Morgunblaðið - 24.02.2002, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 24.02.2002, Qupperneq 50
50 SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ÉG TEK ofan fyrir þeim blöðum sem opna síður sínar fyrir aðsendum greinum og les- endabréfum. Greinar og bréf hljóta síðan að vera á ábyrgð höfunda. Þess vegna gagnrýni ég ekki Morgun- blaðið fyrir að birta lesendabréf sl. fimmtudag frá Guðmundi Helgasyni, sem segist vera nemi í fjölmiðlun í Kan- ada. Í bréfi sínu til Morgunblaðsins fjallar Guðmundur um undirritaðan og gerir upp skoðanir og afstöðu sem eiga sér enga stoð í raunveruleikan- um. Í því sambandi er vísað í um- ræðu um aðskiljanleg mál, Miðaust- urlönd, lög um refsingar og brottkast á sjó. Ástæðan fyrir því að ég skrifa þessar línur er þó ekki að amast við útúrsnúningum heldur fyrst og fremst að mótmæla því að innan gæsalappa séu sett ummæli sem ég hef aldrei viðhaft. Hér er gengið lengra en að snúa út úr orð- um manna því hér er um að ræða hreina fölsun. Ég vona að Guðmund- ur eigi eftir að temja sér vönduð vinnubrögð þegar hann fer að prakt- ísera fjölmiðlafræði sín og óska ég honum velfarnaðar í framtíðinni. ÖGMUNDUR JÓNASSON, alþingismaður og formaður BSRB. Athugasemd Frá Ögmundi Jónassyni: Ögmundur Jónasson TILEFNI greinarinnar er sú um- ræða sem skapast hefur í kringum 12 ára dóminn yfir e-pillu smygl- aranum. Hefur borið á gagnrýni og menn skipst á skoðunum um ráðstafanir í þessum málum. Burðardýrin svokölluðu hafa verið mikið í umræðunni. Borið hefur á gagnrýni að það sé ekki sanngjarnt að maður fái 12 ára fangelsi fyrir að flytja inn ein- hverjar pillur þegar tæplega 5 ára fangelsi er dæmt fyrir hrottalega nauðgun. Hér skal ekkert sagt um réttmæti síðastnefnda dómsins en staðreyndin er sú að þetta eru ekki alveg sambærilegir brota- flokkar og verða að skoðast sjálf- stætt hver fyrir sig. Refsiákvæði fíkniefnalaga vernda heilsu almennings og þjóð- inni sem heild stafar ógn af þess- um vágesti. Fíkniefnabrot eru hagnaðarbrot, vonin um fjárhags- legan ávinning rekur menn áfram í þessum viðskiptum og fíkniefna- braskarar græða á heilsu og ör- yggi þjóðarinnar, sem er grafal- varlegur glæpur í rétti allra þjóða. Refsiákvæði fíkniefnalaga eru byggð upp þannig að það er refsi- vert að hafa undir höndum fíkni- efni þótt ekkert tjón hafi hlotist af. Þetta eru menn sammála um að sé besta leiðin til að koma í veg fyrir að efnin fari í umferð í þjóðfélag- inu. Þessa staðreynd þekkja skipu- leggjendur fíkniefnainnflutnings mæta vel og fá þess vegna aðra til að flytja efnin inn fyrir sig og höndla með þau gegn ríkulegri borgun. Þetta fyrirkomulag hefur óhjákvæmilega fylgifiska í för með sér en það að ætla sér að taka vægar á þætti burðardýrsins er beinlínis fáránlegt ef menn hugsa þetta í víðara samhengi og myndi eingöngu auðvelda viðskiptin og auka umfang þeirra. Þær röksemdir eru færðar fram að viðkomandi „burðardýr“ séu á einhvern hátt „veikari“ fyrir en aðrir menn, hafi hvorki sjálfstæða hugsun né vilja og standi illa í þjóðfélaginu. Högum þeirra sem fremja afbrot er misjafnlega hátt- að í þessum brotaflokki jafnt sem öðrum. Það býður hættunni heim að hrófla við þeirri meginreglu að menn sem fremja refsiverðan verknað eigi að bera refsiábyrgð á verkum sínum. „Burðardýrin“ vita oftast nákvæmlega hvað þau eru að gera og láta hagnaðarhvöt ráða ferðinni á sama hátt og höfuðpaur- arnir. Breyting þarna myndi skaða varnaðarkraft refsilaganna. Á þessu stigi er ekki pláss fyrir mannúðarsjónarmið, of mikið er í húfi fyrir þjóðina. Með sterkum skilaboðum um að innflutningur fíkniefna og hvers kyns meðhöndlun þeirra varði mikilli refsingu munu „höfuðpaur- arnir“ fara að hugsa sig tvisvar um og sífellt erfiðara verður að fá „burðardýr“ til starfa. Meðhöndla á neytendur í land- inu með viðeigandi hætti áður en þeir leiðast út á glæpabrautina með t.d. meðferð og forvörnum. Samfara þessu á að styrkja lög- gæsluna í landinu og reyna að uppræta þessa skipulögðu glæpa- starfsemi sem hreiðrað hefur um sig í þjóðfélaginu. Borið hefur á hugmyndum um lögleiðingu fíkni- efna. Þær hugmyndir eru óljósar og ég held að enginn viti hvað ver- ið er að ræða um í raun og veru. Hafi einhver boðlega lausn, skora ég á hann að koma fram með hana. Dómur héraðsdóms í þessu máli er síst af öllu of þungur. Alvarleiki brotsins endurspeglast í því að dómstólar fullnýta refsirammann í þessum brotaflokki og skila þannig hörðum skilaboðum út í samfélag- ið. E-pillukallinn má þakka fyrir að hann var ekki handtekinn í Banda- ríkjunum! GUÐMUNDUR ÞÓR BJARNASON, Bjarnastígur 9, 101 Reykjavík. Sanngirni? Frá Guðmundi Þór Bjarnasyni, nemanda í lögræði við Háskóla Íslands:
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.