Morgunblaðið - 19.02.2002, Qupperneq 25
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2002 25
Vorlínan
Nýbýlavegi 12, Kópavogi,
sími 554 4433.
streymir inn
NOKKRAR umræð-
ur hafa orðið í fjöl-
miðlum að undanförnu
um skólamál í kjölfar
birtingar skýrslu Hag-
fræðistofnunar HÍ, en
hún er unnin að beiðni
Verslunarmannafélags
Reykjavíkur. Skýrslan
heitir „Stytting
grunn- og framhalds-
skóla: Áhrif á einstak-
linga, sveitarfélög,
ríkissjóð og þjóðar-
framleiðslu“. Dr.
Sveinn Agnarsson,
sérfræðingur á Hag-
fræðistofnun, hafði
umsjón með verkinu.
Sumir „aðilar vinnumarkaðarins“
hafa greint frá efni skýrslunnar, en
auðvitað er best að lesa hana sjálfa.
Hún er tiltæk á heimasíðu VR
(www.vr.is). Í formála skýrslunnar
kemur fram, að viðfangsefnið sé
viðamikið og því sé í henni einkum
litið til þeirra hagrænu áhrifa, sem
áætlað er að breytingar á skipulagi
skóla hefðu í för með sér. Minni
tíma sé hins vegar varið í að fjalla
um ýmis önnur atriði, sem þyrfti að
kanna frekar, áður en í slíkar
breytingar yrði ráðist. – Skýrsla
þessi er um margt athyglisverð og
fróðleg. Hér verður hugað að
nokkrum atriðum í henni og mál-
efnum skóla, einkum á framhalds-
skólastigi.
Þessi mál eru þjóðinni einkar
mikilvæg, og þau geta skipt sköp-
um um farsæld hennar. Að þessu
er vikið í skýrslunni, en þar segir:
„Góð almenn menntun eykur fram-
leiðni og þar með hagvöxt. Ónóg
menntun kemur aftur á móti í veg
fyrir að þjóðfélög geti tileinkað sér
nýjustu tækni og vísindi og því er
hætta á að þau dragist aftur úr
öðrum þjóðum. Þess vegna ber rík-
isvaldinu að styðja skólahald og
rannsóknir á hinum ýmsu stigum
með beinum og óbeinum hætti.“
(bls. 10) – Þetta eru skynsamleg
orð, og þetta þurfa menn jafnan að
hafa í huga.
Í skýrslunni er sérstaklega hug-
að að þremur hugsanlegum breyt-
ingum á skipulagi skóla: 1) Færa
grunnskóla niður um eitt ár. 2)
Lengja hvert skólaár í grunnskóla
þannig að hægt sé að stytta heild-
arnámstímann um eitt ár. 3)
Lengja hvert skólaár í framhalds-
skóla þannig að hægt sé að stytta
heildarnámstímann um eitt ár.
Nemendur lykju þá prófi 19 ára.
Því fylgja ýmsir kostir, að nem-
endur gætu fyrr lokið
námi í framhaldskóla.
Að þessu er vikið víða
í skýrslunni og meg-
inniðurstöður hennar
eru þær að stytting
skóla sé mjög ábata-
söm og geti skilað
þjóðarbúinu auknum
verðmætum í framtíð-
inni og einstaklingum
hærri tekjum (bls. 87).
En þar er líka bent á
galla og hverju yrði
hér fórnað. – Í skýrsl-
unni er vikið að at-
hyglisverðum þætti,
þ.e. þeim áhrifum sem
lengra skólaár kunni
að hafa á ferðaþjónustu, sérstak-
lega úti á landi: „Skólar eru víða
nýttir sem hótel á sumrin og fjöl-
margir framhaldsskólanemendur
vinna við ferðamennsku í sumarfríi
sínu. Lengra skólaár mun því ef-
laust sums staðar koma hart niður
á ferðaþjónustu, þar sem ekki
verður hægt að nýta skólana sem
hótel meðan á kennslu stendur, auk
þess sem menntað vinnuafl gæti
skort þann tíma sem skólarnir
starfa.“ (bls. 19) – Bent er á, að
áhrif á ferðaþjónustu þurfi að
kanna gaumgæfilega áður en ráðist
yrði í breytingar á skipulagi fram-
haldsskóla (bls. 81). – Undir þetta
skal tekið, því að ferðaþjónustan er
mikilvæg og vaxandi atvinnugrein.
Hugmyndir um styttingu fram-
haldsskóla um ár hafa áður komið
fram, og hefur þá einkum verið
hugað því að stytta nám í skólum,
sem bjóða upp á stúdentspróf, um
eitt ár. Í skýrsunni er bent á mik-
ilvægt atriði í þessu viðfangi, þ.e.
„að hættulegt gæti reynst að stytta
eingöngu nám í stúdentsprófsskól-
um, án þess að gera einhverjar
breytingar á verknámsbrautum
skólanna, vegna þess að ásókn í
fyrrnefndu skólana gæti þá aukist
meira en heppilegt væri en áhugi á
síðarnefndu skólunum dofnað full
mikið.“ Óvíst sé hversu auðvelt
væri að laga allt nám á framhalds-
skólastigi að þessum þriggja ára
ramma (bls. 74-75). – Þetta er at-
hyglisverð ábending. Sígilt verk-
nám er gildur þáttur í menntun ís-
lenskra ungmenna, og æskilegt er
að glæða áhuga æskunnar á því
námi.
Í skýrslunni er bent á, að styttra
nám í framhaldsskóla gæti vafalítið
aukið líkurnar á, að nemendur
lykju námi. Á móti komi, að styttra
sumarfrí og lægri sumarhýra gæti
dregið úr getu sumra nemenda til
að leggja stund á nám á framhalds-
skólastigi. Skýrsluhöfundur bendir
og á, að áhrifin geti einnig orðið
töluverð á sumar atvinnugreinar
sem treysta að verulegu leyti á
námsmenn sem sumarvinnuafl.
Gert er ráð fyrir, að slíkur sam-
dráttur á vinnuframboði á sumrin
komi misþungt niður á atvinnu-
greinum og að hann muni hafa
meiri áhrif utan höfuðborgarsvæð-
isins (bls. 75, 77 og 86). Margt
fleira er hér reifað, sem vert er
umhugsunar í þessu sambandi, og
er best að lesa skýrsluna sjálfa.
Ein athugasemd skal hér gerð,
og það er við töflu um starfstíma
framhaldsskóla 1999-2000 (bls.
100). Heimildin er opinber stofnun.
Þegar þar eru taldir upp vinnudag-
ar kennara í heild, eru ekki taldir
með þeir dagar sem fara um helgar
og í svonefndum fríum í yfirferð
verkefna. Kannski er það ekki talin
vinna að fara t.d. yfir ritgerðir og
leiðbeina nemendum um mál og
stíl.
Að lokum skal hér minnst á
tvennt. Fyrst vil ég benda á þann
þroska og þá samfélagslegu þekk-
ingu, sem sumarvinna nemenda
veitir. T.d. vann ég á sumrin afar
fjölbreytileg störf á ýmsum svið-
um, og þetta hefur margoft komið
að góðum notum. – Þá skal hér
nefnt það, sem ég tel einna brýnast
í skólamálum. Það er að finna sann-
gjarna leið til þess að koma í veg
fyrir verkföll og vinnudeilur í skól-
um. Áhrif þeirra á allt starf þar eru
afar skaðleg, alveg frá því að verk-
fall er boðað, og áhrifin vara lengi
eftir að verkfalli lýkur. Mönnum
virðist ljóst, að verkföll sjómanna
valda miklu tjóni. En verkföll í
skólum eru ekki síður skaðleg þjóð
okkar. Í því efni þarf að huga að
framtíðarhagsmunum hennar.
Um skólamál og skýrslu
Hagfræðistofnunar
Ólafur
Oddsson
Nám
Sígilt verknám er
gildur þáttur í menntun
íslenskra ungmenna,
segir Ólafur Oddsson,
og æskilegt er að
glæða áhuga æskunnar
á því námi.
Höfundur er kennari.
BIODROGA
Bankastræti 3, sími 551 3635.Snyrtist. Lilju, Stillholti 16, Akranesi.
Hjá Laufeyju, Hjarðarlundi 1, Akureyri.
Jurta - snyrtivörur
Nýr farði
Silkimjúk,
semi-mött áferð.
4 litir.
Póstkröfusendum
C vítamín 400 mg
með sólberjabragði
Bragðgóðar tuggutöflur.
Eflir varnir.
Nýtt frá Biomega
Fæst í apótekum
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Oxygen face