Morgunblaðið - 24.03.2002, Blaðsíða 1
MORGUNBLAÐIÐ 24. MARS 2002
70. TBL. 90. ÁRG. SUNNUDAGUR 24. MARS 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
Síbería
70º norður
Lífið á rússnesku túndrunni er ekki fyrir aðra en þá sem
þola kulda og langar nætur. Náttúruöflin eru óblíð,
efnahagurinn nú í kaldakoli og lífsbaráttan hörð.
Þorkell Þorkelsson ljósmyndari dvaldi á mörkum hins
byggilega heims, norðan við heimskautsbaug. 12
Sælkerar á sunnudegi
Ávextir, möndlur og hunang
Heimspekilegar
vangaveltur
um réttlæti
kvótakerfisins
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
Sunnudagur
24. mars 2002
B
Allir lykilþættir
stefnunnar skoðaðir
10 Viðskiptavenjur hafa
mikil áhrif á nýsköpun
14 Eina markmiðið
að verða góðir
16
RÖÐ af Óskarsstyttum skreytir
Hollywood Boulevard við inngang
Kodak-hallarinnar en þar verða
Óskarsverðlaunin afhent við hátíð-
lega athöfn í dag, sunnudag. Miklar
öryggisráðstafanir eru á staðnum
enda gert ráð fyrir um 3.300 gest-
um og áætlað er að hundruð millj-
óna manna um allan heim fylgist
með atburðinum í sjónvarpi. Lík-
legust til að hljóta styttuna frægu
er sögð vera myndin A Beautiful
Mind með Russell Crowe en verð-
launin fyrir bestu erlendu myndina
gætu fallið Norðmönnum í skaut
fyrir Elling.
Beðið eftir
Óskari
AP
LEIÐTOGAR nær 60 ríkja um allan
heim samþykktu á fundi sínum í Mont-
errey í Mexíkó í vikulokin áætlun um
baráttu gegn fátækt í heiminum. Ætl-
unin er að auka fjárhagsaðstoð við fá-
tækar þjóðir, fella niður skuldir þeirra
og ýta undir milliríkjaviðskipti.
George W. Bush Bandaríkjaforseti
lagði á hinn bóginn áherslu á að fátæk
ríki yrðu að opna markaði sína auk
þess að verja réttarríkið og lýðræðið.
James Wolfensohn, forstjóri Al-
þjóðabankans, sagði að með áætlun-
inni væri sagt að leiðtogar jafnt ríkra
sem fátækra bæru sameiginlega
ábyrgð. „Þetta er viðurkenning á því
að tækifæri og eigin styrkur – ekki
góðgerðastarfsemi – geta eflt okkur
öll,“ sagði Wolfensohn. Ekki er um að
ræða bindandi loforð, ákveðin pen-
ingaleg markmið eða tímasetningu.
Talsmenn Sameinuðu þjóðanna sögðu
að óhjákvæmilegt hefði verið að hafa
orðalag loðið til að ná fram samstöðu.
Í fyrstu drögum var hvatt til þess
að ríkar þjóðir legðu fram alls 50
milljarða dollara, um fimm þúsund
milljarða króna, aukalega til þróun-
araðstoðar á ári og tvöfölduðu þannig
núverandi framlög. En þótt jafnt
Wolfensohn sem Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóri SÞ, styddu þá hug-
mynd var hún ekki samþykkt þar sem
Bandaríkjastjórn var á móti. Bush
telur að aukin áhersla á einkafram-
tak, fjárfestingar einkafyrirtækja og
frjáls viðskipti séu líklegri til að draga
úr fátækt en bein fjárhagsaðstoð.
Talsmenn Evrópusambandsins segja
á hinn bóginn að ósennilegt sé að
einkafjárfestar muni sýna snauðustu
Afríkulöndunum mikinn áhuga og þar
verði því að koma til bein, opinber
framlög auðugra ríkja.
Einkaframtak og frjáls við-
skipti leysi fátæktarvanda
Monterrey. AFP, AP.
Tillaga í Monterrey um 50 milljarða
dollara framlag til þróunarlanda felld
RÁÐAMENN í nokkrum bandarísk-
um sambandsríkjum þar sem mikið
er um framleiðslu á vefnaðarvöru
krefjast þess nú að innlend fyrirtæki
fái vernd gagnvart ódýrri vöru frá
Asíulöndum. Er bent á að undanfar-
in ár hafi mörgum verksmiðjum ver-
ið lokað og hundruð þúsunda Banda-
ríkjamanna hafi misst vinnuna.
Ríkisstjórar Suður-Karólínu,
Georgíu og Norður-Karólínu hvöttu
til þess á föstudag að alþjóðlegum
viðskiptasamningum yrði breytt og
jafnframt að alríkisstjórnin í Wash-
ington veitti fé til starfsþjálfunar
fyrir þá sem hafa misst vinnuna.
Ráðamenn í fyrirtækjunum segja að
í viðskiptasamningum sé látið undan
kröfum erlendra ríkja þar sem
vinnuaflið sé ódýrt.
Ríkisstjórarnir þrír viðurkenndu
að þeir gætu lítil áhrif haft á þróun
atvinnugreinarinnar en sögðust
vona að þeir fengju alríkisstjórnina
til að aðstoða hana á sama hátt og
stálfyrirtækjum og flugfélögum hef-
ur verið rétt hjálparhönd síðustu
mánuði.
Krefjast
verndar
Washington. AFP.
ALLT að tvær milljónir manna tóku
í gær þátt í útifundi sem ítölsk stétt-
arfélög efndu til í Róm til að mót-
mæla fyrirhuguðum breytingum
stjórnar Silvios Berlusconis for-
sætisráðherra á vinnumarkaðs-
löggjöf, en einnig var mótmælt
harðlega morði hryðjuverkamanna
á efnahagsráðgjafa ríkisstjórn-
arinnar, Marco Biagi, fyrr í vik-
unni. Hér er mannfjöldinn við Col-
osseum.
Biagi var myrtur við heimili sitt í
Bologna og er talið að þar hafi ver-
ið að verki Rauðu herdeildirnar
svonefndu, samtök sem stóðu fyrir
fjölmörgum hryðjuverkum á átt-
unda áratugnum. Biagi mun hafa
verið einn af aðalhöfundum nýrra
tillagna ráðherrans sem miða að
því að veita fyrirtækjum aukinn
rétt til að ráða og reka starfsfólk.
Stærstu verkalýðssamtökin,
CGIL, leigðu um 10.000 rútur til að
flytja stuðningsmenn frá fjarlægum
landshlutum til höfuðborgarinnar.
Að sögn BBC var ákveðið að fella
niður nokkrar menningaruppá-
komur til að minnast Biagi og jafn-
framt var fólkið hvatt til að ganga
þögult um borgarstrætin en hrópa
ekki slagorð.
AP
Tvær milljónir
á útifundi í Róm
NORSKA stjórnin ætlar að slaka á
hömlum sem settar hafa verið á
auglýsendur svonefndra náttúru-
lyfja og verða meðal annars ekki
gerðar jafn strangar kröfur um
rannsóknir er sanni árangurinn.
Að sögn Aftenposten mega fram-
leiðendurnir framvegis fullyrða að
lyfið minnki óþægindi af kvillum og
sjúkdómum en sem fyrr mega þeir
ekki halda því fram að lyfið beinlín-
is lækni sjúklinginn nema það þyki
sannað með tilraunum.
Dagfinn Høybråten heilbrigðis-
málaráðherra segir markmiðið
með breytingunni vera að fjölga
Aukið frelsi
fyrir náttúrulyf
viðurkenndum náttúrulyfjum á
markaðnum. „Ef við slökum dálít-
ið á kröfunum tel ég að við fáum
aukið eftirlit með innihaldinu og
meira öryggi fyrir neytendurna.
Jafnframt fá fyrirtækin á þessu
sviði fleiri tækifæri til að setja
vörur sínar á markað,“ segir ráð-
herrann. Nú eru aðeins seld um 30
viðurkennd náttúrulyf í Noregi.
Samkvæmt gömlu lögunum sem
sett voru 1995 ríkir fullt frelsi til að
selja hvers kyns varning og segja
að hann bæti líðanina en heitið
náttúrulyf má ekki nota nema búið
sé að fá til þess opinbert leyfi.
Róm. AFP.