Morgunblaðið - 23.02.2002, Síða 29

Morgunblaðið - 23.02.2002, Síða 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 2002 29 debenhams S M Á R A L I N D ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S D EB 1 67 42 02 /2 00 2 flú skilur konur Á konudaginn er tækifærið - segðu það með fallegri gjöf frá Debenhams. Hringdu í okkur í síma 522 8000 og pantaðu gjöf handa ástinni þinni. Frí sendingarþjónusta ásamt fallegri rós á höfuðborgarsvæðinu. Sérvaldir gjafapakkar fyrir hana. Verð frá 4.500 kr. VATN, grjót, hrosshár, útsaumur, skúlptúrar, ljósmyndir og olíumál- verk – allt er þetta eitthvað sem sjón- varpskonan Eva María Jónsdóttir vill sjá á samefndri sýningu sem opnuð verður í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi kl. 15 í dag, laugardag. Gerðuberg hefur staðið fyrir sýning- arröðinni „Þetta vil ég sjá!“ frá árinu 1999, þar sem þekktir einstaklingar af ýmsum sviðum þjóðlífsins eru fengnir til að velja saman verk á myndlistarsýningu eftir eigin smekk og hjartalagi. Þetta vandasama verk- efni kom í hlut Evu Maríu í þetta sinn og segist hún hafa farið í gegnum nokkur heilabrot við samsetningu sýningarinnar. „Ég verð að viður- kenna að fyrst langaði mig til að setja saman heildstæða sýningu, sem hefði í för með sér einhvers konar heildar- hugsun eða þráð sem gengi í gegnum öll verkin. En þegar ég byrjaði að velja, féll ég smám saman frá því, bæði meðvitað og ómeðvitað eftir sem á leið. Því að hugmyndin á bak við sýningarverkefnið er í raun sú að val- ið sé út frá persónulegum sjónarmið- um, og að fólk velji einfaldlega það sem því hefur hugnast í gegnum tíð- ina. Ég held að það sé eina rétta leiðin til að gera þetta, því í raun er maður enginn fagmaður, heldur einfaldlega eins og hver annar myndlistarskoð- andi úti í bæ,“ segir Eva María. „Ég ákvað því að treysta bara á minnið, og velja verk sem ég hafði séð á sýningum eða í heimahúsum, og höfðu lifað með mér alla tíð síðan. Ég fylgdi þó ekki aðeins efsta minnislaginu, heldur reyndi ég að grafast líka fyrir um hvort það væri eitthvað „óþægilegt“ sem ég hafði séð, eitthvað sem hafði stuðað mig og ég e.t.v. reynt að ýta til hliðar.“ Eva María segist þó ekki geta fest fingur á hvers vegna hún hafi valið til- tekin verk, hvaða þýðingu þau hafi í raun haft fyrir hana. „En ég held að það þýði lítið að leita eftir rökréttu samhengi í svona verkefni. Það er dæmt til að verða þversagnarkennt. Þetta er vegna þess að myndlistin, og kannski öll list, er í andstöðu við öll önnur mannanna kerfi og miðlar því sem reynt er að útiloka úr þeim. Það var því ekki fyrr en ég sleppti takinu af hinu vitsmunalega mati, að þetta fór allt að smella saman. Þannig hef ég valið á sýninguna verk sem eiga kannski ekki annað sameiginlegt en að hafa geymst inni í mér.“ Listamennirnir sem Eva María hefur valið verk eftir á sýninguna eru Anna Línadal, Finnbogi Pétursson, Georg Guðni, Guðmunda Andrésdótt- ir, Guðrún Marínósdóttir, Halldór Ásgeirsson, Helgi Þorgils, Hrafnkell Sigurðsson, Húbert Nói, Ilmur Stef- ánsdóttir, Kristinn G. Harðarson, Ólöf Nordal, Ósk Vilhjálmsdóttir, Óskar Jónasson, Páll Guðmundsson, Ragna Sigðurðardóttir, Sigríður Sal- varsdóttir, Úlfur K. Grönvold og Val- garður Gunnarsson. Verkin á sýningunni eru mörg hver ný, önnur eru vel þekkt, en einnig er að finna myndverk sem ekki hafa áð- ur komið fyrir sjónir almennings. „Ef ég ætti að ímynda mér eitthvað sem verkin eiga sameiginlegt, myndi ég nefna einhvers konar samruna andstæðna. Nokkur verk eru uppfull af nokkurs konar dramatísku sak- leysi, þar sem aðferðin er ef til vill hefðbundin en hugsun verksins mjög framsækin. Þá hef ég valið nokkur verk út frá efniviði, en listaverk sem gerð eru úr einhvers konar hárum hafa alla tíð heillað mig gersamlega. Á sýningunni eru einnig nokkur saumaverk, sem einnig hafa í sér þessa mótsögn, og saumaskapurinn er færður út á ystu nöf.“ Eva segir að lokum að sýningin sé háð því mynd- listarlífi sem hún hafi komist yfir að skoða, eða fyrirhitt með öðrum hætti í lífinu. „Sú aðferð að láta minnið ráða hef- ur reynst mér óbrigðul aðferð, því verk sem höfðu virkað sterkt á mig þegar ég sá þau fyrst, héldu áfram að gera það þegar ég skoðaði þau aftur í tengslum við þessa sýningu. Þetta sýningarverkefni Gerðubergs þykir mér mjög skemmtilegt að því leyti að það ögrar þeirri viðteknu afsökun svo margra að þeir hafi ekki vit á mynd- list og fylgist því ekki með henni. En maður þarf ekkert endilega að nota vitsmunina til að njóta myndlistarinn- ar, því þá væri listin bara fyrir sér- fræðinga en ekki okkur sem tilheyr- um hinum stóra hópi forvitinna amatöra,“ segir Eva María. Minnið óbrigðull mælikvarði á myndlist Morgunblaðið/Árni Sæberg Frá sýningunni Þetta vil ég sjá! í Gerðubergi. „ÉG vildi að ég gæti dáðst að ein- hverri einlægni í Sniglaveislunni, nýju leikriti Ólafs Ólafssonar,“ segir gagnrýnandi Financial Times í Lundúnum um sýningu verksins á West End þessa dagana. Gagnrýn- andinn, Alastair Macaulay, segir verkið bæði bitlaust og hægferðugt, og framsetningu á högum og aðstæð- um persónanna svo veikbyggða að erfitt sé að muna eftir verkinu fyrir annað en deyfðina. Macaulay segir David Warner ekki rétta leikarann í aðalhlutverkið og túlkun hans ekki trúverðuga og undrast jafnframt að leikkonan Sorcha Cusack skuli lúta svo lágt að taka að sér svo ófrumlegt og lítið hlutverk. Sniglaveislan Túlkun Warners ekki trúverðug

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.