Morgunblaðið - 10.02.2002, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2002 61
Frá leikstjóra Blue Streak
Hasarstuð frá byrjun til enda
Sýnd kl. 8 og 10. B.I. 14 ára. Vit 340
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 5.55, 8 og 10.15.
Vit 332
DV
Rás 2
Sýnd sd kl. 12 og 2. Vit 328
HJ MBL
ÓHT Rás 2 DV
Sýnd kl. 4. Ísl. tal. Vit 320
FRUMSÝNING
Sýnd kl. 11.45, 1.45, 3.50, 5.55, 8 og 10.10.
Mánudagur 3.50, 5.55, 8 og 10.10. Enskt tal. Vit 294
Sýnd kl. 11.45, 1.45, 3.50 og 5.55. Íslenskt tal. Vit 338
Mánudagur kl. 3.50 og 5.55.
Sýnd kl. 8 og 10.10.
B. i. 16. Vit329
1/2
Kvikmyndir.com
strik.is
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 2. Ísl. tal. Vit 325
FRUMSÝNING
FRUMSÝNING
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10.
B.i. 12. Vit 339.
Byggt á sögu Stephen King
Nýjasta mynd leikstjórans, Wayne Wang sem gerði Smoke
og Blue in the Face. Myndinni hefur verið líkt við Á Valdi
Tilfinninganna, Last Tango In Paris og Leaving Las Vegas.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i 12. Vit 339.
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Mán 6. Íslenskt tal. Vit 338.
Sýnd sd. kl. 2 og 4. Ísl. tal.
2 fyrir 1 Vit 292
Hverfisgötu 551 9000
Stórverslun á netinu www.skifan.is
Empire
DV
Rás 2
Kvikmyndir.com
Golden Globe
verðlaun3Aðalverðlaun dómnefndar íCannes og
besti leikari
og leikkona.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Sjúklegt ferðalag
tilfinningalausrar
konu sem haldin
er bældum
masókisma.
EKKI FYRIR
VIÐKVÆMA!
Sýnd kl. 8 og 10.30.
Stranglega bönnuð innan 16 ára.
DV
FRUMSÝNING
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B. i. 16.
SV Mbl
Sýnd kl. 6 og 8.
Ó.H.T. Rás2
„Frábær og bráðskemmtileg“
DV
MBL
Sýnd kl. 5.40 og 10. B. i. 16.
Spennutryllir
ársins
1/2
Radío-X
Kvikmyndir.com
Dóttur hans er rænt! Hvað er til ráða?
Spennutryllir ársins með Michael Douglas.
E
S
S
E
M
M
0
2
/0
2
Nám í alþjóðlegum sérskóla í hótelstjórnun er valkostur
sem tengist nýjungum og þróun í menntun. Nemendur eru
víða að úr heiminum og þannig skapast alþjóðlegt og
fjölbreytilegt umhverfi sem gerir dvölina ógleymanlega.
International Hotel & Tourism Training Institute
er vel þekktur og viðurkenndur skóli á sínu sviði. IHTTI er í
Neuchâtel í Sviss, sem er háskólaborg þar sem búa um
50.000 manns og þar er aðallega töluð franska, en þýskan er
aldrei langt undan. Kennslan fer fram á ENSKU.
KYNNING Í HÚSI MÁLARANS
M Á N U D A G I N N 1 1 . F E B R Ú A R • K L 1 6 : 0 0
STÚDENTAFERÐIR • BANKASTRÆTI 10 • 101 REYKJAVÍK • SÍMI : 562 2362
S J Á E I N N I G : W W W. V I S TA S K I P T I . I S • W W W. I H T T I . C H
Hotel Management
FJÁRFESTU Í FRAMTÍÐINNI
In
te
rn
at
io
na
l H
ot
el
&
T
ou
ri
sm
T
ra
in
in
g
In
st
itu
te
V I S T A S K I P T I . I S
leika og eðli formsins og um leið held
ég að það geri mig að betri kennara,
leikara og leikstjóra fyrir vikið.“
Samhliða mastersnáminu tók
Steinunn að sér kennslu við leiklist-
ardeild De Montfort og síðustu tvö
árin, samhliða leik og leikstjórn, sá
hún um að byggja upp fornám fyrir
leiklist þar sem hún var einnig um-
sjónarkennari. Hún kemur jafnframt
til með að stunda kennslu við leiklist-
ardeild Listaháskóla Íslands.
Er ekki hálfskrýtið að vera allt í
einu farin að leikstýra og kenna við
skóla, sem einu sinni hafnaði þér?
„Nei, alls ekki. Það er engin
beiskja í mér út af því. Þvert á móti
tel ég nú, að þessi höfnun á sínum
tíma hafi verið mín blessun. Það er
ekkert víst að ég hefði fundið sjálfa
mig í Leiklistarskóla Íslands, en á
þessum árum var fólk ekki meðvitað
um að til væru aðrar nálganir og taldi
að eina leiðin inn í leiklistina væri í
gegnum Leiklistarskóla Íslands.
Núna er þetta umhverfi allt saman
breytt og er ungt fólk mjög meðvitað
um þá fjölmörgu kosti, sem í boði
eru. Mér hefur aftur á móti fundist
að ef fólk er að leita eftir menntun er-
lendis sé það að leita eftir skólum,
sem eru sem líkastir þeim íslenska í
stað þess að leita á ólík mið og bæta
þar með við leiklistarflóruna hér. Að
sama skapi finnst mér litlu leikhúsin
ekki vera nógu dugleg við að að-
greina sig frá því sem er að gerast í
stóru húsunum. Það er ekkert að því
að prófa nýjar leiðir og ganga svolítið
langt enda þarf andstæða og sterka
póla til að skapa sem fjölbreyttasta
flóru. Þetta er spurning um þor, ögr-
un og að standa á því sem maður trú-
ir á. Ef við tökum myndlistina sem
dæmi, þá eru ekki allir ennþá að fást
við málverkið. Þar þrífast samsíða
mjög mismunandi tjáningarform, allt
undir hatti myndlistarinnar. Það
sama ætti að gilda um leiklist.“
Ofuráhersla á bókmenntir
„Það hefur að sama skapi truflað
mig afskaplega mikið við leikhúslífið
á Íslandi hvað bókmenntir hafa háan
sess. Bókmenntirnar virðast skipta
aðalmáli þegar komið er út í leik-
húsið og komast aðrar listgreinar
ekki í hálfkvisti við þær. Þetta sést
t.d. vel í leikdómum margra gagn-
rýnanda, sem oft gefa bókmennta-
verkinu sem slíku nánast allt sitt
rými meðan litið er á sköpunarvinnu
leikara, leikstjóra og annarra þeirra
listamanna, sem að verkinu koma,
meira eins og skraut við textann.
Leikhúsið er þó samruni listforma
þar sem ekkert form er göfugra en
annað. Hreyfing, mynd og tónlist
geta líka verið texti og í samrunanum
verður til flókin flétta, sem skapar
sjálfstætt verk.“
Ertu sjálf svolítill ögrari?
„Ég er ekki uppreisnargjörn í eðli
mínu, en ég trúi á ákveðna hluti og er
tilbúin til að standa og falla með
þeim. Ég stend við það sem mér
finnst og kæri mig ekki um mála-
miðlanir.“
Steinunn er á þeirri skoðun að ís-
lenskt leikhúsfólk hafi ekki verið
nógu duglegt við að þróa alla mögu-
leika þessa stórkostlega miðils, leik-
hússins. „Umgjörð skiptir Íslendinga
afar miklu máli, en maður þarf ekk-
ert musteri til þess að skapa frábæra
list. Hana má búa til í næstu skemmu
ef svo ber undir og hef ég í gegnum
tíðina búið til leikhús við ótrúlegar
aðstæður og sett upp verk í hráu
húsnæði, þar sem sköpunarkraft-
urinn hefur fengið að njóta sín.
Sömuleiðis hef ég sérstakt yndi af
því að vinna með listamönnum úr
mismunandi listgeirum. Ég tók til að
mynda í fyrra þátt í mjög skemmti-
legu tilraunaverkefni þar sem att var
saman dönsurum, leikurum, tónlist-
armönnum, plötusnúði, myndbands-
listamanni, arkitekt og ljósamanni.
Þessum hópi var í sameiningu falið
að búa til leikhús, sem úr varð mjög
skemmtilegur samruni listforma þar
sem leikhúsformið fékk að fullu að
njóta sín.“
Hvað höfðar mest til þín í leikhús-
inu?
„Það skemmtilegasta við leikhúsið
er að það tekur á mannlegri tilvist
eins og hún leggur sig. Lífið er frá-
bært, en mesta listin er auðvitað list-
in að lifa. Öll mannleg tilvist finnst
mér vera mjög spennandi viðfangs-
efni. Leiklistin er vettvangur allrar
tjáningar og þó að leikhúsið geri mik-
ið af því að skemmta fólki og geðjast
því finnst mér ekki síður mikilvægt
að það leitist við að vekja fólk til um-
hugsunar. Mér finnst sjálfri sýn-
ingar, sem ég ekki skil og trufla mig í
formi og innihaldi, mest áhrif hafa á
mig, en ég hef líka alltaf mjög gaman
af öllum léttleika en aðeins ef í hon-
um er djúpur undirtónn. Það eru
tvær hliðar á öllu og með því að
draga þær báðar fram skapast dýpt.
Þess vegna er góð kómedía harm-
leikur og harmleikurinn kómedía.“
Þegar Steinunn er spurð hvað taki
nú við hugsar hún sig um og svarar
svo að hún hafi alltaf mörg járn í eld-
inum sem bíði þess að líta dagsins
ljós. Hún segist ekki kvíða aðgerð-
arleysi, en áfram vilji hún eftir megni
geta skotið sér hjá því að verða sett á
fastan bás. Auk kennslustarfa er hún
með verkefni í smíðum ásamt Rúnari
Guðbrandssyni. „Við ætlum að ger-
ast svo djörf að vinna með Íslend-
ingasögurnar, Njálu og Völuspá, og
ef allt gengur að óskum ætlum við að
æfa í sumar og frumsýna næsta
haust ef við fáum einhvern til þess að
trúa á okkur. Hingað ætlum við að fá
danskan kvenleikstjóra, sem hefur
menntað sig í Japan, og það nám
byggist á svokallaðri suzuki-
leiktækni. Leikarar verða frá Íslandi
og öðrum Norðurlöndum,“ segir
Steinunn og bætir við að í mars-
byrjun sé hún svo á leið til Suður-
Ítalíu, þar sem hún muni taka þátt í
námskeiði hjá rússneskum meistara,
Júrí Alschitz að nafni. Hann hafi þró-
að mjög athyglisverða aðferðafræði,
sem hefur rót í rússnesku hefðinni,
og leggur mikla áherslu á textagrein-
ingu. „Í reynd hef ég verið á nám-
skeiði hjá honum í heilt ár og hef m.a.
sótt þessi námskeið í Berlín og
Moskvu. Það eru símenntunarsam-
tök, sem standa fyrir þessari endur-
menntun fyrir leikhúsfólk alls staðar
úr heiminum.“
Heiðursmannasamkomulag
Það líður að lokum spjalls okkar,
en að lokum er Steinunn spurð
hvernig hún eiginlega fari að, þriggja
barna móðirin með mann í rannsókn-
arvinnu, skorpuvinnu á herðunum og
ferðalög hingað og þangað í lengri
eða skemmri tíma. Hún brosir út í
annað og fullvissar mig um að þau
hjónin hafi alla tíð verið sammála um
það að setja listina að lifa í forgang á
heimilinu. „Það til dæmis skiptir
okkur miklu máli að elda góðan mat
saman, vera góð hvort við annað og
eyða miklum tíma saman. Á hinn
bóginn höfum við ekki viljað fórna
okkar frama fyrir hvort annað og því
gerðum við með okkur formlegt sam-
komulag þegar annað barnið okkar
var á leiðinni, þess efnis að við
skyldum gefa hvort öðru leyfi og
rými til þess að geta sinnt okkar. Það
þýðir að hann má fara í rannsókn-
arferðir til útlanda og ég í leik-
stýriferðir eitthvert annað og í þessu
hefur ríkt fullkomið jafnræði. Þetta
heiðursmannasamkomulag hefur
orðið til þess að ég nýt mín í mínu
fagi og maðurinn minn nýtur sín í
sínu fagi, sem leiðir það líka af sér að
fyrir vikið verðum við bæði mun
meira gefandi í samskiptum á heim-
ilinu.“