Morgunblaðið - 19.02.2002, Side 31
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2002 31
ÉG er með haus-
verk. Ég er með haus-
verk af þeim flaumi af
áreitum sem fylgja
nútímamarkaðssam-
félagi. Samfélagi þar
sem tilveran er upp-
full af skilaboðum frá
fyrirtækjum og aðil-
um sem vilja þjónusta
okkur og hagnast á
þörfum okkar og
löngunum. Skyndilega
eru grunnþarfir
mannsins orðnar fjöl-
margar. Okkur eru á
borð bornar grímu-
klæddar langanir sem
orðnar eru að þörfum.
Við „þurfum“ urmul af alls kyns
dauðum hlutum til þess að koma
okkur í gegnum daginn. Markað-
urinn telur okkur trú um að við
komumst ekki af án allskyns
„óþarfa“. En hverjar eru grunn-
þarfirnar?
Það er ekki svo margt sem mað-
urinn þarf. Aðlögunarhæfni okkar
er hreint með ólíkindum. Maður-
inn þarf að borða, sofa, eiga þak
yfir höfuðið og búa við heilbrigt
tilfinninga- og félagslegt samneyti
við annað fólk. Stundum er eins og
við gleymum grunnþörfunum og
glötum í framhaldinu jafnvæginu
sem er undirstaða sköpunar okkar
og framleiðni. Mannauðurinn sem
býr í hverjum manni á í kjölfarið
erfitt með að brjótast undan klafa
þeirrar gegndarlausu einstaklings-
hyggju sem markaðsþjóðfélagið
hefur alið á. Nú fýkur ágirndaél
dauðasyndanna yfir dyggðirnar, og
birtingarformið, jú ásókn í ímynd-
uð gæði, ímyndaða hamingju.
En ekki er svo að skilja að heim-
urinn eins og við þekkjum hann sé
alslæmur. Nei alls ekki, en það er
þörf á nýjum viðmiðum og í kjöl-
farið nýjum gildum til að lifa útfrá.
Hafna stöðugri gróða- og mark-
aðshyggju. Trúa því að hamingjan
sé viðhorf. Setja manngildi og
„social kapital“ hverrar þjóðar í
öndvegi. Vinna markvisst að hags-
munum okkar sem manneskja,
ekki að einblína á efnisheiminn,
heldur okkar eigin anda(geð) og
hvernig hann er best ræktaður.
Láta af dýrkun dauðra hluta, nálg-
ast og sinna grunnþörfum. Hverfa
frá firringu tilbúinna þarfa og leita
inná við. Okkar fjölskyldur skulu
vera þær fyrstar að rækta lifandi
hluti, án þeirra væru engir dauðir
hlutir til, sem um þessar mundir
virðast veita oss svo mikla fró.
Helgina 7.–9. febrúar sl. létust
þrír Íslendingar fyrir eigin hendi,
einn var lífgaður við á síðustu
stundu og samkvæmt mínum
heimildum var fjöldi sjálfsvígs-
tilrauna óvenju hár þessa helgi.
Þegar ég heyrði þessar tölur brá
mér. Þetta jafnast á við það að
3.000 manns tækju líf sitt á þrem-
ur dögum í Bandaríkjunum, eða
svipað mannfall og í árásunum á
WTC 11. september sl. Hvað er að
þegar ekkert er að en samt er ekki
allt í lagi? Hvar bresta tilvistar-
þræðir okkar svo að þrjú okkar
skulu kveðja heiminn á þremur
dögum og önnur vera alltof nálægt
því. Það er sárt að vera til, það
þekkja flestir en líka oft svo ljúft.
Friedrich Nietzsche sagði að þján-
ing, eymd, andstreymi og sjúk-
dómar væru af hinu góða í lífinu
því án þessara þátta þroskuðumst
við lítt. Galdurinn væri sá að nýta
sér andstreymið, synda á móti því
og umfram allt læra
af því og túlka það á
jákvæðan hátt.
En af hverju brest-
ur okkur kjark til að
lifa, ekki að lifa af,
heldur að lifa? Ekki
ætla ég að leitast við
að svara því, en það
er alveg ljóst að enn
um sinn verður að
brýna umræðu um
andlega líðan þessar-
ar þjóðar og ydda, nú
ákafar en nokkru
sinni, niður á dyggðir
hennar. Ástæðan er
sú að of mörg okkar
ráðum ekki við þær
kröfur og væntingar sem nútíma-
samfélag gerir. Mörg okkar eru
næm, búa yfir eiginleikum eins og
þunglyndi og andlegu ójafnvægi,
búa við slælegan fjárhag, eru ginn-
keypt fyrir tilbúnum þörfum, fá
útrás hvata og streitu á annarleg-
an og óhollan hátt. Við getum ekki
hlaupið lengur, við getum ekki lif-
að af lengur, bara lifað. Enda er
það málið, að lifa, ekki að festast í
því helsi að lifa af. Því skulum við í
einfaldleik lofa lífið, njóta dauðu
hlutana en rækta andann og mátt-
inn í núinu.
Ég skora á stjórnvöld að marka
sér skýrari stefnu í forvörnum
gegn sjálfsvígum og eflingu (geð)
heilbrigðis og hrinda henni í fram-
kvæmd. Þar spila margir þættir
inn í, sem þarf alla að skoða í heil-
brigðisáætlun, heilbrigðisáætlun
þjóðarinnar, ekki bara ríkisstjórn-
arinnar. Áætlun um heila brá þjóð-
ar, heila ásjónu.
Ég vil votta öllum aðstandend-
um og ástvinum þeirra sem tekið
hafa líf sitt samúð mína.
Tilbrigði við
heilbrigði
Héðinn
Unnsteinsson
Geðheilsa
Ég skora á yfirvöld, seg-
ir Héðinn Unnsteinsson,
að marka sér skýrari
stefnu í forvörnum.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Geðræktar.
Dreifmenntun
fyrir alla
- alls staðar
Ráðstefna um upplýsingatækni í skólastarfi
Menntaskólanum við Hamrahlíð 1. og 2. mars.
Ráðstefnan hefst kl.13.00 á föstudeginum.
Skráning og upplýs ingar · www.menntagatt. is/ut2002
Menntamálaráðherra setur ráðstefnuna
Upplýsingatækni á öllum skólastigum
Áhersla á námsefni á netinu
Yfir 100 íslenskir og erlendir fyrirlesarar
Nemendur að störfum
Pallborðsumræður
Sýning á hug- og tæknibúnaði
Veitingasala
Lokahóf
N
O
N
N
I O
G
M
A
N
N
I
Y
D
D
A
/
SÍ
A
C vítamín 500 mg
Eflir varnir.
Allt vítamínið í töflunni
nýtist þér. C vítamín forði í 12 klst.
Nýtt frá Biomega
Fæst í apótekum
w
w
w
.t
e
xt
il.
is
Á horni Skólavörðustígs og
Klapparstígs, sími 551 4050
Útsalan
stendur yfir
Lyklakippur
Litir: Gyllt, silfrað
aðeins 350 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is