Morgunblaðið - 23.02.2002, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 23.02.2002, Qupperneq 14
ÁRBORGARSVÆÐIÐ 14 LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTIÐ hefur gefið leyfi til þess að samið verði við hönnuði að viðbyggingu við Sjúkrahús Suðurlands á Sel- fossi. Þetta leyfi þýðir að haldið verður áfram að hanna viðbygg- inguna til útboðs. Áður var búið að vinna þarfagreiningu, frumvinnu við hönnun og rýmisstærðir. „Það er gert ráð fyrir að vinna hönnuða til útboðs taki um hálft ár en þá verður sótt um byggingar- leyfi hjá sveitarfélaginu Árborg og gerður framkvæmdasamningur við heilbrigðisráðuneytið, fjármála- ráðuneytið, framkvæmdasjóð aldr- aðra og sveitarfélögin á Suðurlandi. Eftir það er hægt að bjóða út verk- ið og framkvæmdir ættu að geta hafist í ársbyrjun 2003. Þá stendur bara eftir sú spurning hversu hratt framkvæmdir ganga, sem fer eftir fjármögnun verksins,“ sagði Viðar Helgason, framkvæmdastjóri Heil- brigðisstofnunarinnar á Selfossi. Hin nýja viðbygging verður um 3.300 fermetrar, tveggja hæða og er staðsett vestan núverandi húss. Á efstu hæð verða 26 hjúkrunar- rými, tólf einbýli og sjö tvíbýli. Á fyrstu hæð verður heilsugæsla en umfang hennar hefur aukist til mikilla muna í takt við íbúafjölda á síðastliðnum tuttugu árum og má nefna sem dæmi að á sl. tveimur ár- um hefur heimahjúkrun tvöfaldast hjá heilsugæslunni. Um er að ræða um það bil 3.300 heimsóknir sjúkra- liða eða hjúkrunarfræðings á ári. Í núverandi húsi, þar sem heilsu- gæslan er, verða skrifstofur lækna og skrifstofa Heilbrigðisstofnunar- innar. Nýbyggingin tengist núver- andi húsi með tengibyggingu, í henni verður nýr inngangur móti suðri en núverandi inngangur verð- ur eingöngu þjónustuinngangur. Í kjallara nýbyggingarinnar verður sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og að- keyrsla sjúkrabíla. Þá verður þar einnig kennsluaðstaða fyrir ljós- mæður, hjúkrun og heimilislækn- ingar en Heilbrigðistofnunin er með samning um kennslu innan stofnunarinnar í þessum greinum. Þetta hjúkrunarrými nægir til að leysa Ljósheima, hjúkrunarheimili fyrir aldraða, af hólmi en hjúkrun- arrýmum fjölgar ekki umfram það sem þar er nú þegar. Aðstöðunni á Ljósheimum var komið upp fyrir um tuttugu árum þegar starfsemi sjúkrahússins flutti þaðan í núver- andi hús. Mikil þörf hefur komið fram á undanförnum árum fyrir hjúkrunarrými fyrir aldraða. Morgunblaðið/Sig. Jóns. Viðar Helgason, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar á Sel- fossi, á byggingarstað viðbyggingar við Sjúkrahús Suðurlands. Hönnun viðbyggingar til útboðs haldið áfram Selfoss Sjúkrahús Suðurlands FJÖLBRAUTASKÓLI Suðurlands á Selfossi fær mjög jákvæða dóma í út- tekt sem menntamálaráðuneytið lét gera á innra starfi skólans. Í skýrslu úttektaraðila er fjallað um helstu þætti skólastarfs í Fjölbrautaskóla Suðurlands, s.s. stjórnun, samskipti, kennara, nemendur, nám og kennslu og þróunarstarf. Gefið er yfirlit um helstu styrk- og veikleika stofnunar- innar. Í frétt frá ráðuneytinu segir m.a.: „Almennt gefur úttektarskýrslan mjög jákvæða mynd af starfsemi skólans. Ljóst er að um er að ræða metnaðarfulla skólastofnun í stöðugri þróun.“ Helstu niðurstöður úttektar- innar eru eftirfarandi: Fjölbrauta- skóli Suðurlands er menntastofnun með fjölbreytta, kraftmikla og metn- aðarfulla starfsemi. Einkennandi fyrir skólastarfið er að stjórnendur taka frumkvæði að stöðugri þróun og eru vakandi fyrir nýjum tækifærum. Starfsandi er mjög góður og er það þakkað stjórn- unarstíl stjórnenda og vilja til að ná árangri. Aðstaða til kennslu og annars skólastarfs er yfirleitt góð, en miðað við nemendafjölda er húsnæðið að verða of lítið. Skólinn hefur mjög gott upplýs- ingakerfi sem stuðlar að aukinni hag- nýtingu upplýsingatækni í kennslu. Erfitt er að meta hvernig skólinn stendur í samanburði við aðra skóla en vísbendingar eru um að námsár- angur hafi batnað síðustu ár. Í lok skýrslunnar er að finna tillögur um úrbætur á starfsemi og aðstöðu í skól- anum. Má þar m.a. nefna að mikil- vægt er talið að skólinn ljúki stefnu- mótunarvinnu og gerð skólanámskrár, skilgreini lykilmæli- kvarða á árangur skólans, vinni að því að draga úr brottfalli og auki áherslu á forvarnarstarf. Úttektarskýrsluna unnu Stefanía Arnórsdóttir og Har- aldur Á. Hjaltason. Skýrslan hefur verið sett á heimasíðu menntamála- ráðuneytisins. Slóðin er: www.menntamalaraduneyti.is. Starfsandinn er eins og fjöregg „Við erum auðvitað afskaplega ánægð með þessa niðurstöðu. Þetta er hvatning fyrir starfið og styrkjandi fyrir starfsfólkið sem er að leggja sig fram og það gerir fólk hér svo sann- arlega. Starfsandinn er eins og fjör- egg sem þarf að passa vel, bæði af stjórnendum og starfsmönnum. Það þarf alltaf góðan vilja til að leysa mál og slíkur vilji er almennt hér meðal starfsmanna. Menn ganga hér í verk- in og vinna þau,“ sagði Sigurður Sig- ursveinsson skólameistari Fjöl- brautaskóla Suðurlands og undir þau orð hans tók Örlygur Karlsson að- stoðarskólameistari. „Við höfum stokkið á nokkrar gæs- ir og náð þeim svo sem á fartölvuvæð- inguna og ýmis önnur þróunarverk- efni. Það hefur kallað á breytingar sem hafa gengið vel en breytingar geta verið brothættur tími ef viðhorf fólks passa ekki við það sem verið er að gera,“ sagði Sigurður. Skólameistari, aðstoðarskólameist- ari og áfangastjóri eru í fullu starfi við stjórnun en auk þeirra er Ragnheiður Ísaksdóttir skrifstofustjóri í hálfu starfi við skipulag umsjónar, náms- vals og prófa, og Kristín Þórarins- dóttir í fullu starfi sem fjármálastjóri. Önnur stjórnunarstörf eru á hendi kennara og er þar um að ræða 4 sviðs- stjóra, 12 fagstjóra og þrjá í stjórnun og þjónustu í tölvumálum skólans, þar af tveir í fullu starfi. Þá eru allmargir verkefnisstjórar er sinna ýmsum málaflokkum. Fjölbrautaskóli Suðurlands á Selfossi Starfsemin fjölbreytt, kraftmikil og metnaðarfull Morgunblaðið/Sig. Jóns. Fjórir stjórnendur Fjölbrautaskóla Suðurlands, Sigurður Sigursveins- son skólameistari, Ása Mikkelsen áfangastjóri, Ragnheiður Ísaksdóttir skrifstofustjóri, og Örlygur Karlsson aðstoðarskólameistari. Selfoss RISIÐ er af grunni nýtt hús Byggðasafns Árnesinga við Hafn- arbrú 3 á Eyrarbakka. Húsið er hannað af Sigurði Hallgrímssyni, arkitekt hjá Arkþingi, og er á einni hæð með lofti yfir skrifstofuhluta þess, sem verður í austurendanum. Burðargrind hússins er úr límtré og vegg og þakklæðning er frá Yleiningum. Skrifstofa og önnur vinnuaðstaða verður í fimmtungi hússins en annar hluti þess verður notaður sem varðveislurými. Alls er húsið 375 fermetrar að grunnfleti. Bygging hússins hófst er Helgi Ívarsson, bóndi í Hólum í Stokks- eyrarhreppi, tók fyrstu skóflustung- una 5. október á liðnu ári, en fullbú- ið á það að afhendast 15. apríl nk. Smíðina hefur annast Smíðandi ehf. Með þessu nýja húsi verður öll að- staða safnanna á Eyrarbakka, Sjó- minjasafns og Byggðasafns, færð til betri vegar. Með stærra húsnæði verður hægt að bæta við sýning- arrými Byggðasafnsins í Húsinu og jafnframt opna sýningar í útihúsunum þar hjá. Fram að þessu hafa söfnin verið á hálfgerð- um hrakhólum með varðveislu þeirra gripa sem þeim hafa áskotn- ast, en nú verður einnig hægt að taka við munum sem gefnir hafa verið en enn eru í varðveislu gef- enda. Í vörslu safnsins eru um 3.000 munir. Forstöðumaður safnsins er Lýður Pálsson. Bætt aðstaða Byggða- safns Árnesinga Eyrarbakki Morgunblaðið/Óskar VILDFRED er tímarit sem gefið er út í Danmörku og er fyrir börn og unglinga. Umfjöllunarefnin eru marg- vísleg en þó er aðallega fengist við umhverfið og nátt- úruna. Ritstjóri Vildfred, Kim Gladstone Herlev, var á Íslandi á dögunum og kom við í Hveragerði. Tilgangur ferðarinnar til landsins var að safna efni í næsta blað, sem á að koma út í apríl. Hugmyndin er sú að danskir nemendur skipuleggi ferð til Íslands og kom Kim hing- að til að hitta íslenska krakka og fá upplýsingar hjá þeim um hvað væri áhugavert á þeirra heimaslóðum, hvað þeir myndu sýna erlendum gestum og hvernig þeir tækju á móti þeim í sinni heimabyggð. Kim valdi Hveragerði því hér höfum við hverina og einnig hafði hann frétt að við skólann tækju nemendur þátt í að vernda náttúruna með ýmsum hætti. Í framhaldi af þessari vinnu ætlar Kim að virkja danska krakka til að skipuleggja ferðir til Danmerkur fyrir t.d. íslenska krakka. Það verður fróðlegt að sjá hvað kemur í aprílblaði Vildfred um Ísland, en vefsíða blaðsins er http://www.vildfred.dk Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir Ása, Sunna, Þórður og Kim. Heimsókn að utan Hveragerði ÆGIR E. Hafberg, forseti Kiwanis- klúbbsins Ölvers í Þorlákshöfn, af- henti á síðasta fundi klúbbsins Hall- dóri Sigurðssyni skólastjóra kr. 100.000 til kaupa á hljómflutnings- tækjum í skólann og Þorvaldi Garð- arssyni, formanni knattspyrnufélags- ins Ægis, kr. 50.000 til styrktar knattspyrnuiðkun í Þorlákshöfn. Einnig voru Íþróttafélagi fatlaðra og SOS-barnaþorpi færðir styrkir að þessu sinni. Þessir styrkir eru hluti af tekjum vegna fjáraflana klúbbsins, en aðal- fjáraflanirnar eru jólatrjáa- og flug- eldasala. Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson Ægir E. Hafberg, forseti Kiwanisklúbbsins Ölvers, afhendir Halldóri Sigurðssyni skólastjóra og Þorvaldi Garðarssyni, formanni Knatt- spyrnufélagsins Ægis, styrki frá klúbbnum. Kiwanisklúbburinn Ölver afhendir styrki Þorlákshöfn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.