Morgunblaðið - 28.02.2002, Síða 51

Morgunblaðið - 28.02.2002, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2002 51 DAGBÓK Jóga fyrir byrjendur Guðjón Bergmann kennir undirstöðuatriðin í jógaiðkun: Líkamsæfingar, öndun, slökun, hugmyndafræði og mataræði. Námskeiðið hefst 7. mars og stendur til 4. apríl. Kennt verður þriðjudaga og fimmtudaga kl. 18.10. Verð 9.900 kr. Nánari upplýsingar í síma 690 1818. gbergmann@strik.is - www.gbergmann.is Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Verð kr. 39.950 Flug og hótel í 3 nætur m.v. 2 í herbergi á Quality Hotel, 7. mars, 4 nætur, flug, gisting, skattar. Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri til að kynnast þessari ótrúlegu borg og bjóða einstakt tilboð á síðustu sætunum þann 7. mars. Í boði eru góð 3 og 4 stjörnu hótel og spennandi kynnisferðir um kastalann og gamla bæinn, eða til hins einstaklega fagra heilsubæjar Karlovy Vary, með íslenskum fararstjórum Heimsferða. Það er engin tilviljun að þeir sem einu sinni fara til Prag, kjósa að fara þangað aftur og aftur, enda er borgin ógleymanleg þeim sem henni kynnast og engin borg Evrópu kemur ferðamanninum eins á óvart með fegurð sinni og einstöku andrúmlofti. Síðustu 11 sætin Flug fimmtudaga og mánudaga í mars og apríl Helgarferð til Prag 7. mars frá kr. 39.950 Árnað heilla STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake FISKAR Afmælisbörn dagsins: Þú ert lífsglaður og hefur áhrif á marga í kringum þig. Árið verður hagstætt því þú munt læra að meta hluti upp á nýtt. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú gefur andlegum málefn- um meiri gaum í dag en áður. Þú telur þig meðal annars þurfa að finna trú þína á ný. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú gætir haft hag af mann- eskju, sem hefur listræna hæfileika. Þessi manneskja gæti aðstoðað þig í atvinnu- leit eða veitt þér ráðlegging- ar. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Sumir stofna til sambands með eldri manneskju, eða jafnvel yfirmanni sínum á þessum degi. Þú dáist að fólki sem er auðugra og fastara fyrir en þú ert. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Heimspekilegar vangaveltur og trú annarra vekur undrun þína. Á sama tíma hefur þú gagn af slíkum samræðum og ekki er loku fyrir það skotið að þær geri þig betur upp- lýstan. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú telur þig hafa öðlast fyrri styrk. Þú hefur beint sjónum þínum að því sem þú vilt og gerir atlögu að því að eignast það. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Náinn vinur eða vinnufélagi er ekki sammála því sem yf- irmaður þinn segir við þig. Þú verður að gera það upp við þig á hvorn þú ætlar að hlusta. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú telur mikilvægt að hafa hreint í kringum þig og allt skipulagt vegna þess að um- hverfið hefur mikil áhrif á þig. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Rómantík, ástarævintýri og saklaust daður gæti átt sér stað í dag. Þú vekur mikla at- hygli hjá einhverjum. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Hvort sem þú skreytir, end- urnýjar eða betrumbætir á heimili þínu mun það bera ár- angur. Hins vegar verður þú að leggja talsvert á þig til þess að ná markmiði þínu. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þessi dagur er kjörinn til þess að taka ákvarðanir er snerta fjármál eða viðskipti. Láttu slag standa því hugs- anlegt er að þú getir hagnast á aðgerðum þínum. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Umræður við vini eru lífleg- ar, hins vegar geta nútímaleg viðhorf þín hneykslað ein- hverja, sem munu reyna að breyta hugmyndum þínum. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þessi dagur er mikilvægur fyrir þig því bæði sólin og Venus eru í merki þínu. Dag- urinn getur því orðið árang- ursríkur. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. LESANDINN er beðinn um að fá sér sæti í suður og leggja drög að áætlun í sex spöðum með laufdrottningu út: Norður ♠ Á3 ♥ G762 ♦ DG43 ♣K83 Suður ♠ DG9765 ♥ ÁK5 ♦ ÁK ♣Á6 Spilið kom upp í keppn- inni um NEC-bikarinn í Japan í upphafi mánaðarins. Flestir sagnhafar spiluðu þannig: Þeir tóku á laufás- inn heima, spiluðu ÁK í tígli og síðan spaðaás og meiri spaða. Þetta reyndist ekki farsæl leið: Norður ♠ Á3 ♥ G762 ♦ DG43 ♣K83 Vestur Austur ♠ 82 ♠ K104 ♥ 94 ♥ D1083 ♦ 109875 ♦ 62 ♣DG102 ♣9754 Suður ♠ DG9765 ♥ ÁK5 ♦ ÁK ♣Á6 Austur tók strax á spaða- kóng og spilaði laufi á kóng blinds. Nú á austur enn tromp til að stinga í tígul- drottningu og þar eð blindur er innkomulaus fær vörnin á endanum slag á hjarta- drottningu. Einn niður. Þrjár aðrar spilaleiðir koma til greina og allar leiða til vinnings eins og legan er: (1) Sagnhafi gæti tekið ÁK í tígli og svínað spaða- drottningu. Austur fær slag- inn og spilar laufi á kóng blinds og nú spilar sagnhafi frítígli. Austur trompar, en suður yfirtrompar, fer inn í borð á trompás til að taka á frítígul og henda hjarta. (2) Eftir ÁK í tígli gæti sagnhafi farið inn á spaðaás og spilað tígli strax. Austur trompar, suður yfirtrompar og trompar út. Trompið er komið og laufkóngur enn í borði sem innkoma á frítíg- ul. (3) Þriðji möguleikinn er að bíða með trompið og fara inn í borð á laufkóng eftir að hafa tekið á ÁK í tígli. Tígli er spilað, trompað og yfir- trompað, og spaðadrottn- ingu svínað. Síðan er inn- koman á spaðaás notuð til að taka tígulslaginn. Hvaða leið skyldi vera best? Það er verðugt verk- efni fyrir töluglögga menn að reikna það dæmi til enda. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson 70 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 28. febrúar, er sjötugur Árni Rosenkjær, rafvirkjameist- ari, Mosabarði 8, Hafnar- firði. Hann er að heiman á afmælisdaginn. 90 ÁRA afmæli. Níræð-ur er um þessar mundir Einar B. Pálsson, verkfræðingur og prófess- or. Hann og kona hans, Kristín Pálsdóttir, taka á móti gestum í Ársal Hótels Sögu föstudaginn 1. mars milli kl. 17 og 19. LJÓÐABROT STÖKUR OG BROT Því vil kvaka þannig ég þanka vakinn, glaður, mig til baka í duftið dreg, dauðans sakamaður... Þegar óhryggur heimi frá héðan Siggi gengur, fjöllin skyggja ekki á alvalds bygging lengur. Sigurður Breiðfjörð 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. a3 Bxc3+ 5. bxc3 O-O 6. e3 b6 7. Bd3 Bb7 8. f3 d6 9. e4 Rc6 10. Re2 Dd7 11. O-O e5 12. Bg5 Re8 13. Da4 f6 14. Be3 Hd8 15. Dc2 Ra5 16. f4 Ba6 17. c5 Bxd3 18. Dxd3 exd4 19. cxd4 dxc5 20. Dc2 cxd4 21. Rxd4 Hf7 22. e5 fxe5 23. fxe5 Hxf1+ 24. Hxf1 c5 25. Da2+ c4 26. e6 Dd6 27. Hf7 Rf6 Staðan kom upp á Norð- urlandamótinu í skólaskák sem lauk fyrir skömmu. Simon Olsson (2.059) hafði hvítt gegn Færeyingnum Hans K. Simonsen (2.234). 28. Hxg7+! Kxg7. Svartur hefði veitt harðvítugra við- nám eftir 28...Kh8. Í fram- haldinu vinnur hvítur drottninguna og skákina. 29. Rf5+ Kf8 30. Rxd6 Hxd6 31. Bg5 Re4 32. e7+ Ke8 33. h4 Rxg5 34. hxg5 Kxe7 35. De2+ He6 36. Dh5 c3 37. Dxh7+ Kd6 38. Dd3+ Ke5 39. Dxc3+ Kf5 40. Dh3+ Ke5 41. Dh5 Rc6 42. g6+ Kd6 43. g7 Re7 44. De8 Hg6 45. Dxg6+ og svartur gafst upp. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. 70 ÁRA afmæli. ÓlafurOlgeirsson, Arnar- ási 6, Garðabæ, fæddur 29. febrúar, er sjötugur. Ólafur dvelur á deild 4-B, Hrafn- istu, Hafnarfirði. GULLBRÚÐKAUP. Í dag, fimmtudaginn 28. febrúar, eiga 50 ára hjúskaparafmæli hjónin Ólöf Benediktsdóttir og Höskuldur Jónsson, Rjúpufelli 44, Reykjavík. 90 ÁRA afmæli. Nk.laugardag, 2. mars, er níræður Jóhann Jónas- son, fv. forstjóri Grænmet- isverslunar landbúnaðar- ins, Sveinskoti, Bessastaða- hreppi. Hann tekur á móti gestum ásamt eiginkonu sinni, Margréti Sigurðar- dóttur, á afmælisdaginn kl. 17–19 í Hátíðarsal íþrótta- hússins í Bessastaðahreppi. FRÉTTIR Á 42 ára afmæli Félags heyrnarlausra hinn 11. febrúar sl. afhenti Védís Hervör Árna- dóttir félaginu gjöf að upphæð 400 þúsund krónur. Védís, sem ávann sér upphæðina í sjónvarpsþættinum „Viltu vinna milljón“, ánafnaði félaginu verðlaunin. Verður upphæðinni varið til menningarmála í tengslum við Menning- arhátíð heyrnarlausra á Norðurlöndum sem verður haldin á Íslandi árið 2006, segir í fréttatilkynningu. Færði Félagi heyrn- arlausra 400 þúsund Frá vinstri: Berglind Stefánsdóttir, formaður Félags heyrnarlausra, Védís Árnadóttir og amma hennar Hervör Guðjónsdóttir, fyrrver- andi formaður félagsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.