Morgunblaðið - 19.02.2002, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2002 45
DAGBÓK
Bankastræti 14, sími 552 1555
Útsölulok
60-90% afsláttur
Ný sending af dönskum peysum
Gott verð
Opið virka daga frá kl. 10—18
laugardag frá kl. 10—14
Sími 567 3718
SÍÐASTA ÚTSÖLUVIKA
AUKAAFSLÁTTUR
30-50%
Málverkasýning
Ninný, Jónína Magnúsdóttir,
heldur málverkasýningu í boði
Sparisjóðsins, Garðatorgi 1,
Garðabæ, sem á nú 10 ára afmæli.
Sýningin er opin á afgreiðslutíma
Sparisjóðsins alla virka daga
til 28. febrúar 2002.
Þorra tilboð
Garðar Ólafsson
úrsmiður - Lækjartorgi
Sími 551 0081
Úr: Omega, Gucci,
Raymond Weil, Seiko,
Tissot, Pierpont o.fl.
Klukkur: Gólfklukkur,
veggklukkur,
vekjaraklukkur o.fl.
Skartgripir:
Demantshringar, gull-
lokkar, gullhálsfestar,
gullmen, gullkrossar,
gullarmönd o.fl.
20%
afsláttur
af öllum
vörum
Árnað heilla
LJÓÐABROT
Stökur
Sólin klár á hveli heiða
hvarma gljár við baugunum,
á sér hár hún er að greiða
upp úr bárulaugunum.
– – –
Ástin hefur hýrar brár,
en hendur sundurleitar:
Ein er mjúk, en önnur sár,
en þó báðar heitar.
– – –
Kaldur vetur mæðir mig,
mold og keldur frjósa:
það er betra að bæla sig
við brjóstin á þér, Rósa!
50 ára afmæli. Í dag, 19.febrúar, er fimmtug-
ur Bjarni Ásgeir Jónsson,
fv. framkvæmdastjóri
Reykjagarðs hf., Rein, Mos-
fellsbæ. Í tilefni af afmælinu
taka hann og eiginkona
hans, Margrét Atladóttir, á
móti ættingjum og vinum í
Hlégarði föstudaginn 22.
febrúar frá kl. 19.
85 ára safmæli. Í dag,þriðjudaginn 19.
febrúar, er 85 ára Steinunn
Jóhannsdóttir, fyrrverandi
kennari. Hún tekur á móti
gestum í dag frá kl. 17–20 í
hátíðarsal Hrafnistu í
Reykjavík.
1.Rf3 d6 2. e4 g6 3. d4 Bg7
4. Bc4 Rf6 5. De2 0–0 6.
0–0 a6 7. a4 Bg4 8. c3 Rc6
9. Hd1 e5 10. h3 Bxf3 11.
Dxf3 De7 12. d5 Ra5 13.
Ba2 b5 14. b4 Rb7 15. axb5
axb5 16. Ra3 Rh5 17. Rxb5
f5 18. exf5 Hxf5 19. De2
Rd8 20. Be3 Rf7 21. Dc4
Rf4 22. Bxf4 Hxf4 23.
Dxc7 Df6 24. Hd2 Bh6 25.
Db7 Hf8 26. Db6 Hxb4 27.
He2 Hh4 28. Rc7 Rg5 29.
Re6
Staðan kom upp í Norð-
urlandamóti ein-
staklinga í skóla-
skák sem lauk
fyrir skömmu í
Tjele í Dan-
mörku. Davíð
Kjartansson
(2.235) kom
skemmtilega á
óvart með sigri
sínum í A-flokki
mótsins. Í stöð-
unni hafði hann
svart gegn Vic-
tor Hansen
(2.151) frá Nor-
egi. 29... Rxh3+!
SKÁK
Umsjón Helgi Áss Grét-
arsson
Svartur á leik.
30. gxh3 Df3! 31. Rg5
Dxe2 32. Bc4 Hxc4 33.
Ha7 De1+ 34. Kg2 Dxf2+
og hvítur gafst upp. Staða
efstu manna í A-flokki
varð þessi: 1. Davíð Kjart-
ansson (2.235) 4½ vinning-
ur af 6 mögulegum. 2.
Stefán Kristjánsson (2.389)
4 v. 3.–6. Martin Poulsen
(2.101), Tommi Verkasalo
(2.057), Anders Helledie
(2.196) og Hans Kr. Sim-
onsen (2.234). Í B-flokki
fékk Björn Ívar Karlsson 3
vinninga og lenti í 7.–8.
sæti og Guðjón Heiðar
Valgarðsson fékk 2½ v. og
lenti í 9.–10. sæti.
ÞEGAR spilin eru slagarík í
báðar áttir vill oft verða
nokkur stígandi í sögnum.
Hér er suður með níu slaga
hönd í hjartasamningi og
austur glæsilega 6–6-skipt-
ingu:
Suður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ G102
♥ 10543
♦ Á43
♣G95
Vestur Austur
♠ 753 ♠ ÁKD964
♥ G ♥ –
♦ G86 ♦ KD10972
♣KD10643 ♣8
Suður
♠ 8
♥ ÁKD98762
♦ 5
♣Á72
Spilið kom upp í tvímenn-
ingi Bridshátíðar um
helgina. Tveir samningar
voru algengastir og báðir
doblaðir – sex hjörtu í NS og
sex spaðar í AV. En auðvitað
enduðu sagnir líka stundum
á fimmta þrepi. Steinberg
Ríkarðsson og Gylfi Bald-
ursson keyptu samninginn í
fimm hjörtum eftir opnun
Steinbergs á tveggja laufa
alkröfu. Í andstöðunni voru
Runólfur Pálsson og Sigurð-
ur Vilhjálmsson, en bæði
þessi pör voru í toppbarátt-
unni allan tímann:
Vestur Norður Austur Suður
Runólfur Gylfi Sigurður Steinberg
– – – 2 lauf *
Pass 2 tíglar 2 spaðar 3 hjörtu
Pass 4 tíglar 4 spaðar 5 lauf
Dobl 5 hjörtu Pass Pass
Pass
Sagnir þróast illa fyrir
Sigurð, því hann á ekki kost
á tvílita innákomu og verður
að láta duga að hamra á
spaðanum.
Runólfur lét ekki freistast
af laufkóngi og kom út með
spaða gegn fimm hjörtum –
nánar tiltekið sjöuna. Sig-
urður bjóst við tvíspili og
spilaði spaða aftur í öðrum
slag. Það var tækifæri sem
Steinberg nýtti vel. Hann
trompaði hátt, tók hjartaás,
síðan tígulás og stakk tígul.
Hann átti enn tvær innkom-
ur í borð á hjarta til að
trompa út spaðann og tígul-
inn og hreinsa þannig upp
hliðarlitina. Þegar því var
lokið spilaði Steinberg smáu
laufi að G9x. Runólfur átti
slaginn á drottningu, en
varð svo að gefa ellefta slag-
inn.
Alls tóku 108 pör þátt í
tvímenningnum, sem lyktaði
með sigri Jóns Baldursson-
ar og Þorláks Jónssonar.
Þeir hlutu 58% skor. Guð-
laugur R. Jóhannsson og
Örn Arnþórsson urðu í öðru
sæti með 57,1%, en Valur
Sigurðsson og Ragnar
Magnússon höfnuðu í þriðja
sæti með 56,6%.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 11. ágúst sl. í Bessastaða-
kirkju af sr. Einari Eyjólfssyni Rakel Ólafsdóttir og Darren
M. Braithwaite, heimili þeirra er á Herjólfsgötu 14, Hafn-
arfirði.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 29. júní sl. í Háteigs-
kirkju af sr. Tómasi Hreins-
syni Aðalheiður Óladóttir
og Kristinn Mar Einarsson.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
FISKAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert djarfur og hugrakkur
og hefur sterkan persónu-
leika. Fylgdu innri sannfær-
ingu þinni og vertu opinn
fyrir nýjum tækifærum.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú þarft ekki að kvarta yfir
hlutunum, því þótt ekki sé
allt fullkomlega eftir þínu
höfði, þá ertu lukkunnar
pamfíll og hefur margt að
þakka fyrir.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Í hönd fer tímabil mannfagn-
aða. Settu þig í stellingar og
vertu tilbúinn að setja upp
sparibrosið um leið og úti-
dyrnar opnast eða síminn
hringir.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Næstu daga áttu eftir að
vekja mun meiri eftirtekt en
áður. Vegna þessa skaltu
reyna að líta sem best út.
Farðu í spariföt við sem flest
tækifæri.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú hefur mikla þrá til að
ferðast þessa dagana og
kynna þér allan heiminn.
Gerðu annað í dag; skoðaðu
þitt nánasta umhverfi betur
en áður.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú átt eftir að lenda í mik-
ilvægum samningaviðræðum
við aðra um hlutdeild í eign-
um og ábyrgð. Niðurstaðan
verður þér í hag.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú getur lært mikið á því að
skiptast á skoðunum við vin
þinn. Vertu óhræddur við
það, treystu honum. Það á
eftir að reynast þér vel.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Fylgdu þínum innri manni í
dag til að koma betra skipu-
lagi á líf þitt. Settu þér mark-
mið og þá kemur þú meiru í
verk.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Áhugi þinn á börnum hefur
aldrei verið meiri. Það er
enginn minni maður fyrir það
að virða bón barns. Hlustaðu
á raddir í kringum þig.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þrátt fyrir yndi þitt af ferða-
lögum skaltu einbeita þér að
heimilinu og fjölskyldunni.
Það er mikilvægara. Keyptu
eitthvað fallegt til heimilisins.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þig langar mikið til að leið-
beina öðrum. Það er eitthvað
sem þú þarft að segja og
verður að koma frá þér.
Láttu verða af því.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Fylgstu vel með fjármálum
þínum. Hvort sem þér líkar
betur eða verr skaltu reyna
að fá góða heildarmynd af
eignum þínum og skuldum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú ert fullur af orku þessa
dagana. Fólk nýtur þess að
vera í kringum þig. Njóttu
þess.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Gjafavara – matar- og kaffistell .
All ir verðflokkar.
- Gæðavara
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versace.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.