Morgunblaðið - 24.03.2002, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 24.03.2002, Blaðsíða 49
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MARS 2002 49 SÍÐASTA vikan fyrirpáska hefur í tímans rásgengið undir ýmsumnöfnum. Þ.á m. erudymbildagar, dymb- ildagavika, dymbildægur, dymb- ilvika, efsta vika, helga vika, helgu dagar, kyrravika, píning- arvika og páskavika. Orðið dymbildagar finnst í rit- uðu máli frá því laust eftir 1300, en getur að sjálfsögðu verið mun eldra. Merkilegt er, að það kemur ekki fyrir í íslenskum lögbókum, hvorki í Kristinna laga þætti Grá- gásar, sem var lögtekinn á Al- þingi um 1130, né Kristinrétti hin- um nýja, 1275, og ekki heldur í Jónsbók, 1281. Gæti það bent til, að þetta hafi í upphafi verið al- þýðuorð, sem ekki kemst í op- inber skjöl fyrr en tiltölulega seint. Orðið dymbilvika sést þó ekki í íslensku fyrr en í kirkju- ordinansíu Kristjáns 3, frá 1537, sem Gissur biskup Einarsson þýddi árið 1541. Úr vöndu er að ráða, þegar leita á skýringa á þessari nafngift, dymbilviku. Sennilegast er talið, að hún sé dregin af einhverju áhaldi, sem kallað var dymbill og notað var í kaþólskum sið við guðsþjónustur, undir lok sjö- viknaföstu, enda finnast hlutir með þessu heiti í upptalningu kirkjugripa í máldögum. Þessi dymbil-orð þekkjast einnig í gömlum norskum og sænskum textum, og í hjaltlensku, en eiga sér enga einhlíta hliðstæðu í öðr- um málum. Í umræddri viku deyfðu menn öll ljós og hringdu ekki klukkum. Eftirfarandi til- gátur hafa komið fram um hvað þetta var:  Klukkukólfur, vafinn tusk- um í því skyni að dempa hljóminn.  Trékólfur, settur í kirkju- klukku, í stað málmkólfs (sbr. framannefnt).  Barefli til að lemja kirkju- klukkurnar utan.  Ljósastjaki, er stóð á kirkju- gólfi og var notaður í stað ljósahjálms.  Áhald til að slökkva á kert- um (sbr. þýska orðið Dümpfel).  Einhvers konar handskella úr tré, notuð í stað málm- bjöllu við guðsþjónustur á umræddum dögum. Við þetta má svo bæta, að Hall- dór Laxness taldi dymbil vera hljóðdeyfi á strengjahljóðfæri. Jón Grunnvíkingur ritar orðið dynbildægur, og skýrir það á eft- irfarandi hátt: „Nætur og dagar, þegar hlé er á hávaða.“ Eða m.ö.o. þegar dynur bilar. Og hann bætir við, að það sé einnig notað í al- mennu tali um óróatíma, myrka, og að nokkru skelfilega. Þá segir Ásgeir Blöndal Magn- ússon í Orðsifjabók sinni, að orðið dymbill sé oftast talið skylt dumb- ur (þögull, mállaus, hljóðdaufur), en gæti eins verið í ætt við demba og dumpa, og eiginleg merking þá: slagkólfur. Árni Björnsson þjóðháttafræð- ingur, sem ritar um þetta langt mál í Sögu daganna, fullyrðir, að þrjár fyrstnefndu hugmyndirnar megi afskrifa snarlega. Orðrétt segir hann: „Að vísu hefði ekki verið eins illframkvæmanlegt að vefja kólfinn og skipta um kólf, en báðar þessar tilgátur eru út í hött þegar af þeirri ástæðu að klukk- urnar áttu að steinþegja á þessum dögum. Sama er að segja um þá aðferð að berja klukkur utan eins og alþekkt er til dæmis á Got- landi. Slíkt var víðar gert við jarðarfarir, en ekki í dymbilviku, alltjent ekki á miðöldum. Auk þess er ekki vitað að neitt sér- stakt áhald sé notað til þess arna, heldur venjuleg barefli úr tré eða hnöttóttir steinar sem tuskum var stundum vafið um til að deyfa hljóðið.“ En hvað var þá dymbill? Áfram segir Árni Björnsson: „Hvort sem orðið dymbill er hljóðlíking við latneska orðið tinnibulum eða skylt orðinu dumbur, verður að teljast líklegast að það eigi upp- haflega við trétól þau sem notuð voru í staðinn fyrir klukkur og málmbjöllur á sorgardögum kirkjunnar vegna píslarsögu Jesú Krists. Hin hljómrænu umskipti í guðsþjónustunni á þessum dögum þykja ætíð mjög áhrifamikil og eftirminnileg og hefðu hæglega getað gefið dögunum alþýðlegt nafn. Eflaust hefur einnig þótt eft- irminnilegt í guðsþjónustunni á dymbildögum þegar slökkt var á stórum kertastjökum með sér- stakri viðhöfn. Við siðaskiptin hurfu tréskellurnar vitaskuld með öllu, en ljósastjakarnir hljóta að hafa verið nýttir eftir sem áður, hvort sem haldið var áfram að slökkva á þeim eftir gömlum kúnstarinnar reglum eður ei. Það er því engan veginn útilokað að nafnið dymbill hafi færst af tré- skellum yfir á ljósastjaka.“ En nóg um þetta. Að endingu skal þess getið, að um árabil hefur verið boðið til kyrrðardaga í Skálholti í dymb- ilviku, og er það eins nú. Dag- skráin markast af þeim atburðum píslarsögunnar sem þá er minnst, og felur þátttaka í sér að hverfa frá erli og amstri hversdagsins, að draga sig í hlé til að njóta friðar og hvíldar í þögn. Dagarnir eru ætlaðir til bæna og íhugunar, og er þar í raun farið að dæmi meist- arans, sem iðulega fór úr miklum önnum og dró sig í hlé, einn eða með lærisveinunum, í bæn og hvíld. Sigurbjörn Einarsson biskup mun þar flytja íhuganir sínar kvölds og morgna, boðið er upp á fræðslustundir og trúnaðarsamtöl og margvíslegt helgihald í Skál- holtsdómkirkju. Tími þagnar Liðið er á sjöviknaföstu og helgasta vika ársins byrjuð. Mestu dagar framundan eru skírdagur og föstudagurinn langi, að ógleymdum páskadegi. Sigurður Ægisson lít- ur á sögu þekktasta nafns umræddrar viku, sem kennt er við dymbil. sigurdur.aegisson@kirkjan.is KIRKJUSTARF Staður Nafn Sími 1 Sími 2 Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542 Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600 Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672 Bifröst Bára Rúnarsdóttir 435 0054 Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243 Blönduós Gerður Hallgrímsdóttir 452 4355 868 5024 Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965 Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474 Breiðdalsvík Skúli Hannesson 475 6669 894 2669 Búðardalur Agnar Sæberg Sverrisson 434 1381 Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039 Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161 Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350 Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123 Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315 Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370 Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885 Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 699 2989 Grenivík Ólína H. Friðbjarnardóttir 463 3131 Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608 Grímsey Unnur Ingólfsdóttir 467 3149 Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758 Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 892 1522 Hellissandur Sigurlaug G.Guðmundsdóttir 436 6752 855 2952 Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478 Hofsós Jóhannes V. Jóhannesson 453 7343 Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140 Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823 Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683 Hvammstangi Stella Steingrímsdóttir 892 3392 894 8469 Hveragerði Imma ehf. 483 4421 862 7525 Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711 Höfn Ólafía Þóra Bragadóttir 478 1786 896 1786 Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 862 3281 Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478 Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463 Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024 Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8372 895 7818 Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112 Laugarás Reynir Arnar Ingólfsson 486 8913 Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679 Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173 Ólafsfjörður Árni Björnsson 866 7958 466 2575 Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305 Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230 Raufarhöfn Alda Guðmundsdóttir 465 1344 Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/892 0488/866 9574 Reykholt Bisk. Guðmundur Rúnar Arneson 486 8797 Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783 Reykjahlíð Mýv. Pétur Freyr Jónsson 464 4123 Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674 Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888/854 7488/865 5038 Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700 Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir 472 1136 863 1136 Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067 Skagaströnd Þórey og Sigurbjörn 452 2879 868 2815 Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089 Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141 Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864 Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244 Súðavík Ingibjörg Ólafsdóttir 4564936 Tálknafjörður Sveinbjörg Erla Ólafsdóttir 456 2676 Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131 Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 698 7521 Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 557 5750 Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135 Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 868 3281 Þingeyri Sigríður Þórdís Ástvaldsdóttir 456 8233 456 8433 Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627 Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249 Dreifing Morgunblaðsins Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni Borgartúni 22 105 Reykjavík Sími 5-900-800 OPIÐ HÚS - ENGJASEL 71 Í dag, sunnudag, verður til sýnis gott endaraðhús í þessu barnvæna hverfi. Húsið er rúml. 180 fm á 3 hæðum, innst í botnlanga og því fylgir stæði í bílskýli. Á miðhæð er gengið inn og þar er forstofa, gesta wc, borð- stofa, stórt vandað eldhús, 2 rúmgóð svefnherb. Á efri hæð er mjög skemmtileg stofa með útg. á góðar svalir. Á jarðhæð er vinnuhorn með glugga sem hægt er að gera að herb., herbergi, hjónaherb. (með útg. í sérgarð á hellulagða verönd), þvottahús og baðherb. Mjög góð geymsla. Einnig fylgir húsinu gott stæði í bílgeymslu. Áhv. 10 millj. Mjög gott verð. Guðmundur og Ingunn sýna eignina í dag milli kl. 15 og 17. GRENSÁSVEGUR IÐNAÐARHÚSNÆÐI Til sölu er 365 fm húsnæði á jarðhæð við Grensásveg. Húsnæðið hentar vel sem iðnaðarhúsnæði eða geymsluhúsnæði. Hagstætt verð og greiðsluskilmálar. Upplýsingar gefur Agnar Gústafsson hrl., Eiríksgötu 4, símar 551 2600 og 552 1750. IMG og Endurmenntun Háskóla Ís- lands hafa tekið upp samstarf um stjórnendanám sem hefst í apríl og ber heitið Stjórnendur framtíðarinn- ar. Kynningarfundur verður haldinn þriðjudaginn 26. mars kl. 16 í húsa- kynnum IMG, Laugavegi 170. Námið er ætlað nýjum stjórnend- um og öðrum með allt að fimm ára stjórnendareynslu sem vilja auka skilning sinn á hlutverki og aðferð- um árangursríkra stjórnenda. Námið er alls 112 klst. sem dreif- ast á eitt ár. Leiðbeinendur í náminu eru sérfræðingar IMG. IMG og Endur- menntun með stjórnendanám NÁMSKEIÐ á vegum Karuna hefst þriðjudaginn 26. mars og stendur í fjórar vikur. Kennd verður hugleiðsla og ráð- leggingar um hvernig hægt er að bæta samband okkar við aðra. Hvert skipti er sjálfstæð eining og hentar bæði byrjendum og lengra komnum. Kennari er Gen Kelsang Nyingpo. Kennt verður kl. 20–21.30 í stofu 101 í Odda, Háskóla Íslands og fer kennslan fram á ensku. Gjald er kr. 1.000 en kr. 500 fyrir atvinnulausa og öryrkja. Allir eru velkomnir. Fyrirlestrar um búddisma FYRIRLESTUR á vegum IEEE á Íslandi, rafmagns- og tölvuverk- fræðiskorar, verkfræðideildar Há- skóla Íslands og Rafmagnsverk- fræðideildar Verkfræðingafélags Íslands (RVFÍ) verður þriðjudaginn 26. mars, kl. 17.15 í húsakynnum Há- skóla Íslands, Odda, stofu 101. Kristinn Andersen hjá Marel hf, flytur fyrirlestur sem nefnist: Rönt- genmyndgreining í matvælavinnslu. Fjallað verður um innleiðingu nýrr- ar tækni, röntgenmyndgreiningar, hjá Marel hf. og tengd rannsóknar- og þróunarverkefni, segir í fréttatil- kynningu. Röntgenmynd- greining í mat- vælavinnslu FULLTRÚARÁÐ Framsóknar- flokksins á Akranesi samþykkti ný- lega tillögu uppstillingarnefndar að lista flokksins fyrir bæjarstjórnar- kosningar á Akranesi í vor. Tölu- verðar breytingar eru á lista flokks- ins miðað við síðustu bæjarstjórn- arkosningar þar sem nýtt fólk verður í 2., 3. og 4. sæti listans. Framsóknarflokkurinn hefur nú 2 fulltrúa í bæjarstjórn og myndaði meirihluta með Akraneslista eftir síðustu kosningar. Listi flokksins verður þannig skip- aður: 1. Guðmundur Páll Jónsson, starfsmannastjóri, 2. Magnús Guð- mundsson, forstjóri, 3. Guðni Tryggvason, verslunarmaður, 4. Margrét Þóra Jónsdóttir, leikskóla- kennari, 5. Jóhanna Hallsdóttir, bók- ari, 6. Valdimar Þorvaldsson, vél- virki, 7. Jóhannes Snorrason, tæknifræðingur, 8. Björn S. Lárus- son, viðskiptafræðingur, 9. Katrín Rós Baldursdóttir, háskólanemi, 10. Sigurður Haraldsson, verkamaður, 11. Ella Þóra Jónsdóttir, háskóla- nemi, 12. Njáll Vikar Smárason, fjöl- brautaskólanemi, 13. Jóna Adolfs- dóttir, skólaliði, 14. Karl Elíasson, verkamaður, 15. Guðný Rún Sigurð- ardóttir, rekstrarfræðingur, 16. Kjartan Kjartansson, rekstrarfræð- ingur, 17. Sigríður Gróa Kristjáns- dóttir, sjúkraliði, 18. Ingibjörg Pálmadóttir, fv. ráðherra. Listi Fram- sóknar- flokksins á Akranesi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.