Morgunblaðið - 14.02.2002, Qupperneq 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2002 31
MARBERT
Reykjavík og nágrenni:
Snyrtistofa Hönnu Kristínar Skeifunni, Libia Mjódd,
Laugarnes Apótek, Nana Hólagarði, Snyrtivörudeildir
Hagkaups Kringlunni, Skeifunni, Spönginni,
Snyrtivörudeild Hagkaup Smáralind Kópavogi,
Zitas Firði Hafnarfiði.
Landið:
Gallery Förðun Keflavík, Árnes Apótek Selfossi,
Apótek Vestmannaeyja, Húsavíkurapótek Húsavík,
Snyrtivörudeild Hagkaup Akureyri, Silfurtorg Ísafirði.
Glæsilegur kaupauki fylgir með eftirtöldum kremum
úr Gull línunni frá MARBERT
· PROFUTURA er hrukkubaninn.
Dag- og næturkrem fyrir eðlilega og þurra húð.
· TIME EFFECT hefur áhrif á tímann.
Dag- og næturkrem fyrir eðlilega og blandaða húð.
· HYDRO-CELLIFE endurbyggir húðina og styrkir ónæmiskerfið.
Dag- og næturkrem fyri alla viðkvæma húð
· HYDROSOME er einstakt rakakrem fyrir allar húðgerðir.
· CELL ACTIVATION er frumuörvandi. Krem fyrir konur komnar
um og yfir miðjan aldur. Húðin getur svo sannarlega litið út fyrir
að vera yngri en árin segja til um.
Glæsilegur kaupauki fylgir ofangreindum
kremum úr Gull línunni frá MARBERT
Budda,
SCARF Edt 5 ml,
Naglalakk 6.5 ml,
Energy Face & Eye Mask 5 ml,
Profutura Eye Cream 3 ml
og Care Plus Foundation 5 ml.
að verðmæti kr. 3.900.
www.forval.is
Nýbýlavegi 12, Kóp., s. 554 4433
Blússur kr. 1.000
Pils kr. 1.000
Buxur kr. 1.900
Síðasta vikan
Kringlunni, sími 588 1680
Seltjarnarnesi, sími 561 1680
iðunn
tískuverslun
Ný sending
af drögtum
frá
Marcona
Tvær jakkalengdir
EINSETUMANNASÖNGVAR
(„Hermit Songs“) bandaríska tón-
skáldsins Samuels Barbers voru
fyrst á blandaðri söngva- og píanó-
dagskrá Arndísar Höllu Ásgeirs-
dóttur og þýzka píanistans Holgers
Groschopps í Salnum á þriðjudag.
Þ.e.a.s. sjö af tíu, og raunar opin
spurning hvers vegna ekki allt var
tekið, úr því mörg laganna í þessum
skemmtilega bálki frá 1953 upp úr
írskum miðaldatextum ókunnra höf-
unda eru mjög stutt. Það er svo önn-
ur saga hvers vegna Barber samdi
ekki fyrir karlrödd, með því að
margt er þar mælt úr munni munka.
Auk þess skilar söngtexti sér flestra
radda sízt í sópranflutningi, og hefði
því varla veitt af birtingu texta í tón-
leikaskrá.
Hitt stendur eftir, að lögin eru
samin af miklu hugviti og næmi fyrir
söng – sem þýðir þó engan veginn að
gerðar séu litlar kröfur, hvorki til
söngvarans né píanóleikarans. Þrátt
fyrir seiðandi melódík útheimti hinn
oft pentatóníski stíll laganna, í sér-
kennilegri blöndu af þjóðlagablæ,
impressjónisma og amerískri ný-
klassík í anda Coplands og Bern-
steins, greinilega mikið öryggi í inn-
tónun á stundum erfiðum hástökk-
um, og var „St. Ita’s vision“ meðal
dæmigerða tilfella. Arndís Halla
smokraði sér samt léttilega hjá þess-
um fallgildrum, þó að túlkunin væri
framan af frekar loppin og færi ekki
að hitna að ráði fyrr en í hinu glað-
hlakkalega „The Heavenly Banq-
uet“. „The Crucifixion“
var sungið af tærri til-
finningu fyrir harmi
guðsmóður og síðasta
lagið, „The Desire for
Hermitage“ af hrífandi
hugarró og sátt við
dauðann.
Holger Groschopp
reyndist hér sem síðar
eftirtektarverður og af-
ar fylginn undirleikari
og komst einnig merki-
lega vel frá Þrem pre-
lúdíum Gershwins frá
1926, þrátt fyrir nokk-
uð hrykkjótta nálgun
við djasssveifluna.
Leikur hans var
skemmtilega skýr og gæddur tölu-
verðum brilljans. Dró þar sízt úr í
seinni einleiksatriðunum, Spuna-
kórnum úr Hollendingnum fljúgandi
og „Rigoletto“ – Paraphrase (Verdi),
hvort tveggja í umritun Liszts.
Tengdafaðir Wagners gerði greini-
lega ráð fyrir miklum „bravura“-
spilara, og var ekki annað að heyra
en að Groschopp væri þar á öruggum
heimavelli.
Af Gershwin-söngvunum þremur,
But not for me, Soon og brúkunar-
hestinum alkunna úr „Porgy and
Bess“, Summertime, komst Arndís
Halla einna skemmtilegast frá rev-
íulegu fyrsta laginu með sviðsvönum
leikhústilþrifum. Í hinum saknaði
maður, líkt og stundum í Barber,
meiri notkunar á sléttum tónalit til
undirstrikunar textans, sem því mið-
ur vill gjarnan falla í vanrækt fyrir
kröfur stóra óperusviðsins. Fyrir
söngvara með jafnfallega rödd í
hæðinni og heyra mátti hjá Höllu í
ítölsku óperuaríunum síðast á dag-
skrá verður að kalla
ergilegt, svo ekki sé
meira sagt, að geta
ekki tjaldað sléttri
raddbeitingu til til-
breytingar – og líka
brjósttónum neðra tón-
sviðsins af meiri krafti
og fyllingu en hér varð
vart. Væri sannarlega
óskandi að söngkonan
tæki þessi atriði til
endurskoðunar á næst-
unni, enda var engum
blöðum að fletta um
ótvíræða hljómfegurð,
músíkalítet og magn-
aða útgeislun hennar
að öllu öðru leyti.
Glampandi fallegar hánótur og
eftirtektarverð flúrsöngstækni fögn-
uðu aftur á móti hverjum sigri á fæt-
ur öðrum í síðustu þrem atriðum
söngkonunnar á dagskrá, Una voce
poco fa (Rossini), Regneva nel sil-
enzio úr „Lucia di Lammermoor“
(Donizetti) og svínerfiðu kóloratúr-
aríunni Qui la voce úr „I Puritani“
eftir Bellini (sem minnir í upphafi
sérkennilega á skozka þjóðlagið
„Annie Laurie“), enda stóð ekki á
dúndrandi undirtektum áheyrenda.
Augljós kímnigáfa Arndísar Höllu
lagði síðan tregustu tónleikagestina
(hafi eitthvað verið eftir af þeim)
endanlega að velli í aukalögunum I
want to be a primadonna og Kossa-
vísum Páls Ísólfssonar. Og hver gat
heldur annað en kolfallið fyrir jafn-
skeinuhættum sjarma og þegar
söngkonan settist – í miðju síðasta
lagi – í kjöltu píanistans með blíðu-
hótum, án þess að missa nótu?
Skeinuhættur sjarmi
TÓNLIST
Salurinn
Verk eftir Barber, Gershwin, Verdi, Doniz-
etti og Liszt. Arndís Halla Ásgeirsdóttir
sópran, Holger Groschopp, píanó. Þriðju-
daginn 12. febrúar kl. 20.
SÖNG- OG PÍANÓTÓNLEIKAR
Arndís Halla
Ásgeirsdóttir
Ríkarður Ö. Pálsson
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is