Morgunblaðið - 24.02.2002, Síða 28

Morgunblaðið - 24.02.2002, Síða 28
LISTIR 28 SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ LEIKFÉLAG Akureyrar hefur unnið ötullega að því síðustu fimm árin að halda verkum Jökuls Jakobs- sonar á loft. Það hefur sýnt Hart í bak (1997), Klukkustrengi (1999) og nú tekur það Gullbrúðkaup til sýn- inga. Einþáttungur þessi sver sig í ætt við önnur verk Jökuls frá sama tíma, sem fjölluðu um fátækt fólk sem bjó í niðurníddum húsum í vest- urbæ Reykjavíkur. Hæst þeirra ber Hart í bak, sem sló í gegn 1962 og gerði Jökul að vinsælasta leikskáldi þjóðarinnar. Meðal annarra má nefna Sjóleiðina til Bagdad (1965) og sjónvarpsleikritið Romm handa Rósalind (1968). Persónur sem eru hnignar á efri ár í þessum verkum eiga það sammerkt að vera fórnarlömb kringumstæðna sem þær megna ekki að rísa gegn. Úrsérgengin húsin eru tákn um betri tíma, vonir fólksins sem í ungdæmi sínu átti sér stóra drauma en hefur orðið fyrir sárum vonbrigðum með hvernig rættist úr lífinu. Yngra fólkið vill umfram allt, ef það hefur nokkra möguleika til þess, komast burt, gjarnan í ný blokkarhverfi sem voru að byggjast upp á þessum tíma utan marka gamla bæjarins. Annarra íbúa í hverfinu er gjarnan getið í texta – þannig gengur Sigurlaug á fjórtán t.d. aftur í mörgum þessara verka. Þessi verk eiga það svo sameiginlegt með þeim verkum Jökuls sem gerast á heimilum betri borgara, Sumrinu ’37 (1968), Dómínó (1972) og Klukku- strengjum (1973), að yfir grúfir þessi alltumfaðmandi þrá eftir því liðna, eftir því sem aldrei varð og því sem aldrei gat orðið. Þessar vangaveltur urðu Jökli yrkisefni alla tíð, jafnt í nær öllum leikverkum hans sem í af- ar vinsælum útvarpsþáttum þar sem hann gekk um götur bæjarins hverja af annarri með fólki sem rifjaði upp ljúfsárar minningar um fjölskyldu sína og nágranna frá uppvaxtarárun- um. Gömlu hjónin í Gullbrúðkaupi gætu alveg verið aukapersónur í Hart í bak, settar til hliðar frá aðal- leikritinu, einangraðar í íbúð sinni. Gamla konan, Guðbjörg, hefur vegna veikinda verið rúmföst á þriðja ár. Eiginmaður hennar, Ananías, annast um hana, en þau drepa tímann með því að kýtast um hvað sem ber á góma. Þess á milli mókir Guðbjörg í rúmi sínu en Ananías veltir fyrir sér skák sem hann hefur um langan ald- ur teflt við uppeldisbróður sinn í Vesturheimi. Inn í þennan heim stöðnunar kemur leigjandinn á loft- inu, Ólafur að nafni, með lítið erindi. Seinna bætist kærasta hans, Helga, í hópinn. Þarna rekast á andstæður, ung hjón sem við blasir björt framtíð í líki fokheldrar blokkaríbúðar í Vog- unum. Þau virða missamúðarfull fyr- ir sér eymd gömlu hjónanna án þess að renna í grun að fyrir þeim sjálfum gætu legið svipuð örlög. Þessi lýsing hljómar ef til vill ekki mjög uppörvandi fyrir verðandi leik- húsgesti en snilldin í þessu verki fellst einmitt úr því að gera úr þess- um efnivið bráðfyndinn gullmola. Hér er samhentur hópur sem skiptir með sér verkum. Skúli Gauta- son leikstýrir verkinu og sér um leik- mynd og búninga með Þráni Karls- syni. Þráinn og Saga Jónsdóttir leika gömlu hjónin og Aðalsteinn Bergdal og María Pálsdóttir unga kærustu- parið. Að sýningunni óséðri mætti ætla að margt gæti staðið henni fyrir þrifum. Þetta er einþáttungur sem hefur ekki áður verið látinn standa einn og sér sem leiksýning á sviði, auk þess sem hann hefur ekki verið leikinn í meira en aldarþriðjung; Skúli Gautason hefur þrátt fyrir víð- tæka reynslu sem leikstjóri í áhuga- leikfélögum lítið fengist við að leik- stýra á atvinnuleiksviði; og leikar- arnir leika ýmist upp- eða niðurfyrir sig í aldri, t.d. er aldursmunur á Sögu, sem leikur gömlu konuna, og Aðalsteini, sem leikur unga manninn, aðeins rúmt ár. Ætla mætti að leik- mynd og búningar yrðu samtínings- legri en ella en ef vanir hönnuðir hefðu verið fengnir til verka. En allt þetta reynast ástæðulausar áhyggjur þegar leikurinn er hafinn. Leikmynd og búningar eru nostur- samlega valin og hvert smáatriði út- hugsað. Leikmyndin var svo fjöl- skrúðug og trúverðug að það var stórgaman að virða hana fyrir sér í sýningarlok og velta fyrir sér hverj- um hlut. Búningar og gervi voru einnig afar vel unnin. Saga Jónsdótt- ir og Þráinn eru stórskemmtileg sem gömlu hjónin og hvert atriði í sam- skiptum þeirra, hvert augnablik, þaulunnið. Aðalsteinn er greinilega enginn táningur en gervið og lát- bragðið og samleikurinn við Maríu gera þau trúverðug sem ungt par að hefja sambúð með seinni skipunum. Stutt atriði þegar Þráinn og María gantast með möguleg samskipti seinna meir er alveg framúrskarandi. Styrkleiki sýningarinnar felst í því hve kímni höfundar kemst vel til skila. Þessi þáttur verður bráðfynd- inn í meðförum hópsins og gamanið felst ekki í sniðugum tilsvörum held- ur í persónusköpuninni og fáránleg- um aðstæðunum. Samskipti hjón- anna, sem tala stöðugt um sín hugð- arefni en skeyta lítt um að hlusta hvort á annað, minna í aðra röndina á verk Harold Pinters. Jökull notaði svipað stílbragð oft í verkum sínum, en hér tekst sérstaklega vel að ná fram þessari blöndu af ljúfsárum trega og fyndnum aðstæðum sem einkenna hans vinsælustu verk. Morgunblaðið/Kristján „Saga Jónsdóttir og Þráinn Karlsson eru stórskemmtileg sem gömlu hjónin,“ segir Sveinn Haraldsson m.a. í þessari umsögn um sýninguna. Leikskáld hinnar ljúfsáru kímni LEIKLIST Leikfélag Akureyrar í Græna hattinum Höfundur: Jökull Jakobsson. Leikstjóri: Skúli Gautason. Leikmynd og búningar: Skúli Gautason og Þráinn Karlsson. Lýs- ing: Ingvar Björnsson. Hljóð: Gunnar Sig- urbjörnsson. Leikgervi, förðun og hár: Linda B. Óladóttir og Halldóra Vébjörns- dóttir. Leikarar: Aðalsteinn Bergdal, María Pálsdóttir, Saga Jónsdóttir og Þrá- inn Karlsson. Fimmtudagur 21. febrúar. GULLBRÚÐKAUP Sveinn Haraldsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.