Morgunblaðið - 14.02.2002, Side 21
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2002 21
„ÁHRIF KOLLAGENS
ÁN SPRAUTUNNAR“
COLLAGENIST
DREGUR ÚR HRUKKUM - STYRKIR
Nýtt krem og serum með efnum sem örva
myndun kollagens og húðin veður
sjáanlega unglegri.
Strandgötu 32
sími 555 2615 Laugavegi 80, sími 561 1330
Viltu kynnast byltingarkenndum snyrtivörum?
Ráðgjafi frá Helena Rubinstein verður í versluninni í dag og á morgun.
LANDIÐ
ÖLL leikskólabörn á Skagaströnd
fengu gefins endurskinsmerki frá
slysavarnadeildinni nú nýlega. Er
það hluti af forvarnarstarfi deild-
arinnar nú í svartasta skammdeg-
inu.
Ernst Berndsen, formaður
slysavarnadeildarinnar á Skaga-
strönd, brá sér í heimsókn í
Barnaból ásamt gjaldkeranum
Indriða Haukssyni. Meðferðis
höfðu þeir félagar fullan poka af
endurskinsmerkjum sem þeir
nældu í yfirhafnir litlu barnanna
um leið og þeir fræddu þau um
mikilvægi þess að sjást vel í um-
ferðinni. Einnig fóru þeir með
krakkana skemmtiferð um bæinn
á slysavarnabílnum við góðar
undirtektir.
Á fundi eftir heimkomuna í
Barnaból á ný ákváðu börnin og
slysavarnamenn í sameiningu að
fara saman í berjamó næsta
sumar á ákveðinn stað í Spá-
konufelli, sem börnin hafa eign-
að sér og nefna Barnasel. Þar
vex mikið af alls konar berjum
og krakkarnir hafa undanfarin
sumur sett niður trjáplöntur á
svæðinu.
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Börnin á Barnabóli áttu erfitt með að stilla sér upp til myndatöku fyrir spenningi áður en lagt var af stað.
Leikskólabörn á Barna-
bóli fá endurskinsmerki
Skagaströnd
FYRIR skömmu stofnuðu fimm
þingeyskar konur félag sem ber
nafnið Verðandi – félag bjartsýnis-
fólks í Þingeyjarsýslum. Þessar
konur eru Iðunn Antonsdóttir á
Kópaskeri, Hulda Ragnheiður
Árnadóttir í Aðaldal og Húsvíking-
arnir Arnfríður Aðalsteinsdóttir,
Margrét María Sigurðardóttir og
Júlía Sigurðardóttir. Arnfríður seg-
ir tilgang félagsins þríþættan, í
fyrsta lagi að skapa jákvæða um-
ræðu og umfjöllun í Þingeyjar-
sýslum bæði út á við og innan þess
samfélags sem þær búa í. Í öðru lagi
að vekja athygli á því sem vel er
gert og liður í því væri að útnefna
Garp eða Gerplu mánaðarins úr
hópi þingeyskra dugnaðarforka. Í
þriðja lagi væri það vilji stofnenda
að félagið yrði hugmyndabanki þar
sem fólk gæti lagt inn hugmyndir
sínar og um leið fengið stuðning við
að koma þeim í framkvæmd.
Strax komu þrjár hugmyndir í
bankann og sagði Arnfríður þær
þegar komnar í fóstur hjá félaginu.
Þetta eru hugmyndir um þríþraut
þar sem þátttakendur hlaupa, hjóla
og synda, þá er hugmynd um úti-
tónleika og mun þetta tvennt fara
fram 13. júlí. Þriðju hugmyndinni er
fyrirhugað að koma í framkvæmd
seinna eða í lok ágúst og er það
Lundeyjarsund.
Fyrsti garpurinn
Garpur janúarmánaðar hefur ver-
ið valinn, það er Víðir Pétursson,
sem hlýtur nafnbótina vegna þess
frumkvæðis sem hann sýndi þegar
hann hóf útgáfu vikublaðsins
Skarps fyrir skömmu. Verðlaunin,
Fjöreggið, voru að sjálfsögðu þing-
eysk. Hulda Ragnheiður fékk þá
hugmynd að blása úr andareggi og
láta síðan listamann úr héraðinu
mála á það mynd. Trausti Ólafsson,
myndlistarmaður á Húsavík, varð
fyrir valinu að þessu sinni og málaði
hann svan að hefja sig til flugs. Ætl-
unin er að listamenn úr Þingeyj-
arsýslum skapi verðlaunin sem veitt
verða framvegis. Verðlaunin voru
afhent í menningar- og kaffihúsinu
Túni að viðstöddum um sextíu
manns, öllum var boðið að gerast
stofnfélagar að Verðandi og skrif-
uðu um fimmtíu manns sig á lista
þar um. Arnfríður segir nafn félags-
ins komið frá örlaganornunum
þremur, Urði, Verðandi og Skuld,
sem ráði örlögum manna.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Kjarnakonurnar fimm sem stofnuðu Verðanda. F.v. Margrét María Sigurðardóttir, Iðunn Antonsdóttir, Hulda
Ragnheiður Árnadóttir, Víðir Pétursson, Júlía Sigurðardóttir og Arnfríður Aðalsteinsdóttir.
Þingeying-
ar stofna
félag bjart-
sýnisfólks
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Garpur janúarmánaðar, Víðir
Pétursson, með Fjöreggið.
Húsavík
ÁKVEÐIÐ hefur verið að efna til
matarveislu, „Food Festival“ í Kópa-
vogi og Reykjavík dagana 26. febr-
úar til 3. mars næstkomandi. Til-
gangurinn með sælkeraveislunni er
að vekja athygli á Íslandi sem fram-
leiðslulandi úrvals matvæla þar sem
framleiðslan fer fram í sátt við um-
hverfið, sjávarútvegur stundaður á
sjálfbæran hátt, dýravernd höfð að
leiðarljósi, strangt eftirlit er með
framleiðsluferlinu og hollusta, hrein-
leiki og fagmennska er í hávegum
höfð. 10 erlendir kokkar koma til
landsins til þess að taka þátt í keppni
í tengslum við sælkeraveisluna, 6 frá
Bandaríkjunum og 4 frá Evrópu.
Stefnt er að því að ferðaþjónustu-
fyrirtæki undir leiðsögn Flugleiða
og Ferðamálaráðs kynni þessa daga
fyrir áhugasömum ferðamönnum á
áfangastöðum félagsins í Ameríku.
Veislan verður vel kynnt og vakin at-
hygli á landinu í Ameríku og Evrópu
sem sælkera lands sem og veitinga-
stöðum sem verða með á boðstólum
sérstaka sælkeramatseðla.
Matvælafyrirtæki sem stunda út-
flutning á matvælum verða virkjuð
og þeim gefið einstakt tækifæri til að
koma afurðum sínum á framfæri
með þátttöku í fyrirhugaðri mat-
vælasýningu á sama tíma.
Matreiðslukeppni með þátttöku
10 erlendra kokka
Ákveðið hefur verið, til að vekja
enn frekar athygli á „Food Festival-
inu“, að standa fyrir matreiðslu-
keppni meðal erlendra matreiðslu-
meistara frá Evrópu.
Keppendur mæta laugardaginn 2
mars að morgni og velja sér hráefni í
forrétt og millirétt úr þeim íslensku
afurðum sem sýndar verða í verslun
Hagkaups í Smáralind. Þeir fá rúma
eina klukkustund til að ræða við
framleiðendur og hefja síðan keppni
í sérstökum eldhúsum sem sett
verða upp í Garðinum. Aðgangur að
keppninni er opinn almenningi, sem
jafnframt getur fylgst með keppend-
um þar til þeir ljúka keppni, en þá
fara dómarar yfir verkefni dagsins
og dæma réttina.
Daginn eftir verður sama fyrir-
komulag nema þá verður keppt í að-
alrétti og eftirrétti.
Keppendur verða tíu, sex frá
Bandaríkjunum og fjórir frá Evrópu.
10 erlendir
kokkar taka þátt
í sælkeraveislu
FYRIRTÆKIÐ B. Magnússon hf.
hefur hafið innflutning á nýjum
Myoplex-næringardrykkjum, sem
eru tilbúnir til drykkjar. Þeir eru
sagðir koma í stað máltíða, eru
ríkir af próteinum, vítamínum og
steinefnum auk þess að vera 99%
fitulausir og án mjólkursykurs.
Einnig eru fáanlegir Myoplex Low
Carb-næringardrykkir tilbúnir til
drykkjar. Þeir eru mjög snauðir
af kolvetnum en með meira pró-
teininnihald. Drykkina er m.a.
hægt að nálgast í ákveðnum
heilsuræktarstöðvum, ýmsum
apótekum og fríhöfninni.
Næringar-
drykkir í
stað máltíða
Morgunblaðið/Þorkell