Morgunblaðið - 19.02.2002, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 19.02.2002, Blaðsíða 15
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2002 15 Dæmi um hvað vítamín og steinefni gera fyrir þig SÚ nýbreytni var tekin upp í Hvammstangasókn, að einungis karlar sungu og þjónuðu við al- menna guðsþjónustu fyrsta sunnu- dag í þorra. Karlakór, samsettur úr söngmönnum úr kirkjukórnum með aðstoð dyggra félaga söng undir stjórn Helga S. Ólafssonar organista. Lesarar og hringjari voru karlar úr kirkjustarfinu og sr. Sigurður Grétar Sigurðsson þjónaði fyrir altari. Mæltist þetta vel fyrir hjá kirkjugestum. Í upphafi góu mun kvennakór annast söng við messu, ásamt kvenlesurum. Karlmenn munu hinsvegar annast stjórnun kórs og þjónustu fyrir altari. Óvíst er enn um kyn hringjarans. Kórfélagar ásamt stjórnanda, presti, lesurum og hringjara í kór Hvammstangakirkju. Karlamessa á þorra Hvammstangi ÞEGAR kleinugerð er framundan hafa mynd- arlegar húsmæður mik- ið við og að þessu sinni voru tengdamæðgur á Þórshöfn saman við baksturinn en tengda- móðirin var komin úr öðrum hreppi um lang- an veg til að hafa yfir- umsjón með kleinugerð- inni. Þeim brá illa í brún þegar þær losuðu úr hveitipoka í hveitibaukinn og ætluðu að vigta í kleinudeigið því úr pokanum kom einnig hvít lirfa, tæplega tveggja sentimetra löng. Skorkvikindi eru ekki velkomin hjá sómakærum hús- mæðrum og hveitipok- inn fór beint í ruslið; Kornax-hveiti sem keypt var í stórmark- aði á Akureyri. Næsti poki reyndist í lagi en hver hveitibolli var vandlega sigtaður svo öruggt væri að engin boðflenna kæmist í kleinurnar. Þrátt fyrir byrjun- arerfiðleikana urðu kleinurnar sér- lega ljúffengar og mjúkar en þær eru eggjalausar og uppskriftina þró- aði tengdamóðirin vegna barnabarns síns sem hefur ofnæmi fyrir eggjum. Boðflenna í hveitinu Þórshöfn Óvelkominn gestur var í hveitinu. KEILA bættist við fjölbreytta íþróttaflóru Akurnesinga í lok sl. árs þegar tekinn var í notkun keilusalur sem Keilufélag Akraness hafði stað- ið í ströngu við að koma í lag allt sl. ár. Keyptar voru þrjár brautir sem áður voru í Reykjanesbæ og var þeim komið fyrir í kjallara íþrótta- hússins við Vesturgötu og gerður var rekstrarsamningur við Akra- nesbæ til ársins 2005 og mun Keilu- félagið sjá um daglegan rekstur staðarins. Að sögn Guðmundar Sigurðsson- ar, formanns félagsins, hefur að- sóknin að keilusalnum verið framar vonum og mikil gróska í starfinu. Áhugi eldri borgara hefur vaknað á greininni sem og hjá yngri kynslóð- inni og hafa nú þegar einhverjir titl- ar unnist hjá yngri spilurum. Opið er alla daga í keilusalnum sem enn hefur ekki hlotið formlegt nafn og er hægt að komast í keilu frá miðjum degi og fram undir miðnætti virka daga sem um helgar. Að sögn Guðmundar er greinilegt að Akurnesingar sýna keilunni mik- inn áhuga en keppnislið félagsins hóf keppni árið 1997 og hefur unnnið sig upp um deild á hverju ári og leikur nú í efstu deild. Guðmundur sagði þó að liðið reri lífróður þessa dagana við að halda sæti sínu á meðal þeirra bestu. Keilusalurinn er í aðstöðu þeirri sem Leikfélag Akraness hafði áður til afnota og er svæðið um 500 fer- metrar að stærð. Auk keilubraut- anna er knattborð í nýju aðstöðunni og boðið er uppá veitingar af ýmsum toga. Guðmundur sagði að Keilu- félagið ætlaði sér að fara hægt í sak- irnar með fleiri breytingar enda væri nóg um að vera í húsinu eins og væri. Keilu vel tekið í knattspyrnubænum Akranes Morgunblaðið/Sigurður Elvar Halldór Sigurðsson, leikmaður Keilufélags Akraness, reynir að ná fellu í deildarleik með félaginu og tókst honum ætlunarverkið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.