Morgunblaðið - 28.02.2002, Síða 43

Morgunblaðið - 28.02.2002, Síða 43
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2002 43 Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa kl. 14–17 í neðri safnaðarsal. Sönghóp- ur undir stjórn organista. Fræðslukvöld kl. 20 í safnaðarheimilinu. Fjallað um bók Esekíel spámanns og upphaf gyð- ingdóms. Bústaðakirkja. Foreldramorgunn kl. 10–12. Dómkirkjan. Opið hús í safnaðarheim- ilinu kl. 14–16. Kaffi og með því á vægu verði. Ýmsar uppákomur. Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Léttur málsverður í safnaðarheimili eftir stundina. Háteigskirkja. Foreldramorgunn kl. 10. Stúlknakór kl. 16.30 fyrir stúlkur fæddar 1989 og eldri. Stjórnandi Birna Björns- dóttir. Íhugun kl. 19. Taizé–messa kl. 20. Langholtskirkja. Foreldra– og barna- morgunn kl. 10–12. fræðsla, upplestur, söngstund, kaffispjall. Endurminninga- fundur í Guðbrandsstofu kl. 14–15.30. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45–7.05. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Orgeltónlist í kirkjunni kl. 12–12.10. Að stundinni lokinni er málsverður í safnaðarheimili. Samvera eldri borgara kl. 14. Heimsókn frá Heilsugæslunni Lágmúla. Steinunn Kristinsdóttir, hjúkr- unarforstjóri, vitjar okkar og ræðir um beinþynningu. Þjónustuhópur Laugar- neskirkju, kirkjuvörður og sóknarprestur annast alla móttöku og stjórnun. Allt eldra fólk velkomið. Alfanámskeið kl. 19–22. Kennarar Ragnar Snær Karls- son, Nína Dóra Pétursdóttir og sr. Bjarni Karlsson. Neskirkja. Nedó kl. 17. Unglingaklúbbur fyrir Dómkirkju og Neskirkju fyrir 8. bekk. Nedó kl. 20 fyrir 9. bekk og eldri. Um- sjón Sveinn og Þorvaldur. Félagstarf aldraðra laugardaginn 2. mars kl. 14:00. Sr. Björn Jónsson, fyrrverandi prófastur á Akranesi, kemur í heimsókn. Borinn verður fram léttur málsverðu. Þeir sem ætla að neyta matarins þurfa að tilkynnna þátttöku sína í síma 511 1560. Allir velkomnir. Sr. Frank M. Hall- dórsson. Árbæjarkirkja. Barnakóraæfing kl. 17– 18. Breiðholtskirkja. Biblíulestrar kl. 20– 22. Námskeið á vegum Reykjavíkurpró- fastsdæmis og leikmannaskóla þjóð- kirkjunnar. Á námskeiðinu verður leitast við að draga fram nokkra áhersluþætti í siðfræðiboðskap Jesú sem þessar hug- myndir höfða bæði réttilega til og annað sem er rangtúlkað. Farið verður í valda texta úr Nt og m.a. tekin fyrir stef úr fjall- ræðunni og dæmisögum Jesú. Fyrirles- ari er dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, hér- aðsprestur í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra. Á eftir fyrirlestrinum er boðið upp á umræður yfir kaffibolla. Mömmumorg- unn föstudag kl. 10–12. Digraneskirkja. Kirkjustarf aldraðra. Leikfimi ÍAK kl. 11.15. Bænastund kl. 12.10. Fyrirbænaefnum má koma til kirkjuvarða. Léttur hádegisverður eftir stundina. Alfanámskeið kl. 19. Kvöld- verður, fræðsla, umræðuhópur. Fræðsluefni: Læknar guð nú á dögum? Kennari sr. Magnús B. Björnsson. Fella- og Hólakirkja. Helgistund og bibl- íulestur í Gerðubergi kl. 10.30–12 í um- sjón Lilju, djákna. Starf fyrir 9–10 ára stúlkur kl. 17. Grafarvogskirkja. Foreldramorgnar kl. 10–12. Fræðandi og skemmtilegar sam- verustundir og ýmiss konar fyrirlestrar. Alltaf heitt á könnunni, djús og brauð fyr- ir börnin. Kirkjukrakkar í Húsaskóla fyrir 7–9 ára börn kl. 17.30–18.30. Æsku- lýðsfélag í Grafarvogskirkju fyrir 8.–9. bekk kl. 20–22. Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar kl. 16.30. Alfanámskeið kl. 20. Kópavogskirkja. Starf með eldri borg- urum í dag kl. 14.30–16.30 í safnaðar- heimilinu Borgum. Kyrrðar– og bæna- stund kl. 17. Fyrirbænaefnum má koma til sóknarprests eða kirkjuvarðar. Seljakirkja. KFUM fundur fyrir stráka á aldrinum 9–12 ára kl. 16.30. Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund kl. 21. Tónlist, ritningarlestur, hugleið- ing og bæn. Bænarefnum má koma til presta kirkjunnar og djákna. Hressing í safnaðarheimilinu eftir stundina. Biblíu- lestrarnir sem verið hafa kl. 20 falla nið- ur en bent er á Alfanámskeiðið á mið- vikudögum. Prestarnir. Fríkirkjan í Hafnarfirði. TTT–starf fyrir 10–12 ára kl. 17–18.30. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safn- aðarheimili Strandbergs, kl. 10–12. Op- ið hús fyrir 8–9 ára börn í safnaðarheim- ilinu Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl. 17–18.30. Víðistaðakirkja. Barnastarf fyrir 10–12 ára börn (TTT) í dag kl 17:00. Foreldrast- und kl. 13–15. Kjörið tækifæri fyrir heimavinnandi foreldra með ung börn að koma saman og eiga skemmtilega sam- veru í safnaðarheimili kirkjunnar. Þorlákskirkja. Biblíupælingar í kvöld kl. 20. Landakirkja: Kl. 10 foreldramorgunn. Þriggjamínútnapistill í umsjá móður. Kl. 14.20 æfingar hjá Litlum lærisveinum, 1. hópi. Kl. 17.10 æfing hjá Litlum læri- sveinum, 2. hópi. Kl. 18.15 æfing hjá Litlum lærisveinum, 3. hópi. Áríðandi að allir kórfélagar mæti. Keflavíkurkirkja. Fermingarundirbúning- ur í kirkjunni kl. 14.30–15.10, 8. MK í Heiðarskóla, kl. 15.15–15.55, 8. SV í Heiðarskóla. Ytri-Njarðvíkurkirkja. Fyrirbænasam- vera fimmtudag kl. 19. Fyrirbænaefnum er hægt að koma áleiðis að morgni fimmtudagsins milli kl. 10 og 12 í síma 421-5013. Spilakvöld aldraðra í kvöld kl. 20. Njarðvíkurkirkja (Innri–Njarðvík). Sunnudagaskóli sunnudag kl. 11. Hvalsneskirkja. Miðhús: Helgistund í dag kl. 12. Boðið upp á hádegismat gegn vægu gjaldi. Allir velkomnir. Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir velkomnir. Akureyrarkirkja. Kyrrðar– og fyrirbæna- stund kl. 12. Bænaefnum má koma til prestanna. Eftir stundina er hægt að kaupa léttan hádegisverð sem Kven- félag kirkjunnar annast í Safnaðarheim- ili. Skráning er hafin fyrir næsta hjóna- námskeið sem verður 13. mars. Sími 462-7700 fh. Glerárkirkja. Opið hús fyrir foreldra og börn kl. 10–11. Ath. Æfing barnakórs kl. 17.30. Hjálpræðisherinn, Akureyri. Kl. 17 krakkaklúbbur fyrir 8–9 ára. Kl. 19.30 söngæfing. Kl. 20.30 unglingasamvera. Torfastaðakirkja, Biskupstungum. Bænastund verður föstudaginn 1. mars kl. 21 á alþjóðlegum bænadegi kvenna. Konur leiða samveruna. Sóknarprestur. Safnaðarstarf ALÞJÓÐLEGUR bænadagur kvenna er haldinn hátíðlegur föstu- daginn 1. mars nk. um allan heim. Hann var fyrst haldinn árið 1887 eða fyrir 114 árum síðan. Árið 1936 tóku konur í 50 löndum þátt í bænadeginum. Árið 1957 voru þátttökulöndin orðin 145 og 15 ár- um síðar kallaði bænadagurinn kon- ur frá 150 löndum saman til bæna. Eins og allir dagar hefst alþjóð- legur bænadagur kvenna við dags- mörkin í Kyrrahafi og hann er fyrst haldinn á Tongaeyjum, Fiji og Nýja- Sjálandi. Um leið og dagsljósið berst frá austri til vesturs umhverf- is hnöttinn taka stöðugt nýir hópar í borgum, sveitum og þorpum undir lofgjörð og bæn, uns dagur er að kvöldi kominn eftir u.þ.b. 40 klukkustundir, þegar sólin hnígur til viðar við St. Lawrence-eyjarnar við strendur Alaska, um 50 km frá heimskautsbaugnum. Samkomurnar eru haldnar í heimahúsum, undir berum himni, í litlum kirkjum og stórum dóm- kirkjum og í alls konar veðráttu. Litlir hópar hafa tekið þátt í bæna- deginum í flugvélum, járnbraut- arlestum og á skipum. Sömu ritn- ingarkaflarnir eru lesnir í Tonga og Tanganyika, Pakistan og Pennsylv- aníu og bænir og lofgjörðir sem eru að mestu leyti samhljóða eru bornar fram á næstum því 100 tungu- málum. Bænadagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur á Íslandi í mörg ár eða allt frá því 1964. Á Akureyri er stöðugt að bætast í hóp þeirra kvenna sem taka þátt í að undirbúa daginn. Nú eru það konur úr öllum kristnum söfnuðum sem á Akureyri eru sem standa að baki bænadeginum þ.e. frá Aðvent- kirkjunni, Akureyrarkirkju, Gler- árkirkju, Hjálpræðishernum, Hvíta- sunnukirkjunni, Kaþólska söfnuðinum, KFUK, Kristniboðs- félagi kvenna og Sjónarhæðarsöfn- uðinum. Mikil eining er um að sam- einast í því að halda daginn hátíðlegan. Eins og áður sagði er alþjóðlegi bænadagurinn haldinn hátíðlegur á Akureyri í Glerárkirkju að þessu sinni og hefst kl. 20. Áherslan er á bæn og lofgjörðarsöng. Allir í Eyjafirði eru eindregið hvattir til að fjölmenna. Sérstök bæn er að þessu sinni fyrir konum í Rúmeníu sem orðið hafa að þola áratuga harðstjórn og guðleysi og eiga sér því sársaukafulla fortíð. Alþjóðlegur bænadagur kvenna í Selfosskirkju SAMEINUMST í morgunbænum föstudaginn 1. mars kl. 10 í Selfoss- kirkju. Það verða bænastundir um allan heim þennan dag, í 150 lönd- um á yfir 100 tungumálum, frá sól- arupprás á eyjunum í Kyrrahafi – þar til dagurinn sem guð gaf okkur er að kvöldi kominn á ísiþöktum ströndum Alaska. Að þessu sinni kemur efnið frá Rúmeníu og verður tekið við sam- skotum, það er fyrir Biblíu handa götubörnum í Rúmeníu, en Hið ís- lenska Biblíufélag stendur fyrir söfnuninni. Að alþjóðlegum bænadegi kvenna á Íslandi standa: Aðventkirkjan, Fríkirkjan í Reykjavík, Hjálpræð- isherinn, Hvítasunnukirkjan, Ís- lenska Kristskirkjan, Kaþólska kirkjan, KFUM, Kristniboðsfélag kvenna og Þjóðkirkjan. Dómkirkjan – Ljós í myrkri Í KVÖLD, fimmtudaginn 28. febr- úar, verður samkoma í Dómkirkj- unni. Dr. Sigurbjörn Einarsson biskup flytur erindi, „Ljós í myrkri“, og Ingimar Erlendur Sigurðsson rit- höfundur flytur frumsamin ljóð. Dómkórinn syngur undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar dómorg- anista. Flutt verða verk eftir C. Franck, Hjálmar H. Ragnarsson, P. Eben, A. Bruckner, Þorkel Sig- urbjörnsson og Palestrina. Sesselja Kristjánsdóttir mezzosópran syng- ur einsöng. Prestar kirkjunnar ann- ast kynningu og fyrirbæn. Samkoman er í tengslum við há- tíð Reykjavíkurborgar, Ljós í myrkri. Hefst hún kl. 20.30 og eru allir hjartanlega velkomnir. Dómkirkjan. Alþjóðlegur bænadagur kvenna á Akureyri Glerárkirkja á Akureyri. KIRKJUSTARF Elsku Raggi minn. Mér fannst ég verða að skrifa nokkrar línur til að kveðja þig. Ég fékk þessar sorg- legu fréttir að þú værir fallinn frá, ég vildi ekki trúa því, ég var nýbúin að hitta þig og þú leist svo vel út og framtíðin virtist blasa við þér, en vegir guðs eru óútreiknan- legir. Við kynntumst þegar við vorum að glíma við mjög erfitt afl í lífi okkar, sjúkdóminn alkóhólisma, við vorum bæði virk og ég var alein og átti í engin hús að venda, þá komst þú eins og engill af himni ofan og studdir mig og skaust yfir mig húsaskjóli. Við tengdumst sterkum vináttu- böndum sem ég mun aldrei gleyma. Það var svo óvenjulegt að kynnast svona góðum og traustvekjandi dreng eins og þú varst í þeim heimi sem við lifðum í. Mér finnst yndislegt að þú hafir fengið að vera edrú þessa síðustu mánuði í lífi þínu og ég trúi því að Guð hafi ætlað þér eitthvert merk- ara hlutverk með því að kalla þig til sín. Megi Guð veita fjölskyldu þinni og vinum styrk á þessari kveðjustund. RAGNAR JÓNSSON ✝ Ragnar Jónssonfæddist í Reykja- vík 12. febrúar 1975. Hann varð bráð- kvaddur á heimili sínu 10. febrúar síð- astliðinn og fór útför hans fram frá Fíla- delfíukirkju 22. febr- úar. Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt, og vit til að greina þar á milli. Þín vinkona Benedikta. Elsku Raggi, ég trúi ekki að þú sért farinn. Ég sakna þín svo mikið. Manstu allar þær stundir sem við áttum þegar við vorum uppí koti? Þú þráðir svo að vera edrú og þér tókst það. Það er svo skrítið að þú sért dáinn, þegar ég frétti að þú værir dáinn vildi ég ekki trúa því en jú þetta var staðreynd sem ég verð að sætta mig við. En þú ert hjá Guði núna á svo miklu betri stað. Ég var alltaf á leiðinni að heimsækja þig, en tíminn var of stuttur. Ég féll á tíma, en ég veit að þegar ég kem líka þá verða miklir endurfundir. Ég á aldr- ei eftir að gleyma þér. Þegar ég hitti þig þá gastu alltaf sent sólargeisla kærleikans til mín. Það eru margir sem sakna þín sárt og þar er ég með. Ég vildi svo mikið að við hefðum hist oftar en við gerðum, en nú er ekkert við því að gera. Það var yndislegt að sjá breytingarnar á þér og þær voru ekkert litlar. Það sannar sig aftur og aftur að þeir deyja ungir sem Guðirnir elska og þú varst svo mikill vitnisburður fyrir Guð. Þín vinkona Jenný Bára. Segið það sólinni blómunum fuglunum vindurinn heillast og hvíslar: Enn finn ég ilm þinn hríslast um vitund mína og fölnuð haustblöðin fokin burt (Hólmfríður Sigurðardóttir.) Elsku Leó. Þú kvaddir þennan heim laugardaginn 2. febrúar sl. Nú ertu kominn í annan heim, heim þar sem þú leikur þér frír og frjáls inn- an um öll englabörnin. Þú varst alltaf okkar engill, jákvæður og brosmildur. Það var bjart í kringum þig og þú sýndir öllu mikinn áhuga, varst yndislegur nemandi þessi ár sem við fengum að hafa þig hjá okk- ur. Þú byrjaðir árið 1995, tveggja ára, að koma í skólann, í nokkra tíma á viku, þá heillaðir þú alla í LEÓ BALDVINSSON ✝ Leó Baldvinssonfæddist í Reykja- vík 19. nóvember 1993. Hann lést á Landspítala í Foss- vogi 2. febrúar síð- astliðinn og fór útför hans fram frá Sauð- árkrókskirkju 9. febrúar. kringum þig og við hlökkuðum til þess dags að þú yrðir sex ára og innritaðist í skólann. Á skólaárum þínum í Safamýrar- skóla áttir þú ætíð hug og hjarta þeirra sem unnu með þér, þú varst forvitinn, áhuga- samur og duglegur að læra. Í sumar fluttir þú norður í Varmahlíð og mikið óskaplega sökn- uðum við þín í haust þegar skólinn byrjaði að nýju. Við fréttum fljótlega að þér hefði tekist að heilla alla í kringum þig og vissum að þér leið vel. Þá vorum við ánægð. Í lok janúar veiktist þú og varst mikið veikur. Þú ætlaðir ekki að gefast upp í þessum veikindum en þó fór svo að lokum, að litlu engl- arnir kölluðu þig til sín í annan heim. Elsku Leó, við kveðjum þig að þessu sinni, söknuðurinn er mikill en við eigum góðar minningar um þig sem við munum ylja okkur við. Fjölskyldu þinni sendum við inni- legar samúðarkveðjur, þeirra er söknuðurinn mestur. F.h. nemenda og starfsfólks Safamýrarskóla, Björk og Hanna Rún. EIGI minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði ef útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: Í sunnudags- og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. Í miðviku- dags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að ber- ast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins til- tekna skilafrests. Skilafrestur minningargreina

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.