Morgunblaðið - 14.02.2002, Qupperneq 20
LANDIÐ
20 FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ hef-
ur fellt úr gildi úthlutun Hreindýra-
ráðs á hreindýraarði fyrir árið 2000
og úrskurðað að Hreindýraráð skuli
úthluta arði fyrir árið 2000 að nýju í
samræmi við reglugerð um skipt-
ingu arðs af hreindýraveiðum.
Tveir íbúar á Norður-Héraði
kærðu úthlutun Hreindýraráðs á
hreindýraarði fyrir árið 2000 í júlí
síðastliðnum.
Kærendur kröfðust þess að út-
hlutun hreindýraarðs yrði leiðrétt og
arðurinn greiddur út í samræmi við
ákvæði reglugerðar um skiptingu
arðs af hreindýraveiðum.
Í kærunni segir að hreindýraráð
skipti sveitarfélaginu Norður-Hér-
aði við úthlutunina í stórum dráttum
upp í gömlu hreppana sem mynduðu
það, það er Jökuldals-, Hlíðar- og
Tunguhreppa, og taki svo hlutfall af
fasteignamati og landstærð innan
hvers hluta hreppsins.
Samkvæmt beinum ákvæðum
reglugerðarinnar beri Hreindýra-
ráði að taka fyrst allar jarðir í sveit-
arfélaginu og stærðarflokka þær og
úthluta á þær 40% arðsins í skipting-
unni 20% samkvæmt fasteignamati
og 20% samkvæmt landstærð.
Hreindýraráð mismuni jörðum
með því að hluta sveitarfélagið í
sundur og nota síðan fasteignamat
og landstærð hvers hluta fyrir sig til
útreikninga. Þetta leiði til þess að
jarðir fái misjafnlega háa greiðslu
eftir því hvar í sveit þær eru settar.
Á þessi rök féllst umhverfisráðu-
neytið í úrskurði sínum.
Í umsögn Hreindýraráðs, sem
óskað var eftir vegna úrskurðarins,
segir meðal annars:
„Sveitarfélagið Norður-Hérað
varð til við sameiningu Jökuldals-,
Hlíðar- og Tunguhreppa. Fyrir sam-
eininguna fengu þessi sveitarfélög
hvert sinn hreindýrakvóta sem
spegla skyldi ágang hreindýra í við-
komandi sveitarfélagi.“ Svo segir að
á þessum árum hafi að meðaltali 80%
af kvóta núverandi sameinaðs sveit-
arfélags runnið til Jökuldalshrepps.
Ekki sé vitað annað en sátt hafi verið
að mestu um þessa skiptingu milli
gömlu hreppanna.
„Með nýjum úthlutunarreglum
var ákveðið að byggja á grundvelli
eldri viðmiðunar og var talið réttlát-
ast að skipta Norður-Héraði í þrennt
og miða við gömlu hreppaskipt-
inguna.“ Í niðurstöðu ráuneytisins
segir meðal annars að samkvæmt
reglugerðinni beri að útiloka þær
jarðir sem ekki verða fyrir neinum
ágangi af hreindýrum frá úthlutun
arðs.
Að framansögðu er ljóst eftir þeim
reglum sem Hreindýraráð setti sér
vegna úthlutunarinnar fyrir árið
2000 og fólust í áðurgildandi hreppa-
skiptingu að um það bil 80% hrein-
dýraarðs á Norður-Héraði runnu til
bæja sem teljast til fyrrverandi Jök-
uldalshrepps. Af þessu leiðir að
veruleg skekkja varð á útreikningi
Hreindýraráðs á hreindýraarði í
sveitarfélaginu miðað við þá skipt-
ingu sem reglugerðin gerir ráð fyrir.
Ráðuneytið telur að úthlutun
hreindýraarðs sé ein ákvörðun í
hverju sveitarfélagi fyrir sig. Ráðu-
neytið telur að byggt hafi verið á
röngum forsendum við úthlutun á
hreindýraarði á Norður-Héraði fyrir
árið 2000 með þeirri skiptingu sveit-
arfélagsins sem að framan er lýst. Af
þeirri ástæðu telur ráðuneytið að
ógilda beri ákvörðun Hreindýraráðs
um úthlutun hreindýraarðs fyrir árið
2000 í sveitarfélaginu og Hreindýra-
ráði gert að úthluta arði fyrir áður-
greint ár að nýju í samræmi við
reglugerð.
Stjórnsýslukæra tekin til afgreiðslu í umhverfisráðuneytinu
Hreindýraráð úthluti
hreindýraarði að nýju
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteins
Þessi ungu hreindýr liggja og jórtra hin rólegustu og láta sig engu
skipta reglur um úthlutun hreindýraarðs á Norður-Héraði.
NOKKRIR félagar úr björg-
unarsveitinni Víkverja í Vík
komu tveimur nýjum rafgeymum
upp á Höttu um síðustu helgi, en
upp á síðkastið hafði samband
frá endurvarpanum, sem er á
toppi Höttu og í eigu Lands-
bjargar, verið að dofna og detta
út vegna rafmagnsleysis. Þessi
endurvarpi gegnir mikilvægu
hlutverki í fjarskiptum milli tal-
stöðva og er þar af leiðandi mik-
ið öryggistæki ef til nátt-
úruhamfara kæmi. Í hann næst
frá Landeyjum og austur í
Öræfi.
Hatta er rúmir fimm hundruð
metrar á hæð og frá þjóðveg-
inum séð mjög tignarleg. Fyrir
allmörgum árum var gerður
vegur þarna upp og er því hægt
að aka langleiðina upp á fjallið
upp úr svokölluðum Kjósum.
Síðasta spottann, um 200 metra,
sem er töluvert brattur, urðu
menn að bera rafgeymana, sem
hver vegur um 40 kíló. Kristján
Þórðarson, Hjörleifur Ólafsson,
Ágúst Freyr Bjartmarsson og
Jóhann Einarsson félagar úr
Björgunarsveitinni Víkverja við
endurvarpann uppi á Höttu.
Endurvarpinn
endurhlaðinn
Rafgeymar
bornir upp
á Höttu
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Fagridalur Norður-Hérað
NÝIR eigendur eins elsta fjölbýlis-
húss á Akranesi við Höfðabraut 14–
16 eru þegar byrjaðir á fram-
kvæmdum við endurbætur á hús-
inu. Fimmtán af alls sextán íbúðum
þess voru áður í eigu Akraneskaup-
staðar en bæjaryfirvöld tóku þá
ákvörðun að selja allar íbúðirnar
enda var ljóst að ekki væri komist
hjá því að fara út í kostnaðarsamar
endurbætur á öllu húsinu.
Að sögn Gunnars Árnasonar tals-
manns Verkvíkur ehf. sem annast
endurbæturnar er ætlun nýrra eig-
enda að gera húsið upp nánast frá
grunni enda hafi húsið verið afar
illa á sig komið og talið nánast
ónýtt.
Gunnar sagði að byrjað yrði á því
að klæða húsið að utan og skipta
um glugga en allar íbúðir þess yrðu
síðan gerðar upp en það yrði gert í
áföngum.
„Húsið býður uppá mikla mögu-
leika enda er útsýnið yfir Faxafló-
ann og til Reykjavíkur glæsilegt og
staðsetningin er eins og best verður
á kosið. Íbúðirnar verða ekki seldar
á almennum markaði en verða þess
í stað leigðar út í framtíðinni.
Leiguverðið mun sjálfsagt hækka,
en verður samt sem áður í takt við
það sem gerist á almennum mark-
aði,“ sagði Gunnar en nýir eigendur
fjölbýlishússins ætla sér að ljúka
framkvæmdum utanhúss í sumarlok
en lengri tími mun líða þar til verk-
inu verður lokið að fullu og er áætl-
að því verði lokið haustið 2003.
Mikið verk framundan
hjá nýjum eigendum
Morgunblaðið/Sigurður Elvar
Akranes
ÍÞRÓTTAMAÐUR Borgarfjarðar
2001 var kjörinn undir lok fjöl-
mennrar íþróttahátíðar sem hald-
in var nýverið. Íþróttahátíðin var
fjölmenn og bar þess merki að
margir efnilegir íþróttamenn
muni láta til sín taka í næstu
framtíð. Íþróttamaður Borgar-
fjarðar var að þessu sinni kosinn
efnilegur frjálsíþróttamaður,
Gauti Jóhannesson, liðlega tvítug-
ur Akurnesingur, sem vann til
margra verðlauna á árinu.
Gauti sigraði í 1.500 m og
3.000 m hlaupi á meistaramóti Ís-
lands 15–22 ára. Hann varð jafn-
framt tvöfaldur Íslandsmeistari í
unglingaflokki. Gauti stundar
læknisnám í Svíþjóð og æfir með
þarlendu félagi. Hann hefur verið
mjög duglegur að keppa fyrir
hönd UMSB, þykir góður félagi
og góð fyrirmynd fyrir yngstu
kynslóðina.
Næstir í þessu kjöri voru Sig-
urkarl Gústavsson (frjálsar
íþróttir), Hlynur Bæringsson
(körfuknattleikur), Hallbera Ei-
ríksdóttir (frjálsar íþróttir), Guð-
mundur I. Einarsson (íþróttir
fatlaðra), Alexander Ermolinskij
(körfuknattleikur), Sigurður Guð-
mundsson (sund), Inga T. Sigurð-
ardóttir (badminton), Hilmar Þór
Hákonarson (knattspyrna) og
Jakob Orri Jónsson (sund).
Íþróttamað-
ur Borgar-
fjarðar
Borgarnes
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Íþróttamaður Borgarfjarðar
2001, Gauti Jóhannesson frjáls-
íþróttamaður.
LANDSMÓT íslenskra barnakóra
verður haldið helgina 15.–17. mars
2002 í Stykkishólmi.
Mótshaldarar geta tekið á móti
5–600 börnum og gert er ráð fyrir
að nemendur úr 5.–10. bekk sæki
mótið. Hægt er að skrá kóra og og
fá frekari upplýsingar á Netinu
siggasa@isl.is. Þar verður að
koma fram heiti kórs, nafn og
sími/netfang kórstjóra, fjöldi
barna og aðstoðarmanna. Tilgreina
þarf einnig um aldur og getu kórs-
ins. Umsóknarfrestur er til 20.
febrúar, segir í fréttatilkynningu
frá Tónmenntakennarafélagi Ís-
lands.
Barnakóramót
í Stykkishólmi
Stykkishólmur