Morgunblaðið - 19.02.2002, Blaðsíða 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2002 17
HAGNAÐUR Búnaðarbanka Ís-
lands hf. var 1.062 milljónir króna
á síðasta ári, en var 202 milljónir
króna árið áður. Fyrir skatta var
hagnaðurinn 1.001 milljón króna,
en 215 milljónir króna ári fyrr.
Vaxtamunur bankans, sem er
hlutfall hreinna vaxtatekna af
meðalstöðu heildarfjármagns,
hækkaði úr 3,23% í 3,48%. Í frétta-
tilkynningu frá bankanum segir að
þetta megi alfarið skýra með
auknum vaxtatekjum vegna verð-
bólguskots á árinu, en bankinn á
verðtryggðar eignir umfram verð-
tryggðar skuldir.
Undir liðinn aðrar rekstrar-
tekjur í meðfylgjandi töflu fellur
gengishagnaður og gengistap af
fjármálastarfsemi. Gengistap
bankans af veltuskuldabréfum
lækkaði úr 437 milljónum króna
árið 2000 í 2 milljónir króna í
fyrra. Gengistap af veltuhlutabréf-
um lækkaði um svipaða fjárhæð,
fór úr 977 milljónum króna í 549
milljónir króna. Árið 2000 var
gengishagnaður af gjaldeyrisvið-
skiptum að fjárhæð 295 milljónir
króna, en í fyrra var 115 milljóna
króna gengistap af þessum við-
skiptum. Samanlagt minnkaði
gengistap bankans um 452 millj-
ónir króna, fór úr 1.119 milljónum
króna í 667 milljónir króna.
Önnur rekstrargjöld hækka um
22% á milli ára og nema 5.522
milljónum króna í fyrra og er um
helmingur aukningarinnar vegna
launa og launatengdra gjalda.
Dótturfélög sem komu inn í rekst-
urinn á síðasta ári skýra 450 millj-
ónir króna af aukningunni milli
ára og sé tekið tillit til þeirra er
aukningin 12%.
Kostnaðarhlutfall Búnaðarbank-
ans, reiknað sem hlutfallið milli
annarra rekstrargjalda og hreinna
rekstrartekna, lækkaði úr 84,2% í
70,8% á milli ára. Sem hlutfall af
meðalstöðu efnahagsreiknings
lækkuðu rekstrargjöldin einnig,
voru 3,45% árið 2000 en 3,20% í
fyrra.
Lagðar voru 1.276 milljónir
króna á afskriftareikning, sem er
0,82% af útlánum í árslok. Bókuð
endanlega töpuð útlán á árinu voru
349 milljónir króna, en bankinn á
3.420 milljónir króna í sjóði til að
mæta mögulegum útlánatöpum.
Þetta svarar til 1,98% af útlánum
og veittum ábyrgðum.
Mikill vöxtur
Búnaðarbankinn hefur vaxið
mikið á árinu, bæði vegna innri
vaxtar og ytri vaxtar með samein-
ingu við eignaleigufélagið Lýsingu
og fjárfestingarfélagið Gildingu.
Samruni Búnaðarbankans og Gild-
ingar ehf. var samþykktur á hlut-
hafafundum beggja félaga sem
haldnir voru síðastliðinn laugar-
dag. Gilding verður algerlega sam-
einuð Búnaðarbankanum með yf-
irtöku eigna og skulda.
Efnahagsreikningur samstæðu
Búnaðarbankans stækkaði um 55
milljarða króna, eða 38%, á árinu
og er nú 200 milljarðar króna.
Útlán bankans jukust um 46
milljarða króna og námu 156 millj-
örðum króna í árslok. Stærstan
hluta aukningarinnar má rekja
annars vegar til sameiningar Bún-
aðarbanka og Lýsingar og hins
vegar til gengisfalls krónunnar,
beint eða óbeint vegna aukinnar
verðbólgu í kjölfarið, að því er
fram kemur í frétt frá bankanum.
Hlutafé hefur aukist með sam-
einingunni við Lýsingu og Gild-
ingu og er nú rúmir 5,4 milljarðar
króna. Þessi stækkun bankans hef-
ur orðið til þess að Búnaðarbank-
inn er nú annar stærsti banki
landsins að markaðsverði, en mið-
að við lokagengi á Verðbréfaþingi í
gær var markaðsverð Íslands-
banka 44,3 milljarðar króna, Bún-
aðarbankans 25,7 milljarðar króna
og Landsbankans 23,3 milljarðar
króna.
„Við erum þokkalega ánægðir
með afkomuna, sérstaklega miðað
við hvernig þróunin var fram eftir
ári,“ segir Árni Tómasson, banka-
stjóri Búnaðarbankans. „Við náum
að skila raunarðsemi upp á rúm
11% og finnst það ásættanlegt, en
hugur okkar stefnir til að gera
betur á þessu ári,“ bætir hann við.
Samkvæmt áætlunum bankans er
ætlunin að hagnaðurinn verði rúm-
ir þrír milljarðar króna fyrir
skatta og arðsemin liggi á bilinu
15%–20%, en áhersla er lögð á að
þessi áætlun sé afar háð sveiflum á
verðbréfamörkuðum.
Spurður um vöxt bankans og
aukið markaðsvirði segist Árni
telja að aðstæður fyrir bankann á
markaði séu gjörbreyttar og bank-
inn hafi svigrúm og efnahagslegan
styrk til frekari vaxtar og stefnt sé
að hóflegum vexti. „Við höfum náð
að eflast mjög verulega á skömm-
um tíma og það stefnir í mjög góða
afkomu hjá okkur á þessu ári. Auk
þess erum við með möguleika til
að grípa áhugaverð tækifæri sem
eru að skapast á markaðnum,“
segir Árni.
Gert ráð fyrir 400 milljóna króna
hagnaði Lýsingar á árinu
Eignaleigufyrirtækið Lýsing hf.
er dótturfélag Búnaðarbankans,
en þar til seint á síðasta ári átti
bankinn 40% í forvera félagsins,
sem hét sama nafni og hafði með
höndum sömu starfsemi. Þeir sem
seldu Búnaðarbankanum félagið
voru Landsbanki Íslands hf., sem
átti 40%, Sjóvá-Almennar trygg-
ingar hf., sem áttu 10%, og Vá-
tryggingafélag Íslands hf., sem
átti 10%.
Lýsing skilaði ársuppgjöri sínu í
gær, en þar sem félagið var stofn-
að 1. október 2001 eiga afkomutöl-
urnar aðeins við um þrjá síðustu
mánuði ársins. Hagnaður Lýsingar
þessa þrjá mánuði nam 50 millj-
ónum króna, en fyrir skatta var
hagnaður félagsins 67 milljónir
króna.
Heildareignir Lýsingar voru
tæpir 20 milljarðar króna um síð-
ustu áramót og eiginfjárhlutfall
samkvæmt CAD-reglum var
12,25%, en það má lægst vera 8%.
Áætlanir gera ráð fyrir að hagn-
aður Lýsingar á þessu ári verði
400 milljónir króna fyrir skatta.
Hagnaður Búnaðarbank-
ans 1.062 milljónir króna
Markaðsvirði
bankans orðið
hærra en mark-
aðsvirði Lands-
bankans
&
'
(.
(.
#$
/
0
1
&
&
' %
234%
234%0$
' ! 5678
& 0
$
'(-%'
+--%#
+*($
##''
+',%
%+
"%$
+*%%'-
+'&#&
$(%&
---*
+(.#/
+'.(/
,&#
* *+
%
* %
*+
#
* *
*+
*
! "
! "
! "
$++' $++'
BÍLANAUST hf. hefur keypt bif-
reiðavarahlutadeild Bræðranna
Ormsson ehf. og tekið við umboði
þýska vörumerkisins BOSCH á Ís-
landi, sem Bræðurnir Ormsson
höfðu haft í átta áratugi. Sérstök
BOSCH-deild hefur verið stofnuð
innan Bílanausts með fimm starfs-
mönnum. Fjórir þeirra störfuðu
áður hjá Bræðrunum Ormsson og
búa yfir mikilli reynslu og þekk-
ingu á BOSCH-vörum.
Þá hefur Bílanaust tekið við
FÖRCH-umboðinu, sem þekktast
er á Íslandi fyrir efnavöru, og
danska merkinu TRIDON, sem
framleiðir varahluti í bifreiðar, að
því er fram kemur í fréttatilkynn-
ingu.
Bræðurnir Ormsson hafa ákveð-
ið að hætta sölu varahluta í bif-
reiðar og þjónustu sem tengist bíl-
um og skipum. Aðaláhersla
fyrirtækisins í véla- og vara-
hlutadeild verður í framtíðinni á
tæki, snjósleða og hjólbarða.
Bílanaust
tekur við
BOSCH-
umboðinu
EKKERT verður af samruna sjávar-
útvegsrisanna Fishery Products Int-
ernational (FPI) á Nýfundnalandi og
Clearwater Fine Foods í Nova Scotia.
Clearwater ákvað að draga sig út úr
samrunaviðræðum eftir að stjórnvöld
í Nýfundnalandi hófu afskipti að
starfsemi FPI vegna fyrirhugaðra
uppsagna 580 starfsmanna.
Fyrir nærri einu ári gerði John
Risley, forstjóri Clearwater, hallar-
byltingu í FPI, m.a. með stuðningi
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna
sem nú á um 15% hlutfjár í FPI, og
skipaði nýja stjórn og varð sjálfur for-
maður stjórnar. Í kjölfarið, eða í sept-
ember sl., var tilkynnt um samruna-
ráætlun fyrirtækjanna tveggja.
Ennfremur var ítrekað haft eftir Ris-
ley að engum starfsmanni FPI yrði
sagt upp störfum vegna þessa. Þegar
FPI tilkynnti hinsvegar í síðasta
mánuði um uppsagnir um 580 manns,
eða um helmings starfsmanna í þrem-
ur verksmiðjum á Nýfundnalandi,
mætti það hörðum viðbrögðum
stjórnvalda og verkalýðsfélaga á
svæðinu. Stjórnendur FPI sögðu
nauðsynlegt að grípa til þessara að-
gerða til að nútímavæða í starfsem-
inni og hagræða í rekstri. Stjórnvöld
hótuðu engu að síður að setja lög sem
hefðu gert fyrirhugaðan samruna
nánast ómögulegan. FPI starfar eftir
sérstökum lögum sem banna að ein-
stakir hluthafar geti átt meira en 15%
atkvæðisbæran hlut í félaginu en
stjórnvöld hugðust takmarka eignar-
hlut við 15%, gefa stjórvöldum heim-
ild til að koma í veg fyrir uppsagnir og
tryggja stjórnvöldum sæti í stjórn fé-
lagsins. Fyrirhugaður samruni hefði
tryggt Risley 60% hlut í FPI en þó
ekki yfir 15% atkvæðisbæran hlut.
Í tilkynningu frá FPI segir að fé-
laginu hafi borið skylda til að verja sig
gegn hótunum um slíkar lagabreyt-
ingar. Frá því að stjórnvöld hófu af-
skipti af málinu í janúar hafa hluta-
bréf í FPI lækkað í verði um 25% í
kauphöllinni í Toronto. John Risley
hefur látið af stjórnarformennsku í
FPI en situr áfram í stjórn. Haft er
eftir Derrick Rowe, forstjóra FPI, að
hið pólítíska moldviðri sem varð eftir
að tilkynnt var um uppsagnirnar, hafi
ekki verið rétta umhverfið fyrir sam-
runann.
Ekkert
verður af
samruna
FPI og
Clearwater