Morgunblaðið - 14.02.2002, Qupperneq 49
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2002 49
BORGARYFIRVÖLD eru um þess-
ar mundir að undirbúa fundarhald
með hagsmunaaðilum sem stunda
útivist í einhverri mynd í nágrenni
við félagssvæði Fáks á Víðivöllum
við Elliðaár.
Upplýsti Óskar Bergsson vara-
formaður skipulagsnefndar
Reykjavíkurborgar að ætlunin væri
að kalla saman göngu- og hjólreiða-
fólk á þessu svæði auk hestamanna
í því augnamiði að fá fram öll sjón-
armið og finna í framhaldinu lausn
á þeim vanda sem upp er kominn
vegna lagningu reið-, göngu- og
hjólreiðastíga á svæðinu.
Mikillar óánægju hefur gætt
meðal hestamanna með lagningu
síðastnefndu stíganna og telja þeir
þá liggja of nærri reiðgötunum víða
og sömuleiðis telja þeir ófært að
beina allri þessari umferð í gegnum
sömu undirgöng undir Suðurlands-
veg við Rauðavatn og undirgöngin
undir Norðlingabraut sem þeir telja
of þröng fyrir alla þessa umferð og
hafi mikla slysahættu í för með sér.
Sagði Óskar hvorki búið að dag-
setja né finna fundinum stað.
Borgaryfir-
völd boða fund
vegna reið- og
göngustíga
Morgunblaðið/Valdimar
Einn af ásteytingarsteinunum
er undirgöngin undir Suður-
landsveg sem hestamenn telja
að séu orðin of þröng eftir að
helmingur þeirra var tekinn
undir umferð gangandi og hjól-
andi umferðar.
með færustu reiðmönnum og reið-
kennurum FT í kennslustund hjá
þessum snjalla hestamanni. Í frétta-
tilkynningunni segir að sumir hest-
anna sem knaparnir mæta með séu
sumir hverjir landskunnir gæðing-
ar.
Þeir sem njóta þess heiðurs að fá
að mæta með hest eru Benedikt
Líndal, Eyjólfur Ísólfsson, Reynir
Aðalsteinsson, Sigurbjörn Bárðar-
son, Anton Páll Níelsson, Atli Guð-
mundsson, Einar Öder Guðmunds-
son og Olil Amble.
Þekkt hross
í kennslustund
Ekki er ljóst hvaða hross þessir
snillingar mæta með til leiks en vel
kemur til greina að Sigurbjörn
mæti með Markús frá Langholts-
parti en einnig er Logi frá Skarði
inni í myndinni hjá honum en hann
er nú kominn í þjálfun á nýjan leik
eftir fimm ára hvíld ef hvíld skyldi
kalla.
Suðri frá Holtsmúla er ofarlega í
huga hjá Olil og Einar Öder þarf að
velja milli þriggja hrossa, þeirra
Glóðar frá Grjóteyri, Faldar frá
Syðri-Gróf og Odds frá Selfossi.
Víst þykir að Eyjólfur muni mæta
með Rás frá Ragnheiðarstöðum og
Atli Guðmundsson mun mæta með
Breka frá Hjalla.
Bent Branderup verður með
þráðlausan hljóðnema og mun út-
skýra allar ábendingar til knapa
þannig að áhorfsþátttakendur ættu
að vera vel með á nótunum. Öllum
verður heimill aðgangur og verður
selt inn en aðgangseyrir hefur ekki
verið ákveðinn. Umsjónarmenn með
þessum viðburði eru þeir Atli Guð-
mundsson og Eyjólfur Ísólfsson.
Ætla má að þarna verði um sann-
kallaðan hvalreka að ræða á fjörur
hestamanna. Áhugi fyrir fimiæfing-
um er mjög vaxandi þótt annað
megi ætla eftir umfjöllun um fimi-
keppni á heimsmeistaramótum hér
á hestasíðunni. Áhugi fyrir keppni í
greininni virðist lítill en skilningur á
vægi æfinganna til uppbyggingar
alhliða reiðhesta virðist hinsvegar
mjög vaxandi.
tímann með útliti og klæðaburði.
Það er Félag tamningamanna
sem stendur að komu Branderups
til landsins og í fréttatilkynningu
frá félaginu segir að reiðmennska
hans einkennist mjög af léttleika og
þá einkum léttleika í beisli, stuttum
og hnitmiðuðum þjálfunartímum og
auk þess leggur hann mikla áherslu
á söfnun og kröftugar hreyfingar.
Reynir Aðalsteinsson tamninga-
meistari segir að hann leggi mikið
upp úr léttleika í beisli ásamt vilja
og krafti og aukinni burðargetu aft-
urfóta sem skapi háar hreyfingar.
Hentar vel fyrir
íslenska hestinn
Helstu sérfræðingar félagsins eru
sammála um að þessi gerð reið-
mennsku henti einstaklega vel við
uppbyggingu og þjálfun íslenska
hestsins.
Námskeiðið verður hvort tveggja
í senn einka- og sýnikennsla þar
sem einungis átta knapar verða með
hesta á námskeiðinu. Áhorfendum
verður gefinn kostur á að fylgjast
BENT Branderup fæst við og kenn-
ir þá grein klassískrar reiðmennsku
sem kennd hefur verið barokktím-
ann. Hann hefur getið sér heims-
frægðar fyrir hæfni og kunnáttu á
þessu sviði og fengist mikið við
kennslu samfara þjálfun hrossa.
Menntun sína hefur hann sótt til
Spánar og meðal annars numið við
The Royal Andalusian School of
Equestrian Art sem er í bænum
Jerez de la Frontera en sá skóli
þykir sambærilegur við Spánska
reiðskólann í Vín þótt ekki sé hann
eins þekktur og umtalaður hér á
landi.
Þá hefur Bent Branderup verið í
námi hjá heimsfrægum meisturum
á borð við Salavador Sanchez, Nono
Oliveira og Egon von Neindorff svo
nokkrir séu nefndir. Hann hefur lát-
ið mikið til sín taka í heimi hesta-
mennskunnar, meðal annars með
samningu kennslubóka og þá hefur
hann gert fjölda myndbanda. Þá
spillir það ekki að Bent Branderup
þykir mjög sérstakur persónuleiki
og lifir sig nokkuð inn í barokk-
Heimsókn reiðsnillingsins Bents Branderups til landsins um miðjan apríl
Hvalreki
á fjörur ís-
lenskrar reið-
mennsku
Ein mesta söfnun í reiðmennskunni er æfingin „levade“ sem Bent
Branderup framkvæmir hér. Allt í fullkomnu jafnvægi.
Margir hallast að því að heimsókn hesta-
mannsins danska Bents Branderups til Ís-
lands um miðjan apríl flokkist undir stór-
viðburð í hestamennskunni á Íslandi.
Valdimar Kristinsson fjallar hér um
námskeiðið sem Branderup mun kenna á.
FYRSTA vetrarmót Geysis í Rang-
árvallasýslu var haldið á Gaddstaða-
flötum á laugardaginn í ágætis veðri,
prýðisgóð þátttaka og hestakostur
afar góður. Sérstaklega vakti sigur-
vegari í atvinnumannaflokki, Skrúð-
ur frá Skrúði, mikla athygli. Hann er
undan Kolbeini frá Vallanesi sem er
aftur undan Kolfinni frá Kjarnholt-
um en móðir Skrúðs er undan Borg-
fjörð frá Hvanneyri. Skrúður er
svartur að lit, mjög faxprúður og
hágengur rýmishestur og verður
stefnt með hann á landsmót í sumar.
Eigandinn er Malin Ramm sem sat
hestinn en hún er sænsk en hefur
verið hér á landi í sex ár og unnið við
tamningar. Hún er félagi í Geysi og
mun væntanlega tefla honum fram á
móti félagsins í vor þegar valdir
verða gæðingar á landsmót.
Þetta er upphaf þriggja móta rað-
ar og verður næsta mót 9. mars á
Gaddstaðaflötum en þann dag halda
Geysismenn árshátíð sína um kvöld-
ið. Síðasta mótið verður svo 13. apríl
en þá verða veitt verðlaun fyrir
hvern flokk. Helga Fjóla Guðnadótt-
ir, formaður Geysis, sagði að í barna-
og unglingaflokki væru knaparnir
verðlaunaðir en í fullorðinsflokkun-
um tveimur væru það hestarnir sem
væru verðlaunaðir. Þannig geta þrír
knapar mætt með sama hestinn á sitt
hvert mótið og hann orðið stigahæst-
ur en úrslit fyrsta mótsins urðu ann-
ars sem hér segir:
Barnaflokkur
1. Inga B. Gíslad. á Úlfi frá Hjaltastöðum
2. Rakel N. Kristinsdóttir á Gyrði frá Skarði
3. Lárus Guðmundsson á Garpi frá Stykk-
ishólmi
4. Ragnheiður Ársælsdóttir á Framtíð frá
Fróðholti
5. Ragnheiður Hallgrímsdóttir á Hersi frá
Þverá, Skíðdal
Unglingar
1. Jóhanna Þ. Magnúsdóttir á Ófeigi frá Ár-
bakka
2. Helga B. Helgadóttir á Glymi frá
Kirkjubæ
3. Elín H. Sigurðardóttir á Kjarna frá Flögu
4. Hildur Ágústsdóttir á Vopna frá Fíflholti
5. Katla Gísladóttir á Spennu frá Leirubakka
Áhugamenn
1. Gunnar Rúnarss. á Brúnku frá Svínhaga
2. Katla Gísladóttir á Kolskör frá Flugumýr-
arhvammi
3. María Birkines á Regin frá Sigmundar-
stöðum
4. Ásmundur Pálss. á Nótt frá Hrafntóftum
5. Súsanna Hermanns á Eldingu frá Lamb-
haga
Atvinnumennn
1. Malin Ramm á Skrúði frá Skrúði í Reyk-
holtsdal
2. Ísleifur Jónasson á Fána frá Kálfholti
3. Kristjón Kristjánsson á Víglundi frá Fífl-
holti
4. Sissel Tweten á Fannari frá Akranesi
5. Þorvaldur Þorvaldsson á Gelli frá Ár-
bakka
Skagamenn komnir í gang
Töltmóti á Æðarodda á Akranesi
sem halda átti 2. febrúar var frestað
vegna veðurs en var haldið um
helgina. Þar var aðeins um forkeppni
að ræða en gefnar einkunnir og þrír
efstu hlutu verðlaun. Hér er um
mótaröð að ræða eins og hjá Geysis-
mönnum og verður sá verðlaunaður
sérstaklega er flest stig hlýtur að
loknum þremur mótum. Aðeins var
keppt í einum flokki og urðu úrslit
sem hér segir:
Opinn flokkur
1. Ingibergur Jónss. á Ísak frá Akranesi, 6,5
2. Ólafur Guðmundsson á Ljósvaka frá
Vatnsleysu, 6,4
3. Linda Reynisdóttir á Garpi, 5,7
Um helgina næstu verður fé-
lagsmót hjá Fáki en auk þess hugð-
ust þeir halda opið mót í skeiði og
jafnvel tölti á Rauðavatni en það
virðist nú í uppnámi með snarlega
breyttu hitastigi og roki og rigningu.
Landsmótskandídatar láta á sér kræla
Morgunblaðið/Valdimar
Hestamenn hafa átt góða daga á ísilögðum vötnum. Hér fara fjórir knapar á færleikum sínum um Rauðavatn.
Fákaflug á
Melgerðis-
melum?
EKKI hyggjast Skagfirðingar né
heldur Norðlendingar hvíla sig eftir
landsmótið í sumar eins og ýjað var
að í hestaþætti fyrir hálfum mánuði
þegar fjallað var um mótaskrá LH
og hestamót ársins. Að sögn Stefáns
Erlingssonar hjá Létti á Akureyri er
engan bilbug á þeim að finna fyrir
norðan og hyggjast þeir halda áfram
með Fákaflugið sem tókst með mikl-
um ágætum í fyrra. Sagði hann að
allar líkur væru á að mótið yrði að
þessu sinni haldið á Melgerðismelum
en ekki væri búið að ganga endan-
lega frá hlutunum og því væri mótið
ekki komið á mótaskrána.
Þá hefur dagsetning afmælismóts
Fáks verið ákveðin 19. til 21. apríl og
bætt hefur verið í mótaskrána vetr-
armótum Sleipnis á Selfossi og ná-
grenni og sömuleiðis íþrótta- og
gæðingamóti Sóta á Álftanesi. Þá
ríkir enn fullkomin óvissa um dag-
setningu Óvissumóts Sörla í Hafn-
arfirði að öðru leyti en því að það
verður haldið í mars.
Vörurnar
sem virka
FREMSTIR FYRIR GÆÐI