Morgunblaðið - 24.02.2002, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
f
í
t
o
n
/
s
í
a
www.bi.is
Þú fellur
aldrei á tíma
í útgjaldadreifingu Búnaðarbankans
FRAMKVÆMDASTJÓRAR nokk-
urra af stærstu lífeyrissjóðum
landsins áttu í viðræðum við danska
fjarskiptafyrirtækið TDC, áður
TeleDanmark, um hugsanleg kaup
á Landssíma Íslands samhliða því
sem einkavæðingarnefnd stóð í við-
ræðum við TDC um sölu á 25% hlut
í Símanum. Frosti Bergsson, stjórn-
arformaður Opinna kerfa hf., átti
einnig í viðræðum við TDC um
hugsanlegt samstarf fyrirtækjanna
og fleiri fjárfesta um kaup á Síman-
um. Deilur um verð áttu stærstan
þátt í að ekki tókust samningar.
Í nóvember á síðasta ári átti
fulltrúi TDC frumkvæði að því að fá
framkvæmdastjóra nokkurra af
stærstu lífeyrissjóðum landsins til
fundar við sig þar sem rætt var um
hugsanlegt samstarf um kaup á
stórum hlut í Landssímanum. Full-
trúar TDC létu það koma fram í
viðræðum við einkavæðingarnefnd
að þeir hugsuðu sér að eiga sam-
starf við lífeyrissjóðina um kaupin.
Aldrei reyndi hins vegar alvarlega á
vilja lífeyrissjóðanna til að taka þátt
í þessu samstarfi vegna þess að
ágreiningur var á milli TDC og
einkavæðingarnefndar um verðið á
Landssímanum. Nefndin vildi selja
á genginu 5,75 en verðhugmyndir
TDC voru á bilinu 5-5,25.
Ekki „bindandi tilboð“
Frosti Bergsson var einnig í við-
ræðum við TDC, bandaríska fjár-
festingasjóðinn Providence, lífeyris-
sjóði og fleiri fagfjárfesta um að
skapa viðskiptablokk sem keypti
stóran hlut í Landssímanum. Hug-
myndir voru reifaðar um að slík
blokk keypti 51% hlut, en þær kom-
ust aldrei á það stig að formlegar
viðræður hæfust um kaup á þessum
grunni.
Fjármálaeftirlitinu hafa borist at-
hugasemdir við fréttatilkynningu
einkavæðingarnefndar frá 8. desem-
ber sl., en fyrirsögn hennar er
„Bindandi tilboð í Landssíma Ís-
lands hf.“. Í tilkynningunni sjálfri er
raunar talað um „óbindandi tilboð“,
en ýmsir virðast engu að síður hafa
skilið tilkynninguna á þann veg að
bindandi tilboð hefðu borist í
Landssímann. Í kjölfarið áttu sér
stað viðskipti með hlutabréf í fyr-
irtækinu á genginu 6,3. Síðustu við-
skipti sem áttu sér stað með bréf í
Símanum í þessari viku voru á
genginu 5,15.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins barst aldrei neitt bindandi
tilboð frá TDC í Símann. Fyrirtæk-
ið lýsti sig hins vegar tilbúið að
ræða áfram við einkavæðingarnefnd
um kaup á 25% hlut í Símanum á
tilteknum forsendum.
Búist er við að það skýrist í
næstu viku hvort viðræðum við
TDC verður haldið áfram. Einka-
væðingarnefnd hefur fengið fyrir-
spurnir frá fleiri aðilum sem sýnt
hafa áhuga á að taka upp viðræður
um sölu Landssímans. Ekki liggur
fyrir hvort formlegar viðræður
verða teknar upp við slíka aðila.
A.m.k. er ljóst að það verður ekki
gert fyrr en viðræðum við TDC hef-
ur formlega verið slitið.
TDC vildi kaupa Símann
með lífeyrissjóðunum
Baráttan/10–14
ÍSLENSK kona hefur kært fyrr-
verandi eiginmann sinn og barns-
föður fyrir frelsissviptingu dóttur
þeirra. Málsatvik eru þau að dótt-
irin fór með föður sínum í sumarfrí
til Egyptalands. Þar tók hann af
henni vegabréf hennar og önnur
skilríki og sagði henni að framveg-
is yrði hún búsett hjá sér í Egypta-
landi.
Dótturinni tókst að ná sambandi
við móður sína sem kom til
Egyptalands skömmu síðar og
reyndi að tala um fyrir fyrrverandi
eiginmanni sínum. Þær viðræður
báru ekki árangur.
Flúðu frá Egyptalandi
Eftir umsvifamikla eftirgrennsl-
an kom í ljós að réttur hennar sem
móður var enginn í Egyptalandi.
Greip hún því til þess úrræðis að
fara aftur til Egyptalands og flýja
með dóttur sína úr landi og heim til
Íslands. Flóttaáætlunin tókst og
eru þær mæðgur nú búsettar á Ís-
landi, en atburðirnir áttu sér stað
síðastliðið haust.
Fyrrverandi eiginmaður
kærður fyrir frelsissviptingu
Rænd frelsinu/B1
UNNIÐ er að gerð þjónustusamn-
ings milli heilbrigðis- og trygginga-
ráðuneytisins og SÁÁ og er hann á
lokastigi, en í Morgunblaðinu á
föstudag var skýrt frá því að biðlist-
ar eftir sjúkradvöl á Vogi hafi lengst
verulega undanfarin tvö ár.
Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og
tryggingaráðherra, sagði að lengi
hefði verið unnið að þjónustusamn-
ingi hvað þetta snerti. Hann væri
eiginlega á lokastigi og hann vonað-
ist til að næðist saman. Ljóst sé að
það þýði eitthvað meiri fjármuni í
þessum efnum, en það sé ekki þar
með sagt að SÁÁ fái allt sem það
þurfi eða vilji.
„Ég vona að við náum þessu sam-
an og við erum að skoða nokkur at-
riði varðandi það. Það hefur miðað
undanfarið,“ sagði Jón Kristjánsson
ennfremur.
Unnið að
gerð þjón-
ustusamn-
ings við SÁÁ
ÁHÖFN þyrlu Landhelgisgæslunn-
ar, TF-SIF, bjargaði þremur skip-
verjum úr sjónum eftir að netabátur
sökk um 10 sjómílur undan Þrí-
dröngum í gærmorgun. Eftir því
sem best var vitað voru fjórir um
borð í bátnum og er því eins þeirra
saknað. Einn þeirra sem náðist um
borð í þyrluna lést áður en hann
komst á sjúkrahús. Samkvæmt upp-
lýsingum frá heilsugæslunni í Vest-
mannaeyjum voru hinir tveir við
nokkuð góða heilsu.
Þegar TF-SIF kom á slysstað
héngu tveir skipverjar í henglum
gúmmíbjörgunarbáts sem virðist
hafa skemmst þegar báturinn sökk.
Einn skipverjanna svamlaði um í
sjónum en ekkert sást til þess fjórða.
Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti
með þremenningana í Vestmanna-
eyjum skömmu fyrir klukkan 14.00
og hélt þegar aftur til leitar. Tvö
varðskip, björgunarskip, Herjólfur
og önnur skip sem voru nálæg héldu
áfram leit ásamt flugvél Flugmála-
stjórnar og Orion-flugvél frá Kefla-
víkurflugvelli. Þá var þyrla frá varn-
arliðinu á leið til leitar frá Keflavík.
Skv. upplýsingum frá Tilkynn-
ingaskyldunni tilkynnti báturinn sig
úr höfn í Vestmannaeyjum um
klukkan hálfníu í gærmorgun og var
þá á leið til Grindavíkur. Um klukk-
an 10.45 datt hann út úr sjálfvirku
tilkynningaskyldunni en þá var bát-
urinn staddur um 10 sjómílur vestan
við Þrídranga. Á svipuðum tíma
heyrði nærstatt varðskip stutt,
óskýrt neyðarkall í talstöðvum á svo-
kölluðum vinnurásum, en ekki á
neyðarrás.
Talið er að báturinn hafi verið
sokkinn fyrir klukkan 11.10. Að sögn
varðstjóra í stjórnstöð Landhelgis-
gæslunnar heyrði nærstatt varðskip
stutt, óskýrt neyðarkall skömmu
fyrir kl. 11. Barst kallið á svonefndri
vinnurás en ekki á neyðarrás sjófar-
enda. Heyrðist kallið svo ógreinilega
að skipverjar á varðskipinu voru
ekki vissir um að um neyðarkall
hefði verið að ræða. Engu að síður
hóf varðskipið þegar eftirgrennslan
ásamt öðru varðskipi sem var statt
þar skammt frá.
Tilkynningaskyldan var látin vita
og tók nokkurn tíma að finna út frá
hvaða báti neyðarkallið gæti hafa
borist. Um klukkan 12 var ljóst um
hvaða bát var að ræða en ekkert tal-
stöðvarsamband náðist við hann.
Um leið var þyrla Landhelgisgæsl-
unnar kölluð út og einnig flugvél
Flugmálastjórnar og Orion-flugvél
varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli,
sem var á flugi vestur af landinu.
Björgunarskipin Oddur V. Gíslason
og Þór héldu þegar úr höfn frá
Grindavík og Vestmannaeyjum og
nálægir bátar voru beðnir um að
halda á svæðið þar sem síðast spurð-
ist til bátsins. Vindur stóð af norð-
austri um eða yfir 20 m/sek. þegar
báturinn sökk og talsvert frost.
Leit stóð enn yfir þegar Morgun-
blaðið fór í prentun síðdegis í gær.
Tveimur bjargað, eins
saknað og einn látinn
eftir að netabátur sökk
Varðskip heyrði
stutt, óskýrt
neyðarkall
UNGVIÐIÐ lét ekki veðurhaminn á
föstudaginn aftra sér frá útivist og
leikjum. Stelpunum fannst hress-
andi að renna sér á sleða á Skipa-
skaga enda vel klæddar og hraust-
legar.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Sleðaferð í þorralok