Morgunblaðið - 14.02.2002, Blaðsíða 51
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2002 51
Velkomin á
LANCÔME kynningu.
Snyrtifræðingur aðstoðar þig
við val á snyrtivörum og litum.
Notaðu tækifærið og fáðu
faglegar ráðleggingar
Allir sem koma fá sýnishorn
af AMPLICILS augnháralitnum*
Glæsilegir kaupaukar
Mikilfengleg augnhár, þétt,
aðskilin og fallega sveigð
AMPLICILS
NÝTT Einstök formúlan, Ampliflex®,
og sérstakur burstinn gefa augnhár-
unum nýja vídd með aukinni
fyllingu.
TRÚÐU Á FEGURÐ
*Á meðan birgðir endast.
heimsækið www.lancome.com
Kynning í dag
og á morgun
Kynning á morgun
Hamraborg 20a,
sími 564 2011
SNYRTIMIÐSTÖÐIN
Kringlunni 7, sími 588 1990
BANDALAG íslenskra skáta hef-
ur í ellefu ár fært öllum sex ára
börnum á landinu endurskins-
borða að gjöf í samvinnu við
ýmsa aðila. Landsátak þetta hef-
ur gengið undir nafninu: Látum
ljós okkar skína. Nú í ár er
stærsti stuðningsaðilinn Hekla hf.
og færir Bandalag íslenskra
skáta fyrirtækinu viðurkenningu
til staðfestingar á því.
Til styrktar þessu átaki var
farið af stað með bílnúmerahapp-
drætti og dróst út í ár m.a stór-
glæsileg Audi A3-fólksbifreið sem
Guðni Bergsson hlaut og var bif-
reiðin afhent um leið og Heklu
hf. var afhent viðurkenning-
arskjal fyrir þátttöku í landsátak-
inu, segir í fréttatilkynningu.
Sverrir Sigfússon, framkvæmdastjóri Heklu, Guðrún Birna Jörgensen,
markaðsstjóri Heklu, Þorsteinn Fr. Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Bandalags íslenskra skáta, Guðni Bergsson vinningshafi og Elín Birta.
Vann Audi A3
í skáta-
happdrætti FRAMBOÐSLISTI Samfylkingar-
innar í Árborg var samþykktur með
lófataki á fjölmennum félagsfundi í
Tryggvaskála, Selfossi, á mánudags-
kvöldið.
Listann skipa eftirfarandi einstak-
lingar:
1. Ásmundur Sverrir Pálsson,
ráðgjafi/svæðisvinnum.,
2. G. Torfi Áskelsson,
verksmiðjustjóri,
3. Ragheiður Hergeirsdóttir,
framkvæmdastjóri,
4. Gylfi Þorkelsson,
framhaldsskólakennari,
5. Sandra Gunnarsdóttir,
sviðsstjóri/svæðisskrifst.,
6. Katrín Ósk Þorgeirsdóttir,
hjúkrunarfr./ljósmóðir,
7. Guðjón Ægir Sigurjónsson,
lögmaður,
8. Þórunn Elva Bjarkadóttir,
stjórnmálafræðingur,
9. Ragnheiður Þórarinsdóttir,
vaktmaður,
10. Sandra Guðmundsdóttir,
háskólanemi,
11. Þórhallur Reynir Stefánsson,
iðnnemi,
12. Heiður Eysteinsdóttir,
grunnskólakennari,
13. Már Ingólfur Másson,
framhaldsskólanemi,
14. Sigurjón Bergsson,
þjónustustjóri/símvirki,
15. Kristinn Hermannsson, rafvirki,
16. Kristjana Bárðardóttir,
háskólanemi,
17. Steingrímur Ingvarsson,
verkfræðingur,
18. Sigríður Ólafsdóttir,
skrifstofumaður,
Listi Samfylkingar
í Árborg samþykktur
VÖKVATÆKI ehf. hefur opnað
nýja og endurbætta heimasíðu á
slóðinni www.vokvataeki.is
„Á vefnum er hægt að nálgast
allar upplýsingar um fyrirtækið og
starfsemi þess. Einnig hefur verið
opnuð spjallrás, en með henni
gefst viðskiptavinum Vökvatækja
og öðrum sem hafa áhuga á há-
þrýstum vökvakerfum og búnaði
þeim tengdum kostur á að bera
saman bækur sínar og miðla
reynslu sinni varðandi hin ýmsu
vandamál sem kunna að koma upp.
Á vefnum er einnig hægt að
nálgast bæklinga á pdf-formi yfir
ýmsar vörutegundir, s.s. rafmót-
ora, gíra og fleira.
Svokallað ,,Tæknihorn“ er einn-
ig á heimasíðunni, en þar er hægt
að nálgast ýmsar töflur yfir t.d.
gengjur, sýnidæmi yfir tengingar
og annan fróðleik, en stöðugt er
bætt við nýju efni.
Einnig verða innan tíðar settar
upp reiknitöflur þar sem hægt
verður að reikna t.d. út straum-
hraða í rörum, snúningsvægi mót-
ora, aflþörf og margt fleira.
Forsvarsmenn Vökvatækja
stefna að því að byggja upp mjög
öflugan vef þar sem hægt verður
að nálgast ýmsar fróðlegar upplýs-
ingar, þó aðallega sem snúa að há-
þrýstum vökvakerfum, vélbúnaði
og vélhlutaútreikningum,“ segir í
fréttatilkynningu frá Vökvatækj-
um.
Vökvatæki ehf. opnar
nýja heimasíðu
„HUGTAKIÐ einkaframkvæmd
hefur rutt sér til rúms á síðari árum
hérlendis og þá sérstaklega á á sviði
byggingaframkvæmda og rekstri
húsnæðis. Á ráðstefnu sem haldin
verður 19. febrúar kl. 13.00–17.10 á
Grand hótel í Reykjavík á vegum
Arkitektafélags Íslands, Tæknifræð-
ingafélags Íslands og Verkfræðinga-
félags Íslands. Verður leitast við að
svara spurningum varðandi hugtak-
ið einkaframkvæmd. Hvað er einka-
framkvæmd? Hvaða verkefni henta
til einkaframkvæmdar? Ávinningur-
inn? Áhrif á byggingalist og gæði
mannvirkja? Þá verður sérstaklega
fjallað um TRH-verkefnið (Tónlist-
arhús – ráðstefnu- hótelbygging) í
miðborg Reykjavíkur þar sem öll
undirbúningsvinna verkefnisins ger-
ir ráð fyrir að um einkaframkvæmd
verði að ræða.
Auk innlendra fyrirlesara mun
John Ferguson frá HLM architects
segja frá reynslu fyritækisins af út-
boðum og rekstri mannvirkja í Bret-
landi , en fyrirtækið hefur sérhæft
sig á þessu sviði og unnið til fjölda
verðlauna.
Ráðstefna er öllum opin og fer
skráning fram á skrifstofu félag-
anna,“ segir í fréttatilkynningu.
Ráðstefna um
einkaframkvæmd
DR. MAGNÚS Þorkell Bernharðs-
son sagnfræðingur og sérfræðingur í
nútímasögu Miðausturlanda kennir
á námskeiðinu Íslam og nútíminn
sem hefst hjá Endurmenntunar-
stofnun HÍ mánudaginn 18. febrúar.
Dr. Michelle Hartmann sérfræðing-
ur um stöðu kvenna í Miðausturlönd-
um heldur einnig fyrirlestur. Á nám-
skeiðinu verður greint frá því
hvernig trúin mótar viðbrögð músl-
ima, sérstaklega í Miðausturlöndum,
við mörgum meginmálum nútímans,
svo sem jafnrétti kynja, hnattvæð-
ingu og efnahags- og hernaðarveldi
Bandaríkjanna. Fjallað verður sér-
staklega um róttækar trúarhreyf-
ingar og pólitísk markmið þeirra, svo
sem al-Kaeda, samtök Osama bin
Ladens. Kennt verður fjögur kvöld á
Dunhaga 7; 18., 19., 21. og 25. feb. kl.
20.15–22.15. Frekari upplýsingar um
námskeiðið er á vefsíðunni
www.endurmenntun.is og þar er
jafnframt hægt að skrá sig.
Íslam og
nútíminn
ÞRIÐJUDAGINN 19. febrúar nk.
verður haldinn stofnfundur Afríka
20:20 – félags áhugafólks um málefni
Afríku sunnan Sahara. Markmið fé-
lagsins eru m.a. að skapa vettvang
fyrir umræðu og stuðning við mál-
efni sem varða Afríku sunnan Sah-
ara og stuðla að auknum menningar-
legum samskiptum. Allir sem styðja
markmið félagsins eru velkomnir að
sækja fundinn og gerast stofnfélag-
ar.
Stofnfundurinn verður haldinn í
Alþjóðahúsinu á Hverfisgötu 18, 3.
hæð, í Reykjavík og hefst kl. 19:30.
Afríka 20:20