Morgunblaðið - 14.02.2002, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
BANDARÍSKA leikkonan Teri
Hatcher, sem stödd er hér á landi í
tilefni fyrsta V-dagsins á Íslandi í
dag, 14. febrúar, kemur fram í
Borgarleikhúsinu í kvöld, þar sem
flutt verður dagskrá með söng,
dansi, leik og tónlist ofl. Markmið
V-dagssamtakanna er að binda
endi á ofbeldi gegn konum um all-
an heim og segjast samtökin munu
vinna að því markmiði þar til því
hefur verið náð.
Til að varpa upp mynd af ferli
Hatchers má nefna að hún hefur
leikið í á annan tug kvikmynda,
þ.á m. „Spy Kids“ með Antonio
Banderas, „Tango and Cash“ með
Sylvester Stallone og Kurt Russell
og James Bond myndinni „Tomor-
row Never Dies“ með Pierce
Brosnan. Einnig hefur hún leikið í
Seinfeld-þáttunum vinsælu og þá
eru ónefndar sjónvarpsþáttarað-
irnar vinsælu um Ofurmennið
„Louis and Clark“.
Dagskráin í Borgarleikhúsinu
hefst í kvöld kl. 19.30 þar sem
Hatcher flytur atriði sem nefnist
„Fullnægingareintal“, sem er hluti
úr leikritinu Píkusögur eftir Eve
Ensler, stofnanda V-dagssamtak-
anna, sem standa fyrir V-deginum.
Samtökin voru stofnuð 1998 en
það var í gegnum Píkusögur sem
Hatcher kynntist samtökunum,
þegar hún lék í uppfærslu leikrits-
ins á Broadway í New York. Upp
frá því hefur hún lagt lóð sín á
Markmið V-dagssamtaka
binda enda á ofbeldi gegn k
hlýtur að teljast háleitt mar
en telur Hatcher að því ver
hverntíma náð?
„Ég trúi því og vona að ö
við yfir getu til að láta ekki
ingirni og óöryggi stjórna h
okkar og við þurfum af þeim
um ekki að koma fram hver
annað á þann hátt sem við g
segir hún.
Aðspurð hvort ofbeldi ge
konum sé nægilega vel skilg
vandamál, segir hún erfitt a
til um það, enda sé mismun
hvaða augum það er litið m
ólíkra samfélaga. „Í mennin
sumra samfélaga er ekki ei
sinni litið á konur sem óæðr
um heldur eru þær nánast e
verðar. Það er því mikið ve
framundan að breyta þess k
hugsunarhætti.“
Hatcher segist trúa sterk
staklingsábyrgð hvers og e
ar hún er innt eftir því hvor
sé á lagabreytingum til að n
markmiðum V-dagssamtak
„Ég veit ekki hversu vænle
er til árangurs að yfirvöld s
þegnunum hvernig þeir eig
haga sér. Fólk verður að tr
góða hegðun og þannig bre
hlutirnir,“ segir hún.
vogarskálarnar í baráttunni gegn
kvennaofbeldi.
Margir karlar tregir til að
koma á Píkusögur
„Ég minnist viðbragða karlkyns
áhorfanda að Píkusögum, sem
óskaði þess að hafa kynnst inntaki
leikritsins á sínum yngri árum svo
hann hefði náð betur til kvenna,“
segir Hatcher. „Margir karlar
voru mjög tregir til að koma á sýn-
inguna og vissu ekki á hverju var
von, en yfirleitt skemmtu þeir sér
hið besta, þegar á hólminn var
komið.“
Teri Hatcher berst með V-dagssamtökunum ge
Trúir á hið
góða í mann-
eskjunni
Teri Hatcher í
Morgunblaðið/Sverrir
Teri Hatcher kemur fram á
dagskrá í Borgarleikhúsinu í
kvöld og flytur atriði úr Píku-
sögum.
LÆKNALIND er nafn nýrrar
einkarekinnar heilsugæslustöðvar
sem opnuð verður í Kópavogi 1.
mars. Rekstur hennar verður með
nýju sniði á þann veg að fólk skráir
sig á stöðina gegn ákveðnu mánað-
argjaldi og fær fyrir það ákveðna
þjónustu. Engin framlög koma frá
ríkissjóði í rekstur stöðvarinnar.
Læknar stöðvarinnar verða tveir
til að byrja með, þeir Guðbjörn
Björnsson, sem er sérfræðingur í al-
mennum lyflækningum og öldrun-
arlækningum, og Sverrir Jónsson,
sérfræðingur í heimilislækningum.
Þá starfa við stöðina Danfríður
Kristjónsdóttir, hjúkrunarfræðing-
ur og ljósmóðir, Linda Hrönn
Magnúsdóttir móttökuritari og Sig-
urður Arnórsson rekstrarfræðingur
sem framkvæmdastjóri í hluta-
starfi. Stöðin verður til húsa við
Bæjarlind 12 og hefur þegar verið
sett upp heimasíðan laeknalind.is
þar sem finna má helstu upplýsing-
ar um starfið.
Grunnþjónusta í
heimilislækningum
„Grunnheilbrigðisþjónustan eða
heilsugæslan er rekin af ríkinu og
við hyggjumst bjóða sömu þjónustu
og heilsugæslustöðvar, þ.e. alla al-
menna læknisþjónustu,“ sagði
Sverrir Jónsson m.a. er hann kynnti
starfsemina fyrir fjölmiðlum. Hann
segir það lengi hafa verið rætt að
bjóða þyrfti fleiri rekstrarform í
heilsugæslu en ekkert hafi gerst í
þeim málum. Þeir Guðbjörn Björns-
son hafi á síðasta sumri tekið að
velta alvarlega fyrir sér að koma á
raunverulegum einkarekstri. Úr
hafi orðið að stofna heilsugæslustöð
sem fólk skráir sig hjá gegn
skráðir eru hjá Læknalind
hjá lækni innan sólarhrings
dægurs ef hringt er fyrri hlu
Þá sinna læknarnir vitjunum
þörf krefur og er vitjanagja
kr. Sjúklingar geta sent fyr
ir til stöðvarinnar með tö
sem svarað verður um hæl,
að panta tíma á Netinu o
verður upp á bólusetningar.
Þá verða gerðar re
heilsufarsathuganir hjá hóp
þurfa, áhættuhópum sinnt
lega, og reglulegt eftirlit ver
með heilsufari skráðra vi
vina. Segja læknarnir að
verði inn hópar á ákveðnum
mæld blóðfita, kólesteról o
þættir sem skipta máli varð
hjarta- og æðasjúkdóma.
„Við leggjum mikla áher
starfsemi okkar sé eftir lö
reglum í landinu og við þu
uppfylla allar lagaskyldur v
ákveðnu mánaðargjaldi. Með því
tryggir það sér grunnþjónustu á
sviði heimilis- og fjölskyldulækn-
inga, heilsuverndar og annarrar
læknisþjónustu sem það þarfnast.
Þeir Guðbjörn og Sverrir segja
erfitt fyrir fólk að fá tíma hjá heilsu-
gæslustöðvum og borið hafi á því að
erfitt sé að fá heimilislækna til
starfa á höfuðborgarsvæðinu.
Kerfi Læknalindar er þannig
byggt upp að mánaðargjald einstak-
lings er 2.850 kr. en 3.950 kr. fyrir
fjölskyldu og skiptir fjöldi barna þá
ekki máli. Lágmark er að skrá sig
fyrir þjónustu á stöðinni í þrjá mán-
uði. Þá verða tekin komugjöld, 500
kr. frá 18 ára aldri en 250 kr. upp að
því. Fyrir fasta mánaðargjaldið fá
viðskiptavinir þjónustu á lækna-
stofu milli kl. 8 og 17 virka daga. Þar
er innifalin mæðraskoðun og ung-
barnaeftirlit og þarf ekki að greiða
sérstaklega fyrir það. Þeir sem
Einkarekin læknastofa tekur til starfa í b
Föst mánaðargjöl
linga standi undir
Morgunblað
Sigurður Arnórsson rekstrarfræðingur og læknarnir Sverrir
son og Guðbjörn Björnsson kynntu starfsemi einkareknu lækn
unnar Læknalindar sem tekur til starfa 1. mars.
VIÐSKIPTAHALLINN MINNKAR
Eitt helsta veikleikamerki ís-lensks efnahagslífs í góðæriumliðinna ára hefur verið hinn
mikli halli í viðskiptum við útlönd. Svo
árum skiptir hafa Íslendingar flutt sýnu
meira inn heldur en út og hefur mun-
urinn hlaupið á tugum milljarða króna
og nálgast hundraðið. Þessi mikli halli
hefur fylgt þenslu og góðæri og komið
fram í innflutningi á hvers kyns vörum,
allt frá þungavinnuvélum og efni til
framkvæmda til aðkeypts vinnuafls,
innflutnings á bílum, erlendra lána og
ferðalaga. Nú virðist hins vegar á ör-
skömmum tíma hafa orðið umtalsverð
breyting á þessu. Neysla hefur dregist
saman eins og sést á tölum um bílasölu,
en það sama á við á flestum sviðum
þjóðlífsins. Um leið hefur sjávarútvegi
vaxið fiskur um hrygg. Sig krónunnar
hefur styrkt rekstrarstöðu hans og á
hann einnig þátt í þessum viðsnúningi.
Reyndist viðskiptahallinn á liðnu ári
vera 41% lægri, en spáð hafði verið.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
fjallaði um þessi mál á viðskiptaþingi
Verslunarráðs Íslands á þriðjudag.
Hann benti á að Seðlabanki Íslands
spáði 3% verðbólgu á þessu ári í stað
9,1% verðbólgu ársins 2001 og tók sér-
staklega til þess að spáð væri enn minni
viðskiptahalla á þessu ári.
„Viðskiptahallinn hefur minnkað
hraðar en flestir gerðu ráð fyrir,“ sagði
Davíð Oddsson á viðskiptaþingi. „Þjóð-
hagsstofnun spáði því til að mynda í júní
s.l. að hallinn árið 2001 yrði 73 millj-
arðar en raunin varð allt önnur. Hallinn
varð 43 milljarðar samkvæmt nýjustu
tölum Seðlabankans og gangi spár fjár-
málaráðuneytisins eftir verður hann á
bilinu 25 til 30 milljarðar á þessu ári.“
Bandaríski hagfræðingurinn Joseph
Stiglitz, sem um skeið veitti Bill Clinton
Bandaríkjaforseta ráðgjöf, gegndi
starfi aðalhagfræðings Alþjóðabankans
í Washington í nokkur ár og hlaut Nób-
elsverðlaunin í hagfræði á liðnu ári,
gerði í fyrra úttekt á stöðu íslensks hag-
kerfis fyrir Seðlabankann og komst þar
að þeirri niðurstöðu að í glímunni við yf-
irstandandi efnahagsvanda ættu ís-
lensk stjórnvöld mun fremur að beina
sjónum að viðskiptahallanum en verð-
bólgu.
Í samantekt Seðlabankans á skýrslu
Stiglitz sagði: „Íslenska hagkerfið glím-
ir um þessar mundir við mörg þeirra
vandamála sem hrjá lítil og opin hag-
kerfi sem nýlega hafa afnumið höft á
fjármagnshreyfingar. Ísland hefur
fylgt stefnu í peninga- og fjármálum
sem mætti halda að væri skynsamleg.
Samt sem áður hefur viðskiptahalli
landsins aukist í 7% af VLF 1998/1999
og fór yfir 10% á árinu 2000. Það virðist
vera eindregin skoðun flestra að þessi
halli sé ekki sjálfbær. Lykilatriðið er
hins vegar ekki hvort viðskiptahallinn
er sjálfbær, heldur með hvaða hætti
hann leitar jafnvægis ... Athygli ís-
lenskra stjórnvalda ætti um þessar
mundir að beinast í mun meira mæli að
viðskiptahallanum en verðbólgu. Það
fer eftir aðstæðum hvort viðskiptahalli
er vandamál eða ekki. Ef viðskiptahall-
inn er notaður til þess að fjármagna
fjárfestingu einkaaðila mun arðsemi
fjárfestinganna væntanlega nægja til
þess að greiða aukinn vaxtakostnað
þjóðarbúsins.“
Niðurstaða Stiglitz var hins vegar á
þá leið að hallinn væri vandamál hér á
landi: „Tveir þriðju hlutar af viðskipta-
halla áranna 1997–2000 skýrast af
minnkandi sparnaði einkaaðila og einn
þriðji af aukinni fjárfestingu. Gríðarleg
aukning útlána á þessum árum bendir
til þess að aukið frelsi í fjármagnsflutn-
ingum hafi að verulegu leyti valdið við-
skiptahalla undanfarinna ára.“
Nú er viðskiptahallinn farinn að
minnka jafnt og þétt. Það er fagnaðar-
efni fyrir íslenskt efnahagslíf og hefur
vonandi engar óþægilegar afleiðingar
fyrir aðra þætti í jöfnu stöðugleikans.
GAGNLEGAR EVRÓPUUMRÆÐUR
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-herra hefur beitt sér fyrir gagn-
legum umræðum um Evrópumál og af-
stöðu okkar Íslendinga til
samrunaþróunarinnar í Evrópu. Frá
byrjun þessa árs hefur utanríkisráð-
herra haldið þrjár meiriháttar ræður
um málið, fyrst í Háskóla Íslands, síð-
an í Háskólanum á Akureyri og loks í
Þingborg á Suðurlandi. Morgunblaðið
sagði ítarlega frá öllum þessum þrem-
ur ræðum utanríkisráðherra auk þess
að eiga við hann fréttasamtöl á und-
anförnum vikum, þar sem hann hefur
verið á fundum með ráðamönnum
Evrópusambandsins. Í þessum ræðum
ráðherrans hafa komið fram afar
gagnlegar upplýsingar og á það ekki
sízt við um ræðu hans í Háskólanum á
Akureyri, þar sem hann ræddi sér-
staklega sjávarútvegsmál í tengslum
við Evrópusambandið og mátti greina
í þeirri ræðu sterkari fyrirvara en áð-
ur.
Í fyrradag flutti svo Davíð Oddsson
forsætisráðherra ræðu á Viðskipta-
þingi Verzlunarráðs Íslands, þar sem
hann fjallaði m.a. ítarlega um Evrópu-
málin og EES-samninginn. Ræða for-
sætisráðherra sýndi vel hvernig um-
ræður sem þessar verða til þess að
nýjar upplýsingar koma fram, sem
hafa mikla þýðingu fyrir framhald um-
ræðna um þetta mikilvæga málefni.
Davíð Oddsson upplýsti m.a., að eft-
ir stækkun Evrópusambandsins
mundi aðild að því kosta okkur Íslend-
inga á annan tug milljarða á ári
hverju. Þessar tölur um kostnað af að-
ild að ESB hafa ekki komið fram áður.
Í Evrópuumræðunum hér hafa
komið fram áhyggjur hjá starfsmönn-
um utanríkisráðuneytis yfir því, að
EFTA-ríkin hafi ekki fengið aðgang
að nefndarfundum á vettvangi ESB,
sem talið var að við ættum rétt á skv.
EES-samningnum. Forsætisráðherra
upplýsti í ræðu sinni að þau tilvik, sem
hér um ræðir, snúi að nefndum, sem
fjalli um neytendamál og hreinlæti og
hollustu á vinnustöðum. Þótt hér sé
vissulega um mikilvæg málefni að
ræða er þó ljóst að hagsmunir okkar
snúast um önnur og stærri mál. Það er
mikilvægt að sendimenn Íslands á er-
lendri grund missi ekki tengslin við
grasrótina í íslenzku þjóðfélagi. Hún
snýst um sjávarútveginn eins og skýrt
kom fram í ræðu Halldórs Ásgríms-
sonar á Akureyri.
Það er ljóst að hvorugur stjórnar-
flokkanna vill beita sér fyrir því að Ís-
lendingar leggi fram umsókn um aðild
að ESB. Á þessari stundu er því eng-
inn ágreiningur á milli stjórnarflokk-
anna um það grundvallaratriði. Af um-
mælum formanna stjórnarflokkanna
verður ekki séð að breyting verði á
þeirri grundvallarafstöðu í fyrirsjáan-
legri framtíð.