Morgunblaðið - 24.03.2002, Blaðsíða 56
FÓLK Í FRÉTTUM
56 SUNNUDAGUR 24. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BOÐORÐIN 9 eftir Ólaf Hauk Símonarson
Lau 6. april kl 20 - ÖRFÁ SÆTI
Lau 13. apr kl 20 - NOKKUR SÆTI
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Í kvöld kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Su 7. apr kl 20 - NOKKUR SÆTI
ATH: Sýningum fer fækkandi
SLAPPAÐU AF eftir Felix Bergsson
Gamansöngleikur Verzlunarskólans
Fi 28. mars kl. 20. Aukasýning
ATH: Síðasta sinn
LISTDANSSKÓLI ÍSLANDS Vorsýning
Miðvikudag 27. mars kl. 20
AND BJÖRK OF COURSE ...
e. Þorvald Þorsteinsson
Frumsýning su 7. apr kl. 20 - UPPSELT
2. sýn fi 11. apr kl. 20 - NOKKUR SÆTI
FYRST ER AÐ FÆÐAST e. Line Knutzon
Fi 4. april kl. 20 - UPPSELT
Fö 12. apr kl 20 - LAUS SÆTI
JÓN GNARR
Fö 5. apr kl. 20 - LAUS SÆTI
PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler
Í kvöld kl 20 - ÖRFÁ SÆTI
Fö 5. april kl 20 - LAUS SÆTI
CAPUT Tónleikar
Ferðalög: Æska handan járntjalds
Lau 6. apr kl. 15.15.
GESTURINN e. Eric-Emmanuel Schmitt
Fö 5. apr kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Lau 6. apr kl. 20 - LAUS SÆTI
Stóra svið
Nýja sviðið
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Litla sviðið
Sunnud. 24. mars kl. 20.00 örfá sæti
Mánud. 1. apríl kl. 20.00 laus sæti
sýnir í Tjarnarbíói söngleikinn
eftir Þórunni Guðmundsdóttur
6. sýn. sun 24. mars
7. sýn. fim 28. mars
8. sýn. lau 6. apríl
Sýningar hefjast kl. 20.00.
Miðapantanir allan sólarhringinn
í síma 551 2525
eða með tölvup. á hugleik@mi.is
Miðasala opin alla sýningardaga
frá kl. 19.00.
Í dag 24. mars kl. 16.00
Sunnudags-matinée
Alina Dubik
og Gerrit Schuil
flytja sönglög eftir Johannes
Brahms, Atla Heimi Sveinsson,
Jón Ásgeirsson, Pál Ísólfsson,
Sigvalda Kaldalóns og Sergei
Rachmaninov.
Skógarhlíð 20 ● 105 Reykjavík
Miðasala: 595 7999 ● 800 6434
eða í símsvara 551 5677.
www.kkor.is/ymir.html
Miðasala í húsinu
klukkutíma fyrir tónleika
! "#" " &$
'
!!!
"
ef t i r Ha f l iða Hal lgr ímsson
Föstudagurinn langi, 29. mars 2002
kl. 21:00
Mary Nessinger mezzósópran
Garðar Thór Cortes tenór
Mótettukór Hallgrímskirkju
Kammersveit Hallgrímskirkju
Konsertmeistari: Gerður Gunnarsdóttir
Stjórnandi: Hörður Áskelsson
Miðasala í Hallgrímskirkju
Miðaverð: kr. 2.500
HALLGRÍMSKIRKJA
Listvinafélag Hallgrímskirkju
„Eitt merkasta tónverk sem heyrst hefur
í langan tíma“
„Andlegt meistaraverk“
#
(
)
$
#$
* + $" ,- &" . /0 1 $ &2 &
* 3- &
4$$ '
"-!$"5 %#
&'(()*++
, -
. /
0
1
2
3
4
5
4$
+
&
6
&
4'
&
.
6
0
%#
&'(()*++
!
"#
$%%&
'(%
)
%*
+*
! "# $
),
-%* #
,.
/
%&
(& )* +,,
%- .!-/ %* #
012343,!+* %0
1 0
! "%/
!2! $ #
3
HLJÓMSVEITIN Fídel byrjaði
sem tríó fyrir nokkrum árum en
síðan bættist við fjórði meðlim-
urinn og söngur fór að heyrast
með í rokkkeyrslunni. Á þessari
fyrstu plötu sveit-
arinnar skiptist á
eldra efni sem er
einungis leikið og
nýrri lög sem eru
prýdd með söng
og torskildum
textum. Platan virkar samt ekki
sundurlaus því gítarhljómurinn
prjónar hlutina þétt saman.
Í leiknu lögunum skín í gegn að
meðlimir sveitarinnar eiga sér
rætur í harðari rokkkjarnanum
(sveitir eins og Klink, Bisund). Þau
eru fremur stutt og keyrð hratt
áfram með tilheyrandi taktskipt-
ingum eins og í „Kick the bucket“.
Í „Doing Hard Time“ fær tromm-
arinn að sýna hvað í honum býr og
ekki hægt að segja annað en að
það sé þó nokkuð. Þetta eru
keyrslulög sem fara töluvert eftir
„rólegt vs. allt í botn“ uppbygging-
unni og eru ekki beinlínis nýstár-
leg en Fídelmenn ná þó oft að
snúa sig frá klisjunni með ýmsum
útúrdúrum og fjallabaksleiðum að
markinu sem gera lögin sérstæðari
en ella.
Nýrri lögin eru nýbylgjulegri og
tilraunaglaðari en hafa þó að
geyma nóg af grípandi krókum og
önglum. Þótt maður greini sjaldn-
ast orðaskil eða nái nokkru sam-
hengi í textunum þá skiptir það
ekki öllu máli, þetta gerir sitt til
að gefa lögunum firrt og töffara-
legt yfirbragð.
Hljómurinn er lifandi og laus við
flatneskju, einstaka sinnum eru
gítararnir hálfglamrandi en yfir-
leitt kemst krafturinn til skila. Gít-
arframlínan er áberandi en sveitin
er óhrædd við að fara út á hlið-
arlínurnar og gera tilraunir með
uppbyggingu laga og senda hljóma
og raddir í gegnum allskyns hljóð-
breyta sem bjaga og rífa í sundur
hljóminn svo úr verður skemmti-
lega gróf og óskýr áferð – eins-
konar moldrokk, eins og t.d. í
„Who Gives A Rat“ og hinu nett
Sonic Youth-lega „Liquid Lips“.
Einna skemmtilegast fannst mér
upphafslagið, „German Violin“, þar
sem dramatískur bergmálshljómur
á trommunum stangast á við spar-
legan undirleik og tilbrigðalausa
röddina. Það er líka í styttra lagi,
sem fær mann til að biðja um
meira þegar það er búið – ekki
fallið í þá gryfju að drepa áhrifin
með því að stappa ofan í mann
endurtekningar og draga allt á
langinn. Í þann skurð er hinsvegar
fallið í laginu „Focus On The
Split“ þar sem hamrað er á frekar
þvinguðu viðlagi svona 100 sinnum
og gítarriffin fara að hljóma þung-
lamalega eins og menn séu í leið-
indapúlsvinnu. „I Know It’s Cruel“
er þunglyndislegt mjög og hljómar
eins og söngvarinn sé að bugast af
örvæntingu og hafi tapað áttum í
flókinni laglínunni. Lokalagið
„Artline“ er ansi magnað. Röddin
einstaklega þjáð og rifin. Straum-
þunginn liggur mjög ákveðið að
hámarkinu með hávaða og látum
en það er skemmtilegt hvernig
þeir færa sig á milli kafla og fara
út fyrir uppskriftina með breyttum
takti eða óvæntum nótum.
Fídelmenn hafa greinilega
traustan rokkgrunn til að byggja á
en líka getuna til að prófa sig
áfram og finna nýjar leiðir. Frum-
burður þeirra sýnir að þeir hafa
nóg af góðum hugmyndum og það
verður áhugavert að sjá í hvaða
áttir þær eiga eftir að leiða sveit-
ina.
Tónlist
Góðir
hljómar
– nýjar
hliðar
Fídel
Good riddance – New Entrance
Hitt records/Edda - miðlun & útgáfa
Fídel skipa byltingarliðarnir Frosti Jón
Runólfsson (trommur), Jón Atli Helgason
(bassi), Búi Bendtsen (gítar, söngur) og
Andri Freyr Viðarsson (gítar). Upptökur
fóru fram í Sláturhúsinu í ágúst 2001.
Upptökum stjórnaði S. Mellah.
Steinunn Haraldsdóttir
Morgunblaðið/Jim Smart
Steinunn Haraldsdóttir segir drengina í Fídel sýna á fyrstu plötu sinni
að þeir séu óhræddir við að prófa sig áfram og finna nýjar leiðir.
ÍÞRÓTTIR
mbl.is