Morgunblaðið - 10.02.2002, Blaðsíða 51
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2002 51
Allir fylgihlutir fyrir dömu og herra
Mikið úrval af samkvæmisfatnaði
Efnalaug og fataleiga Garðabæjar
Opið alla daga frá kl. 10-18, laugardaga frá kl. 10-14.
Garðatorgi 3, sími 565 6680
Glæsilegir
brúðarkjólar
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
www.xd.is
DAGSKRÁ
Mánudagur 18. febrúar
kl. 19.00-19.10 Skólasetning: Davíð Oddsson, forsætisráðherra
og formaður Sjálfstæðisflokksins.
kl. 19.15-20.45 Borgarmálin: Björn Bjarnason, menntamálaráðherra.
kl. 21.00-22.30 Listin að vera leiðtogi: Ásdís Halla Bragadóttir,
bæjarstjóri í Garðabæ.
Þriðjudagur 19. febrúar
kl. 19.00-20.30 Um hvað snúast stjórnmál? Dr. Stefanía Óskarsdóttir,
stjórnmálafræðingur.
kl. 20.45-22.15 Áhrifaríkur málflutningur: Gísli Blöndal, markaðs-
og þjónusturáðgjafi.
Fimmtudagur 21. febrúar
kl. 19.00-20.30 Sjálfstæðisstefnan: Sólveig Pétursdóttir, dómsmálaráðherra.
kl. 20.45-22.15 Ríkisfjármál/efnahagsmál: Geir H. Haarde, fjármálaráðherra.
Mánudagur 25. febrúar
kl. 19.00-20.30 Menntun og menning: Sigríður A. Þórðardóttir, formaður
þingflokks sjálfstæðismanna.
kl. 20.45-22.15 Borg fyrir fólk: Inga Jóna Þórðardóttir, borgarfulltrúi.
Þriðjudagur 26. febrúar
kl. 19.00-20.30 Frétta- og greinaskrif: Gréta Ingþórsdóttir, framkvæmdastjóri
þingflokks sjálfstæðismanna.
kl. 20.45-22.15 Árangursríkur málflutningur: Gísli Blöndal, markaðs-
og þjónusturáðgjafi.
Fimmtudagur 28. febrúar
kl. 19.00-20.30 Taktu þátt, hafðu áhrif: Hanna Birna Kristjánsdóttir,
aðstoðarframkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins.
kl. 20.45-22.15 Íslenska stjórnkerfið á nýrri öld: Dr. Hannes H. Gissurarson,
prófessor við HÍ.
Laugardagur 2. mars
kl. 13.00-16.00 Sjónvarpsþjálfun: Gísli Blöndal og Björn G. Björnsson,
kvikmyndagerðarmaður.
Mánudagur 4. mars
kl. 19.00-20.30 Fjölmiðlar og stjórnmál: Þorgerður K. Gunnarsdóttir,
alþingismaður.
kl. 20.45-22.15 Hvert er hlutverk sveitarfélaga, hverjar eru kröfur íbúanna?
Jónmundur Guðmarsson, stjórnmálafræðingur og oddviti
sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi.
Þriðjudagur 5. mars
kl. 19.00-20.30 Heilbrigðisþjónusta í þróun: Ásta Möller, alþingismaður.
kl. 20.45-22.15 Ísland í samkeppni þjóðanna: Tómas Ingi Olrich,
alþingismaður og formaður utanríkismálanefndar Alþingis.
Fimmtudagur 7. mars
kl. 20.00-22.00 Heimsókn í Alþingi. Starfshættir Alþingis og meðferð
þingmála: Halldór Blöndal, forseti Alþingis.
Skólaslit.
Staður: Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Tími: 18. febrúar til 7. mars.
Innritun:
Sími 515 1700/1777 - bréfsími: 515 1717
Heimasíða: http://www.xd.is
Netfang: disa@xd.is
Þátttökugjald: 10.000 kr.
Nemendagjald: 8.000 kr.
UNDIRRITUÐ skoðaði af áhuga
blað sem út kom á dögunum, þar
sem birtar voru tilnefningar til Ís-
lensku tónlistarverðlaunanna, enda
reynt að fylgjast með því sem er að
gerast í íslensku tónlistarlífi á
breiðum grundvelli og hrifist mjög
af þeim krafti og fjölbreytni sem
einkenna tónlistarlíf okkar.
Þegar ég leit yfir tilnefningarnar
í flokki klassík; tónverk ársins, brá
mér í brún þegar í ljós kom að Bás-
únukonsert Áskels Mássonar,
Canto Nordico, hafði ekki verið til-
nefndur til verðlaunanna. Verkið
Canto Nordico var frumflutt á liðnu
ári á áskriftartónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands við góða að-
sókn tónleikagesta. Einleikarinn
var frægasti básúnuleikari heims,
Christian Lindberg, sem fór á kost-
um í verki Áskels. Viðtökur tón-
leikagesta eftir flutninginn svo og
blaðadómar bæði í Mbl. og DV voru
á þann veg, að ljóst mátti vera að
hér hafði átt sér stað stór viðburður
í okkar tónlistarlífi.
Ekki má skilja mig svo að ég vilji
lasta þau verk sem tilnefnd voru
þessu sinni, en ég spyr einfaldlega;
hvernig var hægt að horfa fram hjá
þessu verki?
Ég vona að Íslensku tónlistar-
verðlaunin muni í framtíðinni end-
urspegla sem best það sem hæst
hefur borið í tónlistarlífi okkar.
SIGRÍÐUR BÚADÓTTIR,
hjúkrunarfræðingur,
Leifsgötu 20, Reykjavík.
Tilnefningar til Íslensku
tónlistarverðlaunanna
Frá Sigríði Búadóttur:
ÁGÆTU íþróttafréttamenn með Ing-
ólf Hannesson í broddi fylkingar!
Ansi finnst mér þetta vera orðið
snautleg staða hjá íþróttadeid RÚV,
og þá á ég ekki aðeins við það að hafa
misst af HM í fótbolta, heldur hitt að
á ykkar bæ eins og í öðrum miðlum
hefur hreinlega litið út undanfarið
eins og að ekkert sé að gerast fram að
HM. Það er varla minnst á það að í
hönd fer einn mesti íþróttaviðburður í
heiminum, Vetrarólympíuleikarnir í
Salt Lake, og sjónvarpið er ekki enn,
að því ég hef tekið eftir, greint frá því
hvernig fréttaþjónustu verði háttað af
leikunum. Og svo virðist sem þið hafið
hreinlega ekki þorað að reyna að ná
samningum um beinar útsendingar
frá keppninni, á hættu við það að fá þá
alla „fótboltamaníuna“ í landinu á
bakið.
Nú hafa vetrarólympíuleikarnir
verið mjög vinsælt efni um tíðina, og
ófáir sem horfa t.d. á skautasýning-
arnar og minnast þá gjarnan Torvels
og Deen og bóleródans þeirra. Alpa-
greinarnar eru líka alltaf mjög vin-
sælar, íshokkíið, skíðastökkið og út-
sendingar frá göngunni á síðustu
leikjum voru afskaplega vel heppnað-
ar, þar fóru Samúel Erlingsson og
Daníel Jakobsson á kostum.
Nú er ég meðal mestu fótbolta-
áhugamanna í landinu og var t.d. í
einhver ár elsti leikmaður í deild,
þannig að ekki eru það fordómarnir á
móti fótboltanum sem knýja mig til
skrifa, heldur hitt hvað þetta er að
verða afskaplega einlitt. Það er eins
og öll þjóðin sé með fótbolta á heil-
anum. Jú, víst hefur Ríkissjónvarpið
reynt að skapa fjölbreytni, t.d. með
útsendingum frá Formúlunni og fleiri
greinum, en skíðin hafa oft orðið út-
undan, og þetta er áfall fyrir skíða-
áhugafólk ef lítið sem ekkert verður
sýnt frá Salt Lake. Ég hef þó borgað
afnotagöldin með glöðu geði fram að
þessu, en mér finnst það eina sem
gæti bjargað heiðri sjónvarps allra
landsmanna ef það kæmi með mynd-
arlega þætti frá Salt Lake, þótt ég
óttist að menn hafi misst af lestinni.
Með vinsemd og virðingu
ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON,
íþróttaáhugamaður og blaðamað-
ur, Sauðárkróki.
Snautleg staða hjá
íþróttadeild RÚV
Frá Þórhalli Ásmundssyni:
1. Ég átti ekki von á bréfi frá Bein-
vernd, enda stílaði ég spurningar
mínar á land-
lækni og minntist
þar hvergi á
Beinvernd eða
starfsemi hennar.
2. Allt er nú gott
og blessað í bréfi
Beinverndar –
nema þau aug-
ljósu ósannindi –
nálægt miðju
bréfsins – þar
sem gefið er í
skyn, að landlæknir hafi ekki tekið
þátt í að auglýsa sérstök matvæli.
Þetta vita allir, sem vita vilja.
3. Ég hef ekkert nema gott um
Beinvernd að segja og sama gildir
um það valinkunna fólk, sem henni
er tengt. Og ég skil vel, að Bein-
vernd, sem slík, auglýsi mjólk og
mjólkurafurðir gegn beinþynningu,
enda er Markaðsnefnd íslenska
mjólkuriðnaðarins eini styrktaraðili
Beinverndar, sbr. upplýsingar á
heimasíðu.
4. En í opnu bréfi mínu frá 2. febr-
úar sl. beindi ég fjórum spurning-
um til Sigurðar Guðmundssonar
landlæknis og enn ætlast ég auðvit-
að til þess að fá svör frá honum.
GUNNAR INGI GUNNARSSON,
læknir.
Athugasemdir við óvænt
skrif Beinverndar
Frá Gunnari Inga Gunnarssyni:
Gunnar Ingi
Gunnarsson