Morgunblaðið - 23.02.2002, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 23.02.2002, Blaðsíða 47
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 2002 47 ✝ Guðrún Magnús-dóttir fæddist á Grund í Svarfaðar- dal 28. janúar 1914. Hún lést á Heil- brigðisstofnun Siglufjarðar 15. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Magnús Páls- son bóndi á Grund, f. í Göngustaðakoti 26. ágúst 1883, d. á Siglufirði 6. maí 1962, og kona hans Þórunn Sigurðar- dóttir, f. í Tjarnar- garðshorni 6. maí 1888, d. á Siglufirði 2. júní 1951. Guðrún var fjórða í röð 13 systkina: Olga, f. 6. júní 1908, d. 24. jan- úar 1971; Sigurður, f. 8. janúar 1910, d. 7. febrúar 1979; Skúli, f. 8. júní 1912, d. 5. október 1964; Guðrún, sem hér er kvödd; Anna Friðrika, f. 2. apríl 1916, d. 26. júní 1948; Páll, f. 21. mars 1918, d. 23. júlí 1974; Eld- járn, f. 19. mars 1920; Björn, f. 27. september 1921, d. 29. sept- ember 1986; Emma, f. 15. mars 1923; Þorbjörg, f. 10. júní 1924 d. 18. nóvember 2000; Erna Daníelína, f. 21. nóvember 1925, d. 1. mars 1992; Fjóla, f. 31. maí 1928; og Brynja, f. 26. mars 1930. Guðrún var ógift og barnlaus en ól upp systurson sinn, Guðjón Jóhannsson, f. 2. júlí 1943, son Önnu Friðriku sem lést frá honum ung- um. Guðjón er kvæntur Valgerði Halldórsdótt- ur, f. 6. mars 1947. Börn þeirra eru Anna Friðrikka, f. 26. júlí 1965, hún á þrjú börn, Halldór Jón, f. 27. febrúar 1970, hann á þrú börn, Jóhann Þór, f. 20. febrúar 1982, hann á eitt barn, og Guðrún Ósk, f. 7. júní 1983. Guðrún starfaði sem verka- kona allan sinn starfsaldur við ýmis störf. Útför Guðrúnar fer fram frá Siglufjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Guðrún Magnúsdóttir eða amma Guja eins og hún var alltaf kölluð hefur kvatt okkur. Hún var einstök kona hún amma, ákveðin og stóð ávallt við orð sín og meiningar. Amma vissi margt, var fróð þó ekki hafi hún gengið menntaveginn eða ferðast víða, heima er best var hennar speki. Þær voru ófáar stundirnar sem lítil stúlka átti hjá ömmu sinni á Hvanneyrarbrautinni, fékk að gista yfir nótt og amma sagði sögur úr sveitinni í Svarfaðardal. Sögur af börnum að leik, fólki að störfum, dýrunum, huldufólki og álfum. Þetta var ævintýraheimur fyrir litla ömmustelpu og ímyndunaraflið fór á flug, þar sem hlaupið var á milli bæja í svo svörtu myrkri að eitt ein- asta hljóð gat breyst í draug eða skrímsli. Þá var brugðið á það ráð að hafa yfir faðirvorið og signa sig, síðan haldið áfram, að sjálfsögðu, erindinu varð að ljúka. Unglingsstúlka kemur heim til ömmu seint að kvöldi, skjálfandi af hræðslu eftir magnað kvöld hjá vin- konu, horfði á ljóta bíómynd. Amma spyr „hvað er að?“ Stúlkan segir frá, hikandi þó, erfitt að viðurkenna myrkfælnina, orðin svona stór. Amma segir; farðu nú vina mín með bænirnar þínar, þá kemst ekkert illt að þér, síðan geturðu kúrt hjá mér; og það varð úr. Þær urðu margar næturnar sem ég gisti hjá ömmu Guju, í raun átti ég tvö heim- ili, hjá foreldrum mínum og hjá ömmu, fékk það besta á báðum stöðum og bý að því alla tíð. Það var ekki bara sálartetrið sem amma gat lappað uppá, hún var snillingur að græða sár og skurfur sem stelpuskottið fékk á hné og lófa. Á fallegum og sólríkum sum- ardegi þegar æðibunugangurinn var mikill og stokkar og steinar urðu í vegi fyrir henni, tók amma þá fram töfrasmyrslið og notaði það óspart. Þerraði burt tárin og smellti kossi á kinn, svona nú allt búið, aft- ur út að leika. Þegar ekki viðraði til útiveru var gott að sitja inni hjá ömmu spila ol- sen eða kasínu, lesa bækur eða bara að spjalla um lífið og tilveruna. Amma Guja átti líka alltaf eitthvað í pokahorninu, gott í munninn, köku eða kex, aur í lófann og holl og góð ráð, allir fengu sitt, sama hve mörg við vorum, enginn skyldi verða út- undan, þannig var það bara. Þegar ég varð eldri og flutti í burtu voru það systkini mín sem tóku við af mér, alltaf var einhver sem vildi vera hjá ömmu, að sjálf- sögðu. Ég eignaðist sjálf börn og auðvitað heimsóttum við ömmu þegar færi gafst, stelpurnar mínar urðu strax elskar að langömmu. Hún var best. Þegar amma Guja varð áttræð fluttist hún á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar. Það var skrítið að fara framhjá Hvanneyrarbraut 32 og engin amma kom í gluggann að fylgjast með mannlífinu fyrir utan, en fyrst hún var sátt var ég það líka og þangað heimsóttum við hana síð- ustu árin. Minningarnar eru marg- ar og dýrmætar og þær ætla ég að geyma, deila þeim svo með dætrum mínum. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Elsku amma, mín takk fyrir allt sem þú gafst mér og kenndir mér, þín verður saknað. Anna Friðrikka (Rikka). Hún Guja er dáin. Hún lést á heilbrigðisstofnun Siglufjarðar 15. febr. sl. Hún og mamma deildu þar stofu um árabil. Fyrst á ellideild, síðar á sjúkradeild. Ég vissi tæpast hver Guja var fyrr en þeirra góða og einstaka sambýli hófst. Tveggja kvenna á níræðisaldri með svo ólík- an bakgrunn. Það varði jú allan tímann, og bar aldrei skugga á. Svo nánar urðu þær að starfsfólk stofn- unarinnar kallaði þær á góðri stundu: „The twins“. Aðstandendur eru þakklátir starfsfólki heilbrigð- isstofnunarinnar fyrir að hafa valið þær saman á stofu. Þótt mjöðmin og „árans löppin“ hrjáðu hana stundum ákaflega var hún ætíð hress og skemmtileg. Hún var mjög fróð og hafði frá mörgu að segja úr stórum systkinahóp á stóru heimili úr sveitum Eyjafjarð- ar og Skagafjarðar, og einnig héðan úr Siglufirði. Guja var hin dæmi- gerða íslenska verkakona. Eftirsótt til vinnu, sjálfmenntuð að mestu, og gekk alla tíð þögul til vinnu sinnar. Stritaði og þrælaði frá unglingsaldri við bústörf, sjóróðra, línubeitningar, síldarsöltun, frystihúsavinnu o.þ.h. Já, margar kasínurnar tóku þær vinkonurnar á borðinu við gluggann á ganginum, og stundum urðu fimma og tvistur að áttu. Já ,eða bara eitthvað annað. Og svo fóru þær saman í kjallarann. Það stytti stundirnar. Barnabörn mín hændust mjög að Guju. Hún þurfti ekkert nammi til. Hún var einstaklega barngóð, en eignaðist sjálf aldrei börn. Synd. Hinsvegar ól hún upp systurson sinn og augastein, Guðjón Jóhann- esson. Gekk honum í móðurstað. Systir hennar hafði látist frá honum af barnsförum ásamt barni sínu, þá 5 ára gömlum. Það lýsir Guju. Útför hennar fer fram frá Siglu- fjarðarkirkju í dag, á „konudaginn“. Það er táknrænn útfarardagur þessarar ljúfu og harðduglegu konu, sem í svo mörgu gæti verið kynsystrum sínum fyrirmynd. Hennar er saknað. Að leiðarlokum bið ég og fjöl- skylda mín hinn hæsta höfuðsmið himins og harðar að blessa og vaka yfir minningu Guðrúnar Magnús- dóttur. Sigurður Fanndal. GUÐRÚN MAGNÚSDÓTTIR Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090. Minningarkort Hjartaverndar 535 1825 Gíró- og greiðslukortaþjónusta - !            ,       07 $ $  7  8'!& $  !&  8  ,!&        3    +    4"    #    3     ../ 5   +   '     '       $'2 "# 4  &'  4  . #2#!&! 7'  -&'  # 3! #2#!&&'  ! 9 .'! ! $   #2#!&! $  3! #2#!&&'  #2#!&# #!! ! $ &# #2#!&!  # 8+, )  !&'  4 3!  #2#!&&'  .'! 3! )  !! #2#!&# $ #2#!&! % 0 ! $ !&'  0%! #2#!&! $'2 "# (&'  $(!# #2#!&! $  > "! &'  0% #2#!&!  # 8+, $, &'  8 ! 8, ! 6   #     #    0      '0'  +  1     +            .9 * .5 9  *'  " @A  (-+ "- # 3! $ ! 2#!& &'  > + ! B .'!&'  !   ! .'!! $ #!& 0 !3&'  7 !"  )'  7  !/ ! (!  > + ! .'!&'  9 # * !!8 ! 0 !  3&'  ! 2#!&# ;1# ! 6   #     #    0  '0'    +    !                  * 9 >  .9  $+  8 # CC $ !   ' +%2&'  5 ! !& D #8 !  . & ( 0 1 !! #8 &'  .'! * ! &-! 1 : 2 #8 ! 8 ! 8, !  8 ! 8 ! 8 !           ,      1   )   $+   EF  (-+ "-             71 +  +   /   )     81    +   9    $// (1     #     #   +   '             G   !#H)  !! )'  ! !! G  ! 0 I# ! (-!  8 ! 8, !  "      !   J > K '   # +'!&' L  % $ *   (     '     :&' & ; "+  <=4    >   $ &"  # +'!&'  .' !!  &2 ! 0 1  # +'!&'  * (!&#  # +'!&'  # 3!    # +'!&'  !! !!!! %  # +'!&'  7 M' $ &!  (-! 8, ! (1       !    > .9  -' , #" N@  (-+ "-         +   /  ?   0   + > "! > +'!&'  $ &' #2#!&&'  # 3! $  $ "!&'  > "! $ "!&'   /!&(-!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.