekki slíta
tengslin við Arafat
GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti
tilkynnti Ariel Sharon, forsætisráð-
herra Ísraels, á fundi þeirra í Wash-
ington á fimmtudaginn að hann myndi
ekki verða við óskum hans um að slíta
öll tengsl við palestínsku heimastjórn-
ina. Bush ítrekaði hvatningarorð sín til
Yassers Arafats, forseta heimastjórn-
arinnar, um að grípa til ráðstafana gegn
palestínskum hryðjuverkamönnum, en
hvatti Sharon á sama tíma til að leita
leiða til að bæta hag Palestínumanna.
Heimsókn Sharons til Bandaríkj-
anna var sú fjórða á einu ári. Fyrir för
sína vestur um haf hafði hann hvatt
Bandaríkjamenn til að finna sér annan
viðmælanda en Arafat. Ari Fleischer,
talsmaður Hvíta hússins, sagði hins
vegar fyrir fund þeirra Bush og Shar-
ons að forsetinn myndi gera Sharon
ljóst að Bandaríkjastjórn hygðist halda
tengslum sínum við heimastjórn Pal-
estínumanna og jafnframt að hún
myndi áfram reyna að miðla málum í
Mið-Austurlöndum.
Sögulegur
fundur í Róm
RÍKI Atlantshafsbandalagsins
(NATO) og Rússland hafa ákveðið að
auka samvinnu sína á sviði aðgerða
gegn hinni alþjóðlegu hryðjuverkaógn.
Kom þetta fram á fundi sem fulltrúar
NATO og Rússa áttu í Róm á mánu-
daginn og lýst var sem „sögulegum“.
Fram kom þó ágreiningur um hvern-
ig skilgreina beri hugtakið „hryðju-
verkamaður“, einkum í tengslum við
þau átök sem Rússar eiga í við aðskiln-
aðarsinna í Tsjetsníu.
Robertson lávarður, framkvæmda-
stjóri NATO, sagði er hann ræddi við
blaðamenn að telja mætti Rómarfund-
inn sögulegan, en til hans var boðað í
því skyni að ræða hvernig haga megi
samvinnu gegn hryðjuverkaógninni.
TALSMENN Sósíal-
íska þjóðarflokksins og
Einingarlistans, dönsku
vinstriflokkanna tveggja,
sem harðast hafa barist
gegn Evrópusambandinu,
hafa nú boðað „sögulegt
uppgjör“ og verulega
stefnubreytingu í þeim
efnum. Síðastliðinn ára-
tug hafa Danir verið und-
anskildir samstarfinu inn-
an ESB í fjórum
mikilvægum atriðum, en
nú vilja vinstriflokkarnir
að fallið verði frá fyr-
irvörunum í varnar-
málum og í löggjafar- og
réttarfarsmálum. Ekki
gangi lengur að Danir
hafi engin áhrif á þróun
félagslegra réttinda, rétt-
indi innflytjenda og þar
fram eftir götunum. Kom
þetta fram í Berlingske
Tidende á mánudaginn.
EVRÓPUÞINGIÐ sam-
þykkti á þriðjudaginn
mikilvægar breytingar á
lögum um fjármálaþjón-
ustu í því skyni að auka
gagnsæi og koma í veg
fyrir uppákomur á borð
við Enron-hneykslið í
Bandaríkjunum.
FORSTJÓRI eins
helsta nútímalistasafnsins
í Bretlandi hefur sagt af
sér eða öllu heldur verið
rekinn fyrir að kalla verk
sumra kunnustu lista-
manna í landinu „ömur-
legt rugl“. Í grein, sem
hann skrifaði um stöðu
breskrar listsköpunar nú
um stundir, segir hann að
breski listaheimurinn sé í
þann veginn „að hverfa
inn um óæðri endann á
sjálfum sér“.
ÞORLÁKUR Þórðar-
son, fyrrverandi leik-
sviðsstjóri Þjóðleik-
hússins, lést á Land-
spítala við Hringbraut
aðfaranótt laugardags.
Hann var á 81. aldurs-
ári.
Þorlákur var fæddur
í Reykjavík 10. júní
1921. Foreldrar hans
voru Þórður Sigurðs-
son og Þóra Á. Ólafs-
dóttir. Þorlákur hóf
ungur störf hjá Þjóð-
leikhúsinu um það
leyti sem það var opn-
að 1950 og var lengst af sviðsmað-
ur. Síðar var hann leiksviðssstjóri
Litla sviðsins þegar það var opnað,
fyrst í Leikhúskjallaranum og síðar
í íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar.
Þorlákur starfaði hjá Þjóðleikhús-
inu þar til hann fór á
eftirlaun. Þá starfaði
hann einnig sem
leigubílstjóri hjá
BSR.
Þorlákur gekk í
knattspyrnufélagið
Víking 1938 og sat í
stjórn í mörg ár og
var formaður í tvö
skipti. Hann var heið-
ursfélagi Víkings. Þá
var Þorlákur knatt-
spyrnudómari í ára-
tugi og dæmdi á ann-
að þúsund leiki.
Einnig var hann félagi
í Lionsklúbbnum Baldri í áraraðir.
Eftirlifandi eiginkona hans er
Björg H. Randversdóttir og eign-
uðust þau þrjú börn. Þau eru
Randver, Sigríður og Margrét
Þóra.
Andlát
ÞORLÁKUR
ÞÓRÐARSON
ÞAÐ telst til tíðinda að verið sé
að gróðursetja tré á þorra og það
enga smágræðlinga.
Örn Einarsson, garðyrkjubóndi
í Silfurtúni á Flúðum, var í þeim
framkvæmdum nú einn daginn.
Auk þess að framleiða margar
tegundir af grænmeti hefur hann
verið dugmikill og áhugasamur
skógræktarmaður. Hann notaði
tækifærið á dögunum nú þegar
jörð er frosin og flutti tíu aspir,
af ýmsum tegundum, sem eru tíu
til tólf metrar á hæð og um tutt-
ugu til þrjátíu ára gamlar, frá
garðyrkjustöðinni að iðnaðar-
hverfinu á Flúðum og gróðursetti
þar. Trén eru gjöf til sveitarfé-
lagsins frá þeim hjónum í Silfur-
túni Erni og Marit.
Ekki gekk flutningurinn áfalla-
laus, stormsveipur feykti nokkr-
um trjánna út af brúnni yfir
Litlu-Laxá. Snör handtök flutn-
ingamanna gerðu að trén náðust
fljótt upp og voru síðan gróður-
sett í þorragaddinum. Örn segist
margoft hafa flutt til stærðartré
og það hafi undantekningarlaust
gefist vel.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Við flutninginn feykti stormsveipur nokkrum trjánna út af brúnni yfir Litlu-Laxá.
Trjáflutningar á þorra
Hrunamannahreppi. Morgunblaðið.
„LÁNASJÓÐSKERFIÐ er með
hótanir í garð fjölskyldu minnar
og nú er ekki annað sýnt en að
þetta fólk mitt verði sett á uppboð.
Það eina sem ég veit er að ég er
búinn að missa heilsuna og nú er
ég að missa fjölskylduna líka,“
segir Jóhannes Davíðsson öryrki
sem hefur í átta mánuði beðið eftir
niðurstöðu málskotsnefndar Lána-
sjóðs íslenskra námsmanna, en á
sama tíma eru í gangi innheimtu-
aðgerðir á láni sem hann hefur
ekki getað greitt af.
Jóhannes hefur verið úrskurð-
aður 75% öryrki, en hann þjáist af
MS-sjúkdómnum. Hann sótti um
undanþágu frá greiðslu námslána
árið 1999, en stjórn sjóðsins hafn-
aði beiðninni. Málskotsnefnd LÍN
staðfesti úrskurð lánasjóðsins í
ársbyrjun 2000.
Umboðsmaður taldi afgreiðsl-
una ekki í samræmi við lög
Í framhaldi af því leitaði Jó-
hannes til umboðsmanns Alþingis.
Í áliti sem umboðsmaður sendi frá
sér í lok maí í fyrra er komist að
þeirri niðurstöðu að afgreiðsla
stjórnar Lánasjóðs íslenskra
námsmanna og síðar málskots-
nefndar Lánasjóðs íslenskra náms-
manna hafi ekki verið í samræmi
við lög. Beindi hann þeim tilmæl-
um til málskotsnefndar að hún taki
málið aftur til skoðunar.
Samkvæmt upplýsingum frá
Arnfríði Einarsdóttur, formanni
málskotsnefndar LÍN, áformaði
nefndin að úrskurða í málinu á
fundi í síðustu viku. Ákveðið hefði
hins vegar verið að gefa stjórn
LÍN færi á að veita umsögn um
málið, en að öllu óbreyttu yrði úr-
skurðað í málinu nk. fimmtudag.
Jóhannes er ósáttur við hvernig
haldið hefur verið á málinu af
hálfu LÍN. Í fyrsta lagi séu lána-
sjóðslögin úrelt. Í Danmörku kveði
sambærileg löggjöf skýrt á um að
taka skuli tillit til félagslegra að-
stæðna lánþega. Ef lánþegi sé svo
óheppinn að missa heilsuna sé
hann ekki krafinn um endur-
greiðslu lána. Hann segist einnig
vera ósáttur við að lögfræðifyr-
irtækinu, sem tók að sér inn-
heimtu á námsláninu, skuli ekki
hafa verið gert að bíða með inn-
heimtu meðan málið var til með-
ferðar hjá málskotsnefnd LÍN.
Fyrir rúmri viku hafi honum bor-
ist bréf þar sem honum væri gert
skylt að greiða gjaldfallna skuld
við LÍN upp á rúma eina milljón
króna. Jafnframt hafi fjölskyldu
hans, sem gekk í ábyrgð fyrir lán-
inu, verið sent bréf.
Ástæðan fyrir því að lögfræði-
innheimtu er haldið áfram þrátt
fyrir að málskotsnefnd hefur ekki
lokið umfjöllun sinni er sú að eng-
ar lagaheimildir eru fyrir hendi
sem heimila frestun á innheimtu-
aðgerðum.
Öryrki hefur í átta mánuði beðið eftir að brugðist
sé við áliti umboðsmanns Alþingis í máli hans
Innheimtuaðgerð-
um haldið áfram