Morgunblaðið - 19.02.2002, Síða 31

Morgunblaðið - 19.02.2002, Síða 31
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2002 31 ÉG er með haus- verk. Ég er með haus- verk af þeim flaumi af áreitum sem fylgja nútímamarkaðssam- félagi. Samfélagi þar sem tilveran er upp- full af skilaboðum frá fyrirtækjum og aðil- um sem vilja þjónusta okkur og hagnast á þörfum okkar og löngunum. Skyndilega eru grunnþarfir mannsins orðnar fjöl- margar. Okkur eru á borð bornar grímu- klæddar langanir sem orðnar eru að þörfum. Við „þurfum“ urmul af alls kyns dauðum hlutum til þess að koma okkur í gegnum daginn. Markað- urinn telur okkur trú um að við komumst ekki af án allskyns „óþarfa“. En hverjar eru grunn- þarfirnar? Það er ekki svo margt sem mað- urinn þarf. Aðlögunarhæfni okkar er hreint með ólíkindum. Maður- inn þarf að borða, sofa, eiga þak yfir höfuðið og búa við heilbrigt tilfinninga- og félagslegt samneyti við annað fólk. Stundum er eins og við gleymum grunnþörfunum og glötum í framhaldinu jafnvæginu sem er undirstaða sköpunar okkar og framleiðni. Mannauðurinn sem býr í hverjum manni á í kjölfarið erfitt með að brjótast undan klafa þeirrar gegndarlausu einstaklings- hyggju sem markaðsþjóðfélagið hefur alið á. Nú fýkur ágirndaél dauðasyndanna yfir dyggðirnar, og birtingarformið, jú ásókn í ímynd- uð gæði, ímyndaða hamingju. En ekki er svo að skilja að heim- urinn eins og við þekkjum hann sé alslæmur. Nei alls ekki, en það er þörf á nýjum viðmiðum og í kjöl- farið nýjum gildum til að lifa útfrá. Hafna stöðugri gróða- og mark- aðshyggju. Trúa því að hamingjan sé viðhorf. Setja manngildi og „social kapital“ hverrar þjóðar í öndvegi. Vinna markvisst að hags- munum okkar sem manneskja, ekki að einblína á efnisheiminn, heldur okkar eigin anda(geð) og hvernig hann er best ræktaður. Láta af dýrkun dauðra hluta, nálg- ast og sinna grunnþörfum. Hverfa frá firringu tilbúinna þarfa og leita inná við. Okkar fjölskyldur skulu vera þær fyrstar að rækta lifandi hluti, án þeirra væru engir dauðir hlutir til, sem um þessar mundir virðast veita oss svo mikla fró. Helgina 7.–9. febrúar sl. létust þrír Íslendingar fyrir eigin hendi, einn var lífgaður við á síðustu stundu og samkvæmt mínum heimildum var fjöldi sjálfsvígs- tilrauna óvenju hár þessa helgi. Þegar ég heyrði þessar tölur brá mér. Þetta jafnast á við það að 3.000 manns tækju líf sitt á þrem- ur dögum í Bandaríkjunum, eða svipað mannfall og í árásunum á WTC 11. september sl. Hvað er að þegar ekkert er að en samt er ekki allt í lagi? Hvar bresta tilvistar- þræðir okkar svo að þrjú okkar skulu kveðja heiminn á þremur dögum og önnur vera alltof nálægt því. Það er sárt að vera til, það þekkja flestir en líka oft svo ljúft. Friedrich Nietzsche sagði að þján- ing, eymd, andstreymi og sjúk- dómar væru af hinu góða í lífinu því án þessara þátta þroskuðumst við lítt. Galdurinn væri sá að nýta sér andstreymið, synda á móti því og umfram allt læra af því og túlka það á jákvæðan hátt. En af hverju brest- ur okkur kjark til að lifa, ekki að lifa af, heldur að lifa? Ekki ætla ég að leitast við að svara því, en það er alveg ljóst að enn um sinn verður að brýna umræðu um andlega líðan þessar- ar þjóðar og ydda, nú ákafar en nokkru sinni, niður á dyggðir hennar. Ástæðan er sú að of mörg okkar ráðum ekki við þær kröfur og væntingar sem nútíma- samfélag gerir. Mörg okkar eru næm, búa yfir eiginleikum eins og þunglyndi og andlegu ójafnvægi, búa við slælegan fjárhag, eru ginn- keypt fyrir tilbúnum þörfum, fá útrás hvata og streitu á annarleg- an og óhollan hátt. Við getum ekki hlaupið lengur, við getum ekki lif- að af lengur, bara lifað. Enda er það málið, að lifa, ekki að festast í því helsi að lifa af. Því skulum við í einfaldleik lofa lífið, njóta dauðu hlutana en rækta andann og mátt- inn í núinu. Ég skora á stjórnvöld að marka sér skýrari stefnu í forvörnum gegn sjálfsvígum og eflingu (geð) heilbrigðis og hrinda henni í fram- kvæmd. Þar spila margir þættir inn í, sem þarf alla að skoða í heil- brigðisáætlun, heilbrigðisáætlun þjóðarinnar, ekki bara ríkisstjórn- arinnar. Áætlun um heila brá þjóð- ar, heila ásjónu. Ég vil votta öllum aðstandend- um og ástvinum þeirra sem tekið hafa líf sitt samúð mína. Tilbrigði við heilbrigði Héðinn Unnsteinsson Geðheilsa Ég skora á yfirvöld, seg- ir Héðinn Unnsteinsson, að marka sér skýrari stefnu í forvörnum. Höfundur er framkvæmdastjóri Geðræktar. Dreifmenntun fyrir alla - alls staðar Ráðstefna um upplýsingatækni í skólastarfi Menntaskólanum við Hamrahlíð 1. og 2. mars. Ráðstefnan hefst kl.13.00 á föstudeginum. Skráning og upplýs ingar · www.menntagatt. is/ut2002 Menntamálaráðherra setur ráðstefnuna Upplýsingatækni á öllum skólastigum Áhersla á námsefni á netinu Yfir 100 íslenskir og erlendir fyrirlesarar Nemendur að störfum Pallborðsumræður Sýning á hug- og tæknibúnaði Veitingasala Lokahóf N O N N I O G M A N N I Y D D A / SÍ A C vítamín 500 mg Eflir varnir. Allt vítamínið í töflunni nýtist þér. C vítamín forði í 12 klst. Nýtt frá Biomega Fæst í apótekum w w w .t e xt il. is Á horni Skólavörðustígs og Klapparstígs, sími 551 4050 Útsalan stendur yfir Lyklakippur Litir: Gyllt, silfrað aðeins 350 kr. NETVERSLUN Á mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.