Morgunblaðið - 24.02.2002, Síða 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2002 29
Höfum lækkað enn meira
Allt að
70%
afsláttur
Þú getur gert góð kaup
á þessari útsölu...
...enn er mikið til af vönduðum og
spennandi vörum á miklum afslætti.
...ekki missa af þessu
eva
Laugavegi 91,
2. hæð, sími 562 0625
ÚTSÖLULOK
í dag
Opið kl. 1-5
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Aðeins 20 sæti í boði
Síðustu sætin til
Prag
frá kr. 19.900
10. mars
Verð kr. 19.900
Flugsæti til Prag, út 10. mars, heim
14. mars.
Almennt verð kr. 20.895.
Skattar kr. 3.550, ekki innifaldir.
Verð kr. 3.900
Verð fyrir mann, m.v. 2 í herbergi,
Quality, per nótt með morgunmat.
Völ um góð 3ja og 4 stjörnu hótel.
Ferðir til og frá flugvelli, kr. 1.800.
Heimsferðir bjóða nú einstakt tilboð til Prag
þann 10. mars í 4 nætur, en nú getur þú kynnst
þessari einstöku borg á ótrúlegu tilboðsverði. Þú
bókar flugsæti á aðeins 19.900 kr. og getur valið
um góð hótel Heimsferða í hjarta Prag. Og að
sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu Heims-
ferða í Prag allan tímann.
E f t i r t a l d i r s t a n d a a ð F l u g s k ó l a Í s l a n d s
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
02
Upprifjunarnámskeið
fyrir flugkennara
Skv. JAR-FCL 1.355
Flugkennari/flugvél FI(A) – framlenging og endurnýjun
2. tölul. a-liðar AMC FCL 1.355
Upprifjunarnámskeið fyrir flugkennara FI(A) verður haldið hjá Flugskóla
Íslands hf. dagana 15.-16. mars nk.* Kennt verður föstudaginn 15. mars
frá kl. 1900-2130 og laugardaginn 16. mars frá kl. 1000-1500.
Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar n.k.
Skráning og allar nánari upplýsingar
í síma 530 5100 og/eða á www.flugskoli.is
* Námskeiðið verður haldið með fyrirvara um næga þátttöku
ÆTLI Baz Luhrman hafi séð sýn-
ingar Verzlunarskólans áður en
hann réðst í að gera Moulin rouge?
Hugmyndin er alltént sú sama, að
safna saman vinsælum popplögum
og þræða þau eins og glerperlur upp
á einfaldan söguþráð og krydda síð-
an með gríni og dansi. Slappaðu af
sver sig í þessa ætt, enda lítil ástæða
til að hringla með formúlu sem virk-
ar.
Að þessu sinni er það gömul soul-
tónlist sem er lögð til grundvallar,
og sögusviðið sjöundi áratugurinn,
kalda stríðið og önnur umbrot þess
tíma. Í ágætu handriti Felix Bergs-
sonar er þungamiðjan minni sem
kenna má við Rómeó og Júlíu.
Drengur úr röðum vinstrisinna og
unnusta foringja hægrimanna verða
ástfangin og þurfa að yfirstíga jafnt
eigin hindranir og utanaðkomandi
áður en þau geta fallist endanlega í
faðma í lokin. Raunar eru það ekki
andstæður kommúnisma og kapítal-
isma sem mynda mestu spennuna í
verkinu, þær deilur hljóma dálítið
eins og þras aðdáenda Liverpool og
Manchester United, Duran Duran
og Wham! Frelsisbarátta kvenna
reynist miklu sterkari spennugjafi í
sýningunni, enda er þar eitthvað
áþreifanlegt í húfi fyrir alla aðila.
Slappaðu af er, eins og Verslinga
er von og vísa, mikið og skrautlegt
sjónar- og heyrnarspil. Ekkert hef-
ur verið til sparað til að gera hana
glæsilega úr garði. Að vanda eru
tónlistar- og dansatriði óaðfinnan-
lega útfærð. Raunar held ég að
dansnúmerin hér séu
þroskaðra verk en
undanfarið, þeim er
oftar gert að fleyta
sögunni áfram, og eru
sjaldnar eingöngu inn-
antóm sýning á fimi
dansaranna. Númerið
á heimili hægriforingj-
ans þar sem hann
reynir að fá kærustuna
til að slappa af í kyn-
hlutverki sínu er dæmi
um þetta, frábær lítill
leikþáttur. Hins vegar
þykir mér ekki hafa
tekist nógu vel að
græða lögin inn í flétt-
una, of mörg þeirra
virðast bara koma þegar tíminn kall-
ar á næsta lag. Í góðum söngleik
þurfa persónurnar að bresta í söng
af tjáningarþörf þegar hversdags-
legt talað mál dugar ekki til. Þetta
tekst stundum í Slappaðu af, en ekki
nógu oft.
Leikmynd Sigurðar Keiser er af-
burðasnjöll, einföld og nýtist til að
skapa ótrúlega fjölbreyttan bak-
grunn, hráslagalega bragga jafnt
sem Hótel Borg í sparifötunum. En
ljósadýrðin sem Sigurður varpar á
myndina og leikhópinn keyrir stund-
um fram úr tilgangi sínum og fer að
virka truflandi. Það er jú fyrst og
síðast fólkið á sviðinu sem við höfum
áhuga á.
Gunnar Hrafn Gunnarsson og
María Þórðardóttir í hlutverkum
elskendanna Kjartans og Tinnu eru
prýðileg bæði til leiks og söngs. Af
öðrum eftirminnilegum verður að
nefna Andreu Ídu Jónsdóttur sem
var unaðsleg í skemmtilegu hlut-
verki brjáluðu eldhúsvísindakon-
unnar Evu og Jón
Ragnar Jónsson sem
var eins og ofvaxinn
fermingardrengur sem
hægriforinginn og kom
því heldur betur á
óvart þegar hann
reyndist vera fremstur
meðal jafningja í soul-
söng. Hægristelpna-
gerið, vinstristúlkna-
fylkingin og hinar ráð-
villtu löggur voru líka
skemmtilegir hópar. Í
heild tekst leikhópnum
vel að skila sögunni
þótt erfiður hljómburð-
ur stóra sviðsins og of-
virknislegur leikstíllinn
sem Gunnar Helgason hefur lagt
upp með hafi verið farinn að taka
sinn toll af raddböndunum hjá sum-
um. Þessi ýkjustíll og létt stílfærðar
hreyfingar hjálpa þó lítt vönum leik-
urunum að ná tilætluðum áhrifum
án þess að þurfa að kafa dýpra í per-
sónur sínar.
Hröð leikaravelta er eitt helsta
einkenni framhaldsskólaleikfélaga.
Það hvað gæðin haldast jöfn og góð
hjá þeim fremstu þeirra sýnir mátt
hefðarinnar og hvert metnaður
studdur hæfilegri samkeppnistil-
finningu getur leitt. Nemendamóts-
sýning Verzlunarskólans í ár er
hefðinni trú, jafnt að efnistökum,
gæðum og skemmtilegheitum. Til
hamingju.
Máttur hefðarinnar
LEIKLIST
Nemendamót Verzlunarskóla
Íslands
Höfundur: Felix Bergsson. Leikstjóri:
Gunnar Helgason. Danshöfundur: Guð-
finna Björnsdóttir. Tónlistarstjóri: Jón
Ólafsson. Leikmynd og lýsing: Sigurður
Keiser. Borgarleikhúsinu mánudaginn
18. febrúar.
SLAPPAÐU AF!
Þorgeir Tryggvason
Felix Bergsson