Morgunblaðið - 19.04.2002, Síða 12

Morgunblaðið - 19.04.2002, Síða 12
FRÉTTIR 12 FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ SÍMINN og Neyðarlínan hafa tekið upp samstarf sem á að leiða til auk- ins öryggis borgara sem hringja í Neyðarlínuna úr farsímum. Hefur verið tekin í notkun ný staðsetning- artækni, sem nefnist Cell-id, er ger- ir mögulegt að staðsetja þann sem hringir í Neyðarlínuna með tölu- verðri nákvæmni. Forsvarsmenn Neyðarlínunnar og Símans kynntu samstarfið og hina nýju tækni á fréttamannafundi á miðvikudag. Talið er að Íslend- ingar séu með þessu fyrsta þjóð í heimi til þess að taka í notkun stað- setningartækni í neyðarþjónustu. Er hún til þess fallin að auka ör- yggi borgara, að sögn Þórhalls Ólafssonar, framkvæmdastjóra Neyðarlínunnar, þar sem hún getur stytt tímann sem það tekur hringj- anda að bíða eftir aðstoð og eykur öryggi á útkalli viðbragðsaðila hverju sinni. ,,Þetta er sameiginlegt verkefni Neyðarlínunnar og Landssímans, sem hefur lagt sig fram um að leysa þetta fyrir okkur. Verkfræðistofan Hnit hefur hannað tölvubúnaðinn hjá okkur,“ segir hann. 2-300 metra nákvæmni á höfuðborgarsvæðinu Nákvæmnin í staðsetningunni er nokkuð mismunandi. Neyðarlínan fær upplýsingar um í hvaða sellu (sendi) er hringt, og er nákvæmnin á höfuðborgarsvæðinu frá 2-300 metrum, en nokkuð mismunandi eftir svæðum. Í dreifbýlinu er ná- kvæmnin miklu mun minni, eða nokkrir kílómetrar. ,,Ef hringt er í Neyðarlínuna frá Akureyri koma upp á skjáinn helstu viðbragðsaðilar á svæðinu. Starfs- maður Neyðarlínunnar getur tengt símann beint til þeirra þegar hann er búinn að meta þörfina á aðstoð. Hann getur kallað út þá hópa sem hann telur þörf á hverju sinni hvort sem um er að ræða lögreglu, björg- unarsveitir, lækna eða hjálparsveit- ir. Með Cell-id getur hann afmarkað leitarsvæði og séð nokkuð nákvæm- lega hvar sá sem hringir inn er staddur þegar hann hringir en það getur t.a.m. stytt þann tíma sem líð- ur þar til björgunaraðilar koma á svæðið. Þetta er sérstaklega mik- ilvægt ef sá sem lendir í nauð er ekki með á hreinu hvar hann er staddur,“ segir í lýsingu á notkunar- möguleikum staðsetningartækni- nnar. Kynna samstarf um nýja staðsetningartækni Neyðarlínu gert kleift að staðsetja GSM-síma Morgunblaðið/Golli Nýja staðsetningartæknin hefur þegar verið tekin í notkun. UM NÆSTU mánaðamót hefst 48. happdrættisár hjá DAS en dregið er vikulega og vinningar eru allt frá fimm þúsund króna húsbúnaðarvinningum upp í tuttugu milljóna króna íbúð- arvinning. Saga DAS er orðin löng: á fundi fulltrúaráðs sjó- mannadagsins vorið 1954 var ákveðið að stofna til flokka- happdrættis. Stjórnvöld tóku málaleitan samtakanna ein- staklega vel og fór þáv. forsætis- ráðherra Ólafur Thors fremstur í flokki. Lögin voru afgreidd frá Alþingi sama dag og þau voru lögð fyrir sem var einstakt nema mikið lægi við á þessum tíma. Fyrsti útdráttur fór fram 3. júlí 1954 og var happdrættinu út- hlutað sex bifreiðum af níu sem fluttar voru inn til landsins á þessum skömmtunartímum. Mega ekki bjóða peningavinninga Stjórnendur Happdrættis DAS telja samkeppnisstöðu sína hafa far- ið mjög versnandi á undanförnum árum og áratugum auk þess sem ný samkeppnislög hafi gert DAS erfitt fyrir þar sem fyrirtæki bjóði nú æ oftar upp á happdrætti með pen- ingavinningum. En samkvæmt lög- um um happdrætti og hlutaveltur frá 1926 er slíkt bannað. Hvorki Happdrætti DAS né SÍBS hafa leyfi til að greiða vinninga út í peningum en Sigurður Ágúst Sigurðsson, for- stjóri Happdrættis DAS, minnir á að DAS hafi skilað hátt í þremur millj- örðum króna í þjóðarbúið á núvirði, þar af hafi um 400 milljónir farið til uppbyggingar dvalarheimila þegar 40% af hagnaði DAS hafi runnið í byggingarsjóð aldraðra. „Og nú stendur til að reisa 60 rýma álmu við Hrafnistu í Reykjavík og á teikni- borðinu er 90 rýma hjúkrunarálma fyrir Hrafnistu í Hafnarfirði.“ Sigurður telur að landslagið í öldrunarmálum væri ólíkt því sem það nú er ef ekki hefði komið til mik- ilvægt framlag af hálfu DAS. Sjómannadagsráð, en Happdrætti DAS er starfrækt á þess vegum, rek- ur dvalarheimilið Hrafnistu í Laug- arásnum, í Hafnarfirði og dval- arheimili að Víðinesi á Kjalarnesi. Á þessum heimilum dvelja um 700 manns og álíka fjöldi starfar þar. Nýlega var gerður samningur við heilbrigðisráðuneytið um rekstur dvalarheimilisins að Víðinesi og þá var gerður samstarfssamningur við Akureyrarbæ um rekstur dval- arheimilis. Sigurður segir að mikil þörf sé á frekari uppbyggingu þar sem öldr- uðum muni fjölga mjög á næstu ára- tugum. „En á sama tíma stendur Happdrætti DAS – og SÍBS raunar einnig – mjög höllum fæti í mikilli samkeppni á markaði þar sem við höfum ekki fengið heimild til þess að greiða út vinninga í peningum.“ Vöruhappdrætti þrífast vart lengur Sigurður leggur áherslu á að þetta atriði skipti miklu máli. Er- lendis hafi það sýnt sig að það séu nær eingöngu peningahappdrætti sem plumi sig: „vöruhappdrætti finnast varla lengur á Evrópska efnahagssvæðinu og þau sem enn eru til ná engu flugi, það er einfald- lega staðreynd. Og samkeppnin hér heima er orðin enn harðari en áður því nú geta fyrirtæki sett á laggirnar happdrætti og greitt vinninga út í peningum án þess að við það séu gerðar athugasemdir. Því til viðbótar er ekkert eftirlit haft með þess- um svokölluðu happdrættum, sem stundum eru kallaðir leikir eða eitthvað annað. Þess er t.d. hvergi krafist að fram komi að vinningarnir séu skattskyldir.“ Sigurður bendir á að Sam- keppnisráð hafi komist að þeirri niðurstöðu vorið 2000, eftir að hafa tekið fyrir erindi Happdrættis DAS um sam- keppnisstöðu þess, að happ- drætti sem starfi samkvæmt nú- gildandi sérlögum, eins og DAS og SÍBS, ættu að njóta jafnræðis hvað varðar skilmála fyrir rekstr- inum þannig að virk samkeppni geti þróast. „Samkeppnisráð beindi þeim tilmælum til yfirvalda að beita sér fyrir að sam keppnisstaða DAS og SÍBS yrði jöfnuð. En það hefur ekk- ert bólað á efndum,“ heldur Sig- urður áfram, „og mér virðist sem yf- irvöld hafi lítinn sem engan áhuga á að skapa þessum þjóðþrifa happ- drættum eðlilegan starfsgrundvöll“. Sigurður segir að nauðsynlegt sé að happdrættinu verði gert kleift að greiða vinninga út í peningum svo það geti staðið jafnfætis þeim happ- drættum, leikjum og orðaleikjum sem hafi skotið upp kollinum á síð- ustu fimmtán árum eða svo. Aðspurður segir Sigurður að þótt mun fleiri bítist nú á markaðinum en áður var hafi „kakan“ ekki stækkað mikið. „Við höfum þó reynt að fara ýmsar leiðir til þess að mæta sam- drætti sem óneitanlega hefur orðið. Það er til dæmis gaman að geta sagt frá því að fyrir nokkrum árum var frændum okkar Færeyingum boðið að taka þátt í happdrætti DAS og þeir hafa verið virkir þátttakendur síðan. Það má því segja að Happ- drætti DAS sé eina íslenska happ- drættið sem skapi gjaldeyristekjur.“ Sigurður Á. Sigurðsson forstjóri Happdrættis DAS Óviðunandi samkeppnisstaða Sigurður Ágúst Sigurðsson. Morgunblaðið/Sverrir „HERBALIFE hefur verið notað í fjölda- mörg ár af hundruðum þúsunda fólks og höf- um við aldrei séð neitt sem bendir til þess að notkun þess hafi valdið aukaverkunum.“ Þetta segir dr. Lawrence May, bandarískur pró- fessor í lyflæknisfræði við UCLA-háskóla í Kalíforníu, sem einnig er formaður lækna- og vísindanefndar Herba- life. Á miðvikudag átti hann fund með Magn- úsi Jóhannssyni lækni vegna rannsóknar sem Magnús gerði ásamt öðrum um auka- og milliverkanir náttúru- lyfja, náttúruvara og fæðubótarefna og sagt hefur verið frá í Morgunblaðinu. Niðurstaða rannsóknarinnar er að auka- og milliverkanir vegna náttúruefna virðist vanskráðar hérlendis og að nauðsynlegt sé að auka fræðslu um náttúruefni. Í rannsókninni komu fram upplýsingar um 253 aukaverkanir og 13 milliverkanir sem taldar voru af völdum nátt- úruefna og er vöruflokkurinn Herbalife oftast talinn hafa valdið aukaverkun. Dr. May segir ástæðu þess vera hversu útbreiddar vör- urnar eru hér á landi. Getgátur aftur í tímann Hann segir jurtirnar sem not- aðar eru við framleiðslu Herbalife- varanna hafa verið taldar öruggar í mörg ár og aldrei hafi verið sýnt fram á að notkun þeirra geti haft aukaverkanir í för með sér. „Við teljum að varan okkar hafi ekki valdið þessum aukaverkunum, við teljum að hefði eitthvað annað verið skoðað í rannsókninni, eins og t.d. hvort fólk borðaði einhverja ákveðna matvöru, hefði allt eins verið hægt að tengja það við þær aukaverkanir sem þarna eru nefndar.“ 33% þeirra lækna sem svöruðu könnuninni höfðu orðið varir við, eða hugsanlega orðið varir við, aukaverkun hjá sjúklingi sem þeir töldu að rekja mætti til neyslu náttúrulyfja, náttúruvara eða fæðubótarefna. „Þetta eru getgát- ur aftur í tímann. Læknar, sem hafa haft sjúklinga í meðferð sem hafa samtímis verið á náttúruefn- um, hafa hugsað með sér að mögu- lega gæti náttúruefnið verið orsök vandans. Þeir höfðu engar upplýs- ingar eða sönnun fyrir því að notk- un vörunnar hefði valdið þessum vandamálum.“ Læknar spyrji sjúklinga sína hvort þeir noti náttúruvörur Milliverkun er þegar eitthvert efni eða lyf hefur áhrif á virkni annars lyfs sem viðkomandi tekur. „Fræðilega séð er mögulegt að jurtir í náttúruefnum geti haft áhrif á virkni annarra lyfja. Því tel ég að læknar eigi að spyrja sjúk- linga sína hvort þeir taki inn slík efni. Vörurnar okkar eru ekki náttúrulyf, þær eru fæðubótarefni sem innihalda vítamín og stein- efni,“ segir dr. May. Blóðþynningarlyfið warfarín var oftast greint sem milliverkandi lyf í rannsókninni og segir dr. May að ákveðnar matartegundir geti haft áhrif á verkun lyfsins. Ekki megi t.d. borða mikið spínat samhliða lyfinu. Þannig geti milliverkun allt eins komið fram vegna mataræðis og inntöku fæðubótarefna. Í rannsókninni var greint frá átta tilfellum lifrarbólgu sem voru talin aukaverkun af notkun Herba- life. Dr. May telur að tilviljun ráði því að læknarnir hafi dregið þá ályktun að lifrarbólgan tengdist notkun Herbalife. Margir neyti vara fyrirtækisins og gætu lækn- arnir hafa dregið þá ályktun að sjúkdómar væru afleiðing notkun- ar Herbalife þegar ástæðan gæti verið allt önnur. Í rannsókninni sé hvergi fullyrt að Herbalife-vörur hafi valdið þeim aukaverkunum sem þarna eru nefndar. „Við vitum að vörurnar inni- halda efni sem hefur verið sannað að eru örugg. Jurtirnar hafa verið taldar öruggar í mörg ár og hefur virkni þeirra verið ítarlega rann- sökuð. Vörurnar hafa verið not- aðar af hundruðum þúsunda manna án þess að notkunin hafi verið tengd þessum læknisfræði- legu vandamálum,“ segir dr. May. Hann segir að Herbalife-vörurnar sem seldar eru á Íslandi innihaldi ekki efni sem hafi lífeðlisfræðilega virkni, þau hafi góð áhrif á líkam- ann og styðji eðlilega og heilbrigða starfsemi hans. Fundað með sölumönnum Dr. May segir að sölumenn fái leiðbeiningar um að spyrja við- skiptavini sína alltaf hvort þeir taki inn einhver lyf, hvort þeir séu í meðferð hjá lækni og hvort þeir hafi fengið einhver sérstök fyir- mæli um mataræði. Hann segist telja að betur henti að selja Herbalife í heimahúsum en apó- tekum þar sem sölumennirnir myndi persónulegt samband við viðskiptavininn og hjálpi honum að breyta um lífsstíl. Í vikunni átti hann fund með dreifingaraðilum Herbalife á Ís- landi, en hér á landi eru um 200 virkir sölumenn Herbalife-varanna skráðir. Dr. May segir að tilgangur fundarins hafi verið að minna sölu- menn á að segja viðskiptavinum sínum að láta lækninn sinn vita að þeir taki inn náttúruefni og mögu- leikann á milliverkunum með lyfj- um eins og warfarín. Einnig að Herbalife sé ekki ætlað börnum og ófrískum konum, nema í samráði við lækni, eins og komi fram á öll- um umbúðum fyrirtækisins. Hann segir að læknar þurfi að vera sér betur meðvitandi um að spyrja sjúklinga sína hvort þeir taki fæðubótarefni eða náttúru- vöru. „Einnig þyrfti að leggja meiri áherslu á það í læknanámi hvaða árangri megi ná með nátt- úruefnum,“ segir dr. May. Formaður lækna- og vísindanefndar Herbalife Herbalife hefur ekki valdið aukaverkunum Dr. Lawrence May segir að hundruð þúsunda manna noti Herbalife um heim allan. Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.