Morgunblaðið - 23.02.2002, Side 13

Morgunblaðið - 23.02.2002, Side 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 2002 13 TILLAGA að nýju aðalskipu- lagi Mosfellsbæjar var sam- þykkt í skipulagsnefnd bæjar- ins í vikunni og var því vísað til bæjarstjórnar að lögformlegur kynningarferill tillögunnar hefjist. Almennur fundur með íbúum þar sem aðalskipulag- stillagan verður kynnt, fer fram í Hlégarði næstkomandi mánudagskvöld. Tryggvi Jónsson bæjar- verkfræðingur og Gylfi Guð- jónsson, arkitekt hjá Teikni- stofu arkitekta – Gylfa Guðjónssyni og félögum ehf., segja að búist sé við því að íbú- ar bæjarins verði orðnir 13.800 talsins árið 2024 en eru í dag um 6.300. Þetta er svipuð aukning og verið hefur undan- farin 30 ár en þá hefur hún numið um fjórum prósentum á ári. Aukningin samsvarar um 3.300 íbúðum að þeirra sögn en fyrirhugað er að hún verði að mestu á núverandi íbúðar- svæðum samkvæmt gildandi aðalskipulagi í stað þess að brjóta nýtt land undir byggð. „Við reynum að rýmka um þau svæði sem fyrir voru,“ segir Tryggvi. „Til dæmis er Helgafellssvæðið orðið öllu stærra, það er búið að stækka íbúðarsvæðið í Lágafelli, nú er gert ráð fyrir hátt í 1.700 íbúð- um í Blikastaðalandinu í stað 1.000 áður og svo mætti lengi telja.“ Gylfi bætir því við að þessi þétting byggðarinnar sé í anda svæðisskipulags höfuð- borgarsvæðisins sem nýverið var samþykkt. Lóðir upp á einn hektara Ein stór breyting sem sjá má á aðalskipulagstillögunni er að bæjarmörkin hafa færst verulega með tilkomu landa- skiptasamnings bæjarins og borgarinnar sem gerður var í fyrra. Þá lét Mosfellsbær Reykjavík í té allstórt land undir hlíðum Úlfarsfells í skiptum fyrir það land sem borgin átti inni í bænum auk milligreiðslu. Með tilkomu samningsins eignaðist bærinn spildur inni í Mosfellsdal þar sem í nýja að- alskipulaginu eru skilgreind svæði með blandaða landnotk- un fyrir íbúðir og landbúnað. Gylfi útskýrir þetta betur: „Þetta er mjög áhugaverður valkostur sem gert hefur verið ráð fyrir í skipulagi í Mos- fellsbæ allt frá 1995. Þarna verða möguleikar á tóm- stundabúskap eða því sem mætti kalla litlum búgörðum. Þar getur fólk verið með hesta, ræktun, skógrækt eða annað sem krefst mikils landrýmis auk íbúðarhússins.“ Um er að ræða mjög stórar lóðir sem verða um einn hekt- ari að stærð, eða 10.000 fer- metrar. Til samanburðar eru venjulegar lóðir í kring um 800 fermetra að sögn Gylfa. „Þetta er svona sveitin á höfuðborg- arsvæðinu,“ segir Tryggvi og Gylfi heldur áfram: „Þetta er alveg sérstakt umhverfi og samfélag þarna í Mosfellsdaln- um eins og margoft hefur kom- ið fram.“ Segjast þeir ekki vita til þess að sambærileg svæði séu svo markvisst skilgreind hjá öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu og telja tilhneigingu til slíkra sam- félaga almennt á undanhaldi þar. Sumarbústaðalönd fjari út Gylfi bendir á Hafravatn á skipulagskortinu og segir stefnt að því að byggja þar upp fjölbreytta útivistaraðstöðu með megináherslu á siglingar á vatninu. „Það er til að mynda reiknað með að skátar fái að- stöðu við enda vatnsins þar sem þeir hafa verið í gegnum tíðina þar sem áform eru um uppbyggingu á skálum og bryggjuaðstöðu og svo fram- vegis,“ segir Tryggvi. Til að auka möguleika á uppbyggingu útivistar er í skipulaginu dregið úr sum- arbústaðasvæðum í kringum vatnið sem og annars staðar í bæjarlandinu. „Stefnumörk- unin í síðasta aðalskipulagi gekk út á að það yrði sumarbú- staðabyggð þarna en þó var búið að taka út byggðina aust- an Hafravatns,“ segir Tryggvi. „Þarna eru sumarbústaðir en hugmyndin er sú að þessi land- notkun fjari út. Væntanlega yrðu endurbyggingar ekki leyfðar þó að mönnum yrði auðvitað frjálst að viðhalda húsunum sínum. Þá verða sett- ir mjög þröngir skilmálar um það hvað megi gerast innan þessara svæða en það er líka verið að minnka sumarbú- staðasvæði annars staðar í bæjarlandinu.“ Gylfi útskýrir hvers vegna: „Það er meðal annars vegna þess að þegar sumarbústaðir eru þetta nærri þéttbýlinu er alltaf hætta á að þeir þróist í heilsársbústaði og fólk fari að búa þar árið um kring. Það er mjög óhagstætt upp á byggða- þróunina og þjónustu s.s. skólaakstur, snjóruðning og annað og þetta verður eins- konar óskipulögð heilsárs- byggð út um alla sveit. Það gengur ekki upp í rekstri bæj- arfélagsins.“ Til að kynna þessar breyt- ingar verður haldinn sérstakur kynningarfundur fyrir sum- arbústaðaeigendur í Mos- fellsbæ á þriðjudag í Hlégarði og hefst hann klukkan 16:30. Mislæg gatnamót á Vesturlandsveg Annað nýmæli í aðalskipu- lagstillögunni er að inn á skipulagið hafa verið sett sér- staklega skilgreind skógrækt- arsvæði og segir Gylfi þar á ferðinni faglega ígrundaða áætlun sem bæjarfélagið fylgir en hugmyndin er m.a. sú að skógurinn veiti skjól fyrir byggðina. Að sögn Tryggva eru þessi svæði meðal annars ræktuð upp af yngstu árgöng- unum í unglingavinnunni en á flestum þessara svæða er skógrækt þegar hafin sam- kvæmt samningi við Skóg- ræktarfélag Mosfellsbæjar. Gylfi segir golfíþróttinni einnig gert hátt undir höfði. „Það er gert ráð fyrir að aðal- golfvöllurinn stækki og nái út í Blikastaðanesið. Síðan er líka golfvöllur í Mosfellsdal sem einnig er fyrirhugað að stækki og verði 18 holur.“ Spurðir um iðnaðar- og at- hafnasvæði segja þeir þau sömu og áður hafa verið skil- greind í aðalskipulagi bæjar- ins. „Hins vegar er innbyggt í þessu skipulagi að ákveðin prósenta af íbúðarsvæðunum eða samtals um 30 hektarar fari undir athafnastarfsemi. Þar er átt við starfsemi sem fer vel með íbúðarbyggð eins og þjónusta sem skólarnir og leikskólarnir heyra undir, skrifstofuhúsnæði og annað slíkt. Þetta er í anda svæðis- skipulagsins þar sem lögð er áhersla á meiri blöndun með það í huga að lágmarka akst- urinn á milli athafnasvæða og íbúðarhverfa.“ Tryggvi bendir á að í skipu- laginu er gert ráð fyrir að um- ferðarkerfinu verði nokkuð breytt. „Í framtíðinni er fyrir- hugað að sett verði mislæg gatnamót á Vesturlandsveg á nokkrum stöðum en auk þess er gert ráð fyrir að sums stað- ar geti götur farið undir veg- inn mislægt án þess að tengj- ast honum. Síðan er búið að fella niður tengibraut sem átti að fara norður yfir Varmá austan Álafosskvosar, m.a. vegna umhverfissjónarmiða. Menn voru neikvæðir gagn- vart því að þessu svæði með Varmánni yrði skipt með svona mikilli umferðargötu en í staðinn kemur safngata sem liggur niður í Álafosskvosina.“ Friðuð svæði meðfram ám og vötnum Þeir félagar segja Mos- fellsbæ hafa markað sér stefnu sem umhverfisvænt bæjar- félag. Víða í tillögunni sjáist þess merki og nefna þeir land- búnaðarsvæðin og skógrækt- arsvæðin í því sambandi. „Það er líka lögð áhersla á að það verði greið göngu-, reið- og hjólreiðatengsl við opin svæði og það má segja að það end- urspegli að það eigi að vera greiðfært á opnu svæðin.“ Þá eru friðuðu svæðin umfangs- mikil í stefnumörkuninni að sögn Gylfa og eru sérstök helgunarsvæði m.a. skilgreind meðfram öllum ám og vötnum í bænum. „Það er til marks um það hversu mikla áherslu bæjar- félagið leggur á umhverfismál að sérstakir aðilar hafa verið fengnir að þeim þætti vinn- unnar,“ segir Gylfi. „Lands- lagsarkitektar hjá Landmótun hafa sérstaklega unnið þennan umhverfiskafla í skipulaginu og lagt þar til verulegt efni. Mosfellsbær er jú oft kallaður „Græni bærinn“ og í því felst að það er auðvelt aðgengi að náttúrunni og íbúarnir hafa margir flust hingað til að vera í nánum tengslum við hana.“ Sem fyrr segir hefur skipu- lagsnefnd bæjarins vísað því til bæjarstjórnar að samþykkja tillöguna til kynningar en áður en af formlegri auglýsingu get- ur orðið fer tillagan til Skipu- lagsstofnunar til umsagnar sem tekur nokkrar vikur. Í millitíðinni verða kynningar- fundir haldnir, fyrir almenning á mánudag í Hlégarði og hefst hann klukkan 20:00 og svo á þriðjudag á sama stað kl. 16:30 fyrir sumarbústaðaeigendur. Samfélag í nánum tengslum við náttúruna Tómstundabúskapur, uppbygging útivistar við Hafravatn og sérstak- lega skilgreind skógræktarsvæði eru meðal þess sem finna má í til- lögu að nýju aðalskipulagi Mosfells- bæjar 2002–2024. Bergþóra Njála Guðmundsdóttir kynnti sér hug- myndirnar og komst meðal annars að því að Mosfellsbær gengur undir nafninu „Græni bærinn“. Morgunblaðið/Kristinn Gylfi Guðjónsson arkitekt og Tryggvi Jónsson bæjarverk- fræðingur glugga í aðalskipulagið. Mosfellsbær GERT er ráð fyrir byggingu um 12.800 fermetra íþrótta- húsnæðis og þremur grasvöll- um í forsögn að nýju deili- skipulagi Hlíðarenda þar sem Knattspyrnufélagið Valur er með aðstöðu sína. Skipulags- og bygginganefnd Reykjavík- ur samþykkti forsögnina á fundi sínum í vikunni. Í forsögninni segir að um- rætt svæði skiptist í tvo reiti, annars vegar lóð Vals sem er um 8,55 hektarar og hins veg- ar svonendan C-reit Land- spítala sem er um 5 hektarar. Svæðið skuli skipuleggja sem eina heild en nauðsynlegt sé að taka um 0,33 hektara af lóð Vals vegna færslu Hring- brautar sem ákveðin var í að- alskipulagi Reykjavíkur 1996- 2016. Samkvæmt aðalskipu- lagi 2001-2024, sem nú er í auglýsingu, er skilgreining á landnotkun að hluta til opið svæði til sérstakra nota og að hluta til svokallað miðsvæði M5. Með miðsvæði M5 er átt við svæði fyrir fjármála-, há- tækni- og þekkingarfyrirtæki, rannsóknarstarfsemi, hótel og þjónustu tengdri þessari starfsemi. Þá var ákveðið á fundi skipulagsnefndar að setja inn í forsögnina að rétt þætti að kanna hvort einnig væri hægt að koma fyrir íbúð- um á svæðinu. Árbæjarsafn leggur til verndun Fram kemur að íþrótta- starfsemi Vals hafi verið á Hlíðarenda frá árinu 1939 þegar íþróttafélagið festi kaup á jörðinni og húsunum sem þar stóðu. Á lóð Vals standa nokkrar byggingar, bærinn Hlíðarendi (byggður 1916), Kapellan og tvö sam- byggð íþróttahús. Í greinar- gerð Árbæjarsafns er lagt til að öll húsin verði vernduð enda þykja þau hafa gildi vegna atvinnusögu Reykja- víkur og sögu Vals á þessum stað. Svæðið sem deiliskipulagið mun ná til afmarkast af Hringbraut eftir færslu henn- ar, Bústaðavegi, Flugvallar- vegi og Hlíðarfæti, undir- göngum sem gert er ráð fyrir í nýja aðalskipulaginu. Alls eru þetta um 14,1 hektari. Lagt er til að þau mann- virki sem fyrir eru á fé- lagssvæði Vals verði fjarlægð að undanskildum Hlíðarenda- húsunum og Kapellunni. „Mikilvægt er að í nýju deili- skipulagi verði þessum bygg- ingum gerð sómasamleg skil með umhverfismótun og að- komu. Athuga þarf einnig hvort eldra (nyrðra) íþrótta- hús geti staðið áfram og nýst félaginu,“ segir í forsögninni. Hvað varðar nýjar íþrótta- byggingar á svæðinu er ráð- gert að byggja þar 9.000 fer- metra knattspyrnuhús og 1.800 fermetra íþróttahús fyr- ir inniíþróttir. Á milli þeirra verði um 2.000 fermetra tengibygging. Samtals er því um að ræða 12.800 fermetra af nýbyggingum. Þar fyrir utan er gert ráð fyrir tveimur grasvöllum sem yrðu 68 x 105 metrar að flat- armáli og einum minni gras- velli sem yrði 65 x 100 metrar. Þá er fyrirhugað að setja upp áhorfendastúku fyrir 2-3.000 manns við aðalvöllinn. Hugað að ásýnd Öskjuhlíðar Utan við Valssvæðið er gert ráð fyrir atvinnustarfsemi en auk þess skal kanna mögu- leika á byggingu leikskóla sem yrði að hámarki um 45 þúsund fermetrar að stærð. Almenn krafa um bílastæði skal vera eitt stæði á hverja 35 fermetra húsnæðis sam- kvæmt forsögninni en skoða þarf hvort lækka megi kröf- una í eitt stæði á hverja 50 fermetra. Hluti stæða eða a.m.k. 50% skal vera neðan- jarðar. „Mikilvægt er að huga að ásýnd Öskjuhlíðar og einnig þarf að skoða hæðir bygging- ar sérstaklega vegna nálægð- ar við Landspítala, Eskihlíð- arblokkir og atvinnusvæði við Skógarhlíð. Æskilegt er að miða hæð bygginga við u.þ.b. 5 hæðir eða efstu punkta bygginga við Eskihlíð og Skógarhlíð,“ segir í forsögn- inni. NA/SV-flugbraut farin áður en uppbygging hefst Þá segir að ekki skuli taka mið af nálægð við NA/SV flugbrautina hvað varðar hús- hæðir á athafnasvæði því reiknað sé með því að flug- brautinni verði lokað áður en uppbygging hefst. Sem fyrr segir samþykkti skipulagsnefnd að unnin verði tillaga að deiliskipulagi á for- sögninni og vísaði henni til af- greiðslu borgarráðs. Forsögn að nýju deiliskipulagi Valssvæðisins samþykkt í skipulags- og bygginganefnd Nýtt 13.000 fermetra íþróttahúsnæði og þrír grasvellir                              Hlíðar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.