Morgunblaðið - 10.02.2002, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 10.02.2002, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2002 53 DAGBÓK 20% afsláttur af allri línunni - alla þessa viku - í öllum verslunum Lyf & heilsu Kynningar og ráðgjöf: Lyf og heilsu Glæsibæ mánud. 11. feb. kl. 13-17 Lyf og heilsu Austurstræti þriðjud. 12. feb. kl. 13-17 Lyf og heilsu Fjarðarkaupum miðvikud. 13. feb. kl. 13-17 Lyf og heilsu Mjódd miðvikud. 13. feb. kl. 13-17 Lyf og heilsu Suðurströnd fimmtud. 14. feb. kl. 13-17 Lyf og heilsu Austurveri fimmtud. 14. feb. kl. 13-17 Lyf og heilsu Kringlunni föstud. 15. feb. kl. 13-17 Lyf og heilsu Hrísalundi, Ak. föstud. 15. feb. kl. 13-17 Lyf og heilsu Glerártorgi, Ak. laugard. 16. feb. kl. 13-17 Sigurstjarnan, Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin), sími 588 4545. Rýmum fyrir vörum - allt á að seljast Húsgögn, pelsar, rúmteppi og dúkar - 50% afsláttur Lampar og ljós - 30% afsláttur Aðrar gjafavörur - 20% afsláttur Sigurstjarnan - Stórútsala Opið sunnudag frá kl. 13-16 Umsjónarmaður þessara pistla er að vísu alger landkrabbi, eins og sagt er um þann, sem „vinnur í landi og er lítið gefinn fyr- ir (þekkir lítið) sjávar- vinnu“, svo sem stendur í orðabókum. Engu að síður hef ég sem orðabókarmað- ur lengstan hluta ævi minnar velt fyrir mér ýms- um orðum úr sjómanna- máli. Ég hef t.d. þótzt taka eftir því, að menn noti ofangreind orð sem eins konar samheiti, þ.e. að nota megi þau hvort fyrir annað, ef svo ber undir. Máltilfinning mín segir annað. Nokkuð virðist þetta samt vera á reiki í tali manna. Er þá talað um, að mikið vatn sé komið í lest skipsins, en ekki sjór. Fyrir stuttu las ég frásögn í blaði, þar sem sagði frá sjómönnum í nauð í björg- unarbáti suður í Biscaya- flóa. Þar sagði m.a., að „báturinn var illa búinn til þess að sigla beitivind og hann fylltist óðar af vatni, ef honum var snúið upp í vindinn“. Á öðrum stað stóð þetta: „Báturinn var svo lekur að menn sátu í vatni upp fyrir ökla og oft upp á miðja leggi.“ Loks kom að því, að menn voru ekki færir um að valda austurtrogi „og eftir þetta sátu menn í bátnum hálf- um af sjó“. Hér eru orðin vatn og sjór notuð til skipt- is um sama fyrirbæri. Mér finnst hins vegar einboðið að nota hér no. sjór. Bát- urinn fylltist óðar af sjó, ef honum var snúið upp í vindinn. Menn sátu í sjó upp fyrir ökkla o.s.frv. Í orðabókum er no. vatn skýrt sem lögur (í hreinu ástandi tær, litlaus og lyktarlaus, efnasamband af ildi og vetni). Hins veg- ar er sjór blandaður salti og ýmsum öðrum efnum og því ekki hæfur til drykkju. – J.A.J. ORÐABÓKIN Vatn – sjór STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake VATNSBERI Afmælisbörn dagsins: Þú ert vingjarnlegur, við- kvæmur og samúðarfullur einstaklingur. Öðrum kann að finnast þú of sjálfstæð(ur) eða óhefðbundin(n) Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Viðræður við vin um vonir þínar og drauma fyrir fram- tíðina gætu borið óvæntan ávöxt. Innlegg annarra gæti veitt þér meiri innblástur en þig hefur dreymt um. Naut (20. apríl - 20. maí)  Ef þú ert óviss um hvert þú stefnir í lífinu - óttastu ekki. Ákveðin stjarnfræðileg af- staða er ruglingsleg og varp- ar þoku á þetta hjá þér núna. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Samband þitt við tengdafólk þitt eða einhvern þér eldri gæti verið sérstaklega hlý- legt í dag. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þetta er ekki góður dagur til að lána öðrum peninga og ekki heldur til að fá peninga að láni. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú finnur til venju fremur mikillar samúðar með ástvin- um þínum í dag og þú ert fús til að gefa þeim síðustu eigur þínar. Þetta kann að virðast aðdáunarvert en það er hægt að vera kjánalega samúðar- full(ur). Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Vertu opin(n) fyrir óvenjuleg- um uppástungum sem gætu bætt heilsu þína. Þær gætu verið um óhefðbundnar lækn- ingar eða frá vettvangi sem þú hefur hingað til litið horn- auga. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Hæfni þín til að meta fegurð, ævintýri, rómantík og gáska- fullan leik með börnum er mikil í dag. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Hugsanlega verður ætlast til þess að þú gerir meira en þér ber til að hjálpa einhverjum heima fyrir í dag. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þó svo að nauðsynlegt sé beita vitsmununum fyrir sig þá munu ímyndunarafl þitt og innsæi geyma lykilinn að vel- gengni þinni í dag. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú freistast til að kaupa þér munaðarvöru í dag sem hugs- anlega er dýrari en þú hefur ráð á. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þurfir þú á hjálp að halda í dag muntu auðveldlega fá samúð annarra. Einhverra hluta vegna eru aðrir einkar vinveittir þér í dag. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Dagurinn í dag er kjörinn fyrir dagdrauma og óra eða til að horfa á kvikmyndir. Þig langar að flýja veruleikann með huganum og skynjun- inni. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Árnað heilla 60 ÁRA afmæli. Ámorgun, mánudag- inn 11. febrúar, verður sex- tug Rósa Skarphéðinsdótt- ir, Hulduhlíð 24, Mosfellsbæ (áður Neskaup- stað). Hún tekur á móti vin- um og vandamönnum í dag, sunnudaginn 10. febrúar, kl. 16–19 í Höfðagrilli, Bílds- höfða 12. 50 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 10. febrúar, er fimmtug Erla Kristbjörg Sigurgeirsdótt- ir, Öldugranda 1, Reykja- vík. 50ÁRA afmæli. Á morg-un, mánudaginn 11. febrúar, er fimmtug Ingi- björg Guðnadóttir. Eigin- maður hennar er Gunnar Þorsteinsson, forstöðumað- ur Krossins. Þau fögnuðu einnig 30 ára hjúskaparaf- mæli hinn 25. desember sl. Þau bjóða ættingja og vini velkomna á samkomu í Krossinum hinn 10. febrúar kl. 16:30 og að lokinni sam- komu verður opið hús í mat- sal áfangaheimilisins, Hlíða- smára 5–7, til kl. 22. AUSTUR er höfundur sagna og vekur á fjórum hjörtum: Norður ♠ 43 ♥ DG6 ♦ 1097 ♣ÁK852 Vestur Austur ♠ 852 ♠ 9 ♥ 109 ♥ ÁK875432 ♦ G85432 ♦ 6 ♣93 ♣DG10 Suður ♠ ÁKDG1076 ♥ – ♦ ÁKD ♣764 Síðan taka NS við og feta sig af vísindalegri nákvæmi upp í sjö spaða: Vestur Norður Austur Suður – – 4 hjörtu 6 spaðar! Pass 7 spaðar Allir pass Vestur kemur út með hjarta- tíuna og nú fær lesandinn tvær spurningar að glíma við: (1) Hvernig á að ná í þrettánda slaginn? (2) Skipt- ir máli hvaða spil fer úr blindum í fyrsta slag? Eina von sagnhafa er þvingun á austur í hjarta og laufi. Austur verður þar með að eiga a.m.k. þrjú lauf til hliðar við ÁK í hjarta. Sagn- hafi tekur öll trompin nema eitt og nær upp þessari stöðu: Norður ♠ – ♥ DG ♦ – ♣ÁK Vestur Austur ♠ – ♠ – ♥ 9 ♥ ÁK ♦ G ♦ – ♣93 ♣DG10 Suður ♠ 6 ♥ – ♦ – ♣764 Austur á enn eftir að henda í næstsíðasta trompið. Ef hann lætur frá sér lauf tekur sagnhafi ÁK og kemst heim á tromp til að taka frí- laufið. Og hendi austur hjarta er einfalt mál að fría slag á litinn með trompun. (2) En þá er það síðari spurningin. Hér hefur sagn- hafi greinilega látið smátt hjarta í fyrsta slaginn og það réttilega, því ef drottningu eða gosa er stungið upp þarf að „lesa“ hjartalengd aust- urs í lokastöðunni. Austur gæti allt eins verið með skiptinguna 1-7-1-4. Þá hendir hann laufi, en sagn- hafi veit ekki hvort það er frá þrílit eða fjórlit. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson LJÓÐABROT ÚR MÆÐGNASENNU Við skulum ekki hafa hátt; hér er margt að ugga. Í allt kvöld hefi eg andardrátt úti heyrt á glugga. Þórður Magnússon á Strjúgi. 1. e4 c6 2. Rc3 d5 3. Rf3 Bg4 4. h3 Bxf3 5. Dxf3 Rf6 6. g3 e6 7. Bg2 Rbd7 8. d4 Bb4 9. e5 Re4 10. O-O Rxc3 11. bxc3 Be7 12. Dg4 g6 13. a4 Da5 14. Bd2 Rb6 15. Hfb1 Rc4 16. Be1 Hb8 17. Bf1 O-O 18. Bd3 Dc7 19. De2 b5 20. f4 a5 21. g4 bxa4 22. f5 Hxb1 23. Hxb1 Ra3 24. Ha1 Hb8 25. Kg2 Hb1 26. Ha2 Rc4 27. f6 Bf8 28. Bxc4 dxc4 29. Hxa4 c5 30. Kg3 cxd4 31. cxd4 c3 32. De3 Hb4 33. Ha3 Hxd4 34. Hxc3 Dd8 35. Hc6 a4 Staðan kom upp í Rilton Cup sem lauk fyrir skömmu í Stokkhólmi. Jonny Hector (2528) hafði hvítt gegn ensku skákkon- unni Harriet Hunt (2406). 36. Ba5!? Dxa5? Svartur stæði síst lakar eftir 36...Dd5 37. Hc8 Hc4. Eftir textaleikinn tapar svartur skiptamun án nægra bóta. 37. Dxd4 De1+ 38. Kg2 De2+ 39. Df2 Dxe5 40. Hc8 a3 41. Df3 Dd6 42. Dd3 Db4 43. Ha8 h6 44. c3 Dc5 45. Dd7 a2 46. Ha7 Dd5+ 47. Dxd5 exd5 48. Hxa2 Bd6 49. Ha6 Be5 50. Hc6 g5 51. Kf3 Kh7 52. Ke3 Kg6 53. Kd3 h5 54. Ha6 hxg4 55. hxg4 Bxf6 56. Hd6 Kg7 57. Hxd5 og svartur gafst upp. Players hraðskákmótið fer fram í dag á samnefndum bar. Taflið hefst kl. 19.00 og eru áhorfendur velkomnir. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.