Morgunblaðið - 24.02.2002, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 24.02.2002, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2002 47 ÁN ÞESS að leggja sig mikið fram, er í rauninni afar auð-velt að komast að þeirri niðurstöðu, að fréttir af opinberulífi á Íslandi séu í ætt við skopleik. Ef ekki farsa. Og af þvíað ég er oftar en ekki, sem betur fer, áhorfandi að þessumgamanleik öllum, þá er mér stundum skemmt, alveg kon- unglega, enda þótt þeir sem eru inni á senunni, geri sér enga grein fyrir skemmtanagildinu. Satt að segja, þvert á móti, eru þeir fullir ábyrgðar, alvöru og hátíðleika, sem gerir atburðarásina jafnvel ennþá hlægilegri. Svo ég taki nú nokkur dæmi úr þessum skopleik: Fyrsti þáttur: Nú er verið að setja saman framboðslista vítt og breitt um landið fyrir komandi sveitarstjórn- arkosningar og er það ekki dásamlega fyndið, hvað margar persónur í því leikriti, taka það al- varlega, hvort þær skipi sæti á listunum eða þá hitt, sem er mun dramatiskara, að þær séu ekki með á listunum. Menn halda jafnvel blaðamanna- fundi til að tilkynna að þeir gefi ekki kost á sér, (nema þá í sérstök sæti) og til eru þeir sem hóta sérframboðum, ef þeim líka ekki niðurstöður úr skoðanakönnunum eða prófkjörum. Móðgast út í kjósendur, móðgast út í samstarfsmenn, móðgast jafnvel fyrir hönd embættis síns, þótt þeir segist ekki vera móðgaðir sjálfir. Forseti Alþingis vítti þingmann fyrir ámælisverð ummæli í sinn garð, þótt hann hafi ekki móðgast sjálfur, heldur forseti þingsins, sem er hann sjálfur. Svo erum við að gera grín að Hinrik blessuðum Danaprins, fyrir að hafa móðgast af því að hann er ekki lengur númer tvö í drottningarveisl- unum! Annar þáttur: Landssíminn (fyr- irtæki í almannaeign) ræður sér forstjóra og semur við hann til fimm ára, enda þótt fyrir liggi að það eigi að selja fyrirtækið innan nokkurra mán- aða frá ráðningunni. Tveimur árum síðar er forstjóranum sagt upp, vegna svokallaðs trúnaðarbrests, þótt ekki sé ennþá upplýst út á hvað sá trúnaðarbrestur gengur. Forstjórinn fékk 37 milljónir króna fyrir trúnaðarbrestinn, sem hann sjálfur var sagður eiga sök á. Það var ekki að heyra að neinum þætti þetta óeðlilegt til að byrja með. Stjórn- arformaðurinn yppti öxlum, ráðherrarnir ypptu öxlum og umræðan gekk eiginlega út á það eitt, hvort forstjórinn héldi bílnum! Satt að segja var það ekki út af almenningsáliti eða fjölmiðlafári, sem spilaborgin hrundi. Ástæðan var aðallega sú að matadorarnir við háborðið héldu áfram að rífast hver við annan. Og svo tekur glöggur blaðamaður sig til og rekur í nokkuð sann- sögulegu ljósi, hvernig stjórnarmenn Landssímans (og forstjórinn) bröskuðu með almannafé upp á fjögur eða fimm hundruð milljónir, með þeim árangri að þær milljónir allar eru foknar út um gluggann. Voru plataðir upp úr skónum. Voru féflettir á annarra manna kostn- að, með annarra manna fé. Og enn var yppt öxlum. Rétt eins og það sé meðfæddur kækur að lyfta öxlum, þegar mikið liggur við. Enda skylt að taka fram að þessar fjárfestingar í spilavíti erlendra draum- óramanna, áttu engan þátt í brottrekstri forstjórans. Svoleiðis bommertur koma því ekkert við hvort menn séu ráðnir eða reknir. Enda áttu þeir ekki peningana sjálfir, sem þeir spekúleruðu með. Það fyndnasta við alla þessa ábyrgð eða ábyrgðarleysi er samt það, að það tekur enginn ábyrgð á þessu ábyrgðarleysi. Sennilega af því upphæðirnar eru nógu háar! Það eru hinsvegar minni málin sem kalla á ábyrgð. Voru þeir ekki, bankastjórarnir í Landsbankanum forðum, svældir úr starfinu, þegar upp komst að þeir höfðu farið í of marga lax- veiðitúra? Var ekki Árni Johnsen bannfærður fyrir að segja ósatt um kantsteina og dúka? Var ekki skúringakonan í ráðuneytinu rekin, þegar hún var staðin að því að misnota símann í leyfisleysi? Eða stráknum sparkað sem fékk sér kók í sjoppunni, án þess að borga fyrir það? Þetta eru stóru málin sem varða þyngstri refsingu. Þriðji þáttur: Prófessor í Háskólanum sendir frá sér pantaða skoð- un, um að auðlindagjald á útgerðina minnki skatttekjur ríkisins, dragi jafnvel úr hagvexti, stríði gegn þjóðarhagsmunum. Þótt allt þetta stangist á við einföldustu rök og útreikninga. Gert í nafni fræðanna og vísindanna og ef ekki Háskólans sjálfs, þá hagfræðistofnunar á hans vegum. Hvað fær maðurinn borgað fyrir svona álit? Getur maður farið fram á pantaða niðurstöðu ofan úr Háskóla eða getur LÍÚ pantað slíkt sérfræðiálit, með því skilyrði að reikningurinn verði ekki borgaður nema niðurstaðan sé rétt? Ég get ekki betur séð af þessum þremur atriðum skopleiksins, en að íslenskt þjóðfélag sé nægtabrunnur fyrir hvern þann gaman- leikritahöfund, sem vill skrifa um veruleikann, eins og hann kemur fyrir sjónir í allri sinni alvöru, í allri sinni nekt, í allri sinni ýktu mynd. Frambjóðandinn, forstjórinn, prófessorinn, jafnvel Hinrik prins, svo ekki sé talað um hina ósýnilegu hönd ábyrgðarinnar, eru persónur sem standa á sviðinu og leika sitt hlutverk af munni fram, án þess að þeim sé lagt eitt einasta orð í munn. Þeir eru allir ekta, þessir leikarar og þetta svið og þessi kómedía og hvers vegna ætti þá þjóðin að gera veður út af því þótt Hinrik sér sár út af prótókol eða forstjórinn fái borgaðar sínar þrjátíu og sjö milljónir (og bílinn) eða prófessorinn hafi skoðanir gegn greiðslu eða frambjóðandinn telji ómaklega að sér vegið, þegar hann fær ekki sætið sem hann á skilið? Enda gerir þetta engum mein, nema þeim sjálfum, sem bera alla ábyrgðina og alvöruna og afleiðingarnar og við hin eigum ekki að erfa það við þá fáu, sem nenna að taka sig hátíðlega, þótt enginn annar geri það. Þeir gefa lífinu lit og okkur hinum tilefni til að brosa út í ann- að eða bæði, þegar öll þessi alvara er annars vegar. Lengi lifi alvaran. Lengi lifi alvaran HUGSAÐ UPPHÁTT Eftir Ellert B. Schram ebs@isholf.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.