Morgunblaðið - 05.05.2002, Blaðsíða 1
MORGUNBLAÐIÐ 5. MAÍ 2002
104. TBL. 90. ÁRG. SUNNUDAGUR 5. MAÍ 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
June Anderson syngur á tvennum tónleikum
á Listahátíð, 20. og 22. maí. Í einkasamtali við
Bergþóru Jónsdóttur segir hún frá söngnum,
ást sinni á Liszt, hlutverkunum sem hafa gefið
henni mest, og frá þörfinni fyrir að reyna stöð-
ugt fyrir sér á nýjum sviðum. Hún er ákveðin
og skýr og skoðanir hennar eru umbúðalausar.
Hún er ekkert feimin við að segjast lítið spennt
fyrir rómantíkerunum Schubert og Brahms, og
hikar ekki þegar hún segist taka Mariu Callas
framyfir Joan Sutherland en sumir segja að
June Anderson sé einmitt arftaki þessara
tveggja stórsöngkvenna. 12
„Ég hlustaði á Callas,
– ekki Sutherland“
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
Sunnudagur
5.maí 2002
B
Thor
Heyerdahl
20
Þurfti sérstakt
leyfi ábótans
14
Heildarsýn vantar
á höfuðborgina
10
ÓTTAST er að hundruð manna hafi
drukknað er ferja sökk í skyndileg-
um stormi á Meghna-fljóti í suðaust-
urhluta Bangladesh skömmu fyrir
miðnætti á föstudagskvöld. Heimild-
armönnum bar ekki saman um fjölda
þeirra sem voru um borð, en talið er
víst að skipið, sem var um hundrað
tonn, hafi verið ofhlaðið og jafnvel að
þar hafi verið um 300–400 manns.
Slysstaðurinn er í um 50 kílómetra
fjarlægð frá höfuðborg landsins,
Dhaka. Nær hundrað manns tókst
að synda til lands eða var bjargað um
borð í aðra báta en talið var að marg-
ir hefðu borist með straumum og
roki niður eftir fljótinu. Einnig var
talið að margir hefðu lokast inni í
skipinu. Að sögn sjónvarpsstöðvar-
innar CNN var óttast að fjöldi fórn-
arlambanna gæti numið hundruðum.
CNN hafði eftir fólki sem komst af
að ferjan hefði lent í árekstri við ann-
að skip og sokkið skömmu síðar.
Ferjan hét Salauddin-2 og var á leið
frá Dhaka á næsta áfangastað í borg-
inni Satnal og fannst flakið að
morgni laugardags. Skipinu hafði
hvolft skammt frá borginni Chandp-
ur og var flakið á um 15 metra dýpi,
að sögn opinbers eftirlitsmanns með
fljótasiglingum, Shaidul Islam
Chowdurys. Ekki voru tiltækir
flotkranar og önnur öflug björgunar-
tæki í grenndinni en von var á þeim
frá borginni Barisal síðdegis í gær.
Tvö lík höfðu fundist um hádegið í
gær og fjöldi angistarfullra ættingja
safnaðist saman í Satnal-borg og
beið frétta af afdrifum farþeganna.
Þrjú helstu fljót landsins renna
saman skammt frá slysstaðnum og
falla síðan út í Bengalflóa. Skyndi-
legt rok er algengt um þetta leyti árs
í Bangladesh og ferjuslys einnig
mjög tíð enda slíkir farkostir algeng
samgöngutæki þar sem mörg fljót
renna um svæðið. Munu um 3.000
skip annast fólksflutninga, þar af
nær 300 í eigu ríkisins. Bangladesh
er eitt fátækasta land heims og þar
búa um 130 milljónir manna.
Lítil ferja sekkur í slæmu veðri á fljóti í suðausturhluta Bangladesh
Talið að hundruð hafi farist
Chandpur í Bangladesh. AFP.
KONA í Toulouse gengur framhjá
kosningaspjöldum með myndum af
Jacques Chirac, forseta Frakk-
lands, og keppinaut hans, Jean-
Marie Le Pen. Seinni umferð for-
setakosninganna fer fram í dag og
er niðurstöðunnar beðið með mik-
illi eftirvæntingu.
Þótt flestir geri ráð fyrir að Chir-
ac sigri með yfirburðum gæti það
styrkt mjög stöðu Le Pens og þjóð-
ernisöfgaflokks hans í næstu þing-
kosningum ef frambjóðandinn
fengi mun meira fylgi en í fyrri um-
ferðinni en þá fékk hann nær 17%.
Chirac hlaut hins vegar tæp 20% en
hann var kjörinn í embætti forseta
árið 1995.
Um 41 milljón manna er á kjör-
skrá en kjörsókn var óvenju léleg í
fyrri umferðinni. Öll helstu dagblöð
Frakklands birtu í gær hvatningu
undir stórum fyrirsögnum til kjós-
enda um að taka Chirac fram yfir
Le Pen. Vinstriblaðið Liberation,
sem lengi hefur gagnrýnt Chirac
harkalega, sagði að kosningarnar
væru „þjóðaratkvæðisgreiðsla“ um
grundvallargildi lýðveldisins. Le
Parisien sagði að kosið væri á milli
lýðræðissinna og öfgamanns. „Höf-
um ekki lýðræðið að leiksoppi.
Greiðum atkvæði – og kjósum lýð-
ræðið,“ sagði blaðið. Kommún-
istablaðið L’Humanité hvatti einnig
fólk til að kjósa hægrimanninn
Chirac fremur en Le Pen. Á forsíðu
France-Soir var fyrirsögnin aðeins
eitt orð í ofurstærð: „Kjósið!“
Kosningabaráttunni lauk á föstu-
dag og sagði Chirac þá meðal ann-
ars að hann liti á Le Pen sem „per-
sónulegan óvin“ sinn. Andstæð-
ingurinn kvartaði á hinn bóginn
undan því að hafa sætt óeðlilegum
andróðri og sagði að beitt yrði víð-
tækum kosningasvikum til að hafa
af sér sigurinn.
AP
Hvetja Frakka til að kjósa Chirac
Gáfuleg
fegurð
Bangkok. AP.
ÚTLITIÐ er aðeins yfirborð og
þess vegna verður einnig reynt
að mæla greind og andlega
heilsu þeirra sem komast í úr-
slit í næstu fegurðarsamkeppni
kvenna í Taílandi.
Wajeeporn Raviwanpong,
sem stjórnar keppninni, segir
að 20% af heildarstigatölu
hvers keppanda muni ráðast af
mælingunum. Munu sérfræð-
ingar mæla greindarvísitöluna
með prófum, einnig verður til-
finningagreind könnuð og geð-
læknar munu leggja spurning-
ar fyrir stúlkurnar.
Hvalveiðar
stöðvaðar
Seattle. AP.
ALRÍKISDÓMARI í Bandaríkjun-
um hefur mælt fyrir um tímabundið
bann við að Makah-indíánar á
Kyrrahafsströndinni megi veiða allt
að fimm hvali á ári í samræmi við
hefðir sínar. Um er að ræða tegund-
ina sandlægju og telja umhverfis-
verndarsamtökin Dýrasjóðurinn í
New York að stofninn sé í hættu.
Makah-indíánar minna á samning
ættbálksins við stjórnvöld árið 1855
um réttinn til hvalveiða.
Tegundin sandlægja, öðru nafni
gráhvalur, var árum saman talin
vera í mikilli hættu eins og fleiri
hvalategundir en var loks tekin af al-
þjóðlegum lista yfir hvali í útrýming-
arhættu árið 1996. Makah-indíánar
fengu þá leyfi til að veiða fimm hvali
á ári. Niðurstaða rannsóknar á veg-
um stjórnvalda í fyrra var að veið-
arnar myndu ekki valda tjóni enda
væru um 26.000 dýr í stofninum.
YASSER Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, hefur sett á laggirnar nefnd
sem á að fara yfir stjórnsýslu heima-
stjórnarinnar með umbætur og end-
urreisn í huga. Einn af ráðherrum
hans, Nabil Amr, sagði af sér á
stormasömum fundi í gær vegna
deilna um mannaskipti í stjórninni.
Stjórn Arafats, sem tók við 1994, hef-
ur árum saman legið undir þungu
ámæli vegna spillingar.
Amr sagðist hafa lagt til að skipuð
yrði stjórn til bráðabirgða til að kljást
við helsta vandann eftir herferð Ísr-
aela gegn stöðvum Arafats og vildi
Amr bíða með að fá til liðs við hana
hæft fólk úr röðum Palestínumanna
sem búsettir eru utan hernumdu
svæðanna.
Meir Sheetrit, dómsmálaráðherra
Ísraels, sagði í gær að Ariel Sharon
forsætisráðherra myndi verða fulltrúi
landsins á væntanlegri alþjóðaráð-
stefnu í sumar um frið í Mið-Aust-
urlöndum „jafnvel þótt Arafat verði
andspænis honum. Þess verður ekki
krafist að þeir takist í hendur“.
Viðræðunefnd Palestínumanna,
sem reynt hefur að semja við Ísraela
um lausn þráteflisins í Fæðingar-
kirkjunni í Betlehem, sleit fundum í
gær í mótmælaskyni við afstöðu
Ísraelsstjórnar. Enn eru um 200 Pal-
estínumenn, þar af allmargir vopnað-
ir, í kirkjunni sem er umsetin her-
mönnum.
Hörð átök
í stjórn
Yassers
Arafats
Einn af ráðherr-
unum segir af sér
Ramallah, Betlehem. AFP.