Morgunblaðið - 19.02.2002, Page 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
RÚMLEGA fimmtugur karlmaður var myrtur á
leið heim úr vinnu sinni aðfaranótt mánudags á
Víðimel í Reykjavík. Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum Morgunblaðsins handtók lögreglan í
gærkvöldi mann sem grunaður er um verknaðinn
og var hann yfirheyrður fram á nótt. Hörður Jó-
hannesson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík, vildi
ekki staðfesta þetta en sagði að unnið væri af
krafti að rannsókn málsins.
Atburðurinn uppgötvaðist kl. 5.46 í gærmorgun,
þegar vegfarandi kom að hinum látna og lét lög-
reglu vita. Hinn látni var með mikla áverka á höfði
eftir barefli, að því er talið er, en morðvopnið er
ófundið.
Maðurinn vann vaktavinnu og var samferða
vinnufélögum sínum í bíl heim á leið. Honum var
hleypt út á Melatorgi um kl. 1.15 eftir miðnætti á
sunnudagskvöld og var hann vanur að ganga það-
an heim til sín vestur í bæ. Lögregla telur ljóst að
hann hafi hitt einhverja á leiðinni, sem réðust á
hann með fyrrgreindum afleiðingum.
Lögreglan getur ekkert fullyrt um morðvopnið
en segir ljóst að um einhvers konar barefli hafi
verið að ræða. Á hinum látna voru höggáverkar en
krufning á eftir að fara fram.
Lögreglan telur ekki útilokað að hinn látni hafi
verið rændur, þar sem veski hans fannst á vett-
vangi, nánast peningalaust.
Hörður segir að tilviljun virðist hafa ráðið því að
maðurinn varð fyrir árásinni. Ekki sé vitað til þess
að hann hafi átt sér nokkra óvini. Þá sé ólíklegt að
árásarmennirnir eða -maðurinn hafi setið fyrir
vegfaranda á þessum stað í ljósi þess að um fá-
farna götu er að ræða á þessum tíma nætur. Allt
að 20 lögreglumenn vinna að rannsókn málsins,
þar af lögreglumenn úr tæknideild lögreglunnar
og menn úr ofbeldisbrotadeild lögreglunnar. Vett-
vangur glæpsins var girtur af í gær fram til kvölds
á meðan vettvangsrannsóknir fóru fram og leitað
var að ummerkjum. Víðimel var lokað við Hofs-
vallagötu og Furumel. Lögreglan fór í hús á Víði-
melnum og kannaði hvort fólk hefði orðið vart við
nokkuð óeðlilegt þá um nóttina, en þrátt fyrir að
íbúar hafi verið fúsir til að aðstoða gátu þeir ekki
varpað frekara ljósi á atburði.
Hörður Jóhannesson vill ekki fara nánar út í að-
gerðir lögreglunnar en hvetur þá sem geta borið
um mannaferðir á og við Víðimel á tímabilinu frá
kl. 1.15 til 5.46 í gærmorgun, að gefa sig fram við
lögregluna.
Ekki er unnt að birta nafn hins látna að svo
stöddu.
Morgunblaðið/Júlíus
Nákvæm rannsókn á vettvangi fór fram í gær á Víðimelnum þar sem leitað var ummerkja. Einnig var leitað eftir upplýsingum hjá íbúum við Víðimel.
51 árs maður myrtur með barefli á leið heim úr vinnu sinni
Maður handtekinn
grunaður um morðið
Fyrirsát talin ólíkleg
Í YFIRLÝSINGU sex stjórnar-
manna Símans í gær um greiðslur til
Friðriks Pálssonar stjórnarformanns,
kemur fram að stjórnin hafi talið
greiðslurnar sanngjarnar, en óeðli-
legt hafi verið að stjórninni hafi ekki
verið greint frá þessu fyrirkomulagi.
Einn stjórnarmanna, Flosi Eiríksson,
stóð ekki að yfirlýsingunni.
Sigurður Þórðarson ríkisendur-
skoðandi segir að samráð hafi verið
haft við sig um fyrirkomulag á
greiðslum fyrir ráðgjafarstörf til
Friðriks Pálssonar, stjórnarformanns
Landssímans. Friðrik fékk á síðasta
ári greiddar 5.089.000 kr. til viðbótar
hefðbundnum greiðslum fyrir stjórn-
arstörf. Greiðslurnar fóru til ráðgjaf-
arfyrirtækisins Góðsráðs ehf. sem er í
eigu Friðriks.
Stjórn Landssímans kom saman til
fundar í gær til að ræða þessar
greiðslur. Í yfirlýsingu frá sex stjórn-
armönnum segir að greiðslurnar til
Friðriks hafi verið til komnar vegna
mikillar vinnu sem hann hafi innt af
hendi vegna einkavæðingar Símans.
Það sé sameiginlegt álit stjórnar-
manna að greiðslurnar séu sann-
gjarnar. Stjórnarmenn telja hins veg-
ar óeðlilegt að stjórninni hafi ekki
verið greint frá þessu fyrirkomulagi.
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra segir að leitað hafi verið eftir
því við Friðrik að hann tæki að sér
ýmis störf sem m.a. tengdust einka-
væðingu Landssímans.
Ljóst hafi verið að um það mikla
vinnu væri að ræða að eðlilegt hafi
verið að greiða fyrir hana sérstak-
lega.
„Að sjálfsögðu gerði ég ráð fyrir
því að stjórnin væri upplýst um þetta
og það kom mér satt að segja á óvart
að heyra að það hefði ekki verið gert.
Stjórnin hefur farið yfir þetta mál og
ályktað um það. Ég mun fara yfir
málið á morgun [í dag] með stjórn-
arformanni og forstjóra Landssím-
ans,“ sagði Sturla.
Yfirlýsing sex stjórnarmanna Símans um greiðslur til formannsins
Sanngjarnar – en óeðlilegt
að stjórn vissi ekki af þeim
Fékk 5,1 milljón/6
ÍSLENSKIR læknar og vísindamenn
hafa fundið nýja stökkbreytingu í
genum sem taka þátt í sykurefna-
skiptum. Þekktar eru stökkbreyting-
ar í fimm genum sem geta valdið ætt-
lægri og arfgengri sykursýki og
fannst sjötta gerðin í íslensku rann-
sókninni. Greint er frá þessum nið-
urstöðum í tímaritinu Diabetologia
sem er alþjóðlegt fræðitímarit.
Að rannsókninni stóðu Reynir Arn-
grímsson, dósent við læknadeild Há-
skólans, Ástráður B. Hreiðarsson, yf-
irlæknir göngudeildar sykursjúkra,
Sigurður Yngvi Kristinsson, aðstoð-
arlæknir, Eirný Þöll Þórhallsdóttir,
sameindalíffræðingur, Bente Talseth,
meinatæknir, Eiríkur Steingrímsson,
rannsóknarprófessor við læknadeild,
Árni V. Þórsson, yfirlæknir göngu-
deildar sykursjúkra barna, og Þórir
Helgason, fyrrverandi yfirlæknir á
Landspítala – háskólasjúkrahúsi.
Rannsóknin var unnin í samvinnu við
Urði, Verðandi, Skuld ehf.
Kemur yfirleitt fram
á fullorðinsárum
Rannsókn íslensku vísindamann-
anna leiddi í ljós þrjár mismunandi
stökkbreytingar í genum sem taka
þátt í sykurefnaskiptum. Tvær breyt-
inganna voru áður þekktar og þeim
hefur áður verið lýst af erlendum
rannsóknarhópum. Þriðja breytingin,
sem liggur í geni sem nefnist Neuro-
D1, fannst í þessari rannsókn. Um er
að ræða afbrigði af sykursýki af teg-
und 2 eða fullorðinssykursýki sem er
algengasta form sykursýki í hinum
vestræna heimi í dag. Kemur hún yf-
irleitt fram á fullorðinsárum og er tal-
in að einhverju leyti tengjast lifnaðar-
háttum. Í frétt frá rannsóknar-
hópnum kemur fram að það sem
einkenni hina nýju gerð sem fannst á
Íslandi sé lágur meðalaldur við grein-
ingu sjúkdómsins eða við 30 ára aldur
og að hún tengist ekki offitu eins og
oft hefur áður verið lýst í fullorðins-
sykursýki.
Íslenska rannsóknin náði til
þriggja fjölskyldna með ættlæga syk-
ursýki. Í tveimur þeirra greindust hjá
hvorri um sig ein stökkbreyting sem
þekktar voru. Í þriðju fjölskyldunni
tókst ekki með genakortlagningu að
tengja ættina við neina af hinum
fimm þekktu genum sem valda ætt-
lægri sykursýki né við ýmis önnur
gen sem tengjast sykursýki.
Fundu nýja
stökkbreyt-
ingu í gen-
um tengdum
sykursýki
KARLMAÐUR veittist að
konu með eggvopni í íbúð í
Grafarvogi í gærkvöldi. Lög-
reglan í Reyjkavík fékk til-
kynningu um árásina um kl.
21. Konan var flutt á slysa-
deild. Samkvæmt upplýsing-
um lögreglu er árásarmaður-
inn talinn eiga við geðræn
vandamál að stríða. Lögregl-
an var enn við rannsókn í
íbúðinni um miðnættið og
beið þess að læknir kæmi á
staðinn til að huga að árás-
armanninum.
Ráðist að
konu með
eggvopni