Morgunblaðið - 28.02.2002, Side 4

Morgunblaðið - 28.02.2002, Side 4
FRÉTTIR 4 FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ MIKLAR breytingar hafa orðið á öryggisumhverfi Íslands í kjölfar hryðjuverkaárásanna í Bandaríkj- unum og hafa nýjar kringumstæð- ur vakið upp spurningar um fyr- irkomulag varnarsamstarfs Íslands og Bandaríkjanna. Hugsanlegt er að yfirstjórn Atlantshafsherstjórn- ar Bandaríkjanna (ACLANT), sem varnarliðið í Keflavík heyrir undir, verði flutt til Evrópu. Þetta kom fram í erindi Halldórs Ásgrímsson utanríkisráðherra flutti um breytt- ar aðstæður í öryggis- og varn- armálum í Viðskiptaháskólanum á Bifröst í gær. ,,Í kjölfar 11. september hefur þeirrar þróunar orðið vart sem kann að hafa áhrif á stöðu Íslands, en það er sú stefna Bandaríkja- stjórnar að leggja meiri áherslu en fyrr á svonefndar heimavarnir. Hugsanlegt er að tillögur sem nú eru uppi á borðum í Bandaríkj- unum um nauðsynlegar breytingar heima fyrir gætu falið í sér að yf- irstjórn Atlantshafsherstjórnar Bandaríkjanna færist til Evrópu frá Norfolk. Á þessu stigi er engan veginn ljóst hvaða áhrif þetta kann að hafa á herstjórnarkerfi NATO og stöðu Íslands. Við fylgjumst grannt með þessari þróun og tök- um virkan þátt í stefnumótun þar um innan bandalagsins,“ sagði Halldór m.a. í erindi sínu. Leiði ekki til vaxandi einangr- unar Íslands í öryggismálum Utanríkisráðherra sagði Ísland ætíð hafa kappkostað að þurfa ekki að velja á milli Evrópu og Norður- Ameríku í öryggis- og varnarsam- starfi. Gæta verði þess að sú þróun sem á sér stað vestan hafs og aust- an leiði ekki til vaxandi einangr- unar Íslands í öryggis- og varn- armálum. ,,Við verðum því að halda vöku okkar og gæta hagsmuna okkar innan NATO og í samstarfi okkar við ESB,“ sagði Halldór. ,,Nýjar kringumstæður hafa eðli- lega vakið upp ýmsar spurningar um fyrirkomulag varnarsamstarfs Íslands og Bandaríkjanna. Íslensk stjórnvöld hafa eðlilega þurft að horfast í augu við nýjan veruleika í þessum efnum sem öðrum. Sú ógn sem af hryðjuverkastarfsemi stafar sýnir svo ekki verður um villst mikilvægi varnarsamstarfsins við Bandaríkin. Hér á landi verður að vera til staðar viðbúnaður til að takast á við ógnir hvort sem er af hafi eða úr lofti,“ sagði hann. Halldór rifjaði upp að skv. bók- unum sem íslensk og bandarísk stjórnvöld undirrituðu 1994 og 1996 hefði orðið allmikil fækkun í liðsstyrk Bandaríkjanna hér á landi. ,,Eins og staðan er í dag tel ég að hér á landi sé nauðsynlegur lágmarksbúnaður til landvarna og á það hvort sem er um loftvarnir eða varnir gegn ógn sem kæmi sjó- leiðina. Við leggjum höfuðáherslu á að hér séu viðunandi loftvarnir enda hefur 11. september fært okkur heim sanninn um algjörlega nýjan veruleika hvað það varðar að geta brugðist við ógn úr lofti. Á ári hverju fara um 90.000 flugvélar um íslenska flugstjórnarsvæðið. Að sjálfsögðu lítum við ekki á það sem ógnun við öryggi okkar en við verðum að líta til allra átta, ekki síst þegar kemur að hryðjuverka- starfsemi og hafa varann á. Rík- isstjórnin sér því engar efnislegar ástæður til og hefur engin áform þess efnis að óska eftir breytingum á þeim varnarviðbúnaði sem er hér á landi. Við teljum trúverðugar varnir nauðsynlegar og munum áfram taka mið af því grundvall- aratriði í mótun stefnunnar í ör- yggis- og varnarmálum,“ sagði Halldór. Takmarkaður aðgangur Íslands að samráði á vettvangi ESB-ríkja Í erindi sínu fjallaði utanríkis- ráðherra í ítarlegu máli um breytta heimsmynd og þróun Evrópumál- anna og sagði að óbreyttu stefna í að Ísland verði eitt þriggja evr- ópskra NATO-ríkja utan ESB sem telji innan skamms 25–30 aðild- arríki. ,,Evrópusambandið hefur mótað og er að efla eigin stefnu í varnar- og öryggismálum sem m.a. byggist á aðgangi ESB að liðsafla og búnaði NATO. Aðgangur Ís- lands að samráði ESB er enn tak- markaðri en aðgangur að undir- búningi ákvarðana um málefni innri markaðarins á vettvangi EES. Þótt NATO verði áfram hornsteinn sameiginlegra varna að- ildarríkja, varðar hinn nýi vett- vangur hagsmuni Íslands án þess að við getum verið þar virkir þátt- takendur,“ sagði hann. Utanríkisráðherra segir nýjar aðstæður vekja spurningar um stöðu Íslands í öryggis- og varnarmálum Hugsanlegt að yfir- stjórn varnarliðsins færist til Evrópu RÚMLEGA 55% Íslendinga eru hlynnt byggingu álvers Reyðaráls samkvæmt nýrri könnun sem Gallup framkvæmdi fyrir Reyðarál. 25% svarenda voru andvíg byggingu ál- versins og 20% voru hvorki hlynnt né andvíg. Langflestir, eða rúmlega 71% aðspurðra, nefndu atvinnu- möguleika eða atvinnusköpun sem það jákvæðasta að sínu mati við byggingu álversins. Í könnuninni, sem gerð var í lok janúar/byrjun febrúar, var spurt: Ert þú hlynnt(ur) eða andvíg(ur) byggingu álvers við Reyðarfjörð? Reyndust 32% svarenda mjög hlynnt byggingu álversins, 23,3% voru frek- ar hlynnt byggingu álversins en 20,1% var hvorki hlynnt né andvígt byggingu álversins. Hins vegar reyndust 10,7% vera frekar andvíg og 13,9% mjög andvíg. Karlar voru hlynntari byggingu álversins en konur og stuðningur við byggingu þess var meiri á lands- byggðinni en í Reykjavík. Mestur var stuðningur við byggingu álvers- ins í aldurshópnum 45–54 ára og meðal fólks með framhaldsskólapróf. Þá reyndust kjósendur Framsókn- arflokksins hlynntastir byggingu ál- vers Reyðaráls, eða sem nemur 4,3 á skalanum 1–5, þar sem 5 táknar „mjög hlynntur“ en 1 táknar „mjög andvígur“. Stuðningur sjálfstæðis- manna mældist 3,9 á sama skala, stuðningur Samfylkingar 3,2 og stuðningur Vinstri grænna 2,7 – sem verður að teljast almennt jákvæðari afstaða en hefði mátt vænta miðað við afstöðu einstakra forystumanna og talsmanna flokksins í þessum málaflokki. Úrtakið í könnuninni var 1.200 manns, sem fengið var með slembi- úrtaki úr þjóðskrá, og var svarhlut- fall 69,4%, þ.e. 801 svaraði. 55% Íslend- inga hlynnt byggingu álvers í Reyðarfirði árið 1995 þegar afar sjaldgæft var orðið að finna smit. Þorsteinn segir venjulega ganga greitt að með- höndla sjúkdóminn. „Frá því að vera dauðlegur og alvarlegur sjúk- dómur hafa berklar breyst í að vera nokkuð auðveldir að ráða við, sér- staklega þegar staðan er ekki erfið í sambandi við lyfþol, eins og raun- in er til dæmis í Eystrasaltslönd- unum. Það þekkist reyndar í öllum heimsálfum þannig að við getum ekki vænst þess að sleppa heldur hljótum við að fá þannig tilfelli fyrr eða síðar.“ ári og þau geta verið ýmist smit- andi eða ekki. Lungnaberklarnir eru oft smitandi og þá þarf að hefta útbreiðslu smitsins. Það er nokkuð sem verður að gera fljótt þannig að við drifum í því að prófa krakkana.“ Hann segir ekki fyrirhugað að prófa börn á fleiri leikskólum eða aðra hópa í þessu sambandi. „Ekki eins og sakir standa. Það þarf fyrst að koma í ljós hvað kemur út úr prófunum, en endanlega vitum við það ekki fyrr en eftir þrjá daga, þ.e.a.s. á föstudaginn. Niðurstöð- urnar gefa okkur svo vísbendingu UM hundrað börn á einum leik- skóla Reykjavík voru berklaprófuð í fyrradag vegna gruns um smit. Að sögn Þorsteins Blöndal, yfirlæknis lungna- og berklavarnadeildar Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur, hefur að minnsta kosti eitt barn af leikskólanum greinst með smitandi berkla. „Við prófuðum börnin á einum leikskóla borgarinnar á þriðjudag eins og vaninn er þegar kemur upp tilfelli sem við höldum að hafi verið smitandi,“ segir Þorsteinn. „Það greinast í kringum 12–15 tilfelli á um hversu virkt þetta smit hefur verið.“ Að sögn Þorsteins fæst venjulega vísbending um virkni smits úr innsta hring sjúklingsins. „Ef mað- ur finnur ekkert í innsta hringnum er ekki ástæða til að leita víðar, en þarna var ástæða til þess að gera það. Það voru óvenjulega margir undir í þessu tilfelli þar sem ómögulegt var að greina hverjir á leikskólanum höfðu verið í nánu sambandi við viðkomandi.“ Reglubundin berklapróf á börn- um hófust árið 1935 en voru lögð af Grunur um berklasmit á leikskóla í Reykjavík STÓRVIRKAR vinnuvélar hafa að undanförnu unnið að grjótnámi á Malarrifi á Snæfellsnesi, innan þjóðgarðssvæðisins á utanverðu nesinu. Núttúruvernd ríkisins hefur veitt fullt leyfi til þessara fram- kvæmda og eru þær undir eft- irliti þess skv. upplýsingum Guð- bjargar Gunnarsdóttur þjóðgarðsvarðar. „Þetta er gert með okkar leyfi. Það er verið að lengja hafn- argarðinn á Arnarstapa og þeir fengu að taka grjót á Malarrifi. Þetta er allt undir eftirliti. Efnistökunni á að ljúka fljót- lega og þeir munu síðan ganga vel frá svæðinu og ætla jafnframt á móti að lagfæra fyrir okkur vegi og gamalt jarðrask á Mal- arrifi,“ sagði hún.Morgunblaðið/Friðþjófur Grjót- nám á Malarrifi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.