Morgunblaðið - 14.02.2002, Qupperneq 54
DAGBÓK
54 FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Arn-
arfell, Sigurbjörg
ST-055, Sigurbjörg
Óf-001, Skálafell og
Goðafoss koma í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Brúarfoss og Rán fóru í
gær.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl 9
vinnustofa, kl 10 boccia,
kl 13 vinnustofa, mynd-
mennt og bað.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta, opin
handavinnustofan, bók-
band og öskjugerð, kl.
9.45–10 helgistund, kl.
10.15 leikfimi, kl. 11
boccia, kl. 13–16.30 opin
smíðastofan. Allar upp-
lýsingar í s. 535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
14.30 böðun, kl. 9–9.45
leikfimi, kl. 9–12 mynd-
list, kl. 9–16 handavinna,
kl. 10–17 fótaaðgerð, kl.
14 dans. Félagsvist á
morgun kl. 13.30.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðju- og fimmtudögum
kl. 13–16.30, spil og fönd-
ur. Jóga á föstudögum
kl. 11. Kóræfingar hjá
Vorboðum, kór eldri
borgara í Mosfellsbæ á
Hlaðhömrum fimmtu-
daga kl. 17–19. Pútt-
kennsla í íþróttahúsinu á
sunnudögum kl.11. Uppl.
hjá Svanhildi í s.
586 8014 kl. 13–16. Uppl.
um fót-, hand- og and-
litssnyrtingu, hár-
greiðslu og fótanudd, s.
566 8060 kl. 8–16.
Félagsstarfið Furugerði
1. Kl. 9 aðstoð við böðun,
smíðar, útskurður, leir-
munagerð og glerskurð-
arnámskeið, kl. 9.45
verslunarferð í Aust-
urver, kl. 13.30 boccia.
Messa verður föstudag-
inn 25. febrúar kl. 14,
prestur sr. Ólafur Jó-
hannsson, Furugerð-
iskórinn syngur undir
stjórn Ingunnar Guð-
mundsdóttur.
Félagsstarfið. Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45
hárgreiðslustofan opin,
kl. 9–13 handavinnu-
stofan opin, kl. 9.30
danskennsla, kl. 14.30
söngstund.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 9
fótaaðgerð, kl. 10 hár-
snyrting, kl. 11 leikfimi,
kl. 13 föndur og handa-
vinna, kl. 15 bingó.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli.
Pútt í Bæjarútgerð kl
10–11:30. Glerskurður
kl. 13. Á morgun mynd-
list kl 13, bridge kl.
13:30. Leikhúsferð, verð-
ur farin fimmtud. 21. feb.
í Borgarleikhúsið að sjá
„Boðorðin níu“. Skrán-
ing í Hraunseli s. 555-
0142. Rúta frá Hraunseli
kl 19:15 Aðgöngumiðar
afhentir á morgun föstu-
dag kl:13–16. Fé-
lagsmiðstöðin Hraunsel
verður lokuð vegna
flutnings í Flatahraun 3 í
næstu viku 18. feb. til 22
feb. Vígsla nýrrar fé-
lagsmiðstövar verður
laugard. 23. feb. kl 14.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Spilakvöld á
Álftanesi í kvöld kl. 19.30
á vegum Lionsklúbbs
Bessastaðahrepps. Akst-
ur samkvæmt venju.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan op-
in virka daga frá kl. 10–
13. Kaffi, blöðin og mat-
ur í hádeginu. Fimmtud:
Brids kl. 13. Brids fyrir
byrjendur kl. 19.30.
Leikfélagið Snúður og
Snælda sýnir í Ásgarði í
Glæsibæ, Söng- og gam-
anleikirnir „Í lífsins
ólgusjó“ og „Fugl í búri“.
Sýningar: Miðviku- og
föstudaga kl. 14 og
sunnudaga kl. 16. Miða-
pantanir í síma: 588-
2111, 568-8092 og 551-
2203. Ferð á vegum
fræðslunefndar FEB á
Listasafn Íslands mið-
vikudaginn 20. febrúar
kl. 14. Mæting við Lista-
safnið. Uppl. á skrifstofu
FEB. kl. 10–16
s.588 2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
glerskurður, kl. 9–13
hárgreiðsla, kl. 9–16 böð-
un, kl. 10 leikfimi, kl.
15.15 dans. Opið alla
sunnudaga frá kl. 14–16
blöðin og kaffi.
Gerðuberg, félagsstarf.
Sund- og leikfimiæfingar
í Breiðholtslaug kl. 9. 30,
kl. 10.30 helgistund, um-
sjón Lilja G. Hallgríms-
dóttir djákni í Fella- og
Hólakirkju. Frá hádegi
spilasalur og vinnstofur
opin, m.a þrívíddar-
myndir unnar. Fimmtud.
28. feb. Leikhúsferð í
Borgarleikhúsið „Boð-
orðin níu“, skráning haf-
in. Upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í síma 575-7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9 handavinna, kl. 9.05
og kl. 9.50 leikfimi, kl.
9.30 klippimyndir, kl. 15
rammavefnaður, kl. 13
gler og postulín, kl. 16.20
og kl. 17.15 kínversk
leikfimi, kl. 17 myndlist,
kl. 20 gömlu dansarnir,
kl. 21 línudans.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 og kl. 10 jóga,
kl. 9.15 postulínsmálun,
kl. 13 brids, kl. 13–16
handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum,
kl. 17 línudans.
Hraunbær 105. Kl. 9 op-
in vinnustofa, bútasaum-
ur, kortagerð og perlu-
saumur, kl. 9.45 boccia,
kl. 11 leikfimi, kl. 14 fé-
lagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun og bútasaumur,
kl. 10 boccia, kl. 14 fé-
lagsvist. Hársnyrting og
fótaaðgerð.
Norðurbrún 1. Kl. 9 tré-
skurður og opin vinnu-
stofa, kl. 10–11 ganga, kl.
10–15 leirmuna-
námskeið.
Vesturgata 7. Kl. 9 fóta-
aðgerðir og hárgreiðsla,
kl. 9.15–12 aðstoð við
böðun, kl. 9.15–15.30
handavinna, kl. 10
boccia, kl. 13–14 leikfimi,
kl. 13–16 kóræfing, kl.
17–20 leirmótun.
Vitatorg. Kl. 9 smíði og
hárgreiðsla, kl. 9.30 gler-
skurður og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og boccia, kl. 13
handmennt og frjálst
spil, kl. 14 leikfimi.
Kirkjuferð verði í Víði-
staðakirkju í Hafnarfirði
miðvikud. 20. feb. Uppl. í
síma 561-0300. Spiluð
verður félagsvist í kvöld
kl. 20.
Kristniboðsfélag
kvenna, Háaleitisbraut
58-60, fundur í umsjá
Fjólu Guðleifsdóttur
hefst með kaffi kl. 16.
Allar konur velkomnar.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.15 í Digra-
neskirkju.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids í
Gullsmára 13 mánu- og
fimmtudaga. Skráning
kl. 12.45. Spil hefst kl.
13.
Sjálfsbjörg, félagsheim-
ilið Hátúni 12. Tafl í fé-
lagsheimilinu kl. 19.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra, leik-
fimi kl. 11 í Bláa salnum.
Úrvalsfólk Vorfagn-
aðurinn verður á Hótel
Sögu, Súlnasal,
föstud.15. feb kl. 19.
Nokkrir miðar hafa losn-
að vegna veikinda, ósótt-
ar pantanir óskast sóttar
sem fyrst í Lágmúla 4, s.
585-4000.
Seyðfirðingafélagið.
Sólarkaffi Seyðfirðinga
verður haldið í Fann-
borg 8, Gjábakka,
sunnudaginn 17. febrúar
kl. 15. Mætið stundvís-
lega.
Aðalfundur knatt-
spyrnudeildar Hauka
verður haldinn í kvöld kl.
20 í hátíðarsal félagsins
að Ásvöllum. Venjuleg
aðalfundarstörf. Kosn-
ing nýrrar stjórnar.
Önnur mál.
Íslenska bútasaums-
félagið. Munið fé-
lagsfundinn í dag
fimmtudaginn 14. febr-
úar kl. 20 í safn-
aðarheimili Háteigs-
kirkju. Nýir félagar
velkomnir.
Fræðslu og orlofsdagar
eldri borgara í Skálholti.
Boðið er til fræðslu- og
orlofsdaga í Skálholti
4.–6. mars Skráning fer
fram á skrifstofu elli-
málaráðs í síma 557-1666
netfang: ellim@centr-
um.is og í Skálholts-
skóla, sími 486-8870 net-
fang: rektor@skalh
Í dag er fimmtudagur 14. febrúar,
45. dagur ársins 2002. Valentínusar-
dagur. Orð dagsins: Þjónn Drottins
á ekki að eiga í ófriði, heldur á hann
að vera ljúfur við alla, góður fræð-
ari, þolinn í þrautum, hógvær er
hann agar þá, sem skipast í móti.
(II.Tím. 2, 24.)
LÁRÉTT:
1 kút, 4 hattkollur, 7 loð-
skinns, 8 skrifum, 9 frí-
stund, 11 sterk, 13 fugl,
14 ólyfjan, 15 grobb, 17
litla grein, 20 handlegg,
22 áhöldin, 23 tré, 24
starir, 25 gegnsæir.
LÓÐRÉTT:
1 leyfir, 2 blíðuhótum, 3
halarófa, 4 umgerð, 5
sjaldgæf, 6 lofar, 10
mannsnafn, 12 virði, 13
sómi, 15 formum, 16 ber,
18 fjallsnef, 19 ræktuð
lönd, 20 flanir, 21 máttur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 stórlátur, 8 lokum, 9 æfing, 10 urð, 11 gramm,
13 innir, 15 fjörs, 18 eflir, 21 pól, 22 undra, 23 leggs, 24
inngangur.
Lóðrétt: 2 takka, 3 rómum, 4 áræði, 5 urinn, 6 slag, 7
Ægir, 12 mör, 14 nef, 15 fauk, 16 öldin, 17 spaug, 18 ell-
in, 19 lygnu, 20 risi
K r o s s g á t a
Hundaræktarstöð til
fyrirmyndar
VEGNA umræðna í fjöl-
miðlum undanfarna daga
um hundaræktunarstöðina
í Dalsmynni vil ég koma því
á framfæri að ég er búin að
koma á hundaræktunar-
stöðvar um allan heim og
finnst hundaræktarstöðin
hennar Ástu í Dalsmynni til
fyrirmyndar. Þau hjónin,
og fjölskylda þeirra, eru
búin að leggja aleigu sína í
þetta fyrirtæki og þau veita
mjög góða þjónustu. Ég á
sjálf tvo hunda frá henni og
eru þeir líf mitt og yndi sem
ég hefði ekki viljað missa
af. Fyrir nokkrum árum
var ekki hægt að fá þessa
hunda sem þau hafa flutt
inn og ræktað. Ég vil hvetja
þau hjónin til að halda
áfram á þessari braut og
láta þessa umfjöllun ekki á
sig fá. Hvet ég almenning
til að skoða starfsemina hjá
þeim því hún er til fyrir-
myndar.
Helena.
Hvar eru konurnar?
ÉG skrifa fyrir hönd
tengdamóður minnar og
leita aðstoðar við að hafa
uppá eða fá fréttir af fyrr-
verandi samstarfskonum
hennar á Íslandi. Tengda-
móðir mín, Anna Sofia
Mørtvedt, fædd 19.6. 1928,
var í vinnu á Ullevål spítala
í Ósló um 1950–51, áður en
hún giftist 1953. Hún vann
þar með 3 íslenskum kon-
um, Sigríði Einarsdóttur,
fædd 1906, Elínu Jónsdótt-
ur, fædd 1912, og Unni
Ingimundardóttur, fædd
13.6. 1928. Allar voru þær
til heimilis í Reykjavík.
Hún vildi gjarnan fá fréttir
af þeim, en hún hefur ekki
haft samband við þær í
mörg ár. Vonast hún til að
fjölskylda þeirra geti gefið
henni einhverjar upplýs-
ingar. Hægt er að hafa
samband við mig á netfang-
inu: maritko@msn.com eða
skrifa á heimilisfangið:
Marit Kostøl, Eide, N-6740
Selje, Noregur.
Eins er hægt að skrifa
tengdamóður minni: Anna
Soie Amdam, Kirkeveien,
N-6240, Ørskog, Noregur.
Með kærri kveðju til
kunningja á Íslandi.
Marit Kostøl.
Tapað/fundið
Myndavél í óskilum
MYNDAVÉL fannst á göt-
unni í Frostaskjóli síðasta
sumar. Finnandinn setti þá
upp stóra auglýsingu á
girðingarstaur, þar sem
myndavélin fannst, en eng-
inn vitjaði hennar. Upplýs-
ingar eru veittar í síma 561-
0063.
Mokkahúfa í óskilum
GRÁ nýleg mokkahúfa,
kvenmanns, er í óskilum í
Félagsstarfi Gerðubergs.
Uppl. á staðnum hjá Guð-
rúnu eða í síma 575-7720.
Gullhringur týndist
GULLHRINGUR týndist
líklega í Nettó í Mjódd sl.
sunnudag. Finnandi hafi
samband ísíma 564-1168.
Rebbi er týndur
REFASKINN týndist á
Kaffibarnum laugardags-
kvöldið 9. febrúar. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 698-7544. Skinnsins er
sárt saknað.
Mokkakápa týndist
SVÖRT mokkakápa týnd-
ist sl. laugardagskvöld á
Players í Kópavogi. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 567-3697.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
UNDANFARNA mánuði
hafa sjálfstæðismenn í
borginni lýst yfir áhyggj-
um sínum yfir þróun mála
í Geldinganesi og eins
vilja þeirra að þar rísi fal-
leg og myndarleg íbúa-
byggð. Í síðasta sunnu-
dagsblaði Morgunblaðsins
áréttar Björn Bjarnason
þessa skoðun og því er
mér spurn hvort sjálf-
stæðismenn hafa tekið af-
stöðu með Landsímalóð-
ina hér í Grafarvogi? Þar
er í uppsiglingu eitt alls-
herjar skipulagsklúður
um þétta og háreista
byggð mitt í lágreistri og
dreifðri byggð ásamt
auknu umferðarálagi fyr-
ir íbúa við þessa lóð.
Íbúar Rimahverfis hafa
lýst yfir áhyggjum yfir
þessu skipulagsklúðri og
óskum um áframhaldandi
dreifða íbúabyggð með
grænum svæðum og
sparkvöllum fyrir börn
borgarinnar, en eins og
flestir vita eru þau svæði
ekki of mörg í borginni
miðað við margar erlend-
ar borgir þar sem grænu
svæðin skipta máli.
Það væri gaman að vita
hvaða skoðun sjálfstæð-
ismenn hafa á þessu
skipulagsmáli því það
auðveldar mörgum valið
þegar að kosningum kem-
ur.
Með ósk um betri og
öðruvísi borg.
Íbúi í Rimahverfi.
Sjálfstæðismenn og borgin
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI er áhugamaður umkóngafólk og fylgist vel með
sorgum þess og sigrum. Margrét
prinsessa, systir Elísabetar Breta-
drottningar, lést um helgina og Vík-
verji gat ekki neitað sér um að fylgj-
ast með fréttum af láti hennar á
fréttasjónvarpsstöðinni Sky sem
fylgist jafnan vel með því sem gerist
á Bretlandseyjum. Stöðin rifjaði upp
ævi Margrétar og spjallaði við vini
hennar. Svo ótrúlegt sem það kann
að hljóma var nánast ekki fjallað um
neitt annað á sjónvarpsstöðinni sl.
laugardag en lát prinsessunnar.
Víkverji saknaði þess að í allri
þessari miklu umfjöllun skyldi ekki
verið fjallað um þá staðreynd að
Margrét lést úr afleiðingum reyk-
ingasjúkdóma. Margrét var stór-
reykingamanneskja allt sitt líf og
þurfti m.a. að nema brott hluta af
öðru lunga hennar eftir að þar
greindist krabbamein. Samt hélt hún
áfram að reykja.
Heilsa Elísabetar drottningar hef-
ur alla tíð verið ólíkt betri en Mar-
grétar systur hennar. Drottningin
virðist hafa allar forsendur til að ná
sama aldri og móðir hennar sem orð-
in er 101 árs gömul. Fróðlegt hefði
verið að heyra álit lækna á því hvers
vegna svona mikill munur hefur ver-
ið á heilsu þessara þriggja kvenna og
hvort ekki er líklegast að ástæðan
fyrir þessu sé sú að Margrét er sú
eina sem hefur reykt stærstan hluta
lífs síns. Sú mikla athygli sem lát
prinsessunnar hlut hefði þannig
mátt nota til að vekja athygli á
hræðilegum afleiðingum reykinga.
x x x
VÍKVERJI hefur gaman af því aðfylgjast með spurningaþáttum í
sjónvarpi. Nú er hafinn í sjónvarpinu
spurningaþátturinn Gettu betur en í
honum keppa nemendur í fram-
haldsskólum. Víkverji hefur haft
gaman að því að fylgjast með þessum
þáttum. Það er bara eitt sem fer
ósegjanlega í taugarnar á honum og
það er hinn fátæklegi orðaforði
stjórnanda þáttarins, Loga Berg-
manns Eiðssonar. Uppáhaldsorð
Loga er orðið jæja. Þetta orð notar
hann aftur og aftur í þáttinum. „Jæja
... jæja ... jæja ... jæja,“ segir Logi í
tíma og ótíma. Stundum fær maður á
tilfinninguna að Loga leiðist að taka
þátt í þessum þáttum og geti ekki
leynt því að hann vilji drífa þetta af
og segi því „jæja“ til áherslu.
Kannski dettur honum bara ekkert í
hug þess vegna segir hann bara
„jæja“.
Logi Bergmann er prýðilegur
sjónvarpsmaður og ágætur frétta-
maður. Það eina sem hann á eftir að
gera til að ná fullkomnum tökum á
miðlinum er að hætta þessu eilífa
„jæja ... jæja“. Ef Logi hættir þessu
ekki ætlar Víkverji að hætta að horfa
á Gettu betur.
x x x
VÍKVERJA fannst athyglisverð-ar upplýsingar koma fram í
frétt í Morgunblaðinu í gær um að
bílatryggingar hefðu hækkað um
79% á síðustu fimm árum á sama
tíma og neysluverðsvísitala hefði
hækkað um 23,8%. Enginn liður vísi-
tölunnar hefur hækkað jafnmikið og
bílatryggingar.
Sjálfsagt hefur verið einhver
grundvöllur fyrir hækkun á trygg-
ingum en það er nokkuð vel í lagt af
hálfu tryggingafélaganna að hækka
um 79%.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16