Morgunblaðið - 14.02.2002, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 14.02.2002, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Ísland á iði 2002 Aðalatriðið að hreyfa sig ÍÞRÓTTA- og Ólympíu-samband Íslands, ÍSÍ,gengst á næstunni fyrir átakinu „Ísland á iði 2002“ sem er „barátta við sófann“ eins og fram kem- ur í fréttatilkynningu frá sambandinu. Í stuttu máli hafa umræddir aðilar áhyggjur af hreyfingar- leysi þjóðarinnar og alls sem því fylgir. ÍSÍ á 90 ára afmæli á þessu ári og lítur á það sem sína bestu af- mælisgjöf, að landsmenn gefi sjálfum sér heilbrigð- ara líf með aukinni hreyf- ingu. Ýtt verður úr vör í Smáralind 23. febrúar nk. með sérstökum hvatning- ar- og heilsudegi, en síðan rekur hver viðburðurinn annan. Verkefnisstjóri er Gígja Gunnarsdóttir og hún svar- aði nokkrum spurningum Morg- unblaðsins. Hvert er tilefni „Íslands á iði 2002“? „Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og sambandsaðilar þess hafa síðan árið 1912 boðið þjóðinni upp á eins faglegt og öflugt íþróttastarf og kostur hefur verið á hverju sinni. Með því að taka þátt í því hafa ófáir hlotið sitt heilsuuppeldi, þ.e. lært að gera hreyfingu og heilsusamlegt líferni að órjúfanlegum hluta af sínu dag- lega lífi. Á síðari árum hafa sífellt fleiri rannsóknir rökstutt hversu mikilvæg reglubundin hreyfing er til að viðhalda og bæta andlega og líkamlega heilsu. Samtímis leiða rannsóknir einnig í ljós þær slá- andi niðurstöður að Íslendingar eru að fitna og offita og hreyfing- arleysi er vaxandi vandamál hjá þjóðinni. ÍSÍ vill vinna á móti þessari þró- un og koma enn öflugar að heil- brigðismálum þjóðarinnar. Það verður gert með því að hlúa að og efla þá miklu og góðu starfsemi sem þegar er í gangi, en um leið verður sérstök áhersla lögð á að hvetja landsmenn á öllum aldri til aukinnar hreyfingar og heilsuefl- ingar. Í því skyni hefur ÍSÍ hleypt af stokkunum hvatningarverkefn- inu „Ísland á iði 2002“ og þar sem sambandið er 90 ára á þessu ári var ákveðið að þetta verkefni yrði tileinkað afmælinu. Góð vísa er aldrei of oft kveðin.“ Hvað viljið þið að landsmenn geri í þessum efnum? „Við viljum einfaldlega hvetja almenning til að setja heilsuna í forgang og auka hlut hreyfingar í sínu daglega lífi. Það er hægt að gera á ótal hátt, ekki síst með því að takmarka bílanotkun eins og mögulegt er og þess í stað t.d. að ganga eða hjóla á milli staða. Það er hægt að nota stigann í stað þess að taka lyftuna og einfaldlega vera sífellt vakandi fyrir því að velja hreyfingu fremur en kyrrsetu. Foreldrar eru sérstaklega hvattir til að íhuga hversu mikilvægar fyrirmyndir þeir eru og hversu mikil áhrif þeir geta haft á hreyfingu barna sinna. Tuttugu mínútna hreyfing sem flesta daga vikunnar er allt sem þarf. Ganga, hlaup, hjólreiðar, sund... það verð- ur hver og einn að velja á sínum forsendum hvað hann gerir og hvenær dagsins hann gerir það. Aðalatriðið er að hreyfa sig!“ Hverjir standa að átakinu og segðu okkur eitthvað frá fram- kvæmd þess og lengd. „Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, almenningsíþrótta- og umhverfissvið, stendur fyrir þessu átaki, en til að ná öflugum slag- krafti í það leitum við samstarfs við ýmsa aðila. Heilbrigðisráðu- neytið styður vel við bakið á okkur og sambandsaðilar ÍSÍ halda að sjálfsögðu áfram því góða starfi sem þeir eru að vinna. Við höfum verið í sambandi við aðila sem eru að vinna að sömu markmiðum og við, t.d. Manneldisráð, Hjarta- vernd og Geðrækt, til að finna fleti á mögulegu samstarfi og verðum í sambandi við sveitarfélög, stéttar- félög og fyrirtæki með samstarf í huga. Síðast en ekki síst er gott samstarf við fjölmiðla afar mikil- vægt til að koma hvatningum áfram. Hvatningarverkefnið Ís- land á iði 2002 er hugsað til eins árs en að sjálfsögðu komum við til með að halda boðskapnum áfram á lofti og þá sem fyrr bjóða fólki á öllum aldri með misjöfn markmið tilboð við sitt hæfi.“ Hvernig verður átakið kynnt? „Það verður kynnt með öflugri hvatningarherferð í fjölmiðlum, bæði á beinan hátt með auglýsing- um og á óbeinan hátt með viðtöl- um og greinarskrifum. Boðskap- urinn er skýr; hreyfa sig! Veggspjöldum verður dreift á sem flesta staði um land allt og við leit- umst eftir að tengjast viðburðum og hvetja til að haldnir verði við- burðir sem miða að því að drífa hinn almenna borgara af stað í heilsusamlega hreyfingu. Einn lið- ur í kynningu Ísland á iði 2002 eru hvatningar- og heilsudagar í Smáralind, helgina 16.– 17. mars Það getur fólk nálgast ýmiss konar fræðsluefni og í boði verður fjölbreytt og öfl- ug dagskrá þar sem hægt er að kynnast og prófa hinar ýmsu íþróttir.“ Hvað á að hreyfa sig mikið? „Það er enginn að tala um að koma sér í „ólympíuform“. Aðal- atriðið er að líta í eigin barm. Hvað á ég að gera núna? Er ég sátt(ur)? Ef ekki, hvað get ég gert til að bæta mig. Og síðan er bara að drífa sig af stað og hafa hugfast að allt er betra en ekkert.“ Gígja Gunnarsdóttir  Gígja Gunnarsdóttir er fædd í Danmörku 1973. Stúdent frá MR, náttúrufræðibraut 1, Íþrótta- kennarapróf frá KHÍ. Er í fjar- námi KHÍ til BS-gráðu í íþrótta- fræðum og þátttakandi í Frum- kvöðlaAuði á vegum Auðar í krafti kvenna. Deildarstjóri íþrótta við MA 1998–2001. Var starfsmaður Íþróttakennarafé- lags Íslands 2001, framkvæmda- stjóri Kvennahlaups ÍSÍ 2001 og 2002 og verkefnisstjóri hjá ÍSÍ síðan um áramót. Sambýlis- maður er Þorkell Guðjónsson viðskiptafræðingur. ...hafa ófáir hlotið sitt heilsuuppeldi Sjáðu bara, sjáðu, tveir plús tveir eru mínus fjórir ekki plús fjórir. HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt eign- arhaldsfélag í Reykjavík, sem seldi manni bílaþvottastöð ásamt tækja- búnaði hennar, til að greiða kaup- andanum 9 milljónir króna í bætur auk vaxta þar sem bílaþvottavélarn- ar reyndust ónothæfar. Í málinu var deilt um bótakröfu kaupanda þvottastöðvarinnar vegna bílaþvottavélanna. Taldi rétturinn að þær hefðu verið í mun lakara ásig- komulagi en við hefði mátt búast, en báðir málsaðilar og fasteignasali virtust hafa miðað við að nokkur við- gerð þeirra á vegum kaupandans myndi leiða til þess að þær yrðu hon- um nothæfar. Vélarnar voru því ekki taldar hafa haft þá kosti, sem hefði mátt ætla að væru áskildir og telja yrði að eign- arhaldsfélagið hefði ábyrgst, saman- ber kaupalög. Þá var talið að mað- urinn hefði ekki sem leikmaður mátt gera sér fulla grein fyrir raunveru- legu ástandi vélanna við skoðun þeirra og var 47. gr. kaupalaga ekki talin standa í vegi fyrir bótaábyrgð félagsins. Kaupandinn hafði krafist bóta vegna vélanna í beinu framhaldi af niðurstöðu vélfróðra skoðunar- manna um ástand vélanna og var þannig talinn hafa uppfyllt skilmála 52. gr. kaupalaga. Staðfesti Hæstiréttur því niður- stöðu héraðsdóms um bótaskyldu eignarhaldsfélagsins. Var það og dæmt til að greiða honum samtals 700 þúsund krónur í málskostnað fyrir Hæstarétti og í héraði. Málið dæmdu hæstaréttardómar- arnir Hrafn Bragson, Haraldur Henrysson og Pétur Kr. Hafstein. Lögmaður áfrýjanda, eignarhalds- félagsins, var Björgvin Þorsteinsson hrl. og lögmaður stefnda, kaupand- ans, Ólafur Garðarsson hrl. Dæmt til greiðslu vegna ónothæfra bílaþvottavéla ♦ ♦ ♦ LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft- ir vitnum að umferðaróhappi sem varð á gatnamótum Túngötu og Garðastrætis laugardaginn 2. febr- úar um kl. 13.55. Þar var bifreið ekið suður Garða- stræti, beygt áleiðis austur Túngötu og utan í bifreiðina RT-933, af gerð- inni MMC Lancer, gráa að lit, sem ekið var austur Túngötu og beygt norður Garðastræti og í framhaldi af því ekið af vettvangi. Þeir sem geta veitt upplýsingar um málið eru beðn- ir að hafa samband við lögregluna í Reykjavík. Þá er lýst eftir vitnum að atviki við Suðurbugt gegnt verbúð 10, þegar ekið var á bifreiðina IR-697, sem er Mitsubishi Lancer, brún fólksbif- reið, þar sem hún stóð kyrr. Er talið að þetta hafi átt sér stað 12. febr. sl. á milli kl. 8 til 9.30. Tjón- valdur fór af vettvangi án þess að til- kynna um tjónið. Því er hann eða aðrir beðnir að snúa sér til umferð- ardeildar lögreglunnar í Reykjavík. Lýst eftir vitnum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.