Morgunblaðið - 23.02.2002, Page 46
MINNINGAR
46 LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Ívar Antonssonfæddist 27. júní
1917 að Fjalli í Kol-
beinsdal. Hann lést á
heimili sínu að kvöldi
14. febrúar síðastlið-
inn. Foreldrar Ívars
voru hjónin Sigur-
jóna Bjarnadóttir, f.
8. júní 1892, d. 4. jan-
úar 1963, og Anton
Gunnlaugsson bóndi,
f. 1. september 1891,
d. 15. maí 1971. Ívar
var næstelstur í tólf
systkina hópi. Systk-
ini Ívars eru Sigur-
laug, f. 6. maí 1916, látin; Halldór
Ingimar, f. 14. maí 1919, lést á öðru
ári; Jónína, f. 16. maí 1920, látin;
Halldór, f. 10. september 1921;
andvana barn, f. 4. júní 1923; Birna
Ósk, f. 27. ágúst 1924, látin; Svava,
f. 4. janúar 1926; Hartmann Krist-
inn, f. 8. september 1927; Lára Jó-
hanna, f. 18. febrúar 1930; Helgi
Gunnlaugur, f. 24. apríl 1931, lát-
inn, og Ásta Guðleif, f. 19. mars
1934, látin. Fjölskyldan flutti á
26. maí 1996. Dætur þeirra eru:
Kristín Sigþrúður, f. 10. nóvember
1968, maki Skúli Skúlason. Þeirra
börn eru Kolbrún Sif og Sigurður
Ívar. Aðalbjörg Jóna, f. 17. október
1969, maki Valur Júlíusson. Þeirra
börn eru Björn Emil, Birta Dröfn
og Rebekka Eva. Hafdís Hrönn, f.
9. október 1971, maki Valdimar
Júlíusson. Þeirra dóttir er Sigrún
Sandra og fyrir á Valdimar Laufey
Rós. Sandra Dröfn, f. 15. mars
1979, d. 13. maí 1996. 3) Anna Sig-
urlaug, f. 20. júní 1955. Hennar
maður er Örn Ingólfsson, f. 24. maí
1953. Börn þeirra eru Ingunn
Berglind, f. 5. mars 1979, Lilja Rut,
f. 24. september 1984, og Ívar Dan,
f. 29. júlí 1991. Fyrir á Anna Auði
Björnsdóttur, f. 17. maí 1974, maki
Stefán Magnússon. Þeirra dóttir er
Anna Thelma.
Ívar bjó í Skagafirði fram til árs-
ins 1943. Þá fluttist hann til
Reykjavíkur og nam þar húsa-
smíði. Árið 1948 fluttu Ívar og
Kristín til Sauðárkróks og bjuggu
þar alla tíð síðan. Á Sauðárkróki
starfaði Ívar sem húsasmiður til
ársins 1966 og síðan sem bréfberi
hjá Pósti og síma á árunum 1966-
1986.
Útför Ívars fer fram frá Sauð-
árkrókskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Molastaði í Fljótum
1923 og á Sviðning í
Kolbeinsdal 1924.
Þegar Ívar var 8 ára
gamall féll snjóflóð að
Sviðningi og fjölskyld-
an var aðskilin. Ívar
fór þá til vandalausra
og bjó við misjöfn kjör.
Hinn 17. maí 1946
kvæntist Ívar eftirlif-
andi eiginkonu sinni,
Kristínu Sigþrúði Sig-
urjónsdóttur, f. á Gili í
Svartárdal 13. ágúst
1915. Hún er dóttir
hjónanna Sigrúnar
Tobíasdóttur, f. 26. ágúst 1877, d.
23. desember 1964, og Sigurjóns
Helgasonar bónda, f. 30. maí 1867,
d. 16. febrúar 1952. Þau bjuggu á
Gili til ársins 1922 en fluttust þá í
Geldingaholt í Seyluhreppi og
bjuggu þar æ síðan. Börn Ívars og
Kristínar eru: 1) Sonur, fæddur
andvana 11. september 1947. 2)
Sigrún Sigurjóna, f. 17. september
1948. Hennar maður var Björn Sig-
urður Ívarsson, f. 9. janúar 1942, d.
Ég held í stóru höndina á afa og
við leiðumst upp á tún að gá að hest-
unum, hann afi tekur hæg stór skref
og ég reyni að telja hvað ég tek mörg
á meðan hann tekur eitt. Frænka
mín er aðeins eldri og hún nær að
taka færri en ég, svo ákveðum við að
hlaupa uppeftir á undan og kalla á
hestana. Hestana sem afa þótti svo
vænt um, og þeim um hann. Hann
þurfti bara að taka upp vasaklútinn
og snýta sér þá komu þeir hlaupandi.
Hann afi tók nefnilega í nefið, það
var svolítið sport að fá eitt korn hjá
afa í nefið. Amma var nú kannski
ekki eins hrifin af því.
Ég á svo óteljandi margar minn-
ingar um þig afi minn, allt sem við
gerðum saman er mér svo dýrmætt,
þegar enginn mátti greiða hárið mitt
nema þú, af því þú greiddir svo var-
lega. Og stundirnar sem við áttum í
eldhúsinu yfir kleinu og mjólk þegar
sjónvarpið var búið á kvöldin, þá
sagðir þú mér sögur.
Eins þegar ég fékk að fara með
þér að bera út póstinn, vera með þér
úti í kjallara að smíða, og uppi í hest-
húsi.
Elsku afi, nú er ég búin að taka í
höndina þína í síðasta sinn, og ég
vildi að stundirnar okkar hefðu get-
að orðið fleiri, en ég veit að þér líður
vel núna. Ég þakka fyrir að hafa
fengið að heyra í þér í vikunni sem
þú fórst, og að þú fékkst að heyra í
henni Önnu Thelmu þinni.
Ljúfar voru stundir
er áttum við saman.
Þakka ber Drottni
allt það gaman.
Skiljast nú leiðir
og farin ert þú.
Við hittast munum aftur,
það er mín trú.
Hvíl þú í friði
í ljósinu bjarta.
Ég kveð þig að sinni
af öllu mínu hjarta.
(M. Jak.)
Ég kveð þig afi minn með þakk-
læti fyrir allt sem þú hefur gert fyrir
mig í lífinu og bið góðan guð að
geyma þig.
Elsku amma mín megi guð gefa
þér styrk.
Auður.
Kæri afi. Nú er barátta þín á enda
og þú hefur hlotið hvíldina. Margar
minningar leita á hugann við að-
stæður sem þessar. Minningin um
hlýjan og góðan afa, afa sem vildi allt
fyrir okkur gera og sýndi okkur
ávallt traust og skilning. Ein fyrsta
minningin um þig er tengd starfinu.
Þú varst lengi bréfberi á Sauðár-
króki og þannig getur maður alltaf
kynnt sig, Ívar póstur er afi minn.
Þá vita allir á Króknum hverra
manna maður er. Þú varst alltaf jafn
glæsilegur í búningnum sem til-
heyrði starfinu, þá var ekki borið út í
gallabuxum og úlpu; nei, það var ein-
kennisbúningur, þar sem allar töl-
urnar voru með merki Pósts og
síma. Þetta fannst okkur systrum
flott, þetta sáum við hvergi annars-
staðar. Ég var ekki há í loftinu þegar
ég fékk að fara með þér að bera út.
Það var nú ekki ónýtt. Stundum
fannst mér þó burðurinn ekki ganga
nógu hratt. Kannski var það af því að
sumstaðar í bænum var boðið upp á
kaffibolla og smá spjall. Samt
laukstu alltaf við þitt og lengst af
varst þú einn í þessu starfi á Sauð-
árkróki. Eftir að þú hættir var bréf-
berum fjölgað í bænum og enginn
var í búningi. Tímarnir breyttust.
Þitt kærasta áhugamál voru hest-
arnir. Það var oft mikill spenningur
sem fylgdi því að koma á Krókinn og
athuga hvort maður kæmist á bak.
Mest langaði mig á bak á hestinn
þinn, hann Sokka, en hann var
kannski aðeins of viljugur fyrir okk-
ur sem litla reynslu höfðum af hesta-
mennsku. En þannig vildir þú hafa
það, þú tamdir gjarnan sjálfur og
vildir gjarnan hafa þína hesta dálítið
viljuga. Við systur fengum því að
fara á bak á Gránu og Blakk, meðan
þeirra naut við. Við erum líka minn-
ugar þess þegar við reyndum að
komast í hóp hestamanna með því að
fara á reiðnámskeið. Við áttum að
koma með hest og nú voru góð ráð
dýr. Þó að afi ætti hesta, þá voru þeir
ekki í Hofsósi en okkur fannst ekki
saka að ræða þetta við afa. Stuttu
áður en námskeiðið hófst kom afi
ríðandi út í Hofsós á Grána. Það var
auðsótt að fá lánaðan hest, þrátt fyr-
ir að afi kynni best við að hugsa um
sín hross sjálfur.
Það var fleira upp við hesthús
heldur en hestarnir. Þar voru líka
nokkrar kindur. Ekki margar en það
var gaman að gefa þeim og það var
líka gaman á vorin þegar lömbin
komu í heiminn. Svona var það og
mér fannst þetta allt vera eins og
það átti að vera. En einn góðan veð-
urdag jókst skilningur minn á þess-
um búskap. Mér fannst þetta vera
ansi fáar rollur. Bara Lagðsíð,
Tinna, Kolla og Mjallhvít og svo
náttúrulega Hrússi. Og þá áttaði ég
mig á því að þetta voru kindurnar
okkar systra og Önnu frænku. Afi
átti engar sjálfur. Hann vissi bara að
við myndum hafa gaman af þessum
búskap.
Dýrahaldinu fylgdi líka vinna. Á
sumrin var heyjað uppi á Nöfunum
og víðar. Amma tók til nesti og vett-
linga, ég átti að raka með henni. Afi
sló með orfi og ljá lengst af. Á kvöld-
in var brýnt á hverfissteini. Mig
langaði líka til að prófa það, afa
fannst það ekki fyrir börn, svo við
urðum ásátt um að ég fengi að prófa
að stíga hverfissteininn án þess að
hafa ljáinn. Það var gott að vera á
Króknum. Þar var margt við að vera.
Stutt að hlaupa upp á melinn og tína
gleym-mér-ey, sóleyjar, fjólur og
fleiri blóm. Afi setti upp rólu fyrir
okkur vestan megin og byggði síðar
lítið hús handa okkur. Á sumrin var
gjarnan farið í útilegur, ýmist
Hringinn eða annað. Það er margs
að minnast, kæri afi. Nú, þegar kem-
ur að kveðjustund líða minningarm-
ar í gegnum huga minn. Þær eru
ómetanlegar. Mig langar til að
þakka þér samfylgdina og líka alla
umhyggjuna og kærleikann sem þú
hefur sýnt mér og fjölskyldu minni.
Elsku amma. Þú hefur alla tíð staðið
eins og klettur við hlið afa. Hann
hefur ávallt getað sótt styrk sinn til
þín. Ég dáist að dugnaði þínum og
elju við umönnun hans.
Kristín.
Stundin líður, tíminn tekur
toll af öllu hér
sviplegt brotthvarf söknuð vekur
sorg í hjarta mér.
Þó veitir yl í veröld kaldri
vermir ætíð mig
að hafa þó á unga aldri
eignast vin sem þig.
Þú varst ljós á villuvegi,
viti á minni leið
þú varst skin á dökkum degi
dagleið þín var greið.
þú barst tryggð í traustri hendi
tárin straukst af kinn
þér ég mínar þakkir sendi
þú varst afi minn.
(Hákon Aðalsteinsson.)
Um leið og ég sest niður til að
skrifa kveðjuorð mín til þín, hrann-
ast upp hinar ýmsu minningar, hvort
heldur sem er úr æsku minni þegar
við systur vorum að koma með
pabba og mömmu eða frá seinni ár-
um þegar ég var að koma með fjöl-
skyldu mína. Það er mér ógleyman-
legt að í huga mínum var ég ekki
komin á Krókinn fyrr en ég var kom-
in inn í hús hjá þér og ömmu. Alltaf
var jafn spennandi að fá að koma
með þér í póstinn, og eins að huga að
skepnunum, þá var nú gott að geta
krækt í brauðenda hjá henni ömmu
til að gefa hestunum. Nokkrar
myndir koma upp í hugann, eins og
áhuginn og viljinn hjá okkur systr-
um að komast á hestbak en með mig
sannaðist að kjarkurinn var jafnlítill
og viljinn var stór og þetta endaði
með því að ég „lét pabba fara á hest-
bak fyrir mig“, þá hef ég grun um að
einhverjum hafi verið skemmt. Eins
er ofarlega í huga mínum minningin
um það sem ég óttaðist mest á
Króknum hjá ykkur ömmu, en það
var hinn ógurlegi „kompukarl“ en
hann birtist mér einu sinni með ann-
an sér til aðstoðar, og þá varð hún
Bogga litla skelfingu lostin. Eftir
stendur minningin um skemmtileg-
an og vel heppnaðan hrekk sem oft
er búið að hlæja dátt yfir síðan, þó að
ég hafi ekki enn þann dag í dag feng-
ið staðfestingu á því hverjir það voru
sem báru gervin svona vel. Þú og
pabbi tókuð með ykkur svarið við því
og á meðan halda amma og mamma
því út af fyrir sig vel geymdu. Já,
þær eru margar minningarnar og
ótal margar væri hægt að telja upp,
aldrei var það svo að ekki væri ein-
hverju gaukað að okkur og síðar
okkar börnum, og þess ævinlega
gætt að gera aldrei upp á milli okk-
ar.
Nú þegar komið er að kveðju-
stund vil ég þakka fyrir allar góðu
minningarnar sem þú hefur gefið
mér og áhugann sem þú ávallt sýnd-
ir mér og mínum. Þú kvaddir okkur
eftir að hafa fengið notið einstakrar
umönnunar hjá henni ömmu sem
stóð sig betur en margar helmingi
yngri konur hefðu gert, nú á hún um
sárt að binda en hún eins og ég veit
að það var tekið á móti þér með út-
breidda faðma og nú líður þér vel hjá
henni Söndru okkar og pabba ásamt
öðrum ástvinum.
Elsku amma mín, ég vil votta þér,
mömmu, Önnu og öðrum mína
dýpstu samúð.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfin úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Guð veri með ykkur,
Aðalbjörg Jóna (Bogga).
Elsku afi. Nú þegar þú ert farinn
reikar hugurinn aftur og ég hugsa
um allar þær góðu stundir sem við
höfum átt saman. Það var alltaf svo
gott að koma til ykkar ömmu á
Krókinn. Þú hafðir gaman af að fá
gesti og tókst okkur ætíð fagnandi.
Þú mundir vel gamla tíma og sagðir
okkur ósjaldan sögur frá þínum
yngri árum.
Hestamennskan átti hug þinn all-
an og ósjaldan fengum við að fylgja
þér ýmist í hesthúsin, upp á tún eða
á hestasýningar. Eftir að ég kom á
Krókinn í skóla urðu samverustund-
irnar fleiri. Þá var ýmislegt rætt og
yfirleitt fannstu út sniðugu hliðarnar
á málunum. Stundum gengum við
saman niður í bæ og hvert sem við
komum var þér alltaf tekið fagnandi.
Ég trúi því að á nýjum stað verði þér
líka tekið fagnandi.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibj. Sig.)
Elsku amma. Megi góður guð
styrkja þig í sorginni.
Ykkar
Ingunn Berglind.
ÍVAR
ANTONSSON
! "
$
79 :*
#
$
%
&'
(
) '
"
" !
% $ #
;4
;$
$
( <<+'
% *"&#&
* +
+
-
../
"#
< ! ! ;%&'
;% = ;1# !
> "! ;1# &'
$ !!
# # ;1# !
;1# ;1# !
!
#
+
0
'0'
+
+
1
1
5 *
)9 0
?
79 %
/8' " "-
2 "
" 0 !3 ! +,-(&
" ! +,-(&