Morgunblaðið - 19.04.2002, Blaðsíða 21
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 2002 21
RAFSUÐUVÉLAR
MIKIÐ ÚRVAL
HAGSTÆTT VERÐ
Pentur ehf., Smiðjuvegi 6, Kópavogi,
sími 577 7705 - fax 587 1117 - www.pentur.is
Pentur ehf.
Bjóðum upp á gott úrval flot-, viðgerðarefna og Epoxy-efna
frá Rescon Mapei.
Við erum fluttir í
glæsilegt húsnæði á
Smiðjuvegi 6, Kópavogi.
8., 9. og 10
AFGREIÐSLU vísindafrumvarp-
anna þriggja verður frestað til
haustsins og koma þau því ekki til af-
greiðslu nú á vorþinginu, að því er
fram kom í yfirlýsingu Tómasar Inga
Olrich menntamálaráðherra í ræðu
hans á ársfundi Rannsóknarráðs Ís-
lands (Rannís) í gær.
Vísindafrumvörpin þrjú svoköll-
uðu eru frumvarp forsætisráðherra
um Vísinda- og tækniráð, frumvarp
menntamálaráðherra um opinberan
stuðning við vísindarannsóknir og
frumvarp iðnaðarráðherra um opin-
beran stuðning við tækniþróun og
nýsköpun í þágu atvinnulífsins. Á
ársfundi Rannís í fyrra greindi Björn
Bjarnason þáverandi menntamála-
ráðherra frá fyrirhuguðum breyting-
um á lögum um Rannís og voru frum-
vörpin þrjú smíðuð í kjölfarið.
Nokkrar umræður hafa skapast um
frumvörpin og í umsögnum um þau
örlaði sums staðar á tortryggni og
jafnvel hagsmunabaráttu, að sögn
menntamálaráðherra. Hann sagði
það endurspeglun á þeim raunveru-
leika sem vísindasamfélagið byggi
við, þ.e. miklar kröfur og lítið fjár-
magn.
Freistað að renna sterkari stoðum
undir samstöðu um málið
Tómas Ingi sagði vísindafrum-
vörpin þrjú staðfestingu á skilningi
stjórnvalda á mikilvægi vísinda fyrir
samfélagið og sjálfstæði þess. Hann
sagði það eindreginn vilja stjórn-
valda að vísindafrumvörpin nái fram
að ganga. Vinna við þau í þinginu
hefði gengið vel og efnislega væri lít-
ið því til fyrirstöðu að klára þau.
Nýmælin í vísindasamfélaginu
sagði Tómas Ingi vera meðal mikil-
vægustu mála þjóðarinnar. „Frum-
vörpin þrjú um nýskipan vísindamála
eru einmitt stórt mál og vel unnið
mál. Það er of gott og of stórt til að
um það ríki ekki almenn sátt og sam-
staða. Um leið og ég ítreka þann ein-
dregna ásetning ríkisstjórnarinnar
að ráðast í þessar breytingar, vil ég
hér með lýsa því yfir að ákveðið hefur
verið að gefa tóm til að ná meiri al-
mennri samstöðu um þessi mikil-
vægu nýmæli og eyða misskilningi
sem upp hefur komið um mikið fram-
faramál. Það verður því ekki afgreitt
á þessu þingi en verður lagt fyrir í
haust og þá afgreitt. Sumarið verður
nýtt til að skoða málið í heild, meðal
annars í ljósi þess starfs sem unnið
hefur verið innan nefnda Alþingis, og
þess verður freistað að renna sterk-
ari stoðum undir samstöðu um málið.
Það er jafnframt skref í þá átt að
rækta með okkur gagnkvæma virð-
ingu og traust sem ríkja þarf milli
vísindaheims, atvinnulífs og stjórn-
málanna,“ sagði Tómas Ingi Olrich.
Örfáir agnúar slípaðir í sumar
Formaður Rannís, Hafliði P. Gísla-
son prófessor við Háskóla Íslands,
lýsti ánægju með yfirlýsingu
menntamálaráðherra á ársfundinum
í gær. Hann sagðist ekki óttast leng-
ur að málið gufaði upp eftir yfirlýs-
ingu ráðherra. „Ég veit að við mun-
um öll nota sumarið vel til að slípa
þessa örfáu agnúa sem ég sé á
þessu,“ sagði Hafliði.
Rannís fagnaði frumvarpinu á sín-
um tíma í umsögn sinni um það en
sagði einnig að höfuðmáli skipti
hvernig skipað yrði í Vísinda- og
tækniráð, en það er meðal þess sem
deilur hafa skapast um.
Steinunn Thorlacius, doktor í sam-
eindaerfðafræði, hlaut hvatningar-
verðlaun Rannís fyrir árið 2002.
Steinunn stýrir rannsóknum á
brjóstakrabbameini hjá Urði, Verð-
andi, Skuld, en hún hefur starfað hjá
fyrirtækinu frá því að hún lauk dokt-
orsnámi árið 2000.
Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra á ársfundi Rannís
Afgreiðslu vísinda-
frumvarpanna frest-
að til haustsins
Morgunblaðið/Sverrir
Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra afhenti Steinunni Thorlacius sam-
eindaerfðafræðingi hvatningarverðlaun Rannís á ársfundi ráðsins í gær.
SAMRÆMD vísitala neysluverðs í
EES ríkjum var 110,7 stig í mars sl.
og hækkaði um 0,5% frá febrúar. Á
sama tíma hækkaði samræmda vísi-
talan fyrir Ísland um 0,4%. Frá mars
2001 til jafnlengdar árið 2002 var
verðbólgan, mæld með samræmdri
vísitölu neysluverðs, 2,3% að meðal-
tali í ríkjum EES, 2,5% í Evru ríkjum
og 9,1% á Íslandi. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Hagstofu Íslands var
mesta verðbólga á evrópska efna-
hagssvæðinu á þessu tólf mánaða
tímabili var á Íslandi 9,1% og á Ír-
landi 5,1%. Verðbólgan var minnst,
0,4% í Noregi og 1,5% í Bretlandi.
Mest verðbólga á Ís-
landi af EES-ríkjum
Alltaf á þriðjudögum