Morgunblaðið - 14.02.2002, Side 8
FRÉTTIR
8 FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Ísland á iði 2002
Aðalatriðið að
hreyfa sig
ÍÞRÓTTA- og Ólympíu-samband Íslands, ÍSÍ,gengst á næstunni
fyrir átakinu „Ísland á iði
2002“ sem er „barátta við
sófann“ eins og fram kem-
ur í fréttatilkynningu frá
sambandinu. Í stuttu máli
hafa umræddir aðilar
áhyggjur af hreyfingar-
leysi þjóðarinnar og alls
sem því fylgir. ÍSÍ á 90 ára
afmæli á þessu ári og lítur
á það sem sína bestu af-
mælisgjöf, að landsmenn
gefi sjálfum sér heilbrigð-
ara líf með aukinni hreyf-
ingu. Ýtt verður úr vör í
Smáralind 23. febrúar nk.
með sérstökum hvatning-
ar- og heilsudegi, en síðan
rekur hver viðburðurinn
annan. Verkefnisstjóri er
Gígja Gunnarsdóttir og hún svar-
aði nokkrum spurningum Morg-
unblaðsins.
Hvert er tilefni „Íslands á iði
2002“?
„Íþrótta- og Ólympíusamband
Íslands og sambandsaðilar þess
hafa síðan árið 1912 boðið þjóðinni
upp á eins faglegt og öflugt
íþróttastarf og kostur hefur verið
á hverju sinni. Með því að taka
þátt í því hafa ófáir hlotið sitt
heilsuuppeldi, þ.e. lært að gera
hreyfingu og heilsusamlegt líferni
að órjúfanlegum hluta af sínu dag-
lega lífi. Á síðari árum hafa sífellt
fleiri rannsóknir rökstutt hversu
mikilvæg reglubundin hreyfing er
til að viðhalda og bæta andlega og
líkamlega heilsu. Samtímis leiða
rannsóknir einnig í ljós þær slá-
andi niðurstöður að Íslendingar
eru að fitna og offita og hreyfing-
arleysi er vaxandi vandamál hjá
þjóðinni.
ÍSÍ vill vinna á móti þessari þró-
un og koma enn öflugar að heil-
brigðismálum þjóðarinnar. Það
verður gert með því að hlúa að og
efla þá miklu og góðu starfsemi
sem þegar er í gangi, en um leið
verður sérstök áhersla lögð á að
hvetja landsmenn á öllum aldri til
aukinnar hreyfingar og heilsuefl-
ingar. Í því skyni hefur ÍSÍ hleypt
af stokkunum hvatningarverkefn-
inu „Ísland á iði 2002“ og þar sem
sambandið er 90 ára á þessu ári
var ákveðið að þetta verkefni yrði
tileinkað afmælinu. Góð vísa er
aldrei of oft kveðin.“
Hvað viljið þið að landsmenn
geri í þessum efnum?
„Við viljum einfaldlega hvetja
almenning til að setja heilsuna í
forgang og auka hlut hreyfingar í
sínu daglega lífi. Það er hægt að
gera á ótal hátt, ekki síst með því
að takmarka bílanotkun eins og
mögulegt er og þess í stað t.d. að
ganga eða hjóla á milli staða. Það
er hægt að nota stigann í stað þess
að taka lyftuna og einfaldlega vera
sífellt vakandi fyrir því að velja
hreyfingu fremur en kyrrsetu.
Foreldrar eru sérstaklega hvattir
til að íhuga hversu mikilvægar
fyrirmyndir þeir eru og hversu
mikil áhrif þeir geta
haft á hreyfingu barna
sinna. Tuttugu mínútna
hreyfing sem flesta
daga vikunnar er allt
sem þarf. Ganga,
hlaup, hjólreiðar, sund... það verð-
ur hver og einn að velja á sínum
forsendum hvað hann gerir og
hvenær dagsins hann gerir það.
Aðalatriðið er að hreyfa sig!“
Hverjir standa að átakinu og
segðu okkur eitthvað frá fram-
kvæmd þess og lengd.
„Íþrótta- og Ólympíusamband
Íslands, almenningsíþrótta- og
umhverfissvið, stendur fyrir þessu
átaki, en til að ná öflugum slag-
krafti í það leitum við samstarfs
við ýmsa aðila. Heilbrigðisráðu-
neytið styður vel við bakið á okkur
og sambandsaðilar ÍSÍ halda að
sjálfsögðu áfram því góða starfi
sem þeir eru að vinna. Við höfum
verið í sambandi við aðila sem eru
að vinna að sömu markmiðum og
við, t.d. Manneldisráð, Hjarta-
vernd og Geðrækt, til að finna fleti
á mögulegu samstarfi og verðum í
sambandi við sveitarfélög, stéttar-
félög og fyrirtæki með samstarf í
huga. Síðast en ekki síst er gott
samstarf við fjölmiðla afar mikil-
vægt til að koma hvatningum
áfram. Hvatningarverkefnið Ís-
land á iði 2002 er hugsað til eins
árs en að sjálfsögðu komum við til
með að halda boðskapnum áfram á
lofti og þá sem fyrr bjóða fólki á
öllum aldri með misjöfn markmið
tilboð við sitt hæfi.“
Hvernig verður átakið kynnt?
„Það verður kynnt með öflugri
hvatningarherferð í fjölmiðlum,
bæði á beinan hátt með auglýsing-
um og á óbeinan hátt með viðtöl-
um og greinarskrifum. Boðskap-
urinn er skýr; hreyfa sig!
Veggspjöldum verður dreift á sem
flesta staði um land allt og við leit-
umst eftir að tengjast viðburðum
og hvetja til að haldnir verði við-
burðir sem miða að því að drífa
hinn almenna borgara af stað í
heilsusamlega hreyfingu. Einn lið-
ur í kynningu Ísland á iði 2002 eru
hvatningar- og heilsudagar í
Smáralind, helgina 16.–
17. mars Það getur fólk
nálgast ýmiss konar
fræðsluefni og í boði
verður fjölbreytt og öfl-
ug dagskrá þar sem
hægt er að kynnast og prófa hinar
ýmsu íþróttir.“
Hvað á að hreyfa sig mikið?
„Það er enginn að tala um að
koma sér í „ólympíuform“. Aðal-
atriðið er að líta í eigin barm.
Hvað á ég að gera núna? Er ég
sátt(ur)? Ef ekki, hvað get ég gert
til að bæta mig. Og síðan er bara
að drífa sig af stað og hafa hugfast
að allt er betra en ekkert.“
Gígja Gunnarsdóttir
Gígja Gunnarsdóttir er fædd í
Danmörku 1973. Stúdent frá MR,
náttúrufræðibraut 1, Íþrótta-
kennarapróf frá KHÍ. Er í fjar-
námi KHÍ til BS-gráðu í íþrótta-
fræðum og þátttakandi í Frum-
kvöðlaAuði á vegum Auðar í
krafti kvenna. Deildarstjóri
íþrótta við MA 1998–2001. Var
starfsmaður Íþróttakennarafé-
lags Íslands 2001, framkvæmda-
stjóri Kvennahlaups ÍSÍ 2001 og
2002 og verkefnisstjóri hjá ÍSÍ
síðan um áramót. Sambýlis-
maður er Þorkell Guðjónsson
viðskiptafræðingur.
...hafa ófáir
hlotið sitt
heilsuuppeldi
Sjáðu bara, sjáðu, tveir plús tveir eru mínus fjórir ekki plús fjórir.
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt eign-
arhaldsfélag í Reykjavík, sem seldi
manni bílaþvottastöð ásamt tækja-
búnaði hennar, til að greiða kaup-
andanum 9 milljónir króna í bætur
auk vaxta þar sem bílaþvottavélarn-
ar reyndust ónothæfar.
Í málinu var deilt um bótakröfu
kaupanda þvottastöðvarinnar vegna
bílaþvottavélanna. Taldi rétturinn að
þær hefðu verið í mun lakara ásig-
komulagi en við hefði mátt búast, en
báðir málsaðilar og fasteignasali
virtust hafa miðað við að nokkur við-
gerð þeirra á vegum kaupandans
myndi leiða til þess að þær yrðu hon-
um nothæfar.
Vélarnar voru því ekki taldar hafa
haft þá kosti, sem hefði mátt ætla að
væru áskildir og telja yrði að eign-
arhaldsfélagið hefði ábyrgst, saman-
ber kaupalög. Þá var talið að mað-
urinn hefði ekki sem leikmaður mátt
gera sér fulla grein fyrir raunveru-
legu ástandi vélanna við skoðun
þeirra og var 47. gr. kaupalaga ekki
talin standa í vegi fyrir bótaábyrgð
félagsins. Kaupandinn hafði krafist
bóta vegna vélanna í beinu framhaldi
af niðurstöðu vélfróðra skoðunar-
manna um ástand vélanna og var
þannig talinn hafa uppfyllt skilmála
52. gr. kaupalaga.
Staðfesti Hæstiréttur því niður-
stöðu héraðsdóms um bótaskyldu
eignarhaldsfélagsins. Var það og
dæmt til að greiða honum samtals
700 þúsund krónur í málskostnað
fyrir Hæstarétti og í héraði.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Hrafn Bragson, Haraldur
Henrysson og Pétur Kr. Hafstein.
Lögmaður áfrýjanda, eignarhalds-
félagsins, var Björgvin Þorsteinsson
hrl. og lögmaður stefnda, kaupand-
ans, Ólafur Garðarsson hrl.
Dæmt til greiðslu vegna
ónothæfra bílaþvottavéla
♦ ♦ ♦
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft-
ir vitnum að umferðaróhappi sem
varð á gatnamótum Túngötu og
Garðastrætis laugardaginn 2. febr-
úar um kl. 13.55.
Þar var bifreið ekið suður Garða-
stræti, beygt áleiðis austur Túngötu
og utan í bifreiðina RT-933, af gerð-
inni MMC Lancer, gráa að lit, sem
ekið var austur Túngötu og beygt
norður Garðastræti og í framhaldi af
því ekið af vettvangi. Þeir sem geta
veitt upplýsingar um málið eru beðn-
ir að hafa samband við lögregluna í
Reykjavík.
Þá er lýst eftir vitnum að atviki við
Suðurbugt gegnt verbúð 10, þegar
ekið var á bifreiðina IR-697, sem er
Mitsubishi Lancer, brún fólksbif-
reið, þar sem hún stóð kyrr.
Er talið að þetta hafi átt sér stað
12. febr. sl. á milli kl. 8 til 9.30. Tjón-
valdur fór af vettvangi án þess að til-
kynna um tjónið. Því er hann eða
aðrir beðnir að snúa sér til umferð-
ardeildar lögreglunnar í Reykjavík.
Lýst eftir
vitnum