Morgunblaðið - 19.02.2002, Side 19

Morgunblaðið - 19.02.2002, Side 19
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2002 19 Dæmi: Ozone trékylfur ....kr. 3.000 ZO-ON barnaregngalli jakki + buxur ........kr. 8.500 Loksins loksins - GOLF - útsala Allt að 50% afsláttur Dæmi: PING TiSI dræver...kr. 39.000 Footloy skór .............kr. 5.900 Titleist 990 golfsett kr. 69.000 GOLFBÚÐIN, Strandgötu 28, Hafnarfirði, símar 565 1402, 898 6324 SEINT yrði hægt að telja upp öll glæpaverk þýskra nasista, sem þeir frömdu í herteknum löndum Evrópu, en það gleymist stund- um, að venjulegir Þjóðverjar urðu líka fyrir barðinu á skelf- ingum stríðsins, til dæmis þær milljónir manna, sem flýðu nauðganir og fjöldamorð sovésku hersveitanna. Um þetta meðal annars fjallar þýski Nóbelsverð- launahöfundurinn Günter Grass í sinni nýjustu bók, „Krabbagangi“ eða „Im Krebsgang“. Með því hefur hann rofið meira en hálfrar aldar þögn, þá óskrifuðu reglu, að Þjóðverjar eigi ekki að tala um annað en sína sameiginlegu sekt vegna grimmdarverka Þriðja rík- isins. Söguhetjan heitir Tulla, 17 ára gömul stúlka, ófrísk og komin langt á leið. Hún lifir af þegar sovéskur kafbátur sökkvir Wil- helm Gustloff á Eystrasalti 30. janúar 1945 en þá var þetta fyrr- um glæsilega skemmtiferðaskip yfirfullt af vegalausu fólki og her- mönnum á flótta. Hvorki fyrr né síðar hafa fleiri farist með einu skipi, um 9.000 manns, en talið er, að um 1.250 hafi komist af. Til samanburðar má nefna, að í Tít- anik-slysinu 1912 fórust 1.513 manns. Tulla verður grá fyrir hærum þegar hún sér lík barnanna fljóta í köldum sjónum og hún verður léttari strax í björgunarbátnum. Hún elur son sinn umkringd skelfingu lostnu fólki og neyð- arópum kvenna, sem hafa misst börnin sín. Harmar þögnina Þetta er í fyrsta sinn, sem þýskur rithöfundur segir frá ör- lögum og hlutskipti þeirra 12 milljóna manna, sem flýðu undan framsókn Rauða hersins, undan nauðgunum, ránum og skipulögð- um morðum á óbreyttum borg- urum. Grass eða ein af persónum hans í sögunni harmar „þögnina, sem um þetta hefur ríkt svo lengi, og aðeins vegna þess, að sameiginlega sökin var svo mik- il“. Afleiðingin var sú, að þetta mál var eftirlátið „öfgamönnum til hægri og vinstri“. Eftir stríð þótti ekki við hæfi að tala um grimmdarverk Sov- étmanna, nýjar kynslóðir voru miður sín vegna ábyrgðar for- eldranna á því, sem gerst hafði, og í Austur-Þýskalandi var um- ræðan bönnuð. Þýski rithöfund- urinn W. G. Sebald, sem nú er látinn, ruddi þó brautina með umdeildum fyrirlestrum og grein- um 1997. Þar fjallaði hann um eyðileggingu evrópskra borga og þær mannlegu þjáningar, sem fylgdu loftárásum bandamanna. Afneitun og öfugsnúinn áhugi „Krabbagangur“ segir sögu Þjóðverja eftir stríð, sögu, sem er mörkuð minningunni um Helför og hermdarverk nasista. Sonur Tullu vill ekki heyra talað um þá atburði, sem urðu þegar hann kom í heiminn, þótt Tullu sjálfri finnist, að einmitt þess vegna eigi hann að segja frá þeim. Sonur hans og sonarsonur Tullu hefur aftur á móti áhuga á því en hann lendir í slagtogi við hægriöfga- menn. Hann verður mjög at- hafnasamur á Netinu þar sem hann krefst blóðugra hefnda en þar kemst hann líka í kynni við mann, sem segist vera gyðingur. Gyðingurinn bendir á, að um borð í Wilhelm Gustloff hafi verið 1.000 þýskir hermenn og skipið auk þess haft uppi þýskan herf- ána þegar það var skotið í kaf. Hafði skipið raunar verið notað sem herbúðir allt frá 1940 og leg- ið við festar í Gotenhafen, sem nú er Gdynia í Póllandi, þar til það lagði upp í ferðina örlagaríku. Lofsamlegir dómar „Krabbagangi hefur verið tekið ákaflega vel í Þýskalandi. Einn kunnasti gagnrýnandinn, Marcel Reich-Ranicki, segir söguna með- al þeirra bestu, sem frá Grass hafa komið, og með því „besta í þýskum bókmenntum á síðari tímum“. Segist hann hafa tárast við lesturinn en þessi rúmlega áttræði gagnrýnandi hefur hing- að til verið kunnur fyrir annað en tilfinningasemi. Í fyrstu vikunni eftir útkomu bókarinnar seldist hún í 400.000 eintökum. Þögnin rofin um þjáningar Þjóð- verja í stríðinu Nýjustu bók þýska nóbels- verðlaunahöf- undarins Günters Grass vel tekið Berlín. AFP. Þýski rithöfundurinn Günter Grass er hann var gestur á Alþjóðlegri bókmenntahátíð í Reykjavík í september 2000. Morgunblaðið/Jim Smart Geisladiskahulstur aðeins 500 kr. NETVERSLUN Á mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.