Morgunblaðið - 05.05.2002, Síða 14

Morgunblaðið - 05.05.2002, Síða 14
14 SUNNUDAGUR 5. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Þ AÐ eru danska fyrirtækið Jazzmar og ís- lenska fyrir- tækið Mógúll- inn sem flytja Shaolin-munk- ana hingað til lands og sagði Helgi Björns- son, kynningarstjóri sýningarinnar, að hér væri um að ræða vægt til orða tekið „óvenjuleg og glæsileg sýning,“ eins og hann komst að orði. „Hér er á ferðinni ævaforn munkaregla frá Kína, nánar tiltekið frá Henan-héraði og það að þeir setja upp leiksýningu með vestrænum sviðs- og tækni- mönnum býður upp á ólíklegan kokkteil, enda þurfti langa ígrundun og sérstakt leyfi ábótans í Kína,“ sagði Helgi. Rólegheita kung fu-meistarar Saga Shaolin-munkanna er æva- gömul, en upphaf reglunnar er rakið aftur yfir 1500 ár. Reglan er upp- runnin í Henan-héraði í Kína eins og áður sagði og leituðu þessir Zen- Búddistamunkar öðru fremur eftir því að lifa í friði og spekt. Vildu fá að vera í friði og stunda sína trúarlegu íhugun, en á löngum tíma mátti búast við ófriði af og til. Óvinveittir ætt- flokkar og herstjórar sóttust reglu- bundið eftir því að koma reglunni á kné, ekki hvað síst vegna auðæfa sem sem stórfengleg musteri þeirra höfðu að geyma. Til að mæta þessu and- streymi gripu hinir friðelskandi munkar til þess að þróa með sér sjálfsvarnarlistina kung fu sem var þekkt sem líkamsrækt allt frá fimmtu öld fyrir Krist. Kung fu er í dag bæði stunduð sem líkamsrækt svo og sem sjálfsvarnar- list. Upprunalega var kung fu stund- að án vopna, en síðari tíma útfærslur eru bæði með vopnum og án. Kung fu, líkt og karate og tae quon do kall- ar á samhæfingu líkama og anda í þá veru að beita líkamanum án „af- skipta“ tilfinninga og vitsmuna. Ein- beitingin verður með þvílíkum endemum, að þeir sem ná fullkomnu valdi yfir listinni, líkt og Shaolin- munkarnir, geta látið höggin dynja á sjálfum sér og hver öðrum, brotið múrsteina með berum höndum og fótum og lagst á eggvopn án þess að kenna sér meins eða á þeim sjái. Þeir ná auk þess þvílíku valdi yfir líkman- um að snjöllustu fimleikamenn myndu vera fullsæmdir af tilþrifun- um sem þeir geta sýnt í stökkum og fimi. Shaolin-munkarnir sem hingað eru að koma nýta hina stórfenglegu þekkingu sína til hins ýtrasta á sýn- ingunni. Að sögn Helga hefur sýn- ingin, sem ber heitið „Wheel of Life“, farið sannkallaða sigurför um heim- inn að undanförnu og virt blöð á borð við The Times hafa hyllt sýninguna sem þá bestu á sviði sem sést hefur á árinu. „Þeir hafa verið í Bandaríkj- unum, Ástralíu, Bretlandi og hingað koma þeir frá Finnlandi. Að sýning- unni koma 25 munkar, en sagan sem er sögð er af baráttu Shaolin-munk- Shaolin-munkar sýna „Lífshjólið“ Farið í loftköstum um sviðið. Litadýrðin er mikil. Næstkomandi laugardag, 11. maí, verður hér á ferðinni hópur kínverskra munka sem hafa slegið í gegn með magnaðri leiksýningu víða um heim. Þetta eru Shaolin- munkar sem eru orðlagðir fyrir næstum yfirnátt- úrulegan andlegan og lík- amlegan styrk. Þeir hafa m.a. náð fágætum tökum á kung fu-sjálfsvarnarlistinni. Þeir verða með tvær sýn- ingar í Laugardalshöllinni. Þurfti sérstakt leyfi ábótans

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.