Morgunblaðið - 19.02.2002, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 19.02.2002, Qupperneq 44
DAGBÓK 44 ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Trinket, Skógafoss, Hermann Sibum og Haukur koma í dag. Arnarborg og Eldborg fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Luhai kom til Straums- víkur í gær. Radvila kom í gær. Selfoss kemur til Straumsvíkur í dag. Fréttir Kattholt. Flóamark- aður í Kattholti, Stang- arhyl 2, opinn þriðju- og fimmtudaga kl. 14– 17. Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Hamraborg 20a. Fataúthlutun í dag kl. 17–18. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 vinnustofa, leirkera- smíði, kl 10 boccia, kl. 10 enska, kl. 11 enska og dans, lance, kl. 13 vinnusofa, postulíns- málning og bað. Bún- aðarbankinn kl. 10. 15. Farið verður í leikhús hjá Snúði og Snældu í Ásgarði að sjá „Í lífsins ólgusjó“. og „Fugl í búri“ miðvikudaginn 20 feb. kl. 14. Rútuferð kl. 13.15 frá Aflagranda. Miðapantanir í síma 562-2571. Árskógar 4. Kl. 9 bók- band og öskjugerð, kl. 13 opin smíðastofa. All- ar upplýsingar í síma 535 2700. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8 hárgreiðsla, kl. 8.30 böðun, kl. 9–9.45 leik- fimi, kl. 9–12 tréskurð- ur, kl. 9–16 handavinna, kl. 10–17 fótaaðgerð, kl. 10 sund, kl. 13 leirlist, kl. 14. dans. Eldri borgarar Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið á Hlaðhömrum er á þriðju- og fimmtudög- um kl. 13–16.30, spil og föndur. Jóga á föstu- dögum kl. 11. Kóræf- ingar hjá Vorboðum, kór eldri borgara í Mosfellsbæ, á Hlað- hömrum á fimmtudög- um kl. 17–19. Pútt- kennsla í íþróttahúsinu kl. 11 á sunnudögum. Uppl. hjá Svanhildi í s. 586 8014 kl. 13–16. Uppl. um fót-, hand- og andlitssnyrtingu, hár- greiðslu og fótanudd, s. 566 8060 kl. 8–16. Félagsstarfið Dalbraut 18–20. Kl. 9–12 aðstoð við böðun, kl. 9–16.45 hárgreiðslustofan opin, kl. 10 samverustund, kl.14 félagsvist. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10 hársnyrting, kl. 13 föndur og handavinna, kl. 14.45 söngstund í borðsal með Jónu Bjarnadóttur. Félag eldri borgara í Kópavogi, sæludagar á Hótel Örk dagana 7. apríl til 12. apríl. Þátttökulistar eru í fé- lagsheimilunum Gjá- bakka og Gullsmára. Aðalfundur félagsins verður í Gullsmára 13, laugard. 9. mars. Venjuleg aðalfund- arstörf, lagabreytingar, kosning formanns og þriggja stjórnarmanna, aðrar kosningar, ákvörðun um fé- lagsgjald og önnur mál. Reikningar félagsins liggja frammi á skrif- stofunni. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Þriðjud: Skák kl. 13 og alkort spilað kl. 13.30. Leikfélagið Snúður og Snælda sýn- ir í Ásgarði í Glæsibæ söng- og gamanleikinn „Í lífsins ólgusjó“, minningar frá árum síldarævintýranna, og „Fugl í búri“, drama- tískan gamanleik. Sýn- ingar: Miðviku–föstu- daga kl. 14 og sunnud. kl. 16. Miðapantanir í s: 588-2111, 568-8092 og 551-2203. Ferð á vegum Fræðslunefndar FEB á Listasafn Íslands 20. feb. kl. 14. Mæting við Listasafnið. Aðalfundur Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni verður haldinn í Ás- garði sunnud. 24. feb. kl. 13.30. Árshátíð FEB verður haldin 1. mars í Versölum, Hallveig- arstíg 1, húsið opnað kl. 19 og borðhald hefst kl. 19.30. Miðapantanir á skrifstofu FEB. Sími: 588-2111. Námskeið í framsögn og upplestri er fyrirhugað í byrjun mars ef næg þátttaka fæst, leiðbeinandi Bjani Ingvarsson. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 vinnustofa, tréskurður, kl. 9–13 hárgreiðsla, kl. 10 leikfimi, kl. 12.40 Bónusferð, kl. 13.15 bókabíll. Opið alla sunnudaga frá kl. 14–16 blöðin og kaffi. Þorra- blótið verður 22. febr- úar, tilkynna þarf þátt- töku í síma 568-3132. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, m.a. gler- skurður, umsjón Helga Vilmundardóttir, frá hádegi spilamennska, kl. 13 boccia. Fimmtu- daginn 28. feb. leik- húsferð í Borgarleik- húsið, „Boðorðin níu“, skráning hafin. Uppl. um starfsemina á staðnum og í s. 575- 7720. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 og kl. 10 jóga, kl. 9.15 postulínsmálun, kl. 13–16 handa- vinnustofan opin, leið- beinandi á staðnum, kl. 19 gömlu dansarnir. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 böðun og leikfimi, kl. 9.45 bankaþjónusta, kl. 13.30 helgistund. Fóta- aðgerðir, handsnyrting. Vitatorg. Kl. 9 smíði og hárgreiðsla, kl. 9.30 glerskurður og morg- unstund, kl. 10 fótaað- gerðir og leikfimi, kl. 11 boccia, kl. 13 hand- mennt og körfugerð, kl. 14 félagsvist. Kirkju- ferð í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði miðvikud. 20. feb.Uppl. í síma 561-0300. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.05 og kl. 9.50 leik- fimi, kl. 9.30 glerskurð- ur, kl. 10 handavinna, kl. 14 þriðjudagsganga, kl. 15.30 spænska, kl. 16.20 og kl. 17.15 kín- versk leikfimi, kl. 19 brids. Hraunbær 105. Kl. 9 postulínsmálun, kl. 9 glerskurður og tré- málun, kl. 10 boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 12.15 verslunarferð í Bónus, kl. 13–17 hárgreiðsla. Háteigskirkja, eldri borgarar á morgun, miðvikudag, samvera, fyrirbænastund í kirkj- unni kl. 11, súpa í Setr- inu kl. 12, spil kl. 13. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 tréskurður og op- in vinnustofa, kl. 10 boccia, kl. 9–17 hár- greiðsla. Félagsstarfið er opið öllum aldurs- hópum, allir velkomnir. Vesturgata 7. Kl. 9 fótaaðgerðir og hár- greiðsla, kl.9.15–16 bútasaumur, kl. 9.15– 15.30 handavinna, kl. 11 leikfimi, kl. 13 spila- mennska. ÍAK, Íþróttafélag aldr- aðra í Kópavogi. Leik- fimi kl. 11.15 í Digra- neskirkju. Bridsdeild FEBK, Gjá- bakka. Brids í kvöld kl. 19. Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra, leik- fimi kl. 11 í Bláa saln- um. Félag ábyrgra feðra. Fundur í Shell-húsinu, Skerjafirði, á mið- vikudögum kl. 20, svar- að í síma 552 6644 á fundartíma. ITC-deildin Fífa, Kópa- vogi, fundur á morgun kl. 20.15–22.15 í safn- aðarheimili Hjalla- kirkju. Allir velkomnir. Upplýsingar gefur Guð- björg í síma 586-2565. Kvenfélagið Seltjörn. Aðalfundurinn verður haldinn í safnaðarstofu Seltjarnarneskirkju í dag, 19. febrúar, kl. 20.30. Venjuleg aðal- fundarstörf. Spilað bingó. ITC Irpa heldur fund í kvöld kl. 20 í Hverafold 5. Á dagskrá er ræðu- keppni og kynning á starfsemi deildarinnar. Allir velkomnir. Uppl. í síma 699-5023. Kvenfélagið Hring- urinn, Hafnarfirði. Að- alfundurinn er í kvöld 19. febrúar kl. 20. í Hringshúsinu, Suð- urgötu 72, Venjuleg að- alfundarstörf. Kaffi og bingó. Hallgrímskirkja, eldri borgarar. Opið hús á morgun kl. 14. Dr. Sig- urjón Árni Eyjólfsson og Daníel Jón Jónasson leika á saxófón og org- el. Sr. Lárus Halldórs- son flytur hugvekju. Bílferð fyrir þá sem þess óska. Upplýsingar veitir Dagbjört, s. 510- 1034. Í dag er þriðjudagur 19. febrúar, 50. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Flý þú æskunnar girndir, en stunda réttlæti, trú, kærleika og frið við þá, sem ákalla Drottin af hreinu hjarta. (II.Tím. 2, 22.) LÁRÉTT: 1 þyrma, 4 hvetja, 7 varð- veitt, 8 kjaga, 9 traust, 11 bára, 13 elska, 14 gleður, 15 heiðra, 17 naut, 20 ránfugls, 22 málmblanda, 23 sigrað, 24 áana, 25 kaka. LÓÐRÉTT: 1 raska, 2 tákn, 3 tómt, 4 ódrukkinn, 5 ánægja, 6 hryggdýrin, 10 manns- nafn, 12 keyra, 13 blóm, 15 sallarigna, 16 fóta- þurrka, 18 fífl, 19 hljóð- færi, 20 greina, 21 sárt. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 ropvatnið, 8 tolls, 9 temja, 10 ket, 11 gifta, 13 aurar, 15 hægar, 18 illan, 21 auð, 22 sprek, 23 unnum, 24 bitakassi. Lóðrétt: 2 orlof, 3 vaska, 4 totta, 5 ilmur, 6 stag, 7 saur, 12 tía, 14 ull, 15 hæsi, 16 gerpi, 17 rakka, 18 iðuna, 19 lands, 20 nema. K r o s s g á t a 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Víkverji skrifar... UMRÆÐUR um hugsanlegabyggingu heilsuþorps á vegum einkaaðila í Hveragerði hafa orðið Víkverja dagsins nokkurt umhugsun- arefni. Í fréttum hefur komið fram að heilsuþorpið verði á undirlendi við Varmá og í hlíðum Reykjafjalls í Hrafnagilsmýri gegnt Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði og vestan við Ölfusborg- ir. Í tillögum er gert ráð fyrir að þorp- ið samanstandi af hótelum, sundlaug- um, böðum, líkamsræktarsölum, veitingastöðum, ráðstefnu- og fund- arstöðum og fjölbreyttri annarri starfsemi, sem varðar heilnæmt og margbreytilegt mannlíf. Hefur land- búnaðarráðherra samið við þann einkaaðila sem á hugmyndina að heilsuþorpinu um leigu á hluta lands ríkisjarðarinnar Reykja í Ölfusi vegna fyrirhugaðs heilsuþorps, en reyndar hefur síðar komið í ljós að hluti umrædds lands er þegar í út- leigu til Heilsustofnunar NLFÍ. Það sem orðið hefur Víkverja um- hugsunarefni er ekki sú undarlega staðreynd að landbúnaðarráðherra sé að leigja land sem ráðuneytið hef- ur þegar leigt öðrum, né heldur eru það hástemmdar yfirlýsingar ráð- herrans um þá starfsemi sem fyrir- huguð er í heilsuþorpinu. Það sem vekur fyrst og fremst umhugsun er sú staðreynd að rætt er um að verja milljörðum króna til að byggja upp starfsemi sem Víkverji fær ekki bet- ur séð en að þegar sé fyrir hendi í Hveragerði. Við fyrstu sýn er nefni- lega ekki að sjá að grundvallarmunur sé á hugmyndinni um heilsuþorpið og þeirri starfsemi sem Heilsustofnun NLFÍ hefur haft með höndum í Hveragerði í áratugi. Að mati Vík- verja væri því eðlilegra fyrir ríkið að styðja við bakið á frumkvöðlastarf- semi NLFÍ í Hveragerði í stað þess að skerða hana eins og jafnvel er útlit fyrir verði landspildan sem um ræðir leigð öðrum. Þá má heldur ekki gleyma því að stórt og glæsilegt hótel er þegar til staðar í Hveragerði og án þess að Víkverji hafi hugmynd um það efast hann um að nýtingin á því sé svo góð í dag að samkeppni við annan hótel- rekstur styrki stöðu þess og þeirra sem á hótelinu starfa. x x x HEILSUSTOFNUN NLFÍ tókformlega til starfa í júlí árið 1955 og síðan hefur starfsemin aukist hægt og sígandi og húsakostur stækkað. Á heimasíðu stofnunarinnar kemur fram að nú eru þar 9.000 fer- metrar undir þaki og rými fyrir 160 dvalargesti, en árlega koma um 2.500 manns til dvalar í Heilsustofnun og eru gistinætur um 50.000 talsins. Þá kemur fram á heimasíðunni að kjarninn í hugmyndafræði stofnunar- innar sé að efla heilbrigði, auka vellíð- an og styrkja einstaklinginn í að bera ábyrgð á eigin heilsu og velferð. Hlut- verk stofnunarinnar er tvíþætt, en hún er annars vegar almenn og sér- hæfð endurhæfingarstofnun og hins vegar veitir hún hvíldar- og hressing- ardvöl. Áhersla er lögð á markvissa hreyfingu, hollt mataræði, slökun og hvíld og þá eru fræðsla og fagleg ráð- gjöf stór þáttur í starfinu og er mest áhersla lögð á heilsuvernd og bætta lífshætti. Veit Víkverji ekki betur en að starfsemi NLFÍ í Hveragerði hafi sannað sig fyrir löngu og væntir hann þess að stjórnvöld styrki þá starfsemi í framtíðinni frekar en að leggja stein í götu hennar. ÞAÐ er alveg rétt hjá sölu- mönnum Landssímans, Síminn kemur betur út eftir allt klúðrið. Nú vita þeir hvernig á ekki að selja síma. Ameríkaninn hefði kallað þetta „learning the hard way“. Við sem horfum opinmynnt á eftir pening- unum okkar út um gluggann (þá á ég við lands- lýðinn) vonum auðvitað að þessir „bisnessmenn“ finni sér eitthvað annað við- fangsefni að ráðskast með en peningana okkar eða hlífi okkur við ráðsmennsku sinni. Ég hef ekki neinar áhyggjur af því að Þórarinn V. Þórarinsson fari fram á meira en honum ber, eins skeleggur og hann var að kveða niður óhófskröfur al- mennra launamanna sem töldu sig hafa séð leið til að komast upp úr hjólförunum í góðærinu marglofaða. Já, nú er allt komið á byrjunarreit og hægt að hefja leikinn að nýju, reynslunni ríkari, en nokk- ur hundruð milljón krónum fátækari. Einar Sv. Erlingsson Kópavogsbraut 11, 200 Kópavogi. Velsældarferðir SEM notandi breiðbands- ins hef ég þann kost að horfa á allar stöðvar, sem þar eru til boða, þ.á m. dönsku stöðvarnar. Þar sem ég starfaði nokkur ár í Danmörku er mér mjög kært að horfa á þær, enda frábærar. Þær eru með góðan fréttaflutning og góða dagskrá. Undanfarna daga hefur m.a. borið á góma mál bæjarstjórans í Farum, sem er staður með um 30 þús. íbúa. Fyrir nokkrum dögum lagði lög- reglan í skjóli myrkurs hald á allt bókhald bæjarins, tölvur sem og önnur bók- haldsgögn, þar sem grunur lék á um alls kyns misferli af hálfu bæjarstjórans. Bæjarstjórinn er farinn í óákveðið langt frí og er horfinn sjónum fólks. Nú ber svo við að í Morgun- blaðinu 14. þ.m. birtist grein eftir Sigurlín Svein- bjarnardóttur sem heitir „Eldri borgarar frítt til sól- arlanda“. Þar er fjallað um kóng, sem var svo örlátur að gefa öllum bæjarbúum 67 ára og eldri frítt til sólar- landa, svokallaðar Velsæld- arferðir, ár hvert að vetri til. Þessi svokallaði kóngur er bæjarstjórinn sjálfur, hinn horfni, frá Farum. Nú leitar Sigurlín eftir stuðn- ingi í eitt af efstu sætum Sjálfstæðisflokksins í Hafn- arfirði. Ekki efast ég um að hún mun fá gott brautar- gengi ef hún getur sýnt fram á að allir Hafnfirðing- ar, 67 ára og eldri, eigi þess kost að fá fría vetrarsól á hverjum vetri, á kostnað bæjarins. Ef Sjálfstæðis- flokkurinn í Hafnarfirði setur þetta sem kosninga- loforð er ég ekki í neinum vafa um, að hann mun halda velli næstu fjögur árin. En stóra spurningin er þessi: Er þetta raunveruleiki eða kosningablekking? Hverju svarar Magnús bæjarstjóri þessu? Virðingarfyllst, Svanur Jóhannsson Kleppsvegi 128, 104 Reykjavík. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Símasölumálið SIGRÚN Jónsdóttir sendi Velvakanda bréfkorn sem birtist föstudaginn 15. febrúar sl. og fjallaði um rauða kortið hjá Strætó. Ástæða þess að við höf- um verið frekar tregir að selja kort fram í tímann er sú að það hefur því miður viljað brenna við að þau hafi verið misnot- uð, þ.e. hafin notkun á þeim áður en þau taka gildi. Okkur er hins veg- ar umhugað um að mæta óskum viðskiptavina okkar og höfum því nú gefið út nýjar leiðbein- ingar til allra sölustaða okkar. Þar segir að græna (30 daga) og rauða (90 daga) kortið megi stimpla einn dag fram í tímann, sé þess óskað. Jafnframt er heimilt ef viðskiptavinur kemur t.d. á föstudegi og fram- vísar korti sem gildir fram á sunnudag og vill kaupa kort sem tekur gildi á mánudag að gera það, en viðskiptavini gert ljóst að verði kortinu framvísað í vagni áður en kemur að gildistíma megi hann búast við að vagnstjóri leggi hald á kortið og það verði síðan afhent þann dag sem það tekur gildi. Hvað varðar gula kortið (14 daga) er ekki hægt að fá það stimplað fram í tímann. Með þessum nýju vinnu- reglum vonum við að komið sé til móts við ósk- ir viðskiptavina okkar. Við viljum nota tæki- færið og þakka þær frá- bæru viðtökur sem Rauða kortið hefur feng- ið, enda er hér kominn mun ódýrari kostur fyrir þá sem kjósa að nota strætó að staðaldri. Kveðja frá Strætó, Ásgeir Eiríksson framkvæmdastjóri. Svar frá Strætó bs.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.