Morgunblaðið - 14.02.2002, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 14.02.2002, Blaðsíða 60
60 FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Ó.H.T Rás2 Sýnd kl. 8 og 10.30. Vit 334. Bi. 14. Sýnd í Lúxus VIP kl. 5.20, 8 og 10.35. B.i. 16. Sýnd kl. 3.50, 5.55, 8 og 10.10. E. tal. Vit 294 Sýnd kl. 3.50 og 5.55. Íslenskt tal. Vit 338 Sýnd kl. 4 íslenskt tal. Vit 325 Sýnd kl. 8 og 10.10. Vit 319Sýnd kl. 6, 8 og 10.20. B.i. 12. Vit 339. Sýnd kl. 3.45. Vit 328 Sýnd kl. 4. Ísl. tal. Vit 320 1/2 Kvikmyndir.com Byggt á sögu Stephen King HK DV Strik.is  ½ RAdioX Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.30. B.i. 12 ára. Vit nr. 341. Það er ekki spurning hvernig þú spilar leikinn. Heldur hvernig leikurinn spilar með þig. Frá leikstjóra Enemy of the State og Crimson Tide. Íslandsvinurinn og töffarinn Brad Pitt sýnir magnaða takta í myndinni ásamt Óskarsverðlaunahafanum, Robert Redford. Adrenalínhlaðin spenna út í gegn. Frumsýning tilnefningar til Óskarsverðlauna4 Edduverðlaun6 Sýnd kl. 7. B.i 14. Ó.H.T Rás2 Strik.is Strik.is HK DV SG. DV RAdioX Sýnd kl. 5. Ó.H.T Rás2 Tilnefningar til frönsku Cesar - verðlaunanna il i il - l HJ MBL ÓHT Rás 2 DV Sýnd kl. 5. Sýnd kl. 10.30. Sýnd kl. 7 og 9.B.i. 14.Sýnd kl. 5, 7.30 og 10. B.i. 14. Sjóðheitasta mynd ársins er komin. Tom Cruise + Penelope Cruz=Heitasta parið í dag. Ásamt ofurskutlunni, Cameron Diaz. Myndin er hlaðin frábærri tónlist en Sigur Rós á þrjú lög í myndinni. Frá leikstjóra Jerry Maguire ÓHT Rás 2  HL Mbl  SG DV Sýnd kl. 7. ÞÞ Strik.is „sprengir salinn úr hlátri hvað eftir annað með hrikalegum sögum“ AE, DV „Þetta er frábær mynd sem allir foreldrar ættu að sjá“ MH, Kvikmyndir.is 13 Sýnd kl. 9. Síð ust u sýn ing ar útnefningar til Óskarsverðlauna5 tilnefningar til Óskarsverðlauna4 Sýnd kl. 5. með íslensku tali. TINNA Tómas er ung kona með skoðanir, enda umhverfi hennar stráð hetjudáðum, átökum og sálar- tónlist í hæsta gæðaflokki. Þrátt fyrir að vera hægrisinnuð og taka öllu sem frá Ameríku kemur fegins hendi verður hún ástfangin af manni af allt öðru sauðahúsi. Verð- ur það ástin eða hugsjónirnar sem hún velur? Enginn er betur til þess fallinn að svara þessari spurningu en María Þórðardóttir Verslunarskólanemi, dansari og nú söngvari og leikari líka. Hún fer með hlutverk Tinnu í söngleik Verslunarskólans, Slapp- aðu af, sem frumsýndur verður í Borgarleikhúsinu í kvöld. Þetta er í fjórða og því síðasta sinn sem María tekur þátt í söngleik skólans því hún tekur stúdentspróf í vor. Stjórnmálaskotinn söngleikur „Ég fór ekki í Versló með það í huga að taka þátt í söngleikjunum,“ segir María hin brosmilda, „heldur af því að þarna er nám sem ég hef áhuga á. Þátttakan í söngleikjunum var bara algjör bónus!“ Söngleikurinn Slappaðu af er að sögn Maríu stjórnmálaskotinn. Hann á að gerast á Íslandi á sjö- unda áratugnum og koma stór- viðburðir á borð við fyrstu skref mannsins á tunglinu og fyrstu út- sendingu Ríkissjónvarpsins við sögu. En snúum okkur aftur að Tinnu Tómas og ástamálum hennar. „Hún á kærasta úr hægra-liðinu en verð- ur svo ástfangin af manni úr því vinstra. Á endanum gerir hún upp- reisn gegn karlmönnum eins og þeir leggja sig og úreltum við- horfum og stofnar kvenrétt- indahreyfingu,“ útskýrir María. Í söngleiknum, sem gerður er eft- ir handriti Felix Bergssonar og er í leikstjórn félaga hans Gunnars Helgasonar, mæðir mikið á Maríu, en alls taka um áttatíu nemendur Verslunarskólans þátt í sýningunni. Tinna á það nefnilega til að bresta í söng eins og gengur og gerist í söngleikjum og svo finnst henni gaman að dansa. María æfði líka dans í Jazzballettskóla Báru í mörg ár og kann því ófá danssporin. En hún og aðrir dansarar sýning- arinnar njóta leiðsagnar Guðfinnu Björnsdóttur danshöfundar. Kemur ekki niður á náminu María og félagar hennar í Versló hafa æft nánast sleitulaust síðan í nóvember. Æfingarnar hafa síðan orðið þéttari eftir að hópurinn fór að æfa í Borgarleikhúsinu í janúar. María hefur þó ekki miklar áhyggj- ur af að æfingar og sýningar komi niður á náminu. „Maður verður bara að skipuleggja sig vel. Þetta er í fjórða sinn sem ég er með og ég er búin að læra inn á hvernig best er að gera þetta. Mikilvægast er að mæta í tíma og fylgjast vel með, það skiptir ótrúlega miklu máli. Ég ætla sko ekki að láta stúdentsprófið verða fyrir neinu raski,“ segir María harðákveðin. Hún segist ekki tilbúin til að leggja leiklistina al- gjörlega á hilluna þó að dagar hennar í Versló séu brátt taldir. „Já, ég er komin með smáleiklist- arbakteríu,“ viðurkennir hún bros- andi. „Mér líður mjög vel á sviðinu og hef rosalega gaman af þessu.“ María segir stemmninguna í kringum sýninguna hafa verið frá- bæra og ekki spilli fyrir að hafa menn á borð við Gunnar Helgason leikstjóra og Felix Bergsson hand- ritshöfund sér til halds og trausts og lýsir hún þeim sem snillingum. „Hópurinn er góður og andinn frá- bær. Ég hlakka bara mjög til að byrja að sýna.“ Söngleikurinn Slappaðu af frumsýndur í Borgarleikhúsinu í kvöld Átök, ástir og sálar- tónlist Morgunblaðið/Þorkell Gunnar Helgason leikstjóri segir leikurunum að slappa af. Morgunblaðið/Golli María Þórðardóttir leikur Tinnu kvenréttindakonu með meiru. Morgunblaðið/Þorkell Sálartónlistin er þema sýningar Verslinga þetta árið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.