Morgunblaðið - 14.02.2002, Qupperneq 25
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2002 25
BANDARÍKJAHER hefur neitað
því að bandarískir hermenn hafi mis-
þyrmt Afgönum, sem voru teknir til
fanga fyrir mistök 23. janúar, og seg-
ir að Afganarnir hafi verið betur á sig
komnir þegar þeir voru látnir lausir
en þegar þeir voru handteknir.
Bandaríska varnarmálaráðuneytið
hyggst þó rannsaka staðhæfingar um
að fangarnir hafi sætt barsmíðum og
illri meðferð eftir að þeir voru teknir
höndum í árás sérsveitarmanna í afg-
anska héraðinu Uruzgan.
Richard Myers, forseti bandaríska
herráðsins, sagði að ekkert hefði
komið fram sem benti til þess að
föngunum hefði verið misþyrmt.
The Washington Post hafði eftir
fjórum fanganna, sem voru alls 27, að
þeir hefðu sætt illri meðferð. Tveir
þeirra sögðust hafa misst meðvitund
vegna barsmíða og hinir tveir sögð-
ust hafa rifbrotnað.
Bandaríski undirofurstinn Keith
Warman sagði að enginn fótur væri
fyrir þessum ásökunum, en hann
stjórnar fangelsi bandarísku sér-
sveitanna í Suður-Afganistan. „Þeir
voru reyndar betur á sig komnir en
þegar þeir komu hingað,“ sagði hann.
„Þeir voru skoðaðir þegar þeir komu
og voru nokkrir þá með opin sár og
aðrir marbletti, en enginn var bein-
brotinn eða með alvarleg meiðsli.“
Frank Wiercinski, yfirmaður sér-
sveitanna, sagði að fulltrúar Rauða
krossins hefðu ekki fundið neinar vís-
bendingar um að fangar í herstöðinni
hefðu sætt illri meðferð. Afganarnir
27 voru teknir til fanga þar sem þeir
voru taldir vera talibanar eða félagar
í al-Qaeda, samtökum hryðjuverka-
mannsins Osama bin Ladens, en í ljós
kom að svo var ekki. Þeir voru látnir
lausir eftir að hafa verið í haldi í 16
daga.
Stjórn Írans fær gögn um
meinta aðstoð við al-Qaeda
Bandaríska varnarmálaráðuneytið
hefur einnig hafið rannsókn á því
hvort þeir sem féllu í árásinni, 21
Afgani, hafi ekki heldur verið félagar
í al-Qaeda eða talibanar. Bandaríski
herinn hefur viðurkennt að svo virð-
ist sem þeir hafi verið vinveittir
bráðabirgðastjórninni í Kabúl.
Sendimaður Bandaríkjastjórnar í
Afganistan, Zalmay Khalilzad, sagði í
gær að hún hefði afhent írönskum
stjórnarerindrekum upplýsingar um
að íranskir harðlínumenn hefðu að-
stoðað liðsmenn al-Qaeda við að flýja
frá Afganistan og reynt að grafa und-
an bráðabirgðastjórninni.
Sendimaðurinn sagði að harðlínu-
klerkar, sem styðja Ali Khamenei
erkiklerk, trúarleiðtoga Írans, og úr-
valslið íranska hersins, Byltingar-
verðirnir, hefðu séð afgönskum fylk-
ingum í vesturhéruðunum fyrir
vopnum og peningum með það að
markmiði að veikja bráðabirgða-
stjórnina í Kabúl. Hann fullyrti einn-
ig að nokkrir foringjar í úrvalsliðinu
hefðu átt samstarf við al-Qaeda í
nokkurn tíma og hjálpað liðsmönnum
samtakanna að flýja til Írans. Nokkr-
um þeirra hefði verið leyft að fara
þaðan til annarra landa.
Stjórn Írans hefur vísað þessum
ásökunum á bug. Khalilzad sagði að
umbótasinnar í Íran, undir forystu
Mohammads Khatamis forseta,
hefðu sýnt að þeir vildu aðstoða
Bandaríkjamenn í baráttunni við
hryðjuverkamenn en öðru máli
gegndi um harðlínumenn, sem líta á
Bandaríkjamenn sem erkióvini sína.
Blaðið Guardian hafði eftir heim-
ildarmönnum, sem tengjast talibön-
um, að al-Qaeda-liðar og talibanar
hefðu flúið í gegnum Pakistan til Ír-
ans og komist þaðan til arabaríkja.
Her Bandaríkjanna neitar ásökunum Afgana
Segja að föngum hafi
ekki verið misþyrmt
Harðlínumenn
í Íran sakaðir
um að aðstoða
al-Qaeda
Washington. AFP, AP.
UM fimmtán þúsund manns komu
saman í Chisinau, höfuðborg Mold-
óvu, í gær til að mótmæla þeim
áætlunum kommúnistastjórn-
arinnar í landinu að auka veg og
virðingu rússnesku tungunnar.
Fólkið safnaðist saman fyrir fram-
an stjórnarbygginguna í Chisinau
en áður hafði farið fram kröfu-
ganga, sú fjölmennasta fram að
þessu sem efnt hefur verið til til að
mótmæla áformunum.
Reuters
Mótmælt í Chisinau
ÆÐSTI maður kaþólsku kirkjunnar
í Rússlandi, Tadeusz Kondrusiewicz,
var gerður erkibiskup á mánudaginn
og brást Rétttrúnaðarkirkjan í land-
inu illa við þeirri ákvörðun. Fullyrti
Alexei II patríarki að um væri að
ræða tilraun Páfagarðs til að færa út
áhrifasvæði sitt og ögra Rétttrúnað-
arkirkjunni en þorri Rússa er í
henni. Kondrusiewicz, sem nú er
orðinn yfirmaður fjögurra biskups-
dæma, vísaði því á bug að um ásælni
væri að ræða, heldur væri kaþólska
kirkjan að færa skipan mála í eðlilegt
horf.
Rétttrúnaðarmenn viðurkenna
ekki páfa sem æðsta fulltrúa krist-
inna manna á jörðinni. Kirkja krist-
inna manna klofnaði um miðja elleftu
öld og voru lengi væringar á milli
deilda Rétttrúnaðarkirkjunnar ann-
ars vegar og Rómarkirkjunnar hins
vegar. Á 16. öld klufu mótmælendur
sig síðan út úr Rómarkirkjunni.
Biskupsdæmin fjögur hafa verið
lengi við lýði en án þess að um form-
lega og viðurkennda tilhögun hafi
verið að ræða. Alexei var harðorður
og sagði að aldrei fyrr hefði komið til
mála af þessu tagi í sögu landsins en
reynt hefur verið um árabil að bæta
samskipti Rétttrúnaðarkirkjunnar
og Páfagarðs. Leiðtogar hinnar fyrr-
nefndu saka kaþólska menn um að
reyna að snúa fólki og fá það til að
ganga í lið með páfa.
„Við höfum margoft bent á að
áróður þeirra í Rússlandi sé aðal-
hindrunin á vegi bættra samskipta
milli kirknanna okkar,“ sagði Alexei.
Kirkja hans sendi Páfagarði í fyrra-
dag yfirlýsingu þar sem sagði að hún
vildi ekki að sérstakur sendiboði Jó-
hannesar Páls II páfa, Kasper kard-
ínáli, kæmi í heimsókn til Moskvu
eins og fyrirhugað hafði verið að
hann gerði í næstu viku.
Talsmenn utanríkisráðuneytisins í
Moskvu hafa fram til þessa hliðrað
sér við því að taka afstöðu í deilunum
en þeir lýstu í gær vonbrigðum sín-
um og sögust hafa viljað að ákvörðun
um skipun í embætti erkibiskups
yrði seinkað. Ekki væri verið að and-
mæla því að starf kaþólsku kirkjunn-
ar meðal Rússa væri skipulagt í sam-
ræmi við hefðir hennar, sagði í
yfirlýsingu ráðuneytisins. En „við
hörmum að svo mikilvæg ákvörðun
skyldi vera tekin án þess að tekið
væri tillit til rússneskra sjónarmiða“.
Fulltrúar kaþólikka í Rússlandi
voru á hinn bóginn mjög ánægðir
með breytinguna. Sögðu biskupar
hennar í yfirlýsingu að með ákvörð-
un sinni hefði páfi „endurreist sögu-
legt réttlæti í þágu kaþólskra manna
í landinu“. Talið er að allt að 600.000
kaþólikkar búi í Rússlandi en íbúarn-
ir eru alls um 145 milljónir.
Alexei patríarki
deilir hart á páfa
Sakar kaþólsku
kirkjuna um
að reyna að
snúa Rússum
Moskvu, Páfagarði. AP, AFP.