Morgunblaðið - 14.02.2002, Qupperneq 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2002 29
Heimsferðir bjóða nú vikulegt flug til Costa del Sol í
sumar á frábærum kjörum og þeir sem bóka fyrir 15.
mars geta tryggt sér allt að 32.000 kr. afslátt fyrir
fjölskylduna í valdar brottfarir, eða kr. 8.000 á mann-
inn. Costa del Sol er vinsælasti áfangastaður Íslend-
inga við Miðjarðarhafið og við bjóðum þér vinsæl-
ustu gististaðina á ströndinni, spennandi kynnisferðir
í fríinu og þjónustu reyndra fararstjóra Heimsferða til
að tryggja þér ánægjulega dvöl í fríinu.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 39.805
M.v. hjón með 2 börn, 22. maí í viku,
El Pinar.
Verð kr. 45.205
M.v hjón með 2 börn, 2–11 ára,
26. júní, í 2 vikur, El Pinar,
með 8.000 kr. afslætti.
Verð kr. 58.850
M.v. 2 í stúdíó, El Pinar, 26. júní,
2 vikur, með 8.000 kr. afslætti.
Bókaðu til
Costa
del Sol
og tryggðu þér
32.000 kr.
afslátt
af ferðinni
Beint flug alla miðvikudaga
í sumar
Ótrúlegt verð í sólina í sumar
Fáðu bæklinginn
sendan
Lægsta verðið í sólina
Á ÞRIÐJUDAG hófst ný hádeg-
istónleikaröð Íslensku óperunnar.
Þar voru flutt aríur og dúettar úr
Brúðkaupi Fíagrós eftir W.A. Moz-
art. Síðar er ætlunin að taka til flutn-
ings sönglög eftir Brahms og Atla
Heimi Sveinsson á tvennum tónleik-
um og röðinni lýkur með „óvissu-
ferð“ á vit íslenskra sönglaga ólíkra
höfunda.
Nýir tímar blasa við í Íslensku óp-
erunni. Fjárhagslegur grundvöllur
hennar hefur verið styrktur og ungir
söngvarar ráðnir til starfa. Ólafur
Kjartan Sigurðarson, baritón, var
fyrstur til þess að ríða á vaðið og síð-
an hafa fleiri fylgt á eftir. Hádeg-
istónleikarnir miða einmitt að því
öðrum þræði að kynna hina nýju
krafta hússins: á fyrstu hádegistón-
leikunum fékk Ólafur Kjartan til liðs
við sig Huldu Björk Garðarsdóttur,
sópran, að hálfum mánuði liðnum
mun Sesselja Kristjánsdóttir,
mezzósópran, koma til leiks og loks
mun Jóhann Friðgeir Valdimarsson,
tenór, halda út í óvissuna með bari-
tóninum. Þessir glæsilegu söngvarar
hafa allir verið ráðnir við Íslensku
óperuna. Þá mun Signý Sæmunds-
dóttir, sópran, syngja á hádegistón-
leikum 12. mars, en hún hefur marg-
sinnis sungið í Íslensku óperunni,
síðast í Mannsröddinni eftir Poulenc
árið 1999.
Brúðkaup Fígarós er eitt merk-
asta verk Mozarts. Þar segir hann
skilið við hefðbundnar hugmyndir
manna um óperur og fer í stað þess
sínar eigin leiðir. Þar með braut
hann ísinn fyrir stórvirkin sem eftir
fylgdu: Don Giovanni og Così fan
tutte. Öll eru þessi verk við texta ær-
ingjans Lorenzo da Ponte, hirð-
skáldsins í Vínarborg. Tvímælalaust
má rekja snjöllustu tónhugmyndir
Mozarts í Brúðkaupi Fígarós til af-
burða hnyttinna settninga og
skringilegra kringumstæðna sem da
Ponte fitjar upp á. Óperan er sam-
felldur orðaleikur frá upphafi til
enda, ekki aðeins í texta heldur einn-
ig í tónum.
Þegar Brúðkaup Fígarós er stytt,
eins og gert var á hádegistónleikum
Íslensku óperunnar í vikunni, hlýtur
sá háski að vofa yfir að andi verksins
fari forgörðum, að hnyttnin og gam-
ansemin komist aldrei á flug, að leik-
urinn verði innantómur og mark-
laus. Þessu var þó síður en svo farið
hjá þeim Ólafi Kjartani og Huldu
Björk. Með því að einskorða sig við
samskipti tveggja persóna úr verk-
inu, elskendanna Fígarós og Sús-
önnu, tókst að búa flutningnum
ramma sem hélt þétt utan um efnið.
Greinilegt var að Ólafur Kjartan
hefur margoft sungið hlutverk Fíg-
arós og fór á kostum bæði í söng og
leik. Hulda Björk fór einnig af-
bragðs vel með hlutverk Súsönnu og
naut þess að hafa slíkt óperunátt-
úrutröll sér við hlið sem Ólafur
Kjartan að sönnu er. Samskipti
þeirra á sviðinu voru fölskvalaus og
innileg; með aðstoð einfaldra leik-
muna varð úr skemmtileg og lífleg
sýning.
Brúðkaup Fígarós lifir á spaugi-
legum texta. Góður framburður er
því grundvallaratriði við flutning á
slíku verki. Ólafur Kjartan tók
hressilega á textanum og af leikræn-
um tilburðum mátti greina að hann
vissi nákvæmlega hvað hvert orð
þýddi, jafnvel í óeiginlegri merkingu
satírunnar. Hulda Björk var sér
greinilega meðvituð
um merkingu textans
og framburður hennar
var prýðilegur en
kraftur orðanna náði
ekki alltaf til hlust-
enda. Á óperusviði
verða söngvarar bein-
línis að þrá að sann-
færa hlustendur um
merkingu textans.
Hulda Björk hefur frá-
bæra rödd en að þessu
leyti var nokkuð skarð
fyrir skildi. Einnig var
ójafnvægi milli radda
þeirra Ólafs Kjartans í
fyrstu senunni en síð-
an sótti Hulda Björk í
sig veðrið og þá komst á fullur sam-
hljómur raddanna. Sýningin reis
hæst í undurfagurri aríu Súsönnu,
Deh vieni, non tardar, sem Hulda
Björk söng af tindrandi þokka. Mik-
ill fengur er fyrir Íslensku óperuna
að fá slíkan lýrískan sópran til liðs
við sig. Steinunn Birna píanóleikari
reyndist elskendunum á sviðinu
traustur félagi og tók þátt í gleði
þeirra og sorgum af snerpu og leik-
gleði.
Framburður söngvaranna í sýn-
ingunni á Brúðkaupi Fígarós var
eins og áður sagði mjög góður og á
köflum frábær. Það gladdi þann sem
þetta skrifar en minnti hann jafn-
framt á þann dapurlega sið sumra
hérlendra söngvara að breyta ítölsk-
um sönglögum og aríum í einhvers-
konar vókalísur. Þannig má stund-
um aðeins greina sérhljóða í söngn-
um en engin orðaskil. Í sumum
tilfellum kveður svo rammt að þessu
að líkja mætti við meðvitaða stefnu-
yfirlýsingu. Söngtónlist sprettur af
texta og skýr textaframburður er
grundvöllur þess að hlustendur njóti
flutningsins. Verst er ef ungir
söngvarar lepja upp linmælgið eftir
hinum eldri og reyndari þannig að úr
verður íslenskt tilbrigði við ítalskan
framburð sem á sér enga stoð í raun-
veruleikanum. Vonandi halda söngv-
arar vöku sinni svo hlustendur megi
áfram njóta fegurðar, kliðmýktar og
gáska ítalskrar tungu líkt og á há-
degistónleikum Íslensku óperunnar.
Hálftíma brúðhlaup
TÓNLIST
Íslenska óperan
Aríur og dúettar úr Brúðkaupi Fíagarós
eftir W.A. Mozart. Hulda Björk Garð-
arsdóttir, sópran, Ólafur Kjartan Sigurð-
arson, baritón, og Steinunn Birna Ragn-
arsdóttir, píanó. Þriðjudaginn 12. febrúar
2002.
ÓPERUTÓNLEIKAR
Hulda Björk
Garðarsdóttir
Ólafur Kjartan
Sigurðarson
Gunnsteinn Ólafsson
ÁKVEÐIÐ hefur verið að veita
styrk úr Sagnfræðisjóði dr. Björns
Þorsteinssonar fyrir árið 2002, kr.
400.000. Umsóknum ber að skila á
skrifstofu heimspekideildar Há-
skóla Íslands í Nýjagarði, eigi síðar
en 10. mars nk.
Í 4. grein skipulagsskrár stend-
ur: Tilgangur sjóðsins er að styrkja
með fjárframlögum stúdenta við
nám undir kandidatspróf í sagn-
fræði og kandidata í sömu grein til
að rannsaka – og vinna að ritum
um – sérstök verkefni er varða
sögu Íslands eða efni því nátengt.
Veita má manni styrk til sams kon-
ar verkefna er eigi hefur verið í
Háskóla Íslands og er sérstakar
ástæður mæla með því að mati
stjórnar og öll stjórnin er sammála
þar um.
Styrkur
veittur
úr Sagn-
fræðisjóði NÝJUSTU fréttir benda til þessað verulega þrengi að hag Gugg-
enheim-listasafnsins í New York
sem einnig rekur útibú víða um
heim. Vilja margir kenna núver-
andi stjórnanda safnsins, Thomas
Krens, um og þeirri útþenslu-
stefnu sem hann hefur rekið á síð-
ustu árum. 90 starfsmönnum
Guggenheim-safnanna hefur ver-
ið sagt upp og þremur væntanleg-
um sýningum þess frestað um
óákveðinn tíma.
Guggenheim-safnið er einka-
rekin listastofnun eins og títt er
um listasöfn í Bandaríkjunum. Í
því augnamiði að auka ferða-
mannastraum, styrki og þar með
tekjur safnsins beitti Krens sér
fyrir auglýsinga- og markaðsher-
ferðum sem á tíðum þóttu keyra
um þverbak. Vilja sumir ganga
svo langt að líkja stefnu safnstjór-
ans við aðferðafræði McDonald’s-
hamborgarakeðjunnar. Sýningar
á borð við „List mótorhjólsins“ og
sýning á fatnaði hönnuðarins
Giorgio Armani á síðasta ári voru
mjög vel sóttar, en listrænt gildi
þeirra var umdeilt, ekki síst eftir
að í ljós kom að fatahönnuðurinn
heimsfrægi styrkti safnið um 15
milljónir bandaríkjadollara
skömmu eftir að opnuð var sam-
nefnd sýning honum til heiðurs.
Guggenheim-safnið neyddist til
að loka útibúi sínu í SoHo-hverfi í
New York fyrir 2 árum en hefur
haft uppi áform um nýja og stór-
kostlega safnabygginu neðarlega
á vesturbakka Manhattan-eyju til
viðbótar við auðkennandi bygg-
ingu á ofanverðri eyjunni sem
hönnuð var af Frank Lloyd
Wright fyrir rúmum 30 árum.
Hefur arkitektinn Frank O.
Gehry lokið við að hanna nýja
safnið en mjög óljóst er hvort af
framkvæmdum verður.
Í næstu viku stóð til að opna í
New York yfirlitssýningu á verk-
um bandaríska myndlistarmanns-
ins Matthew Barney, sem þekkt-
astur er fyrir Cremaster-kvik-
myndir sínar, og síðar á árinu
stóðu til sýningar á verkum Kas-
imir Malevich og Douglas Gordon,
en þeim hefur nú öllum verið
frestað.
Auk safnsins í New York og ný-
opnaðs Guggenheim-safns í Las
Vegas, hefur Guggenheim rekið
til lengri og skemmri tíma útibú í
Feneyjum, Berlín, Salzburg og
Bilbao á Spáni. Nú er uppi í safn-
inu sýning á brasilískri list, sem
fengið hefur heldur slæma dóma
hjá gagnrýnendum. Hafa þeir
m.a. velt því fyrir sér hvort valið á
verkunum tengist á einhvern hátt
fyrirætlunum um opnun Guggen-
heim-safns í Rio de Janeiro.
Guggenheim
í vanda statt
New York. Morgunblaðið.
♦ ♦ ♦